Dagur - 21.08.1998, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 - 23
Gítartón-
leikar hjá
Einari
Jónssyni
Listasafn Einars Jónssonar
er eitt þeirra mörgu safna í
Reykjavík sem býður upp
á tónleika á laugardags-
kvöld. í safni Einars eru
fyrstu tónleikarnir klukkan
18, en þá ætlar Kristinn H.
Árnason gítarleikari að
spila á klassískan gítar í
anddyrinu. Um kvöldið,
klukkan 21, ætlar Haf-
steinn Guðmundson
Kristinn H. Árnasonar leikur í anddyri trompetleikari að spila í
safns Einars Jónssonar. garðinum með þátttöku
Götuleikhússins. Á menn-
ingarnótt verður ekki aðeins hægt að skoða höggmyndasýningu á
verkum Einars heldur einnig fyrrum heimili hans í turni safnahússins
við Freyjugötu.
f|©r
Tónlist á
Ingólfstorgi
Fjölskrúðugur hópur tónlist-
armanna kemur fram á Ing-
ólfstorgi á menningarnótt í
boði Hins hússins. Tón-
leikarnir hefjast klukkan
átta með frumsaminni
tónlist Tryggva Hansen í
flutningi hans sjálfs.
Klukkutíma síðar er von
á djasskvartettinum
Fortuna, sem einnig
verður með frumsamda
tónlist. Á eftir þeim tekur
allt önnur tónlist við þegar
Kjartan Ólafsson, Hilmar
Jensson og Matthías Hem-
stock hefja upp elektróníska
tóna, í Skammdegi 2, eftir Kjartan.
Síðustu á sviðið er Magga Stína ásamt
hljómsveit og leika lög af væntanlegum geisladiski.
PPPönk spil-
ar á opnun á
menning-
arnótt.
Vísindalistamaður I Nýló
Kanadíski listamaðurinn Juan Gauer opnar sýningu í Nýlistasafninu
á laugardag. Gauer fæddist í Hollandi fyrir rúmum átta áratugum,
bjó lengi í Suður-Ameríku, en hefur síðustu þrjátíu árin verið búsettur
í Kanada. Þar hefur hann mest fengist við þrívíðar innsetningar í
samvinnu við vísindamenn, sem tengjast pólitískri meðvitund hans.
Gauer kom hingað til lands fyrir viku til að leiðbeina á sumarnám-
skeiði Háskóla íslandi, Seminar on Art. Finnur Arnar, Daníel Þ.
Magnússon og Hrafnhildur Arnardóttir opna sýningar á sama tíma
og Gauer í Nýlistasafninu á laugardag. Hljómsveitin PPPönk heldur
tónleika á opnuninni, klukkan 21.
89. málverkasýningin
Steingrímur St. Th. Sigurðsson opnar
sína 89. málverkasýningu í dag ki. !8
á Hótel Eddu Menntaskóians á Laug-
arvatni. Til sýnis verða 40 nýjar mynd-
ir. Sýningin er tileinkuð Ernu Lórar-
insdóttur og Daníel Emilssyni en þau
hafa stýrt Edduhótelinu í hartnær
fjóra áratugi. Sýningin stendur yfir í
þrjá daga.
NORÐURLANP
Gönguferðir
Ferðafélag Akureyrar stendur íyrir ferð
í Olafsfjörð og Hvanndali um helgina.
Lagt verður af stað kl. 9 á laugardags-
morgun og verður ekið með rútu frá
skrifstofu Ferðafélagsins að Ytriá við
Olafsfjörð. Frá Ytriá verður gengið út í
Fossdal upp á Hvanndalabjarg og það-
an í Hvanndali, þar sem gist verður. A
sunnudag verður gengið yfir Víkur-
byrðu í Héðinsfjörð og um Rauðu-
skörð aftur til Ólafsfjarðar. Þá er
einnig fyrirhuguð gönguferð um
Kóngsstaðadal og Vatnsdal. Gangan
tekur 8 til 9 klukkustundir og er tæp-
ast fyrir nema nokkuð vana göngu-
menn. Lagt verður upp í þessa ferð á
laugardagsmorguninn kl. 8 frá skrif-
stofu Ferðafélags Akureyrar, þar sem
fást nánari upplýsingar í síma 462
2720.
Kaffihlaðborð
Kvenfélagið Tilraun verður með kaffi-
hlaðborð í Tunguseli við Tungurétt í
Svarfaðardal sunnudaginn 23. ágúst
kl. 14-17.
Bridgefélag SigluQarðar
Afmælismót í tilefni af 60 ára afmæli
Bridgefélags Siglufjarðar hefst í dag ld.
16 og gert er ráð íyrir mótslokum um
kl. 18 á sunnudag. Keppt er um verð-
launagripi og peningaverðlaun.
Einkasýning Aðalsteins
Myndlistarmaðurinn Aðalsteinn Vest-
mann opnar einkasýningu á morgun,
Iaugardag. Aðalsteinn hefur haldið
nokkrar einkasýningar hér og þar um
landið. Hann notar blandaða tækni við
málun; olíu, vatnsliti, akryl og túss.
Sýningin verður opnuð kl. 16 á morg-
un og stendur til 30. ágúst.
Friðbjarnarhúsið
Nú um helgina er sfðasta tækifærið til
að skoða Friðbjarnarhús, Aðalstræti 46
Kvíkmyndir helgaiiimar
• Mynd helgarinnar er Morðið í Austurlandahraðlestinni, sem
gerð er eftir samnefndri sögu Agöthu Christie og það er hinn
belgíski Hercule Poirot sem ræður dularfulla morðgátu. Þetta er
stjörnum prýdd mynd. Albert Finney Ieikur Poirot en meðal ann-
arra leikara eru Sean Connery, Vanessa Redgrave, Lauren
Bacall, Ingrid Bergman og John Gielgud. Myndin er á dagskrá
Stöðvar 2 á laugardagskvöldið.
• Yellow Sky, sígildur vestri með Gregory Peck er á dagskrá
Sýnar á föstudagskvöld. Onnur gömul stjarna, Frank Sinatra,
lætur ljós sitt skína í The Naked Runner sem er á dagskrá
Stöðvar 2 á laugardagskvöld. A sömu stöð fyrr um kvöldið má
sjá Madonnu og Antonio Banderas í söngvamyndinni Evítu þar
sem rakin er saga fasistakvendisins Evu Peron.
mælirmed...
• • • góðri mætingu á menningarnótt. Það má ýmislegt gera sér
til skemmtunar, vera á röltinu, setjast inn á kaffihús og hlusta á
tónlist, fara á myndlistarsýningar, Ijóðamaraþon og hvað sem er.
Góða skemmtun.
• •• góðum gönguferðum á Iaugardaginn. Góður heilsdagstúr
er að ganga Selvogsgötuna, klæða sig vel í góða gönguskó og
hefja förina, til dæmis við Bláfjöll, og ganga alla leið í Selvoginn.
Frá Bláíjöllum er auðveldast að ganga fyrir óvana.
á Akureyri. Allir sem áhuga hafa á
sögu Akureyrar og minjum henni
tengdri eiga erindi í húsið. Opið verð-
ur á laugardag og sunnudag milli kl.
14 og 17. Heitt verður á könnunni.
AMÝ á Karólínu
AMY (Anna María Guðmann) opnar
sýningu á Café Karólínu um helgina.
Til sýnis verða vatnslitamyndir.
Síðasta sýningarhelgi
Sýningunni GROUND í Listasafninu
á Akureyri lýkur sunnudaginn 23.
ágúst. GROUND er samsýning lista-
mannanna Kristjáns Guðmundssonar,
Alan Johnston frá Skotlandi og Franz
Graf frá Austurríki.
M
Hegner er
w þýskt gœðamerki.
Gyljl Eldjám Sigurlinnason
Hólshraunt 7, 220 Hafnarftrðí
sími 5551212 /fax 5552652
MULTI VIT
FJÖLVÍTAMÍN
MEÐ STEINEFNUM
NATTÚRULEGT
60 töflur
Ein með öllu
handa öllum
ISIh
eilsuhúsið
Skólavörðustlg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
Nú er rétti tíminn
Lífræn
framleiðsla
Bændur og afurðasölufyrirtæki
Nú er rétti tíminn til að huga
að þeim ráðstöfunum sem gera þarf
til að svara aukinni eftirspum eftir
lífrænum búvörum hér á landi
og til útflutnings.
Hópur framsækinna bænda og
fyrirtækja víða um land hefur þegar
hafið framleiðslu og fengið vottun
hjá Vottunarstofunni TÚNI.
Fræðslurit
Kynningarfundir
Handbók
um ræktun
og vinnslu
Faggilt af
Löggildingarstofu
samkvæmt
Evrópustaðli EN 45011
TÚN hefur um árabil byggt
upp reynslu, þekkingu og þjónustu
fyrir þá sem stunda ræktun og
vinnslu lífrænna afurða
Hafið samband og leitið upptýsinga og aðstoðar
Vottun
Aðlögunar-
áætlun
Notkun
á vörumerki
Viðurkennd vottunarstofa
á Evrópska
efnahagssvæðinu
TÚN er meðlimur í
IFOAM Alþjóðasamtökum
lifrænna landbúnaöarhreyfinga
VOTTUNARSTOFAN
TÚN
Sími og fax: 487 1389