Dagur - 22.08.1998, Síða 11

Dagur - 22.08.1998, Síða 11
Xk^nr L A U G A R DA G ITR' 2~2~. ÁGÚST'1998 - 1T ERLENDAR FRÉTTIR Hry dj uverkum hótað áfram Á fjórða tug manna féllu í árásum Bauda- rfkjanua á Afganistan og Súdan, þar af létust 5 eða 6 „óvart“ í Pakistan. Bandarísk stjórnvöld sögðu í gær að árásirnar á Afganistan og Súd- an hafi skilað tilætluðum árangri. Skotið var flugskeytum á þrennar búðir hryðjuverkamanna í Khost í Afganistan og efnaverksmiðju í Khartoum, höfuðborg Súdans, þar sem Bandaríkjamenn segja efnavopn hafa verið framleidd. Þó er ljóst að Bandaríkjamenn eru engan veginn Iausir við þá hættu sem stafar af hryðjuverk- um. Hryðjuverkasamtök sem nefna sig „Islamska alheimsfylk- ingu fyrir heilagt stríð gegn gyð- ingum og krossförum" sendi frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þau muni ótrauð halda áfram hryðjuverkum sínum gegn Banda- ríkjunum. Samtökin eru talin hafa verið stofnuð í febrúar síð- astliðnum, og starfa þau undir forustu arabíska milljarðamær- ingsins Osama bin Laden. „Næstu dagar tryggja það, með Guðs vilja, að Bandaríkjanna bíði grimm örlög," segir í yfirlýsingu samtakanna. „Árásir munu halda áfram úr öllum áttum og íslamsk- ir hópar munu hver á fætur öðr- um skjóta upp kollinum til þess að berjast gegn hagsmunum Bandaríkjamanna." Oryggisráðstafanir við sendiráð Bandaríkjanna um heim allan hafa verið hertar gífurlega og bandaríska utanríkisráðuneytið hefur hvatt bandaríska ríkisborg- ara erlendis til þess að sýna sér- staka varúð á ferðum sínum. Eitt flugskeytið lenti í Pakislan A.m.k. 28 manns Iétust í Afganistan og Súdan. Heimildar- menn í Afganistan sögðust vita til þess að 21 hafi látist þar og 30 slasast. I Súdan munu 7 manns hafa fallið. Heimildir í Súdan herma enn- fremur að meira en tíu manns hafi slasast í árásinni, þar af sum- ir alvarlega. Ríkisstjórnin í Súdan hefur rofið öll pólitísk tengsl við Bandaríkin í kjölfar árásarinnar. Ennfremur verður bandarískum flugvélum bannað að flúga yfir lofthelgi Súdans. Þrátt fyrir fullyrðingar Banda- ríkjamanna um að aðgerðin hafi heppnast vel þá virðist sem eitt flugskeytanna, sem beint var að skotmarki í Afganistan, hafi Ient í Pakistan og orðið þar fimm eða sex manns að bana. „Það virðast hafa átt sér stað einhver tæknileg mistök,“ sagði Tariq Altaf, talsmaður pakist- anska utanríkisráðuneytisins. Hann sagði að fimm eða sex manns hefðu Iátist, en sagði ekki hvar flugskeytið hafi komið niður. Skömmu eftir árásirnar á Afganistan var skotið á tvo starfs- menn Sameinuðu þjóðanna í Kabúl, höfuðborg Iandsins og hlutu þeir alvarleg meiðsl af. Ann- ar var Frakki og hinn Itali. Ekki var alveg Ijóst hvort tengsl væru milli þessa og árása Bandaríkja- manna. Bin Laden heill á húfl Leiðtogar Talibana í Afganistan sögðu að Osama bin Laden væri heill á húfi eftir árásirnar. Hann „er á öruggum stað og enginn fé- laga hans varð fyrir neinum skaða,“ sagði Mullah Abdullah, talsmaður Talibana. Abdullah sagði ekki hvar bin Laden væri né hvort hann hefði verið staddur á einhveijum þeirra staða, þar sem flaugarnar komu niður þegar árásirnar voru gerðar. „Þetta er svo kaldrifjaður verkn- aður,“ sagði Wakil Ahmed Ak- humzada, annar talsmaður Tali- bana í Afganistan. „Þeir hafa enga sönnun fyrir því að bin Laden eða Talibanar hafi framið hryðjuverk." Viðbrögðín á ýmsa lund Viðbrögð annarra ríkja hafa verið á ýmsa lund. Leiðtogar á Vestur- löndum hafa lýst fullum stuðn- ingi við árásirnar. „Eg styð algjör- lega þessar aðgerðir Bandaríkja- manna gegn alþjóðlegum hryðju- verkamönnum,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. „Hryðjuverkamenn um heim all- an vita að lýðræðisleg stjórnvöld munu grípa til beinskeyttra að- gerða til þess að koma í veg fyrir þeirra illu glæpaverk." Jacques Chirac, Frakklandsfor- seti, og Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, lýstu einnig fullum stuðningi við aðgerðirnar. Boris Jeltsín, forseti Rússlands, var hins vegar afar ósáttur. „Eg vissi ekki að þessi árás stæði fyrir dyrum. Það er ósanngjarnt," sagði hann. Arabaríki gagnrýndu flest árás- irnar, en bæði Egyptaland og Palestínustjórn forðuðust að tjá sig um málið. Sömuleiðis sögðu stjórnvöld á Kúbu aðgerðirnar vera hrokafullar og sögðu að af- leiðingarnar gætu reynst aðrar en til var stefnt. Bandaríkj amcnn hæstánægðir Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagðist reyndar hafa nokkrar áhyggjur af árásunum, en fordæmdi þó skil- yrðislaust hryðjuverk „á hvaða formi sem er“. Þá virðist sem bandaríska þjóð- in standi að miklum meirihluti að baki forseta sínum í þessu máli. 80% Bandaríkjamanna segjast ánægðir með að árásirnar voru gerðar, að því er fram kom í skoð- anakönnun sem ABC-fréttastofan Iét gera. Þá segjast tveir þriðju þeirra sem spurðir voru ekki trúa því að Bill Clinton hafi tekið ákvörðun um árásirnar til þess að draga athygli þjóðarinnar frá sam- bandi hans og Monicu Lewinsky, heldur telja þeir að þær hafi í raun verið gerðar „aðallega til þess að beijast gegn hryðjuverka- mönnum." Bandarískir þingmenn lýstu einnig flestir hveijir eindregnum stuðningi við árásirnar, jafnvel þeir sem harðast hafa gagnrýnt Clinton vegna Lewinsky-málsins. HEIMURINN Botha dæmdur í sekt SUÐUR-AFRÍKA - Botha, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, hefur ver- ið dæmdur til þess að greiða sem svarar rúmlega 120.000 krónum f sekt fyrir að sýna Sannleiks- og sáttanefndinni lítisvirðingu. Greiði hann ekki sektina þarf hann að sitja í fangelsi í eitt ár. Botha neitaði að mæta fyrir nefndina í fyrra, en þar átti að spyija hann út í hlutverk suð- urafríska öryggisráðsins í ofsóknum á hendur þeim sem gagnrýndu að- skilnaðarstefnu stjórnarinnar. Botha var formaður öryggisráðsins. Dúman krefst að Jeltsín segi af sér RÚSSLAND - Leiðtogar meirihlutaflokkanna í Dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, krefjast þess að bæði Boris Jeltsín forseti og Sergei Kirijenkó forsætisráðherra segi af sér vegna þeirra fjárhagserfiðleika sem ríkið þarf nú að glíma við. Alyktun þess efnis var samþykkt með mildum meirihluta á rússneska þinginu. Innrásarinnar í Prag mínnst TÉKKLAND og SLÓVAKÍA - í gær var þess minnst, bæði í Tékldandi og í Slóvakíu, að 30 ár eru liðin frá því u.þ.b. 300.000 hermenn frá Pól- landi, Búlgaríu, Ungverjalandi, Austur-Þýskalandi og Sovétríkjunum gerðu innrás í Tékkóslóvakíu. Innrásin batt enda á „vorið í Prag", þegar óvenju opinskátt var rætt um stjórnarhætti kommúnistastjórnarinnar og margir bundu vonir við lýðræðisumbætur. Fjölmargir tóku þátt í sam- komum í báðum ríkjunum, en Tékkóslóvakía skiptist í tvö ríki árið 1993. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, FRIÐFINNS GÍSLASONAR, Sæborg, Glerárhverfi, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar FSA fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Fyrir hönd aðstandenda, Ingunn Helga Hallgrímsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra föður og tengdaföður, GUNNARS MARÍUSSONAR, Árgötu 8, Húsavík. Sigurhanna Gunnarsdóttir, Jón Einar Hjartarson, Jón Bergmann Gunnarsson, Guðrún Mánadóttir, Helga Gunnarsdóttir, Bjarni Siguróli Jakobsson, Hlaðgerður Gunnarsdóttir, Björg Gunnarsdóttir, Ingvar Hólmgeirsson, Maríus Gunnarsson, Erla Jóhannsdóttir, Guðrún Matthildur Gunnarsdóttir, Gunnsteinn Sæþórsson, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Davíð Eyrbekk, Vigdís Gunnarsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Inga Kristín Gunnarsdóttir, Baldvin Jónsson, Benedikt Gunnarsson, Guðbjörg Bjarnadóttir, Hákon Gunnarsson, Snæfríður Njálsdóttir. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samhug og hlýhug við fráfall og útför móður okkar, dóttur, systur, mágkonu, tengdamóður, dótturdóttur og frænku, KRISTÍNAR SÆUNNAR GUÐBRANDSDÓTTUR, Garðavegi 6, Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Tinna Kjartansdóttir, Freyja Kjartansdóttir, Gunnar Ingi Gunnarsson, Sæunn Kjartansdóttir, Kristín María Hartmannsdóttir, Guðbrandur Sæmundsson, María Guðbrandsdóttir, Sveinbjörn Dýrmundsson, Berglind Guðbrandsdóttir, Sigmundur Dýrfjörð, María Anna Magnúsdóttir, frænkur og aðrir ástvinir. Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GARÐARS B. ÓLAFSSONAR, Eyrarlandsvegi 27, Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 25. ágúst kl. 13:30. Jóhannes Óli Garðarsson, Hulda Jóhannsdóttir, Anna Garðarsdóttir, Magnús Örn Garðarsson, Hrafnhiidur Jóhannsdóttir, Kristján Björn Garðarsson, Helga Alfreðsdóttir, Bergur Garðarsson, Margrét Frímannsdóttir, Ingvar Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, sonur, tengdasonur, faðir, tengdafaðir og afi, JENS ÓLAFSSON, verslunarstjóri, Hlíðartúni 1,Hornafirði, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 24. ágúst kl. 13:30. Jarðsett verður í Stærri-Árskógskirkjugarði. Helga Steinunn Ólafsdóttir, Sigrún Jensdóttir, Sveinbjörg Baldvinsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Ólafur Jensson, Hanna M. Sigurðardóttir, Guðný Björg Jensdóttir, Gunnar Þór Þórarnarson, Sigrún Jensdóttir, Torfi Geir Torfason, Halldór Jensson, Margrét Ármann, Eygló Jensdóttir, Björn Austfjörð og barnabörn.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.