Dagur - 21.08.1998, Blaðsíða 2
18-FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
LÍFIÐ í LANDINU
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlar þú að
gera?
„Það er alltafjafn
gaman að fá til sín
brúðhjón."
Marinó ætlar í óvissu-
ferð með
Ameríkanana.
Tek á móti brúðhj ónum
Ingveldur Bjarnadóttir, húsfreyja í Argerði,
Svarfaðardal, og maður hennar, Þröstur Ein-
arsson, reka glæsilegt lítið „hótel" í miðri
sveitasælunni og ætla að taka á móti brúð-
hjónum um helgina sem eyða brúðkaupsnótt-
inni á þessum yndislega stað. „Það verður
nóg að gera við að skreyta og gera brúðhjón-
unum helgina eftirminnilega," segir Inga og
bætir við: „Það er alltaf jafn gaman að fá til
sín brúðhjón."
En síðan eru líka börnin og barnabörnin í
heimsókn þannig að það verður fjörug helgi.
„Við finnum okkur eflaust eitthvað skemmti-
Iegt að gera, til dæmis veiða og njóta bara
náttúrunnar,“ segir Inga.
Enda er varla hægt að komast hjá því að
njóta náttúrunnar í jafn fallegu umhverfi og
Inga ætlar einmitt að vinna í garðinum sínum
fyrir haustið og láta hendur standa fram úr
ermum.
Jeppaferð að Goðafoss
„Ég fer með 70 manns frá bandarískri sjón-
varpsstöð í óvissujeppaferð til Goðafoss og
niður Flateyjadal,1' segir Marinó Sveinsson,
eigandi Sportferða, en þetta verkefni er sam-
vinnuverkefni Sportferða og Fjallasýnar á
Húsavík.
„Við náum í hópinn á jeppum, eftir að þau
hafa klárað hvalaskoðunarferðina brunum
með þau um íslenskt landslag sem á eflaust
eftir að koma á óvart,“ segir Marinó.
En síðan lýkur reisunni með ferð til Akur-
eyrar þaðan sem flogið er aftur heim til
Bandaríkjanna.
Nota helgina til að
vinna og kíkja á list-
viðburði.
Kiki á Listasumar
Fanney Hauksdóttir, arkitekt, ætlar að nota
helgina í ýmislegt; teikna hús og gera eitthvað
skemmtilegt. „Við erum að vinna að viðbygg-
ingu við Lundarskóla hérna á Akureyri, og ég
ætla að vinna eitthvað í því um helgina,11 segir
Fanney. En Fanney ætlar líka að vinna heima
við; þar sem hún ætlar að olíubera parketið
sem er nýbúið að leggja. Það hafa verið marg-
ar skemmtilegar uppákomur í sumar á Lista-
sumrinu og Fanney ætlar að athuga hvort
eitthvað áhugavert sé í boði um helgina. „Ég
kannski kíki aðeins á Listasumarið um helg-
ina þegar ég er búin að vinna,“ segir Fanney
Hauksdóttir, arkitekt.
Kristján Jóhannsson söngvari hefur lengi verið í fremstu röð stórsöngvara í
heiminum og mun halda stórtónleika í heimabæ sínum, Akureyri, í október
næstkomandi.
■ LÍF OG LIST
Uppbygging
sjálfsins
„Ég er mik-
ið fyrir
bækur sem
eru upp-
byggilegar
fyrir sjálfið," segir Ingveldur Yr
Jónsdóttir, söngkona, en hún
segist mikið glugga í bækur
sem eru í þessum dúr. „Núna
síðast var ég að lesa bók sem
heitir Horfst í augu við með-
virkni, sem er mjög góð,“ segir
Ingveldur og bætir við: „Én
ein af mínum uppáhaldsbók-
um er Celestine handritin,
sem er mjög sérstök.“
Einföld tónlist meö boðskap
„Ég hlusta ekki endilega á sí-
gilda tónlist á hverjum degi,
þrátt fyrir að ég vinni við
hana,“ segir Ingveldur Yr. En
segist halda mikið upp á trúbadora með boð-
skap.
„Tónlist sem er einföld í flutningi, hefur boð-
skap og innihaldsríka texta er í miklu uppáhaldi
hjá mér,“ segir Ingveldur og nefnir til sögunnar
tónlistarmenn á borð við Sting, Söru Mc Laugh-
an, Jewel og Alison Crowes, sem er í miklu
uppáhaldi hjá henni.
Óbærilegur léttleiM
geiimnyndaima
„Uppháhaldsmyndin mín þessa
dagana er myndin The Edge,
sem fjalllar um hvernig fólk tek-
ur á Iífinu,“ segir Ingveldur Yr.
Annars segist Ingveldur Yr
vera mikið fyrir geimmyndir á borð við Arma-
geddeon og The fífth element, þrátt fyrir að al-
mennt sé hún ekki mikið fyrir hasar. „En mynd-
irnar verða að hafa boðskap og myndin The un-
bearable lightness of beeing, er í uppáhaldi og
höfðar mjög vel til mín,“ segir Ingveldur Yr.
FRÁ DEGI TIL DAGS
Lífinu verður að lifa með því að hugsa
ffam, en það skilst ekki nema með því
að hugsa aftur. Sören Kirkegaard.
Þau fæddust 21. ágúst
• 1936 fæddist bandaríski körfuboltaleik-
arinn Wilt Chamberlain.
• 1933 fæddist Janet Baker, mezzo-sópr-
an frá Englandi.
• 1920 fæddist breski rithöfundurinn og
bóksalinn Christopher Robin Milne, en
er kunnari fyrir það að fað’ir hans, A.A.
Milne, skrifaði bækurnar um Bangsí-
mon fyrir soninn.
• 1906 fæddist Isadore „Friz“ Freleng,
sem skapaði margar ódauðlegar teikni-
myndahetjur á borð við Kalla Kanínu
og félaga hans
Þetta gerðist 21. ágúst
• 1011 mun Njálsbrenna hafa átt sér
stað.
• 1238 var Orlygsstaðabardagi háður í
Blönduhlíð í Skagafirði, en þar börðust
þrjár voldugustu ættir landsins og létu
nærri 60 manns lífið.
• 1321 voru 160 Gyðingar brenndir á
báli í Frakklandi.
• 1560 mun Tycho Brahe fyrst hafa feng-
ið áhuga á stjarnfræði.
• 1831 átti sér stað þrælauppreisn í Virg-
iníu, Bandaríkjunum.
• 1943 var Gromyko gerður að sendi-
herra Sovétríkjanna í Bandaríkjunum.
• 1986 hófst eldgos í Kamerún sem varð
nærri 2.000 manns að bana.
• 1991 Iýsti Lettland yfír sjálfstæði sínu
frá Sovétríkjunum.
Vísa dagsins
Það var Örn Arnarson sem orti þessa al-
kunnu stöku um Iýðræðishefðina á Is-
landi:
Hdvært tal er heimskra rök.
Hæst t tómu hylur.
Oft er viss í sinni sök
sá, er ekkert skilur.
Afmælisbam dagsins
21. ágúst árið 1904 fæddist William
„Count“ Basie, píanóleikari og
djassari af guðs náð, sem stjórnaði
stórsveit sinni um nærri hálfrar ald-
ar skeið af stakri snilld. Meðal
þeirra sem léku með hljómsveitinni
var Lester Young, og svo söng Billie
Holliday með henni um skeið.
Count Basie lést árið 1984 úr
krabbameini.
Góður hundur
Kona ein var að vinna' í garðinum þegar
hún tók eftir því að stóri hundurinn
hennar var með eitthvað í munninum
sem hann hristi. Hún fór til hans og sá
að hann var með kanínu. Skelfingu lostin
mundi hún eftir þvf að barn nágrannans
átti einmitt kanínu og hélt að hundurinn
hefði komist í búrið og drepið kanínuna.
Hún flýtti sér því að þrífa kanínuna og
setja hana í búrið. Nokkru seinna sér hún
lögreglubíl með blikkandi ljós við hús ná-
grannans. Hún spurði hvað væri um að
vera og Iögreglumaðurinn sagði: „Kanína
þeirra dó í gær og var grafin en einhver
bijálæðingur hefur grafið hana upp og
sett hana aftur í búrið.“
Veffang dagsins
A þessu vefsetri eru góðar upplýsingar
handa þeim sem eru að undirbúa ferða-
Iög um heiminn. Round-the-World Tra-
vel Guide er á www.travel-library.com/-
rtw/html/index.html