Dagur - 29.09.1998, Síða 4
4 - ÞRIDJUDAGUR 2 9. SEP TEMBER 1998
ro^tr
FRÉTTIR
Ágreiningur uiii girðingu
Ágreiningur hefur staðið milli ábúenda Hofsár og Ytra-Hvarfs í Svarf-
aðardal um girðingamál milli bæjanna og hveijum bæri að viðhalda
henni en hún telst varla held því m.a. kemst sauðfé auðveldlega leiðar
sinnar gegnum hana.
Fjölgað í fræðsluráði
Bæjarráo hefur samþykkt að styrkja 8. bekk Árskógarskóla um 50 þús-
und krónur vegna þátttöku í skólabúðum í Christianslyst í Þýskalandi.
Hafnað hefur verið umsókn um að sveitarfélagið greiddi 2/3 af meðal-
talskostnaði við námsvist í Brekkuskóla á Akureyri. Forsendur neitun-
ar eru þær að Iögheimilissveitarfélagið býður upp á kennslu í 10. bekk.
Samþykkt hefur verið tillaga skóla- og menningarfulltrúa, Kristjáns Að-
alsteinssonar, þess efnis að í fræðsluráði eigi grunnskólakennarar 2
fulltrúa en einn fulltrúi frá foreldrafélagi grunnskóla, starfsfólki leik-
skóla, foreldrafélagi leikskóla og skólastjórum grunnskóla, eða alls 6
fulltrúar. Kjörnir fulltrúar eru 5 og fulltrúar því alls 11 talsins.
Aðstaða íarþega í takt við tíinann
Bréf hreppsnefndar Hríseyjar-
hrepps um aðstöðu fyrir Hríseyj-
arfetjuna á Árskógssandi, Dalvík
og Hrísey var nýlega til umræðu
á fundi Hafnarsamlags Eyja-
Qarðar, og aðgengi þeirra sem
með henni ferðast. Akveðið var
að skrifa samgönguráðuneytinu
bréf og óska eftir úttekt á að-
stöðu Hríseyjarferjunnar og
Ieggja fram kröfur um að að-
staða skips og farþega við
bryggjur og aðgengi um borð í
ferjuna verði í samræmi við
kröfur tímans. Ennfremur að hugað verði að ytri mannvirkjum, s.s.
gijótgarði á Árskógssandi.
Jólamarkaðshelgi
Helgina 12. og 13. desember nk. verður jólamarkaðshelgi á Dalvík og
verða þá verslanir opnar og þar í gangi tilboð og ýmsar uppákomur.
Jólamarkaður verður í félagsheimilinu Víkurröst og jólatrésskemmtun
með jólasveinum og því sem þeim fylgir.
Ákveðið hefur verið að óska eftir út-
tekt á aðstöðu Hríseyjarferjunnar.
Samið um snjómokstui
Samið hefur verið við Arna Helgason í Olafsfirði um snjómokstur og
hálkuvörn milli Dalvíkurbyggðar og Ólafsljarðar og eins í Svarfaðardal
og er samningurinn til tveggja ára. Verktaki mun einnig annast vegaeft-
irlit og upplýsingar um færð. I tilboði Árna Helgasonar var gjald á km
170 krónur, tímagjald á snjóblásara 9.800 krónur, timagjald á veghefil
6.800 krónur og tímagjald á hjólaskóflu 6.600 krónur. Tvö önnur til-
boð bárust; frá Steypustöðinni og Jarðverki á Dalvík.
Dalvíkingar í 1. deild
Lið Dalvíkinga íknattspymu tryggði sér rétt til keppni í 1. deild knatt-
spyrnunnar (B-deild) er þeir burstuðu Siglfirðinga 5-1 í síðasta leik
mótsins í roki, rigningu og jafnvel hagléli. Þar með endurheimtu Dal-
víkingar sæti sitt í deildinni sem þeir misstu haustið 1997. I Iokahófi
meistaraflokks var Atli Már Rúnarsson (einnig þekktur sem handknatt-
leiksmaður með Þórsurum á Akureyri) kjörinn leikmaður ársins en
ársmiðahafar kusu sóknarbakvörðinn Marinó Ólason besta mann árs-
ins. — GG
Fulltrúakjör
Kjör fulltrúa Sjómannafélags Eyjafjarðar á 21. þing
Sjómannasambands íslands fer fram að viðhafðri
allsherjar atkvæðagreiðslu.
Framboðslistum með nöfnum 6 'aðalfulltrúa og 6 varafulltrúa
skal skilað til skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, Akureyri
eigi síðar en kl. 16.00 föstudaginn 2. október 1998.
Til þess að bera fram lista þarf skrifleg meðmæli
frá minnst 51 fullgildum félagsmanni.
Akureyri 25. september 1998.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.
í stað þess að beygja til vinstri upp gamla veginn á Fljótsheiðinni býðst nú nýr og glæsilegur vegur, beygjulaus að
mestu. Verkið hefur hins vegar tekið langan tíma og reynst kostnaðarsamt. - mynd: bþ
Erfíðrí vegafram-
kvæmd lokið
Nýr og glæsilegur veg-
ur gjörbreytir umferð
á Fljótsheiði.
Nýr 10 km langur vegur yfir
Fljótsheiði i S-Þingeyjarsýslu
hefur verið tekinn í notkun. Veg-
urinn er ein helsta samgöngubót
síðari tíma í héraðinu, enda
gamli vegurinn yfir heiðina orð-
inn afar lélegur. Aðeins tvær
beygjur sem eitthvað kveður að
eru á nýja veginum og halli
aldrei mikill, auk þess sem nýtt
útsýni opnast.
Verktakinn Háfell hefur séð
um framkvæmdirnar og gengu
þær ekki áfallalaust fyrir sig.
Hafist var handa í júlí árið 1996
en veðurfar og meira burðarefni
en ráð var fyrir gert seinkaði
verklokum og jók kostnað. Áætl-
un gerði ráð fyrir 133 milljónum
kr. en Eiður Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Háfells, segir líkur
á að farið verði allt að 30% fram
úr því. „Þetta var erfitt verk og
það er ákveðinn léttir að því sé
að ljúka. Við erum núna að
ganga frá afleggjurum að bæjun-
um og þá á bara eftir að strjúka
eitthvað yfir kanta með jarðýtu
og svoleiðis," segir Eiður.
Engum sögum fer af því hvort
samgönguráðherra muni draga
fram klippurnar og opna veginn
við hátíðlega athöfn. Eiður segist
allt eins hafa búist við að svo
yrði, en hann hafði engin svör
við þeirri spurningu. — BÞ
Flokksforystan fékk
stuðning Vestfirðinga
Kjördæmisráð Al-
þýðubandalagsins á
Vestfjörðum lagði
blessun sína yfír mál-
efnaskrána og sam-
fylkinguna. Eru þó á
móti auðlindagjaldi í
sjávarútvegi og vilja
rneirí byggðasjónar-
mið.
Kjördæmisráð Alþýðubandalags-
ins á Vestfjörðum, sem haldið
var á Isafirði um helgina, sam-
þykkti sérstaka ályktun um
stuðning við störf forystu AI-
þýðubandalagsins og þingmenn
flokksins i samfylkingarmálun-
um. Einnig samþykkti kjördæm-
isráðið að óska eftir viðræðum
við Alþýðuflokk og Kvennalista
um sameiginlegt framboð í kjör-
dæminu fyrir næstu kosningar.
Samþykkt kjördæmisráðsins er
nokkuð ótvíræð og þvert gegn yf-
irlýsingum Kristins H. Gunnars-
Smári Haraldsson: Alþýðubanda-
lagsfólk á Vestfjörðum lítur á mál-
efnaskrá samfylkingarinnar sem
merkilegt grundvallarplagg.
sonar þingmanns flokksins í
kjördæminu um að málefnaskrá
samfylkingarinnar sé ónýtt
plagg. Kristinn hefur lýst því yfir
í fjölmiðlum eftir kjördæmis-
ráðsfundinn að andstaða hans
gegn málefnaskránni beinist
fyrst og fremst að hugmyndum
um veiðileyfagjald. Hann ætli sér
ekki að vera í framboði fyrir flokk
sem boði veiðileyfagjald.
Smári Haraldsson, formaður
kjördæmisráðsins, segir í samtali
við Dag að kosin hefði verið
þriggja manna nefnd til að ganga
til viðræðna um sameiginlegt
framboð. „Samþykktir kjördæm-
isráðsins eru mjög ótvíræðar.
Málefnaskráin var aðalefni fund-
arins og almennt séð lítum við á
hana sem merkilegt grundvall-
arplagg. Hins vegar er þetta
málamiðlun ólíkra skoðana á
sumum sviðum og við Vestfirð-
ingar höfum haft sérstöðu í sum-
um málum. Þar bera sjávarút-
vegsmálin hæst, þar sem við höf-
um verið á móti kvótakerfinu og
auðlindagjaldi í sjávarútvegi.
Einnig kom fram á fundinum að
í plagginu mættu vera kröftugri
byggðasjónarmið. Mín túlkun er
að flokksfólk hér líti á byggða-
sjónarmiðin eins og kvenfrelsis-
konurnar líta á kvenfrelsismálin
og leggi þetta að jöfnu - við vilj-
um sjá þetta alls staðar inni í
málatilbúnaðinum,11 segir Smári.
- FÞG