Dagur - 21.08.1998, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 - 27
Tkypr.
LANDIÐ
OLAFSFJORDUR
TvísMpt Ólafsfjarðarvatn
„Það eina slupulagða hér um helgina er Opna Coca Cola mótið í
golfi,“ segir Kristján Asgeirsson, ferðamálafulltrúi á Hótel Olafs-
firði. Á Olafsfirði er þó
eitt og annað að sjá eins
og glæsilegt náttúru-
gripasafn, þar sem m.a.
eitt stærsta fuglasafn á
landinu er. Gönguleiðir
eru margar í firðinum til
dæmis merktar leiðir yfir
í Héðinsljörð og Siglu-
ljörð. „Svo er hægt að
labba hér um alla dali og
firnindi."
Olafsfjarðarvatn er
merkilegt fyrir ýmissa
hluta sakir. Það er tvískipt,
bæði salt og ósalt. „Ef þú ert á ákveðnum stöðum gætir þú fengið
hvort heldur sem er silung eða þork,“ segir Kristján. Heimamenn
eru með gallerí þar sem þeir sýna leirmuni og annað „og svo er
nokkuð um að það að menn kíki inn í laxeldisstöðina, kaupi lax og
líti á hvernig þetta gengur fyrir sig.“
Á Ólafsfirði er hægt að veiða þorsk og
siiung í einu og sama vatninu.
■kópasker
"\
Fjölskrúöugt fuglalíf
„Það nú ekkert sér-
stakt um að vera
hérna um helgina,
fyrir utan hið daglega
líf,“ segir Steindór
Sigurðsson, sveitar-
stjóri á Kópaskeri.
Hann segir þó margt
að sjá fyrir ferðamann
á leið um Kópasker.
„Hér er mjög fjöl-
skrúðugt fuglalíf og
skerið hér er kjaftfullt af öllum hugsanlegum fuglategundum.
Þangað er gaman að fara í gönguferðir. Svo er mikið um sel hérna
enda heitir staðurinn Kópasker.“ Steindór bendir á að í nágrenni
Kópaskers eru margar af fegurstu náttúruperlum Islands eins og
Ásbyrgi, Dettifoss og Jökulsárgljúfrið.
„Þá er hér fallegt umhverfi og miklar andstæður. Gönguleiðin frá
Núpskötlu til Rauðanúps er til dæmis skemmtileg gönguleið og fal-
Ieg,“ segir Steindór.
J
i
■neskaupstarur
Dagur á Neskaupstað
„Sóldögg verður að spila hér í Hótel Egilsbúð um helgina. Annars
held ég að það sé ekkert skipulagt," segir Birgir Búason, fram-
kvæmdastjóri hótels Egilsbúðar á Neskaupstað. Ef ferðamaður vilji
njH;a daginn vel á Neskaupstað mælir Birgir með siglingu, tveggja
tíma skipulagðri ferð um flóann, þar sem meðal annars Nípan, eitt
hæsta strandberg, upp úr sjó er skoðað. „Eftir siglinguna er tilval-
ið að skella sér í sund
og golf og fara því
næst á náttúrugripa-
safnið sem er stór-
merkilegt og þar er
hægt að sjá flesta ef
ekki alla steina sem
til eru á landinu. Þá
er tilvalið að enda
daginn með því að fá
sér fínan mat hér á
hótelinu."
Birgir segir nokkuð Frá Neskaupstað.
um gönguleiðir á svæð- --------------------
inu en nefnir vinsæla
leið út í svokallaðan Þorskahelli. Hún sé vel merkt og greiðfær.
Baldvin Ari sigraði bæði í tölti og fjórgangi á Tuma frá Skjaidarvík.
B£karmót Norðurlands
Akureyringar og Vestur Húnvetn-
ingar með flest stigin
Bikarmót Norðurlands fór að þessu
sinni fram á Króksstaðamelum í V-
Hún. Sveitirnar sem þarna kepptu voru
undir merkjum hérðassambanda og
íþróttabandalaga. Mótið var í umsjá
Ungmennasambands Vestur-Húnvetn-
inga og Hestamannafélagsins Þyts.
Léttir sem keppti undir merkjum
Iþróttabandalags Akureyrar bar sigur úr
bítum með 1361,65 stig. I öðru sæti
urðu gestgjafarnir með 1291,91 stig og
í þriðja sæti Ungmennasamband Skagafjarðar
með 1125,62 stig. Ungmennasamband Eyja-
fjarðar varð í ljórða sæti en restina rak svo
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga.
Þingeyingar mættu ekki til leiks.
Félagar Þyts komu mjög sterkir út úr þessu
móti miðað við hve félagið er lítið. Keppt var í
opnum flokki og í unglingaflokki. Þó mótið
væri stigakeppni héraðssambanda var það
einnig einstaklingskeppni.
Úrslitin urðu þcssi:
Opinn flokkur - tölt.
1. Baldvin Ari Guðlaugsson IBA á Tuma frá
Skjaldarvík.
2. Kolbrún Indriðadóttir USVH á Sölva frá
Skáney.
3. HaIldór Gísli Guðnason á Dreyra frá Þóreyj-
arnúpi.
4. Guðjón Björgvinsson UMSS á Garpi frá
Krossi.
5. Bjarni Jónsson UMSS á Lykli frá Flugumýri.
Fjórgangur:
1. Baldvin Ari Guðlaugsson IBA á Tuma frá
Skjaldarvík.
2. HalIdór Gísli Guðnason USVH á Dreyra frá
Þóreyjarnúpi.
3. Gréta B. Karlsdóttir USVH á Dofra frá
Brún.
4. Bjarni Jónasson UMSS á Lykli frá Flugu-
mýri.
5. Herdís Einarsdóttir USVH á Krafti frá Graf-
arkoti.
Fimmgangur:
1. Þórir Isólfsson USVH á Toppu frá Læjar-
móti.
2. Baldvin Ari Guðlaugsson IBA á Or frá Akur-
eyri.
3. Bjarni Jónasson UMSS á Snældu frá Ytra-
Skörðugili.
4. Þór Jónsteinsson UMSE á Seifi frá Skriðu.
5. Arnar Grant IBA á Loga frá Brennihóli.
Gæðingaskeið:
1. Baldvin Ari Guðlaugsson ÍBA á Ör frá Akur-
eyri.
2. Gunnlaugur Jónsson UMSS á Kórónu frá
Garði.
3. Arnar Grant ÍBA á Loga frá
Brennihóli.
4. ErIendur Óskarsson IBA á
Dimmalimm frá Akureyri.
5. Tryggvi Björnsson USAH á Samúel
frá Steinnesi.
Fimiæfingar:
1. Guðrún Magnúsdóttir UMSS á
Jarpskjóna frá Enni.
2. Magnús Lárusson USVH á Alí frá
Þórukoti.
3. Herdís Einarsdóttir USVH á Krafti
frá Grafarkoti.
4. Edda Örnólfsdóttir UMSE á Loga frá Hóla-
koti.
5. Þorsteinn Egilsson UMSE á Hannibal frá
Dæli.
Hindrunarstökk:
1. Matthildur Hjálmarsdóttir USVH á Eldi-
brandi frá Búrfelli.
2. Guðrún Magnúsdóttir UMSS á Jarpskjóna
frá Enni.
3. Þorbjörn Matthíasson IBA á Galsa frá Brún.
4. VaIur K. Valsson USAH á Irpu frá Ármúla.
5. KoIbrún Indriðadóttir USVH á Flipa frá
Grafarkoti.
Skeið 150 metra:
1. Baldvin Ari Guðlaugsson á Ösp frá Brenni-
hóli.
2. Tryggvi Björnsson USAH á Samúel frá
Steinnesi.
3. Halldór P. Sigurðsson USVH á Svertu frá
Höfðabakka.
4. Þór Jónsteinson UMSE á Sindra frá Kirkju-
bæ.
5. Magnús Lárusson USVH á Rögni frá Laug-
arbakka.
Unglingar - íjórgangur:
l.Sonja L. Þórisdóttir USVH á Öld frá Lækj-
armóti.
2. Ragnhildur Haraldsdóttir ÍBA á Gauta frá
Akureyri.
3. Dagný B. Gunnarsdóttir ÍBA á Þokka frá Ak-
ureyri.
4. Eydís Indriðadóttir USVH á Trítli frá Fögru-
brekku.
5. Ásdís H. Sigursteinsdóttir UMSE á Freist-
ingu.
Unglingar - tölt:
1. Ragnhildur Harladsdóttir ÍBA á Gauta frá
Akureyri.
2. Dagný B. Gunnarsdóttir ÍBA á Þokka frá Ak-
ureyri.
3.Sonja L. Þórisdóttir USVH á Öld frá Lækj-
armóti.
4. Þórunn Eggertsdóttir USVH á Snotri frá
Bjargshóli.
5. Ásdís H. Sigsteinsdóttir UMSE á Freistingu.
HESTAR
Kári
Arnórsson
skrifar