Dagur - 10.09.1998, Síða 6
6- FIMMTUDÁ'GUR ÍÓ. SÉPTÉMBER 19 9 8
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjórar: stefán jón hafstein
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: MARTEINN JÓNASSON
Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 kr. á mánuði
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: soo 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: (reykjavík)563-1615 Amundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (reykjavík)
Keikó kemnr
1 fyrsta lagi
Island verður heldur betur í kastljósi fjölmiðlanna í dag þegar
háhyrningurinn Keikó kemur til landsins. Fjölmargir munu
fylgjast með því í beinum sjónvarpsútsendingum þegar hvalur-
inn verður fluttur frá Oregon í Bandaríkjunum til nýrra heim-
kynna sinna í Klettsvík við Heimaey. Enn fleiri munu sjá
myndir af atburðinum í hefðbundnum fréttatímum sjónvarps-
stöðva víða um heim og lesa um þessa einstæðu ferð bæði í
dagblöðum og á Netinu. Umfjöllun erlendra íjölmiðla um ein-
staka hvali hefur ekki verið jafn mikil frá því fyrir allmörgum
árum að fjölmiðlar heims stóðu á öndinni út af þremur hvöl-
um sem voru fastir í hafís norður af Kanada.
í öðru lagi
íslendingar hafa almennt tekið heimkomu Keikós vel. Engin
ástæða er til að ætla annað en að hann muni fá hér góða með-
ferð þann tíma sem hann á eftir ólifað. Samt eru ýmsir enn að
furða sig á því að Bandaríkjamenn og reyndar fleiri þjóðir geti
haft svona mikinn áhuga á einum hval og gagnrýna það við-
horf gjarnan út frá sjónarmiði veiðimannaþjóðfélagsins sem
íslendingar tilheyra enn þótt stoðir efnahagslífsins séu sífellt
að verða fjölbreyttari. Staðreyndin er hins vegar sú að allt í
kringum okkur lítur almenningur á hvali með allt öðrum aug-
um. Þess vegna eru hvalveiðar bannaðar í heiminum í dag.
í þriðja lagi
Það er mikilvægt fyrir íslendinga að nýta þau tækifæri sem
koma Keikós til landsins og dvöl hans hérna skapar til land-
kynningar. Og þau tækifæri eru mjög mikil, ekki síst í Banda-
ríkjunum þar sem Keikó hefur verið og verður vafalaust áfram
umfjöllunarefni í barnaskólum vítt og breitt um álfuna. Auð-
velt ætti að vera að koma því mörgu jákvæða, fallega og
skemmtilega sem ísland hefur upp á að bjóða á framfæri við
allt það fólk sem hefur áhuga á örlögum Keikós og mun því
fylgjast af athygli með dvöl hans hér.
Elías Snæland Jónsson
Sváfum ekki
Garri neitar algjörlega að trúa
því að íslensk sendinefnd hafi
sofið á fundum í öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu,
eins og Bush fyrrverandi
Bandaríkjaforseti hélt fram í
ómerkilegum sjónvarpsþætti
þar ytra. Bush gamli hefur
bara verið að reyna að vera
fyndinn og talið öruggast að
gera það á kostnað lítillar
þjóðar svo engin hætta væri á
að úr yrði hörð
milliríkjadeila.
Hann hefur talið
óhætt að móðga
litla þjóð út í ballar-
hafi. En við vitum
betur. Við vitum að
Steingrímur Her-
mannsson, Jón
Baldvin Hannibals-
son og þeir strák-
arnir myndu aldrei
dotta á ráðstefnu
um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu,
hvað þá sofa allir í einu. Bush
hélt því reyndar fram að Is-
Iendingarnir hefðu sofnað
undir ræðum hvers annars og
einn þeirra á meðan hann
flutti sína ræðu. Þetta er nátt-
úrulega eins og hvert annað
kjaftæði.
Steingrímur segir í Degi í
gær að hann myndi vel eftir
fundinum sem Bush var að
tala um. Hann hefði flutt
þarna ræðu og það geti ekki
verið að Jón Baldvin hafi sofn-
að undir henni, því hann hefði
hrósað sér sérstaklega fyrir
hana. „Eg veit ekki hvernig
hann hefði átt að geta gert það
ef hann hefði verið sofandi,"
sagði Steingrímur. Illgjarn
kunningi Garra hélt því reynd-
ar fram að hrósyrði Jóns Bald-
vins væru einmitt sönnun þess
V
að hann hefði verið steinsof-
andi, en það er náttúrlega
haugalygi.
Suniir svo leið-
inlegir
Garri hefur nokkrum sinnum
orðið vitni að því einkum á
norrænum fundum og ráð-
stefnum að einstaka maður
hefur lokað auga, en norræn
samvinna er líka svo
leiðinleg. Stein-
grímur viðurkenndi
Iíka í blaðinu í gær
að oft á Iöngum
ferli hefði hann orð-
ið syfjaður og ef-
laust nokkrum sinn-
um sofnað. „Enda
eru sumir svo Ieið-
inlegir að það er
ómögulegt að halda
sér vakandi og
hlusta á þá,“ sagði
Denni.
Og það er einmitt kjarni
málsins. Hafi íslenska sendi-
nefndin sofnað hefur það ver-
ið vegna þess að ræðumenn
voru svo ofboðslega leiðinlegir
að var ekki um neitt annað að
ræða í stöðunni. Og það hafa
verið ekki íslenskir ræðumenn.
Bush og félögum væri nær
að veita sín skammarverðlaun
þessum Ieiðindagaurum sem
alla svæfa á fundum með
endalausu málæði um ekki
neitt, en að eltast við þá sem
dotta öðruhvoru. Og við vitum
að það er engin hætta á að
okkar menn fái slík skammar-
verðlaun. Hvað sem um Stein-
grím og Jón Baldvin má segja
þá eru þeir ekki leiðinlegir.
GARRI
stétt en marklítil
Tekinn er til starfa í Reykjavík
nýr og glæsilegur viðskiptahá-
skóli sem aðeins tekur við úr-
valsnemendum og mun útskrifa
frábærar vitsmunaverur á sviði
kaupsýslu og IJármálaviðskipta.
800 sóttu um skólavist og 200
komust að en síðar mun verða
hægt að fjölga nemum. Við Há-
skóla Islands er fjölmenn við-
skipta- og hagfræðideild, í Borg-
arfirði er öflugur og vaxandi við-
skiptaháskóli og á Akureyri eru
kennd Qármálafræði á háskóla-
stigi. Fjöldi Islendinga stundar
framhaldsnám í hagvísindum við
virtustu menntastofnanir í há-
þróuðustu ríkjum veraldar.
Þá gera íslenskir prófessorar
víðreist og útbreiða fræði sín í
vanþróuðum ríkjum, sem áður
lutu efnahagsstjórn kommún-
ista. Sú þekking er nú að koma
þeim þjóðum á álíka kaldan
klaka og marxísk hagstjórn gerði
áður.
Um allan heim sitja nú hund-
Eftirsött
ruð þúsunda eða milljónir
manna við tölvuskjái og rýna í
óskiljanlegar og óútskýrðar tölur
um fall gjaldmiðla, hrun á verð-
gildi hlutabréfa, gjaldþrot fyrir-
tækja af öllum stærðum og gerð-
um, hrun banka- og peninga-
velda og kollsteypur ríkisstjórna
sem fá ekki við neitt ráðið.
Leiðin til fjár og
frama
Fólkið við tölvurnar og
hersveitir efnahags-
ráðgjafa er allt há-
menntað á sviðum við-
skipta- og peninga-
mála. Það á að baki
glæsilegan námsferil á
sviðum viðskipta og
tölvutækni. Samt getur enginn
séð fyrir hvað morgundagurinn
ber í skauti sér og jafnvel ekki
heldur hvað kom fyrir auðmagn-
ið í gær og fyrradag. Veðurfræðin
er komin miklu lengra í að spá í
tíðarfarið fram og til baka en öll-
um hagspekingum heimsins
tekst að segja fyrir um á sínu sér-
sviði. Samt er ekki alltaf takandi
mark á veðurspám.
A uppgangstímum tölvutækni
og Ijármunahræringa lá leiðin til
fjár og frama um skjáina. Þar
þeyta ungu sérfræðingarnir töl-
um og táknum heimshornanna á
milli og gífurlegar
upphæðir skipta um
eigendur á auga-
bragði og spákaup-
mennskan, sem er
eins og hvert annað
pókerspil sem byggir
á blekkingum, er
undirstaða gróða og
taps, allt eftir því
hvernig kaupin gerast
á eyrinni.
Nú eru farnar að berast fréttir
af hvernig þessi óábyrga spila-
mennska er farin að leika þátt-
takendurna. Hámenntuðu sér-
fræðingarnir og íjármálaráðgjaf-
arnir eru að missa tiltrú og þar
með vinnuna. í Moskvu taka þeir
sér stöðu við hlið betlaranna og í
kauphöllum og fjármálamörkuð-
um Asíu eru engin not fyrir þá
lengur.
Trúarbrögð eða vísindi?
Viðurkenndar hagfræðikenning-
ar standast ekki lengur, hagvaxt-
artrúin verður hjóm eitt þegar í
ljós kemur að gamlar og fyrirlitn-
ar kenningar, svo sem um endi-
mörk vaxtarins, og fleira sem
brýtur í bága við trúboð hagvaxt-
arsinna og ráðandi afla í hag-
fræðingaheiminum, eiga við rök
að styðjast.
Heimurinn horfir nú fram á
kreppuástand, sem enginn þorir
að spá um hvenær ríður yfir
Vesturlönd, hvernig það ber að
og hveijar afleiðingamar verða.
Það er meira að segja langt því
frá, að „fræðimenn“ geti útskýrt
hvað veldur. Að minnsta kosti
þegja þeir þunnu hljóði um það,
enda ábyrgðarminnst.
spurí's
svarad
Hefurþú sofnað áfundi
eða á ráðstefnu?
Sr. Hjálmar Jónsson
alþingismaður ogprestur.
„Nei, ég hef
aldrei sofn-
að, en það
hefur stund-
um Iegið
nærri.
Hættuleg-
ustu aðstæð-
urnar í því
sambandi
eru þegar menn halda langar og
Ieiðinlegar ræður og einsog þeir
viti ekki sjálfir hvað þeir eru að
fara eða taka alltof langan að-
draganda að kjarna málsins. I
fundasamfélagi nútímans þurfa
menn að kunna að vinna á fund-
um þannig að árangur náist.“
Ásdis HaUa Bragadóttir
aðstoðarmaður menntamálaráðherra.
„Nei, það
hef ég aldrei
gert. Hins-
vegar horfði
ég einu sinni
á kennara
sofna þegar
hann flutti
eigin fyrir-
Iestur og
þetta var í háskólanum hér
heima. Því trúi ég því að Bush
hafi séð ýmsar skemmtilegar
uppákomur á sínum ferli þó að
ómögulegt sé að segja til um
hvort fullyrðingar hans um ís-
lensku sendinefndina eigi við rök
að styðjast."
Jakob Bjömsson
fv. bæjarstjóri áAkureyri.
„Já, það hef-
ur einstaka
sinnum
komið fyrir
að manni
hafi runnið í
brjóst undir
löngum töl-
um, en
aldrei hefur
slíkt gerst þegar maður gegnir
einhverju ákveðnu lykilhiutverki
á fundinum. Þá harkar maður af
sér. Vissulega sér maður það
koma fyrir að menn sofni á fund-
um, einkum þegar menn sitja
lengi hreyfingarlausir kannski í
loftlausum sal.“
Ari Skúlason
Jramkvæmdastjóri Alþýðusambands
íslands.
„Nei, ég man
ekki eftir því.
Yfirleitt sef
ég ekki á
daginn og
læt mér duga
að sofa á
nóttunni.
Oft sé ég
menn sofa
hér heima á fundum, en maður
sér reyndar miklu meira af þessu
erlendis, sérstaklega í Suður-
Evrópu. Þar er matartími Iengri
en hér og matur þyngri og jafnvel
vín drukkið með. Því getur oft
orðið erfitt að halda sér vakandi
á fundum þegar komið er fram á
síðari hluta dagsins."