Dagur - 22.08.1998, Síða 6
6 -LAUGARDAGUR 22. ÁGUST 1996
SDsgjir
ÞJÓDMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Simbréf auglýsingadeildar:
Simar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171CAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Ekkí rétta leiðin
I fyrsta lagi
Flest bendir til að það sé rétt hjá bandarískum stjórnvöldum að
auðjöfurinn Osama bin Laden sé peningavélin á bak við hryðju-
verkin ógurlegu í Kenýa og Tansaníu fyrir skömmu. Hann hefur
hvað eftir annað lýst því sem heilagri skyldu sinni að drepa
Bandaríkjamenn og kveðst engan greinarmun gera á hermönn-
um og óbreyttum borgurum. Mörgum heimildum ber saman um
að Osama bin Laden stýri nokkur þúsund manna her hryðju-
verkamanna sem hafi yfir að ráða nútíma vopnum. Og eins og
tilræðin í Afríku sýndu skiptir það slíka pólitíska glæpamenn
engu máli þótt hundruð saklausra borgara lendi í skotlínunni.
í öðru lagi
Sú ákvörðun Bandaríkjastjórnar að bregðast við þessum hryðju-
verkum með loftárásum á bækistöðvar Osama bin Ladens í
Afganistan og efnaverksmiðju í Súdan er hins vegar ekki líkleg
til að draga úr hryðjuverkum. Þvert á móti er líklegast að árás-
irnar herði enn hefndarvilja þessara öfgamanna. Þær munu
einnig auka stuðning við hermdarverkamenn meðal þjóða
Islams. Að vísu hefur Bill Clinton sýnt með þessari hernaðarað-
gerð að hann er reiðubúinn að beita vopnum gegn andstæðing-
um Bandaríkjanna. En það er lítið vit í því fyrir stórveldi að hefja
loftárásir bara til að gera eitthvað. Hernaðaraðgerðir sem skila
engum raunverulegum árangri eru ekki aðeins gagnslausar; þær
eru heimska.
í þriðja lagi
Vestrænum ríkisstjórnum hefur gengið misjafnlega að kljást við
hryðjuverkamenn, enda er afar erfitt að koma í veg fyrir ógnar-
verk af því tagi sem áttu sér stað í Nairobi eða Omagh. Ofstæk-
isfullir og einbeittir morðingjar geta leynst á meðal fjöldans og
komið morðtólum sínum fyrir á almannafæri. Auðvitað verða
stjórnvöld að beita sér af alefli gegn slíkum pólitískum glæpa-
mönnum og reyna að einangra þá sem mest - meðal annars með
því að knýja þau einræðisríki sem skýla glæpamönnunum til að
stöðva starfsemi þeirra. Því markmiði verður hins vegar ekki náð
með bandarískum loftárásum. Elías Snæland Jónsson.
Steingrímur teygir
á HÆGRl fætiniun
Garri komst ekki hjá því að
staldra við forsíðumyndina á
Lífinu í landinu í Degi í gær. Á
myndinni eru þau Siv Frið-
leifsdóttir og Steingrímur J.
Sigfússon á grasinu á Austur-
velli með Alþingishúsið í bak-
sýn ásamt syni Siyjar, Hákoni.
Ekki gerir Garri sér grein fyrir
hvað þau eru að gera en
greinilegt er að Siv og Hákon
Iitli hafa náð að fella Stein-
grím og eru að snúa upp á fót-
inn á hon-
um. Hugs-
anlegt er
raunar líka
að Siv, sem
er sjúkra-
þjálfari, sé
eitthvað að
teygja á
hægri fæti
Steingríms.
Það er í
sjálfu sér
áhugavert
mál og hefur
tvímælalaust einhverja pólit-
íska merkingu. Garra er kunn-
ugt um að bæði Steingrímur
og Siv eru mildir bókmenntaá-
hugamenn og þekkja t.d. vel
sögu Defoes um Róbinson
Krúsó. I þeirri sögu er einmitt
„sporið í sandinum" gríðarlega
sterkt merki um vaxandi ein-
staklingshyggju á upplýsinga-
tímanum. Fræðimenn og fag-
urkerar hafa til þess tekið að
það var aðeins eitt spor, æp-
andi áminning um individual-
Pólitisk tíðmdi
í Ijósi þessa getur Garri ekki
annað en staldrað við þetta
með hægri fótinn á Stein-
grími. Af hverju er Siv að
teygja á hægri fæti Stein-
gríms? Af hverju teygði hún
ekki á vinstri fætinum? Eða þá
handleggjunum eða bakinu
eða einhveijum öðrum líkams-
hlutum? Það er tæpast tilvilj-
un. Enda þarf ekki mikið
ímyndunarafl til að sjá að
þarna kunnu að liggja að baki
stórpólitísk tíðindi. I Degi í
gær er nefnilega líka greint frá
því að alger óvissa rfki með
hver muni hreppa þingsæti
Guðmundar Bjarnasonar um
næstu ára-
mót, og ef að
líkum lætur
er enn meiri
óvissa um
hverjir muni
fara í fram-
boð fyrir
Framsókn í
kjördæminu.
Framsóknarprímadonna teygir á
hægri fæti Steingríms J.
Afgerandi
yfirlýsing
Steingrímur
er sem kunn-
ugt er hættur í Alþýðubanda-
laginu. Hann hefur oft verið
kallaður framsóknarmaður og
hann lýsir því auk þess yfir í
Degi í gær að samstarfið við
Guðmund Bjarnason hafi
alltaf verið gott. Síðast en ekki
síst er þetta athyglisvert með
hægri fótinn. Að láta fram-
sóknarprímadonnu teygja á sér
hægri fótinn er engin smá yfir-
lýsing - einu sinni þótti það nú
fréttnæmt að brosa til hægri!
Garri getur ekki annað en
ályktað að nú hyggist Stein-
grímur taka lítið skref til hægri
og ganga til liðs við Framsókn.
Eða hvað annað gæti þessi
uppákoma á Austurvelli Iíka
þýAt?! garri.
BIRGIR
GUÐMUNDS-
SON
skrifar
Að fara upp hæð, en niður
fjall eftir 12 ára einkaleyfi
Nú er í gangi athyglisverð deila
milli símafyrirtækisins Tals ann-
ars vegar og Landsímans hins
vegar. í raun snýst deilan um
hvort fjallið Þorbjörn í nágrenni
Grindavíkur sé nægjanlega stórt
til að rúma fjarskiptamannvirki
beggja fyrirtækjanna. Landsím-
inn hefur afnotarétt af fjallinu
samkvæmt samningi frá því
1951, en þá var Póstur og sími
eina fyrirtækið í landinu á þessu
sviði og hafði raunar einkarétt á
þessari tegund reksturs eins og
alkunna er. Uppbygging dreifi-
kerfis var þá líka í höndum Pósts
og síma ekki síður en símaþjón-
ustan sjálf. Það er í krafti þessar-
ar forsögu einkaleyfis Landsím-
ans (Pósts og síma), að fyrirtæk-
ið getur nú komið í veg fyrir upp-
setningu sendibúnaðar Tals á
fjallinu. Þó er ljóst að þetta er
eina fjallið á svæðinu, sem nýtist
Tali til að veita þá þjónustu sem
það vill veita.
Rýmið á Þorbimi
Af þessu hafa því eðlilega risið
klögumál þar sem Tal teiur sam-
keppnisaðila beita óeðlilegum
viðskiptaþvingunum á grundvelli
aðstöðu sem hann fékk á dögum
einokunarinnar. I sjálfu sér er
óþarfi að taka afstöðu til efnis-
atriða í þessu tiltekna máli til
að átta sig á að fyrirkomulagið
býður upp á tortryggni og
klögumál varðandi það hvort
samkeppnisaðilar sitji í raun við
sama borð. Hvort aðgangur
allra sé tryggður að því dreifi-
kerfi sem byggt var upp undir
einokun og ríkisvernd. Otrúlegt
verður að teljast, ef menn
hefðu val í dag, að þeir myndu
kjósa sér þetta ástand í fjar-
skiptamálum. Þetta er frekar
eitthvað sem menn sitja uppi
með. Sérleyfin eru á útleið og
menn vilja fyrir alla muni leyfa
þúsund blómum að spretta. Það
væri því ólíldegt að símafyrirtæki
fengi einkaleyfi á símrekstri gegn
því að byggja upp eða viðhalda
dreifikerfi. Líklegra að dreifikerf-
ið yrði skilið frá annarri þjónustu
þannig að rými á fjallinu Þor-
birni yrði hafið yfir ágreining.
Fjallið Þorbjörn viö Grindavík.
Gagnagruimur
Þó virðast menn tilbúnir að end-
urtaka leikinn frá grunni þegar
kemur að miðlægum gagna-
grunni á heilbrigðissviði. Þar
telja menn verjandi að veita
einkaleyfi án þess að skilja ræki-
lega milli rekstraraðila þessa
grunns annars vegar og svo
hinna - fyrirtækja og sjálfstæðra
vísindamanna - sem þurfa að
nota gagnagrunninn og eru í
beinni samkeppni um jánis kon-
ar líftækni- eða læknisfræðileg-
ar rannsóknir. Símarekstur og
uppsetning sendibúnaðar er
tiltölulega einfalt og auðskilið
mál. Líftæknirannsóknir gætu
hins vegar orðið mun flóknari
og vandamálin því margfalt erf-
iðara við að eiga. Það kann að
vera að mönnum finnist þeir
ekki stefna upp á fjallið Þor-
björn með þessari tegund
einkaleyfis á gagnagrunni, en
Iíkurnar eru hins vegar yfir-
gnæfandi að það sem menn
halda að sé lítil hæð, verði þeg-
ar þeir koma niður eftir 12 ára
einkaleyfí orðið að gríðarlegu
vandræðafjalli.
svairað
Var rétt af Clinton
Bandaríkjaforseta
að fyrírskipa loftárásir
áSúdan og
Afganistan?
Tómas Ingi Olrich
formaður utanríkismálanefndar
Alþingis:
„Gagnvart
hryðjuverka-
samtökum eins
og þeim sem hér
eiga hlut að
máli er ekki um
neitt að semja.
Þau miða starf-
semi sína ekki að neins konar
skilgreindum pólitískum mark-
miðum. Tilgangurinn er að valda
upplausn og skelfingu með þaul-
skipulögðum árásum á saldausa
borgara. Það er Ijóst að ákveðnar
þjóðir hafa fóstrað hryðjuverka-
samtök. Slíkt athæfi getur ekki
endað nema á einn veg. Það er
einungis spurning um það
hvenær mælirinn er fullur.“
Kristín Ástgeirsdóttir
alþingismaðtir
„Nei. Mér finnst
þetta mjög sér-
kennileg aðgerð.
Svona fyrirvara-
Iausar árásir eru
ekki réttlætan-
legar og menn
eiga auðvitað að
ræða á alþjóðavettvangi hvernig
eigi að taka á hryðjuverkum. Ég
held að Clinton sé að reyna að
beina athyglinni frá sínum
slæmu einkamálum.“
Össur Skarphéðinsson
varaformaðurutanrúiismálanefndar
alþitigis:
„Þetta mál lykt-
ar af því að
Clinton sé að
draga athyglina
frá þeim hörm-
ungum sem
hann stendur
andspænis
heima fyrir vegna Lewinsky
málsins. Og ef ég man rétt er
þetta ekki í fyrsta skipti sem
hann grípur til harðra aðgerða á
erlendum vettvangi til að þess að
beina athyglinni frá vanda sem
hann hefur komið sér í með hátt-
semi sinni.
Gunnlaugur Sigmundsson
alþingismaður:
„Ég hef ekki
nægjanlegar
upplýsingar til
þess að dæma
um það, en hins
vegar hvarflar
að manni að
tímasetningin
tengist vandamáli sem hann
hefur átt við að glíma heima fyr-
ir.“