Dagur - 10.09.1998, Síða 4

Dagur - 10.09.1998, Síða 4
4- FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 FRÉTTIR Barrinn vinsæll Kaup Máka á þrotabúi Miklalax í Fljótum eiui til skoöunar. Fiskeldisstöðin Máki á Sauðár- króki hefur slátrað um 10 tonn- um af hlýsjávarfiskinum barra á þessu ári en áætlað er að slátra um 20 tonnum á þessu ári sem er ívið minna en gert var ráð fyr- ir þar sem vaxtarhraði fisksins hefur verið heldur minni en stefnt var að. Guðmundur Orn Ingólfsson, sjávarlíffræðingur og forstöðumaður Máka, segir megnið af fiskinum fara á Bret- landsmarkað og nægur markaður sé fyrir mun meira magn. Nokk- uð fer á markað hérlendis og t.d. má finna barra á matseðli Perlunnar og Hótel Sögu í Reykjavík. A næsta ári er fyrirhugað að Máki hefur átt í viðræðum við Byggðastofnun um kaup á Miklalaxi slátra um 70 tonnum af barra. Máki fær um 700 krónur fyrir kílóið af barra innanlands en nær 800 krónum á markaðinum í Bretlandi, og það sé ásættan- legt verð. Guðmundur segist vona að hærra verði fáist þar sem gæði físksins séu með því besta sem þekkist en til þess þarf magnið að vera meira og stöðug- leikinn á slátrun að verða meiri. Guðmundur telur að hreina vatnið hérlendis eigi þar stóran hlut að máli. Hjá Máka starfa 6 manns meðan verið er að Ijúka stækkun á stöðinni en henni Iýk- ur í haust. Síðan munu 3 starfs- menn starfa í stöðinni. Máki hefur síðan í sumar átt í viðræðum við Byggðastofnun um kaup á eignum stofnunarinnar við Miklavatn í Fljótum, þ.e. Miklalax, en þær eignaðist Byggðastofnun eftir gjaldþrot fiskeldisstöðvarinnar. Þarna er m.a. seiðastöð sem mjög auðvelt er að helja framleiðslu £ en yfír- taka hennar mun kosta um 50 milljónir króna. Stóru kerin munu hins vegar kosta nokkur hundruð milljónir króna. Leitað er leiða í fjármögnuninni og er að vænta frétta af því á næstu vikum. GG Dagur hafsíus Árið 1998 er ár hafsins hjá Samein- uðu þjóðunum og næsti Iaugardag- ur, 12. september er dagur hafsins hjá SÞ. Af því tilefni verður m.a. Rannsóknarstofnun fískiðnaðarins með opið hús, Hafrannsóknarstofn- un verður opin og rannsóknarskip verður til sýnis í Reylgavíkurhölh. I Vestmannaeyjahöfh verða tvö fískiskip sem gestir geta skoðað og myndasýning verður á fískasafninu í Vestmannaeyjum. I Hafnarfirði verður Sjóminjasafnið opið. Sjávarút- vegsstofnun Háskólans verður með fjörukennslu fyrir leikskólakennara og sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri verður með ráðstefnu um sögu fiskveiða við Norður-Atlantshaf sem ætluð er fýrst og fremst inn- lendum og erlendum fræðimönnum en almenningi verður einnig gef- inn kostur á að sitja hana. Ráðstefhan átti upphaflega að vera 12. sept- ember en var færð til 18. september af óviðráðanlegum orsökum. GG Talsvert verður um að vera í Sjávarútvegshúsinu í Reykjavík á laugardaginn. SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf„ Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17. SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Ertu sammála fagblöðunum? Suzuki Grand Vitara hefur pó sjaldgœfu eiginleika, að geta raun- verulega sameinað í einum bíl hinn hefðbundna lipra fjölskyldubíl í bcejarumferðinni og jeppann dn þess að sprengja kaupgetuna. Ökuþór ... fœr „ Óskarsverðlaun Fyrir þœgindi og dncegjulegan akstur dsamt góðum utanvega- eiginleikum og lógum rekstrarkostnaði fcer Suzuki Grand Vitara titilinn „Bestu 4X4 kaupin undir 200.000 SEK" Motor (Svíþjóð) Með Grand Vitara hefur Suzuki komiðfram með nýja kynslóð jeppa sem er greinilega „fullorðnari" en sú ó undan. Auto Zeitung (Þýskaland) 2.5 V6 vélin... er dreynslulaus og öflug Idgum snúning og hún feykir Grand dfram ó hraða sem kemur ó óvart. Car (Bretland) Okkurfinnst hann vera réttur kosturfyrir kaupendur sem hugsa um verð, útlit, og vilja njóta lífsins. Truckworld online (Bandaríkin) irá 2.179.000 li

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.