Dagur - 29.09.1998, Qupperneq 11

Dagur - 29.09.1998, Qupperneq 11
Tfc^Mr ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBF.R 199 8 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR HEIMURINN Helmut Kohl ásamt Joschka Fischer, leiðtoga Græningja, sem gæti orðið utanríkisráðherra Þýskalands innan skamms. Jafnaðarmeim og Græningjar í stjðm Kanslaraskipti verða í Þýskalandi innan skamms og ætla Jafn- aðannenn að reyna stjómarmyndun með Græningjnm. Urslit kosninganna í Þýskalandi á sunnudag verða að teljast sögu- leg. Helmut Kohl, sem verið hef- ur kanslari í 16 ár, missti meiri- hluta sinn og alit stefnir í það að Jafnaðarmenn myndi rfkisstjórn með Græningjum. Bæði Græningjar og Jafnaðar- menn hafa samþykkt að ganga til stjórnarmyndunarviðræðna, og eiga þær að hefjast á föstudag- inn. Gerhard Schröder varaði Græningja þó við því að koma með of miklar kröfur til viðræðn- anna. Jafnaðarmenn og Græningjar hafa sameiginlega 345 þingsæti, en aðrir flokkar samtals 224, þannig að þingmeirihluti ríkis- stjórnarsamstarfs þeirra nemur 21 þingsæti. Gömlu stjórnar- flokkarnir, Kristilegir demókratar og Frjálsir demókratar, hafa að kosningum Ioknum aðeins 289 þingsæti. Schröder fer sér hægt Gerhard Schröder ætlar þó ekk- ert að flýta sér í stjórnarmyndun- arviðræðum. Skipting þingsæta bjóðí að vísu upp á „rauðgræna" stjórn Græningja og Jafnaðar- manna, en það sé innihald mál- efnasamningsins sem öllu skiptir. „Vandvirkni vegur þyngra en flýtirinn," sagði hann og hyggst m.a. fara til Frakklands áður en kanslaraskiptin verða. Joschka Fischer, leiðtogi Græningja og hugsanlegt utan- ríkisráðherraefni nýju stjórnar- innar, hvatti flokksfélaga sína hins vegar til að fara sér hægt í kröfugerðinni. „Meirihlutinn er fenginn, en nú þarf að hrinda honum í framkvæmd," sagði hann. „Það verður ekki auðvelt verk.“ Kohl og Waigel víkja sem leiðtogar Alls hlaut Jafnaðarmannaflokkur Schröders 40,9% atkvæða og 298 þingsæti. Kristilegir demókratar fengu 35,2% og 245 þingsæti. Græningjar hlutu 6,7% og 47 þingsæti, en Frjálsir demókratar 6,2% og 44 þingsæti. Bæði Græningjar og Fijálsir demókrat- ar töpuðu nokkru fylgi frá síð- ustu kosningum. Sósíalistaflokk- urinn, arftaki gamla austurþýska kommúnistaflokksins, bætti hins vegar lítillega við sig fylgi og fékk 5,1% atkvæða og 35 þingmenn. Sunnudagurinn var Kristileg- um demókrötum erfiður dagur. Helmut Kohl játaði ósigur sinn strax eftir að úrslit urðu ljós, og tilkynnti jafnframt að hann myndi láta af embætti flokksleið- toga Kristilega demókrataflokks- ins (CDU). Theo Waigel, leiðtogi Kristi- Iega sósíalbandalagsins (SCU), sagðist í gær sömuleiðis ætla að láta af embætti sínu. CDU og CSU eru systurflokkar sem buðu fram undir sameiginlegri stefnu- skrá. Arangur CSU í Bæjaralandi um helgina var sá versti sem um getur frá því 1949, þrátt fyrir að flokkurinn hafí fengið 47,7% at- kvæða þar. Nánast öruggt þykir að arftaki Kohls sem leiðtogi CDU verði Wolfgang Scháuble, núverandi þingflokksformaður. Edmund Stoiber, forsætisráðherra í Bæj- aralandi, tekur hins vegar við for- ystu í CSU þegar Waigel hættir. Frjálsir demókratar hugsa sér gott tH glóðariunar Ekki eru allir ánægðir með að Græningjar taki sæti í ríkisstjórn Þýskalands, og til að mynda hafa þýskir fjármálamenn sagt að betri kostur væri að SPD færi í stóra samsteypustjórn með CDU/CSU. Hálfpartinn var reiknað með því að úrslita kosn- inganna yrði vart á fjármála- mörkuðum, og verðbréf lækkuðu eitthvað f verði, a.m.k. um stund- arsakir þangað til málin skýrðust smám saman eftir stjórnarskipt- in. Þess varð þó ekki vart í gær, að sögn verðbréfasala í Frank- furt. Orkumálin verða væntanlega erfiðasta málið í samstarfi Græn- ingja og Jafnaðarmanna. Græn- ingjar hafa lagt gífurlega áherslu á umhverfísmál í kosningabarátt- unni og verða ekki reiðubúnir til að víkja frá þeim kröfum nema að takmörkuðu leyti. Frjálsir demókratar virðast hins vegar hugsa sér gott til glóð- arinnar að fá að vera í stjórnar- andstöðu næstu árin. Nú þurfi þeir ekki að ganga í neinar mála- miðlunarstjórnir með öðrum flokkum og geti því unnið að því að bæta ímynd sína og styrkja stöðu sína meðal kjósenda með- an aðrir fá að spreyta sig í stjórn. A sunnudaginn fóru einnig fram kosningar til Iandsþings í Mecklenburg-Vorpommern, og þar fóru Jafnaðarmenn sömu- leiðis með ótvíræðan sigur af hólmi. Þrír flokkar náðu þar mönnum á þing. Kristilegir demókratar 30,2% atkvæða og 24 þingsæti, Jafnaðarmannaflokkur- inn fékk 34,3% atkvæða og 27 þingsæti, en Sósíalistaflokkurinn hlaut 24,4% atkvæða og 20 þing- sæti. - GB Friðarferlið komið úr sjálfheldimui? BANDARIKIN - Jasser Arafat og Benjamin Netanjahu áttu í gær óvæntan fund með Bill Clinton Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í Washington. Fundurinn var ákveðinn eftir að bæði Arafat og Netanja- hu höfðu rætt við Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, á allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna í NewYork. Albright sagði árangur hafa náðst á þeim fundi, sem gæfi tilefni til fundarins með Clinton. Bandaríkin hafa reynt að koma friðarsamningum Israels og Palestínumanna út úr þeirri sjálfheldu, sem þær hafa verið í um 18 mánaða skeið. ans Japan Leasing Corp- oration úrskurðað gjaldþrota, og eru skuldir fyrirtækisins metnar á rúmlega 1.000 milljarða íslenskra króna. Þetta er því dýrasta gjaldþrot í sögu Japans eftir seinni heimsstyijöldina. Fjármálaráðherra Japans sagði í gær að gjaldþrotið kæmi ekki á óvart. Mikill órói hefur verið í japönsku fjármálalífi undanfarið og horfur tvísýnar. Ríkisstjórn og stjórnarandstaða náðu í gær samkomulagi um heildarlagasetningu til þess að reyna að koma á stöðugleika að nýju. Georg olli miklum usla BANDARIKIN - Gífurlega mikil úrkoma fylgdi fellibylnum Georg í gær þegar hann reið yfir suðurríkin Missisippi og Alabama í Bandaríkjun- um. Fellibylurinn skall á ströndinni við hafnarborgina Biloxi í Miss- issippi, og mældist vindhraðinn þá 273 km á klukkustund. Mikið tjón varð á mannvirkjum, en ekki var vitað til þess að fólk hafi meiðst eða látist af völdum veðurofsans. 400 manns þurftu að flýja úr neyðarskýli þegar þakið á því rifnaði af. Serbar lýsa yfir sigri JUGOSLAVIA - Serbnesku öryggissveitirnar lýstu yfir sigri í gær í bar- áttunni gegn albönskum uppreisnarmönnum f Kosovo-héraði. Samt sem áður vöruðu þeir við því að til frekari hernaðar kunni að koma ef uppreisnarmenn fari á stjá að nýju. QKUJŒRIÍIOIA Kenni á Subaru Legacy. Tímar eftir samkomulagi. Útvega náms- GÖGN. HJÁLPA TIL VIÐ ENDURNÝJUNARPRÓF. Ingvar Björnsson ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri Sími 899 9800 Heimasími 462 5692 G ýARÐARBER • JARÐARBER • BLANDAÐIR AVEXIIR • HNETUR OG KARAMELLA • SUKKULAÐIOG JARÐAR^ % Mí&íkwts-amétig:

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.