Dagur - 03.10.1998, Blaðsíða 2
i
't
r
[
f
'}
r
h
r
r
f
f
r
F
r
f
[
í
f
r
I
r
r
r
C « O o ^ « r, .. ... O -V t. r> > r. « K ~ „ * ,
2 - LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
FRÉTTIR
Átakshópur öryrkja hafði uppi þögul mótmæli fyrir framan A/þingishúsið í fyrrakvöid til þess að minna á bág kjör öryrkja.
- mynd: teitur
Hafa ekki lengur efni
á nærmgarríkum mat
Um það bil helmingur
þeirra sem leita ásjár hjá
hjálparstofnunum í land-
inu í dag eru öryrkjar.
Eitt af því sem vakið hefur umræður í
kjölfar umræðunnar um stefnuræðu
forsætisráðherra í fyrrakvöld eru kjör
öryrkja í landinu. Sú staðreynd að ör-
yrkjar höfðu uppi þögul mótmæli fyrir
ffaman Alþingishúsið meðan umræð-
an fór fram hefur ýtt undir að koma
málinu á dagskrá. Sem kunnugt er röð-
uðu þeir sér upp frá Landssímahúsinu
að Hótel Borg með kyndla í höndum.
„Það sem við vorum að gera var að
vekja athygli á því að almannatrygging-
ar á íslandi rísa ekki lengur undir
nafni. Þær standast ekki Iengur
samanburð við nágrannlönd, sem eru
sambærileg við okkur í þjóðartekjum.
Við erum að vekja athygli á því að hér,
í einu ríkasta landi veraldar, er örorka
ávísun á hreina fátækt. Enda er nú svo
komið að helmingur skjólstæðinga
Rauða krossins og Hjálparstofnunar
kirkjunnar er fólk, sem vegna veikinda
hefur hvorki til hnífs né skeiðar," sagði
Garðar Sverrisson, varaformaður Or-
yrkjabandalagsins og talsmaður átaks-
hóps öryrkja, sem stóð fyrir mótmæla-
stöðunni.
Ekki efni á næringamkum mat
Hann segir að alvarlega veíkt fólk sé á
hrakhólum hér á Iandi og hafi ekki efni
á næringarríkum mat.
„Þetta þekkja allir sem eitthvað hafa
komið nálægt þessum málum. Við hjá
Öryrkjabandalaginu og starfsmenn
Tryggingastofnunar, prestar og starfs-
menn hjálparstofnana þekkja þetta
ástand. Vandinn er sá að fólk hefur
forðast um of að opinbera þessa neyð
sína. í því skjóli skáka ráðamenn, sem
fram til þessa hafa talið það til vin-
sælda fallið að halda tryggingabótum í
algeru Iágmarki," segir Garðar.
Hann segir að samkvæmt umfangs-
mestu könnun sem gerð hefur verið á
viðhorfum íslendinga til þessara mála
komi í Ijós að meginþorri Islendinga sé
búinn að fá nóg af því hvernig farið er
með öryrkja á Islandi í dag.
„Þótt forsætisráðherra tali mikið um
ábyrgð og festu eru þau kjör sem hann
og samstarfsmenn hans búa öryrkjum
hvorki ábyrg né sýna virðingu fyrir fötl-
uðum. Þau endurspegla einungis við-
horf, sem víðast hvar í nágrannalönd-
um okkar er búið að uppræta, að
minnsta kosti meðal ráðamanna,"
sagði Garðar Sverrisson. - S.DÓR
í pottinum var verið að ræða þá
tímamótastaðreynd að Alþýðu-
bandalaginu hefur verið boðið
að senda sendinefnd í opinbera
heimsókn til Kúbu. Eftir þvl
sem tilkynnt hefux verið verð-
ur farið í ferðina þann 7. nóv-
ember, sem er jú byltingaraf-
mælisdagtuinn og þvl afar við-
eigandi. Þeir pottverjar sem telja sig þekkja til
segja að þetta heimboð Castrós sé ekki til komið
eftir að Sameiginlega framboðið tilkynnti tnn
stefnu sina gagnvart bandaríska hemum og
Nato, heldur tengist það utanför Margrétar Frí-
mannsdóttur tilKúbuífyrra...
Margrét
Frímannsdóttir.
En í tilefni af þessu hafa menn
rifjað upp að á sama tírna og
formaður Alþýðubandalagsins
var á Kúbu var þar líka Stein-
grímur nokkur Sigfússon og
telja menn hann ekki minni
Kúbuvin en Margréti. Þar sem
hugmyndin mun vera að leyfa
áhugasömum óbrcyútiim Alla-
böllum að koma með sendinefndinni í heim-
sóknina telja Steingrímsmenn í pottinum ein-
sýnt að orða hefði átt boðið þannig að ferðin
væri opin Allaböllum og pólitískum nærsveitar-
mönnum...
Í sjónvarpsumræðunum í
fyrrakvöld vakti athygli að
Halldór Ásgrímsson talaði
tvisvar. I pottinum hafa menn
skýringar á þvl á reiðum hönd
um og segja að nú sé í gangi svo
víðtæk og ákveðin barátta
milli þinginanna um vegtyllur
í flokknum að formaðurinn
hafi ekki talið sér stætt á að gefa mönnum færi á
að auglýsa sig í umræðunni. Þannig hafi hann
kosið gömlu framsóknarieiðina - að kjósa heldur
friðinn en ófriðinn...
Halldór
Ásgrímsson.
VEÐUR OG FÆRÐ
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig, súlu-
ritið 12 tíma
úrkomu en
vindáttir og vind-
stig eru tilgreind
fyrir neðan.
Austan- og
norðaustanátt
kaldi eða stinn-
ingskaldi og rign-
ing við suðaust-
ur- og aust-
urströndina í
nótt. Skúrir
Norðanlands en
á Suðvestur- og
Vesturlandi léttir
til. Heldur
hægari á morgun.
Kólnandi veður í
bili.
Færð á vegiim
Hálkublettir eru á Öxarfjarðarheiði. Hálka er á Hellisheiði eystri. Hálendisvegir eru
taldir færir fjallabílum. Að öðru leyti er góð færð á þjóðvegum Iandsins.