Dagur - 21.08.1998, Blaðsíða 10
vr
26 - FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1 9 U ti
FERÐ ALÍFIÐ
A FERÐALAGIUM
SNÆFELLSBÆR
Útiveran er sígild
Útiveran er best í Ólafsvík enda mögu-
leikarnir ótæmandi og margt hægt að fara
um suðvesturhorn nessins ef maður hef-
ur þar miðstöð. Ferðir á Snæfellsjökul frá
Arnarstapa eru sígildar ef veðrið er gott,
skipulagðar eru gönguferðir frá Búðum
og Hellnum. I þessum ferðum er gott að
njóta náttúrunnar og kraftsins úr jöklin- sígúd á Snæfe„snesL Hægt
r ,, . r. , , , v. er að fara á Snæfellsjökul ef veðrið er
rra Ulatsvik ma rara t batsferðir og
hvalaskoðunarferðir. Þá er byggðasafnið -------—---------
opið allar helgar frá 11-18. Göngufélag
Snæfellsbæjar er með skipulagðar gönguferðir á þriðjudagskvöldum.
SAND-
GERDI
■húlmavík
Októberfest í ágúst
„Um helgina er ölfestival á Cafe Riis.
Hjá okkur er októberfest í ágúst,“
segir Sigurður Atlason, forstöðumað-
ur upplýsingarmiðstöðvar Hólmavík-
ur. Hátíð þessi er árlegur viðburður
og hefur mælst vel fyrir. Starfsmenn
kaffihússins klæðast á þýska vísu og
undir hljómar þýsk tónlist. „Hér þýð-
ir ekkert að hafa októberfest, þá er
ekkert fólk á ferðinni. Hún var því
færð í endaðan ágúst.“
Sigurður bendir einnig á golfmót sem haldið verður um helgina og sýninguna
„Sjávarskrímsli í Suðurhöfum" sem staðið hefur í allt sumar. Þar er til sýnis Ieður-
skjaldbaka sem fannst í firðinum fyrir 35 árum. Skjaldbaka þessi vegur hvorki meira
né minna en 350 kíló og er rúmir tveir metrar á lengd. Þá er í gangi ljósmyndasýn-
ing þessu tengt.
Ölið verður teigað á Hólmavík um helgina.
V.
I
Kafffiilaðborð-
ið er vinsælt
Fastir liðir eru á dagskránni í
Sandgerði um helgina. Opið
verður í Fræðasetrinu þar
sem fjölskyldur geta komið
og skoðað sjávarminjar og
sjávarlífverur.
Opið verður í þjónustu-
miðstöðinni, sundlaugin er
að sjálfsögðu á sínum stað og
svo er kaffihlaðborðið á veit-
ingastaðnum Vitanum vin-
sælt á sunnudögum.
Listasmiðjan Ný Vídd er
gjarnan með opið hús um
helgar og stundum eru þar
sýningar.
A golfvellinum verður
Opna Sandgerðismótið um
helgina.
I Sandgerði er hægt að
skoða sjávarlífverur.
J
■þorlákshöfn
"N
Fjaran lokkar
Þorlákshöfn er í örstuttu akstursfæri
frá Reykjavík og því um að gera að
skreppa þangað í smá útiveru um
helgina. I Þorlákshöfn er gaman að
labba fjöruna og hægt að velja milli
þess að labba bestu sandíjöru lands-
ins alla leið til Eyrarbakka eða Bjarg-
ið svokallaða út í Selvog. Þessar leið-
ir eru mikið gengnar og auðfarnar.
í Þorlákshöfn er glæsileg sundlaug
og falleg íþróttaaðstaða, golfvöllur-
inn er prýðilegur. Það er lítið mál fyr-
ir fjölskylduna að skreppa í sund eft-
ir að hafa skoðað plöntulíf og fuglalíf í gönguferðinni. Þá er ferðamannafjós á
Laugabökkum þar sem fólk getur fylgst með mjöltum. Um helgar eru gjarnan sýn-
ingar og ýmislegt um að vera í menningarlífinu, sérstaklega hvað söng og hljóðfæra-
leik varðar.
/ Þorlákshöfn má ganga fjöru, annað hvort til
Eyrarbakka eða út í Selvog.
ÍSLAMSFLUE
-gerir fleirum fœrt aö fljúga
Ferðaþjónusta
Kaffi- og handverkshús
Pinghúsinu Grund, 7 km frá Dalvík.
Opið frá 14-19, á öðrum tima
eftir pöntun. S. 466 1547 / 466 1526.
■kirkjubæjarklaustur
Veisla með kammertónlist
SannköIIuð tónlistarveisla
verður í félagsheimilinu
Kirkjuhvoli á Kirkjubæjar-
klaustri um helgina. Þar
verður haldin kammertón-
listarhátíð og stendur hún á
föstudag, laugardag og
sunnudag. Dagskráin er íjöl-
breytileg. Sem dæmi má
nefna að Ólöf Kolbrún
Harðardóttir syngur íslensk
og erlend Ijóð og ameríski
strengjakvartettínn Dvorak
kemur fram. Þá verða tón-
Iistarskólastjórar með aðal- Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur á Kirkjubæjarklaustri
fund sinn þannig að tónlist- _____________________um helgina.______________
inni verður gert hátt undir
höfði.
A Kirkjubæjarklaustri er mikið að gera fyrir ferðamenn. Þar er hestaleiga og
bátaleiga og hægt að komast í golf, gönguferðir og veiðar má komast í nánast
hvar sem er.