Dagur - 22.08.1998, Qupperneq 5

Dagur - 22.08.1998, Qupperneq 5
FRÉTTIR Vill samstarf félaga í iimanlandsflugmu Halldór Blöndal hefur beðið Mýfíug og íslandsfíug að hlaupa í skarðið á Húsavík Samgönguráðherra hefur kynnt flugfélög- uiii þá skoðun sína að þau hafi samvinnu um innanlandsflugið til að geta aukið hjá sér hagræðingu. Ekki grundvöllur fyrir sam- keppni nema kannski á Akureyri eða í Vest- mannaeyjum. Halldór Blöndal sagðist í samtali við Dag hafa haft samband við Omar Benediktsson hjá Islands- flugi og Leif Hallgrímsson í Mýflugi strax og hann frétti um ákvörðun Flugfélagsins að hætta flugi til Húsavíkur. Ráðherrann bað þá að kanna hvort þeir gætu með einhveijum hætti hlaupið í skarðið. „Eg geri mér vonir um að þeir geti fært mér góðar frétt- ir í næstu viku,“ sagði Halldór Blöndal. „Mér kom mjög á óvart að Flugfélag Islands skyldi hætta að fljúga til Húsavíkur því þeir hafa verið að byggja upp þessa flug- leið að undanförnu og flogið þangað tvisvar á dag og farþegar sem um völlinn fara eru 15 eða 16 þúsund. En á hinn bóginn skilur maður að það geti ekki gengið til lengdar að innanlands- flugið sé rekið með halla sem nemur hundruðum milljóna á ári,“ sagði Halldór. Halldór tók málið upp á ríkisstjórnarfundi í gær og mun ásamt viðskiptaráð- herra skoða málið. Samgöngu- ráðherra segir óhjákvæmilegt að flugfélögin fari að ræða saman um samvinnu í innanlandsflug- inu til þess að ná fram nauðsyn- legri hagræðingu. Aðalatriðið sé að fólk geti komist leiðar sinnar og viðunandi þjónustu sé haldið uppi á hinum ýmsu stöðum á landsbyggðinni. Aðspurður sagð- ist ráðherra þegar hafa ámálgað þessi sjónarmið sín við félögin og fengið „vinsamlegar undir- tektir“. Um það hvort það skyti ekki skökku við að hætta sam- keppni með þessum hætti sagði Halldór: „Það skýtur ekki skökku við því það eru ekki forsendur fyrir samkeppni í flugþjónustu, nema kannski á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Farþegatjöld- inn er það lítill til annarra staða að þar er ekki hægt að tala um neina raunverulega samkeppni. Raunar er það þannig að ég var á fundi í Brussel um fjarskiptamál, sem frægt varð á sínum tíma, og þar töldu þeir nú að ekki væri hægt að tala um samkeppni nema þrír kepptu - það væri ekki raunveruleg samkeppni ef aðeins tveir byðu fram þjónustu sína.“ íslandsmet Guðrún Arnardóttir lenti í fjórða sæti í úrslitahlaupi 400 m grindahlaupsins á EM í Búda- pest í gær. Guðrún átti gott start í hlaupinu, en gaf aðeins eftir á fyrstu 200 metrunum og var í 5. til 6. sæti um miðbik hlaupsins. Þá tók hún heldur betur við sér og náði fjórða sætinu á tímanum 54,59 sek. sem er nýtt og glæsi- legt íslandsmet. Aðeins munaði einum metra á henni og Silviu Rieger frá Þýskalandi sem varð í þriðja sætinu, en Guðrún sótti fast að henni í lokin. Úrsllt: 1. Ionela Tirlea, Rúmeníu 53,37 2. T. Tereshchuk, Úkraínu 54,07 3.Silvia Rieger, Þýskalandi 54,45 4.Guðrún Arnardóttir, ísl. 54,59 Vala Flosadóttir náði sér ekki á strik í úrslitum stangarstökks- ins og virtust meiðsli há henni í keppninni. Hún stökk 4,15 m og átti góðar tilraunir við 4,25 m og lenti í 9. sæti. Kvemialistiim vill ræða forystiunálin Sameiginleg nefnd A- flokkanna og Kvenna- listans er að fara yfir stefnumálin. A-flokkarnir og Kvennalistinn hafa skipað nefnd til að fara yfir þá vinnu sem málefnanefndir unnu varðandi stefnumál sam- eiginlegs framboðs þessara flokka og skiluðu af sér í vor. Guðný Guðbjörnsdóttir, formað- ur þingflokks Kvennalista, segir að ýmislegt sé eftir varðandi samræmingar í þessum málum. En kvennalistakonur vilja hrein- ni línur um ýmis önnur mál áður en Iengra er haldið. „Við vorum með félagsfund í gær, kvennalistakonur úr Reykja- vík og Reykjanesi. Þar ríkti mik- ill áhugi fyrir þessum málum. Það kom hins vegar skýrt fram á fundinum að við viljum ræða all- an pakkann varðandi sameigin- legt framboð og minnum á að Guðný Guðbjörnsdóttir alþingiskona. Kvennalistinn hefur ekki tekið lokaákvörðun um að fara í sam- eiginlegt framboð. Við munum ekki gera það nema að fyrir liggi samstarfssamningur milli flokk- anna. Við viljum líka hreinar lín- ur í öll önnur mál en þau sem málefnanefndirnar unnu. Þar á ég við íjármálin, framboðsmálin sjálf og öll vinnubrögð og síðast en ekki síst forystumálin," sagði Guðný Guðbjörnsdóttir. Hún sagði að allt þetta verði að kom- ast í skýran farveg og því setji Kvennalistinn þessi mál í for- grunn áður en farið verður í fín- pússningu málefnavinnunnar. Nefndin Þeir sem skipa nefndina sem á að fínpússa málefnavinnuna eru frá Kvennalista Guðný Guð- björnsdóttir, Steinunn Valdís Oskarsdóttir og Svala Jónsdóttir. Frá Alþýðuflokki koma Rannveig Guðmundsdóttir þingflokksfor- maður, Guðmundur Arni Stef- ánsson og Ossur Skarphéðins- son. Frá Alþýðubandalagi verður Magnús Jón Arnason fastur nefndarmaður en síðan verða fleiri en tveir sem munu skipta með sér störfum. -S.DÓR Starfsævi íslendinga lengri Allt bendir til þess að íslending- ar starfi að meðaltali 5-10 árum lengur á vinnumarkaði en aðrir Norðurlandabúar. Þetta er meðal þess sem lesa má úr fyrstu niður- stöðum könnunar um brottfall fólks af vinnumarkaði sem Nor- ræn nefnd um tölfræði heilbrigð- is- og tryggingarmála hefur gert. Könnunin er aðallega gerð til að athuga fjölgun bóta- og Iífeyr- isþega á Norðurlöndum undan- farinn áratug. I tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að hár eftirlaunaaldur, aldurssam- setning þjóðarinnar og minna at- vinnuleysi séu sennilegustu skýr- ingar á því að heildarútgjöld til heilbrigðis- og félagsmála eru mun lægri á Islandi en annars- staðar á Norðuriöndum. MiMl sveppaspretta í Hallormsstað Gríðarlega mikil sveppaspretta er í Hallormsstaðaskógi og vfðar á Héraði. Frá þessu greindi Svæðisútvarp á Austfjörðum og hefur eftir skógarmönnum að mátt hafi renna sér fótskriðu í sveppunum. Ekk- ert lát er á sveppasprettunni og hefur fjöldi fólks farið í sveppamó. Stór veitingahús í Reykjavík og nágrenni hafa sent starfsfólk sitt í sveppamó og hefur það tínt af miklum móð og sent uppskeruna jafn- óðum með flugi til Reykjavíkur. — IS Herstöðvaandstæðingar mótmæla Herstöðvaandstæðingar mótmæla árásum Bandaríkjamanna á Afganistan og Súdan og segja ekkert geta réttlætt þær. „Eða voru árásirnar kannski gerðar til að skapa hinum falleraða forseta hag- stæða ásjónu heima fyrir?" spyrja samtökin í yfirlýsingu sem Birna Þórðardóttir ritar undir. Tveir vHja vest- ur að dæma Tveir sóttu um stöðu héraðs- dómara með fast sæti við Hér- aðsdóm Vestfjarða en umsókn- arfrestur rann út í vikunni. Þetta eru þeir Erlingur Sig- tryggsson, aðstoðarmaður dóm- ara við Héraðsdóm Norðulands -eystra og Már Pétursson, að- stoðarmaður dómara við Hér- aðsdóm Reykjaness. Úkraínskt skólaskip íbúum í höfuðborginni varð starsýnt á þriggja mastra skútu sem sigldi inn á sundin við Reykjavík í gærmorgun og lagð- ist við hafnarbakkann í mið- borginni. Þetta var skólaskipið Khersones frá Úkraínu. MYND: - BG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.