Dagur - 03.10.1998, Síða 6
Xfc^MT
6 - LAVGARDAGVR 3'. OKTÚBER 1998
ÞJÓÐMÁL
Utgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjórar: stefAn jón hafstein
ELÍAS SNÆLANO JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUEMUNDSSON
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu si, akureyri,
GARDARSBRAUT 7, HÚSAVlK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: í.ean kr. á manuj
Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarbljd
Grænt númer: 800 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simar auglýsingadeildar: (REYKJAViK)563-i6i5 Amundi Amundason
(AKUREYR0460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang augiýsingadeiidar: omar@dagur.is
Simbréf ritstjórnar: 460 617kakureyro 55i 6270 (reykjavi'k)
Stj ómarandstaða
í fyrsta lagi
Ekkert er mikilvægara lýðræðinu en stjórnarandstaðan. An
stjórnarandstöðu er ekkert lýðræði. Því verður að gera stífar
kröfur til stjórnarandstæðinga bæði í sveitarstjórnum og í
landsstjórninni, ekki síður en til þeirra sem ráða meirihluta og
sitja í valdastólum. Auðvitað þarf stjórnarandstaðan að vera
málefnaleg og hvöss, en hún þarf líka að vera á því formi að
kjósendum finnist að verið sé að veita ráðandi öflum raun-
verulegt aðhald. Stjórnarandstaða má ekki verða eitthvað væl
eða sýndarmennska. Hana má ekki gengisfella.
í öðru lagi
Kveinstafir samfylkingar jafnaðarmanna, burðarássins í stjóm-
arandstöðunni, vegna einhverra ummæla Davíðs Oddssonar
eru ekki til þess fallnir að skapa tiltrú á stjórnarandstöðuna hjá
kjósendum. Tal um að pólitísk skot bæði fyrir þingsetninguna
og í stefnuræðu forsætisráðherrans á andstæðinga sína séu
„óviðeigandi" eða „útúrsnúningar" eða „ergelsi“ eða hvað
menn hafa kallað það, er vitnisburður um stjórnarandstöðu í
mikilj,i vörn en ekki sókn. Og vörnin snýst ekki um eitthvað
sem hinum almenna kjósanda kemur við. Kjósandinn fær það
sterklega á tilfinninguna að stjórnarandstaðan telji það aðalat-
riði máls, að Davíð hafi verið dónalegur við sig!
í þriðjalagi
I Reykjavík blasir nú við annað dæmi um mikinn misskilning
varðandi taktík í stjórnarandstöðu. Þar hamast stjórnarand-
staða sjálfstæðismanna við að draga upp einhver lögfræðileg
álitamál um form og fundarsköp fyrst varðandi hvaða vara-
borgarfulltrúi eigi að koma inn og síðan hver eigi að vera fund-
arstjóri á fundum borgarráðs. Þessu er svo stillt upp sem stór-
málum stjórnarandstöðunnar. En öllum er auðvitað nákvæm-
lega sama. Stjórnarandstaða er mikilvæg og hún er sérstak-
lega mikilvæg þegar hún glímir við sterkar stjórnir eins og í
þeim tilvikum sem hér hafa verið nefnd. Því má syrja: Er ekki
kominn tími til að tengja?
Birgir Guðmundsson
Útgáfufélag: dagsprent
Technopromex-
port próblemið
Leikir og lærðir virðast upp til
hópa hvorki botna upp né nið-
ur í Technopromexport
próbleminu. I fljótu bragði er
ekki að sjá að hér sé í raun
nokkurt vandamál á ferðinni, í
hæsta lagi einhver smá mis-
skilningur sem hægt væri að
leysa á augabragði.
Rússneskt Iínulagningarfyr-
irtæki er mætt upp á klakann
til að leggja lín-
urnar fyrir Lands-
virkjun og brúkar
til þess undirborg-
aða innflutta
verkamenn. Þetta
er ólöglegt á Is-
landi, um það eru
allir sammála, og
þar með skyldi
maður ætla að
gengið yrði í mál-
ið, misskilningur,
vísvitandi eða óviljandi, leið-
réttur og réttlætið nái því fram
að ganga. En aldeilis ekki.
Technopromexport hefur sem
sé ekki einungis Iagt raflínurn-
ar fyrir Landsvirkjun heldur
einnig lagt Landsvirkjun og
stjórnvöldum línurnar í kjara-
málum og þar stendur hnífur-
inn í kúnni, enginn skilur neitt
í neinu og allir standa á gati.
Nema náttúrlega Garri sem
ævinlega sér hlutina í réttu
Ijósi og skilur þá dýpri skiln-
ingi en grunnhyggnir ráða-
menn og landslýður.
Gvendur
Stalínisti
Málið snýst nefnilega ekki,
nema á yfirborðinu, um kaup
og kjör, vinnulöggjöf og rétt-
indi erlendra verkamanna á Is-
landi. I þessu máli er tekist á
V
um framtíð heimspólitíkurinn-
ar, hugsanlega endurreisn
kommúnismans í endursam-
einuðum Sovétríkjunum,
hvorki meira né minna.
I gamla Sovétinu þræluðu
verkamenn á hungurlaunum
heimafyrir. I hinu nýfrjálsa og
umbætta Rússlandi fá þræl-
arnir að fara úr landi til að
puða og púla. Það er nú allur
munurinn. Og
það sem mafíós-
arnir í Moskvu,
Landsvirkjun og
íhaldsstjórnin á
Islandi óttast öðru
fremur er að hér
takist að æsa upp í
rússnesku verka-
mönnunum slíkar
óartir að þeir
krefjist afturhvarfs
til kommúnisma
heimafyrir.
Páll Pétursson trúir því aug-
ljóslega, og hugsanlega með
réttu, að Guðmundur Gunn-
arsson sé laumu-Stalinísti og á
launum hjá andskotum um-
bótamanna í Rússlandi við að
efla ólund innfluttra Iínulagn-
ingamanna. Enda hefur Páll
sagt að hann kippi sér Iítt upp
við kvakið í Gvendi og megi
hann pípa lengi áður en mark
verði á tekið.
Rússnesku verkamennirnir
eru einungis leiksoppar heims-
pólitískra átaka og
Technopromexport próblemið
kemur, þegar jafn djúpt er rýnt
og Garra er einum Iagið,
verkalýðsmálum og vinnulög-
gjöf ekkert við. Því ef svo væri,
þá hefði vandamálið verið
leyst um leið og það kom upp.
GARRI
Rússnesku verkamennirnir
eru leiksoppar heimspólit-
ískra átaka.
ELÍAS
SNÆLAND
JÓNSSON
skrifar
Alltaf jafii hlssa
Makalaust er að fylgjast með við-
brögðum forystumanna vestur-
veldanna vegna fréttanna frá
Kosovo um fjöldamorð Serba á
óbreyttum borgurum af albönsk-
um ættum, en fréttamenn hafa
staðfest með frásögnum og
myndum að slík ódæðisverk hafi
verið framin á að minnsta kosti
tveimur stöðum síðustu daga.
Utanríkisráðherra Rreta,
Robin Cook, er dæmigerður fyr-
ir þá „leiðtoga" sem láta sem það
hafi komið þeim afskaplega mik-
ið á óvart að sendisveinar Milos-
evic einræðisherra í Belgrad
skuli standa fyrir slíkum hryðju-
verkum.
Þetta er sami maðurinn og
lýsti því yfir í sumar, þegar
Milosevic setti sjö mánaða her-
för sína gegn Kosovo-Albönum á
fulla ferð, að umheimurinn hefði
Iært af svívirðilegu framferði
Serba í Bosníu og myndi alls
ekki Ieyfa end-
urtekningu á
þeim harmleik
í Kosovo. I
verki hafa
vestræn ríki
hins vegar gef-
ið Milosevic
fqálsar hend-
ur til hernað-
araðgerða og
það hefur að
sjálfsögðu leitt
til gíftjrlegra
hörmunga og
nú fjölda-
morða í
Kosovo. Því er
það hámark
hræsninnar
þegar stjórn-
málamenn
sem segjast hafa lært af margra
ára hermdarverkum Serba
Bosníu skuli nú þykjast undrandi
á því að liðs-
menn hans
fari fram með
sama hætti í
Kosovo.
Sundruð
hjörð
Hernaðarátök
halda áfram í
Kosovo þótt
Milosevic
Ijúgi að um-
heiminum að
hersveitir
hans hafi lok-
ið sér af. Fyr-
ir liggur að um
300 þúsund
manns eru á
flótta eftir að
Serbar hafa
lagt heimili þeirra í rúst. Tals-
menn hjálparsamtaka hafa ftrek-
að varað við því að mannskæðar
Enn kom fjöldamorð sendisveina
Milosevics vestrænum stjórnmála-
mönnum á óvart!
hörmungar séu framundan í
væntanlegum vetrarkuldum ef
ekki verði gripið í taumana strax.
í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna er sundruð hjörð. Rússar
halda verndarhendi yfir vini sín-
um Milosevic eins og venjulega.
Kínverjar líta á atburðina í
Kosovo sem innanríkismál
Serba; Milosevic megi fara með
„þegna“ sína eins og honum sýn-
ist. Fleiri þjóðir eru hikandi, þar
á meðal áhrifamikil ríki innan
Evrópusambandsins.
Það er því í reynd í höndum
bandarískra stjórnvalda hvort
gripið verður til einhverra að-
gerða gegn Serbum. Þótt ekki sé
útilokað að Bandaríkjamenn
muni skjóta nokkrum eldflaug-
um að hernaðarskotmörkum
Serba, telja stjórnmálaskýrendur
þó enn mestar líkur á að Milos-
evic fái áfram að gefa umheimin-
um langt nef.
spurtfe
svaraö
Gafst breyttfyrirkomu-
lag stefnuræðuforsætis-
ráðherra og umræðunn-
arum hana vel?
Atli Rúnar Halldórsson
„Nei eiginlega
ekki. Mér finnst
rétt að gera þetta
á fyrsta degi en
rangt að slíta
stefnuræðuna
sjálfa frá umræð-
unni um hana. Eg gat ekki fylgst
neitt með stefnuræðunni sjálfri,
ég vissi bara óljóst um hvað hún
snérist. Þetta virkaði á mig eins
og stefnuræða Sighvats Björgvins-
sonar af því hann byrjaði og lengi
vel vissi ég ekki inn í hvaða pró-
gram ég var kominn.“
Ásdís HaUa Bragadóttir
aðstoðarmaðurmenntamálaráðherra.
„Þetta var skárra
en venjulega.
Þegar menn voru
fyrst að mæla
með að þessi
breyting yrði gerð
hélt ég að þetta
yrðu aðeins meiri tímamót. Helsti
kosturinn við þetta fannst mér að
stefnuræðan og fjárlagafrumvarp-
ið héldust hönd í hönd þannig að
maður gat náð betur utan um það
á einum degi hvernig veturinn
yrði og hvað ríkisstjórnin ætlaði
sér. Ég varð hins vegar fyrir mikl-
um vonbrigðum með stjórnarand-
stöðuna. Mér fannst hún mjög
máttlaus og veik og halda áfram í
sama tuði og hún hefur verið
undanfarnar vikur. Ekkert nýtt og
ekkert ferskt.“
Jóhanu Ársælsson
„Mér fannst vera
sá galli á þessu að
stefnuræðu for-
sætisráðherrans
var útvarpað
löngu áður og við
sem erum venju-
legt fólk að vinna úti í bæ heyrð-
um hana ekki. Við aftur á móti
heyrðum umræðurnar um hana.
Mér fannst það verulegur ágalli
að forsætisráðherra svaraði ekki
gagnrýni stjórnarandstöðunnar í
umræðunum. Umræður um
stefnu eru ekki alvöru umræður
nema að menn veiti andsvör við
gagnrýni. Halldór Asgrímsson
gerði það og svaraði að sumu leyti
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en ég
býst ekki við að öllum hafi fundist
það fullnægjandi. Umræðurnar
þyrftu að koma í beinu framhaldi
af stefnuræðunni."
Gissur Pétursson
forstjóriVinnumálastoJhunar.
„Setningarat-
höfnin hefur til
þessa verið virðu-
leg samkoma sem
hefur lyft Alþingi
upp og verið
táknræn athöfn
um hve mikilvæg stofnun þingið
er í okkar samfélagi. Menn hafa
afgreitt setninguna með þokka-
legum hátíðarbrag, en snúið sér
að hörðu málunum á eftir. Það fór
ekki vel í mig að þessu skyldi
núna öll hrært saman og að for-
sætisráðherra hefði tækifæri til að
berja á stjórnarandstæðingum en
þeir hefðu ekki tækifæri til að
svara fyrir sig íýrr en síðar."
skipasmiður.
blaðamaður.