Dagur - 05.09.1998, Page 1

Dagur - 05.09.1998, Page 1
Boða breytiiigar á kvótalögimiun Innan stjdraarflokk- anna er nú rætt um að breyta ákveðnum atr- iðum í lögunum uin stjóra fískveiða. Rætt er um að skattleggja með eiuhverjum hætti þá útgerðarmenn sem hætta í greiuinui og selja kvdta siuu. Innan stjórnarflokkanna eru uppi hugmyndir um að endur- skoða á Alþingi.í vetur atriði í lögunum um stjórn fiskveiða. Stóra málið í því sambandi er að pólitískur vilji er fyrir því innan stjórnarflokkanna að koma með einhverjum haetti í veg fyrir að útgerðarmenn, sem fengið hafa ókeypis kvóta úthlutað, geti hætt í greininni og selt kvótann fyrir háar upphæðir eins og mörg dæmi eru um. „Það er eng- inn vafi á því að þetta atriði, þegar menn hætta í grein- inni og selja kvótann fyrir stórfé, er það sem særir rétt- lætistilfinn- ingu fólks mest í sambandi við kvótakerfið. Eg met það svo að það sé pólitískur vilji fyrir því að gera einhverjar breytingar á þessu atriði. Aftur á móti held ég að öllum sé Ijóst að það er afar erfitt að finna sann- gjarna lausn á málinu. Menn standa frammi fyrir þeirri spurn- ingu hvort útgerðarmenn, sem búnir eru að gera út alla sína ævi, eigi að standa uppi slyppir og snauðir í lok starfsævinnar vegna þess að bátarnir eru einskis virði án kvóta. Og svo spyrja menn líka hvaða sanngirni sé í því að útgerðarmenn geti selt kvóta fyrir stórfé, kvóta sem þeir fengu úthlut- að fyrir ekki neitt," sagði Hjálmar Arnason, þingmaður Framsóknar- flokksins á Suðurnesjum, um þetta mál. Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suður- nesjum, sagðist hafa heyrt að til stæði að hrófla við þessu. Hann var sammála Hjálmari um að málið væri afar snúið. „Ég fæ bara ekki séð hvernig það er hægt að koma í veg fyrir að útgerðarmenn geti selt sinn kvóta þegar þeir hætta. Ég sé heldur ekki sanngirnina í því,“ sagði Kristján. Valgerður Sverrisdóttir, for- maður þingflokks Framsóknar- flokksins, sagði málið á dagskrá en vera afar viðkvæmt. Hún sagðist ekki vilja ræða það á þessu stigi. í gegnum skattakerfið Hjálmar Arnason viðurkennir að það verði afar erfitt að finna sanngjarna leið í þessu máli. Hann segir rætt um þann mögu- leika að skattleggja kvótasöluna með sérstökum háskatti. „En erum við Islendingar ekki sérfræðingar að finna göt á kerf- inu til að smjúga í gegnum. Því held ég að þótt pólitískur vilji sé fyTÍr hendi til að gera eitthvað í málinu sé ljóst að afar erfitt verður að finna leið til þess sem heldur,“ sagði Hjálmar Árnason. Þá er talið víst að komið verði til móts við óskir trillukarla á sóknarmarki um úrbætur vegna þess að þeir eiga ekki nema 8 veiðidaga á næsta ári. Þingmenn eru flestir á því að slíkt gangi ekki upp og að breyta verði lög- unum um stjórn fiskveiða til að bæta þarna úr. - S.DÓR Krístján Pálsson. Homsteinn í Kröflu Á næsta ári eru fyrirhugaðar rannsóknir á Kröflusvæðinu og með hliðsjón af þeim verður metið hvort hagkvæmt geti reynst að stækka Kröfluvirkjun um 90 MW. Það yrði þá gert í þremur 30 MW þrepum. Þetta kom fram í máli Halldórs Jónat- anssonar, forstjóra Landsvirkj- unar, í gær, þegar lagður var hornsteinn að virkjuninni, en það gerði Ingvar Gíslason, einn af þeim sem skipaði Kröflunefnd á sínum tíma. Knútur Otter- stedt, fv. svæðisstjóri Landsvirkj- unar á Norðurlandi, gangsetti vélar virkjunarinnar formlega. Fjölmenni var viðstatt athöfn- ina, sem efnt var til vonum seinna. Það var ekki fyrr en snemma á þessu ári sem síðari vélasamstæða Kröflu komst í gagnið og þar með er fullri af- kastagetu Kröflu náð, sem er 60 MW. Lagning hornsteins var lengi látin bíða, enda fór á sínum tíma margt á annan veg í Kröflu en ætlað var. - SBS. Gestir í Kröflu skoduðu virkjunarsvæðið og þeirra á meðal voru þeir Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar. Þeim fannst nóg um ógnargnýinn frá borholu 32, sem er kraftmesta holan á svæðinu ... mynd: sbs. Þjoðlíf er enn á ferð Sýslumaðurinn á Selfossi hefur boðað fjárnám hjá Davíð Krist- jánssyni eftir aðfararbeiðni frá Heildversluninni S. Idu hf. sem Úlfar Nataníelsson skrifar undir. Höfuðstóll kröfunnar kr. 4.539 er gömul skuld vegna áskriftar að Þjóðlífi. Gerðarþolinn í mál- inu var dæmdur 16.07. 1991 til greiðslu þessarar upphæðar og eftir það lögð fram fjárnáms- beiðni. Þá gat hann ekki bent á neinar eignir, enda laus og liðug- ur og átti hvorki íbúð né bíl. Seg- ir ekki af því máli meir þar til nú í vikunni að honum barst boðun- in frá sýslumanni. Gerðarbeið- andi krefur hann nú um sem nemur áttföldum höfuðstól, eða kr. 126.210, því á eftir höfuð- stólnum fylgir langur Iisti af dráttarvaxta- og kostnaðarliðum. Rannsókii I samtali við Dag sagði Úlfar að þetta mál hefði dregist vegna þess að fyrst hafi verið gert ár- angurslaust fjárnám á sínum tíma og svo að innheimtumál Þjóðlífs hafðu farið í rannsókn og málin legið niðri af þeim sök- um í um 4 ár. Úr þeirri rannsókn hafi komið að ekkert refsivert at- hæfi hefði átt sér stað í tengslum við innheimturnar. Þá sagði Úlf- ar að mjög lítið væri eftir nú af þessum innheimtum vegna Þjóð- lífs, en eitthvað hefði verið inn- heimt af og til. Nokkur Þjóðlífs- mál hafa m.a. gengið á Suður- landi og í Vestmannaeyjum. HryllingiiT Davíð Kristjánsson segir það hrylling að fólk sem sé ranglega dæmt til að greiða kröfur sem menn úti í bæ búi til, skuli ekki eiga neinn kost á leiðréttingu sinna mála eftir að dómur hafi fallið að því fjarstöddu. Með Baldri yfir Breiðafjörð Ferðir alla daga: Alltaf viðkoma í Flatey Frá Stykkishólmi kl. 09:00 og 16:00 Frá Brjánslæk kl. 12:30 og 19:30 Flateyjarpakkinn á góða verðinu. Dagstund í Flatey með útsýnissiglingu Ferjan Baldur 438 1120 og 456 2020 wmwv/m &msœ EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100 ii

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.