Dagur - 03.10.1998, Page 9
LAUGARDAGUR 3 . OKTÓBIER 19 9 8 9
isumræðunni, annar „vinur litla mannsins"
r áherslu á að horfa til framtíðar og auka
gerst því að heilmikil tekjuaukning
varð á þessum tíma,“ svarar Sigurður.
Nauðsynlegt að bæta
skólakerfiö
„Eg held að við verðum að Iíta á Iaun
sem nokkurs konar greiðslu íyrir
þjónustu þar sem markaðurinn hefur
í raun og veru síðasta orðið. Síðustu
einn til tvo áratugi hefur eftirspurn
eftir vinnu fólks með menntun, þekk-
ingu og reynslu úr tæknigreinum
aukist mikið og farið sívaxandi en eft-
irspum eftir vinnuafli í ófaglærðu
greinunum hefur sennilega minnkað.
Þess vegna hafa kjörin ekki náð að
batna neitt þar. Kannski er ástandið
enn alvarlegra í löndum þar sem stór
hluti af vinnuaflinu er í svokölluðum
framleiðslugreinum, til dæmis stál-
iðnaði, landbúnaði eða ffamleiðslu-
greinum sem byggja á ófaglærðu
vinnuafli. A Islandi er menntun al-
mennt nokkuð góð en þó vekur at-
hygli að við stöndum Iakar í saman-
burði við ýmis önnur lönd, bæði
Bandaríkin, Kanada og Evrópuþjóðir
ef við tökum þá sem hafa háskóla-
menntun eða annars konar menntun
á háskólastigi," heldur hann áfram.
Það er Sigurður sem fær að hafa
lokaorðið að þessu sinni og þá horfir
hann til framtíðar. Hann telur nauð-
syn að bæta skólakerfið og telur að
það sé fyrst og fremst á valdi stjórn-
valda að auka menntun í skólakerf-
inu og greiða fyrir símenntun af öllu
tagi hvar sem er í þjóðlífinu. „Að
mínu viti hefur verið gert stórátak,
sérstaklega með lagabreytingum
varðandi grunnskóla og ffamhalds-
skóla á síðustu fjórum árum. Þar hef-
ur verið lagður grunnur að gríðar-
miklum kerfisbreytingum. Sjálfsagt
er töluverður tími þar til þessar
breytingar fara að skila sér vegna
þess hve breytingar taka langan tíma
í skólakerfinu. Að mínu viti þarf að
leggja sívaxandi þunga á skólamál en
þá erum við að hugsa til framtíðar-
innar. Upphaflega vorum við að tala
um kjör fólksins núna.“
Helgi tekur undir þessi orð.
FRÉTTIR
Páll Gíslason, framkvæmdastjórí IFP Russia, dótturfyrírtækis SH í Moskvu.
SH sýnir Rúss-
landitryggð
Markaðsfundur Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna stendur yfir á
Hótel Sögu en þar er farið yfir
sölu- og markaðsmál og eru for-
svarsmenn sölufyrirtækja SH er-
lendis með framsögur um stöðu
markaða.
I tengslum við fundinn er svo-
kallað „Markaðstorg SH“, en þar
eru fulltrúar dótturfyrirtækja SH
til viðtals og kynna starfsemina á
sýningu sem sett er upp í tilefni
fundarins. Tækifæri gefst til að
bragða á þeim afurðum sem SH
selur víða um heim. Auk sýning-
ar SH er Hafrannsóknastofnun
með sýningu í tilefni af ári hafs-
ins hjá Sameinuðu þjóðunum.
Páll Gíslason, framkvæmda-
stjóri IFP Russia í Moskvu, dótt-
urfyrirtækis SH í Rússlandi, seg-
ir að fall rúblunnar og 60% verð-
bólga í Rússlandi hafi haft þau
áhrif að um Iitla sölu hefur verið
að ræða til Rússlands enda hafi
kaupgetan verið þorrin.
„Það hefur verið mjög lítil sala
hjá okkur síðan í marsmánuði,
en þó er salan einhverjar þús-
undir tonna. Þetta kemur ver við
eigendur vörunnar því SH er að
selja þessar fiskafurðir í um-
boðssölu. Astandið hefur því
hægt á öllum viðskiptum og
framundan eru verðlækkanir á
fiski til Rússlands en við reikn-
um með að með tímanum náist
eitthvað viðunandi jafnvægi. Við
munum selja á næstu vikum en
hvenær við förum að fá jafn-
marga dollara fyrir tonnið og við
fengum áður þegar best lét er ég
ekki viss um, en það er þó talið í
árum. Þessi sveifla tekur ekki
nema í mesta lagi þijú ár,“ segir
Páll Gíslason.
- Mun þetta hága efnahags-
ástand draga úr þeirri áherslu
sem SH er að leggja á viðskipti
við Rússland?
„Nei. Ég minni á að það eru
ansi margir hérlendis sem hafa
atvinnu af því að pakka síld og
Ioðnu og það er ábyrgð að sýna
markaði tryggð þegar tímabund-
in niðursveifla er. Það er ekki
hægt að sitja aðeins við kjötkatl-
ana þegar í þeim er matur. Það
koma feitari ár í Rússlandi," seg-
ir Páll Gíslason. - GG
Átak til styrktar
bj örgimarbátum
Slysavarnafélag
Islands stendur
þessa dagana
fyrir landssöfn-
un til styrktar
björgunarbáta-
sjóði félagsins
en hann stendur
straum af kostn-
aði við rekstur
og endurnýjun
björgunarskipa
við íslands
strendur. I apríl
síðastliðnum
bættist björgunarskipið Gunn-
björg á Raufarhöfn við flotann.
Skipið er fimmta björgunarskip-
ið sem kemur til Iandsins á
þremur árum og býr þjóðin nú
yfir öflugum björgunarskipum í
hverjum landshluta. Þau eru
átta talsins, auk fjölda smærri
björgunarbáta.
Reksturinn er hins vegar
kostnaðarsamur, enda eru sjó-
björgunarsveitir að meðaltali
kallaðar út til aðstoðar um 300
sinnum á ári. Rekstur hvers
þeirra er metinn
á 3-5 milljónir
króna á ári. Til
að mæta þess-
um kostnaði
leitar Slysa-
varnafélagið nú
til þeirra sem
eru tilbúnir að
greiða mánaðar-
legt framlag í
björgunarbáta-
sjóðinn í ákveð-
inn tíma. Ekki
er falast eftir
háum Ijárhæðum heldur 300-
500 krónum á mánuði. Björgun-
arskip Slysavarnafélagsins eru
staðsett með tilliti til sjósóknar
og slysatíðni báta. Þau rista
grunnt og henta því vel til björg-
unarstarfa á grunnslóð en auk
þess gegna þau veigamiklu þjón-
ustuhlutverki við bátaflotann,
svo sem með því að draga vélar-
vana báta að landi og koma köf-
urum að til að skera veiðarfæri
úr skrúfum. — BÞ
Björgunarskip Slysavarnafélagsins
eru staðsett með tilliti til sjósóknar
og slysatíðni báta.
Kristján svarar
Leikarafélaginu
„Málefni Leikfélags Akureyrar
eru bæjarfulltrúum hugleikin og
þeir eru á einu máli um gildi þess
fyrir menningarlíf bæjarins".
Þetta kemur kemur fram í svar-
bréfi Kristjáns Þórs Júlíussonar
bæjarstjóra til Félags íslenskra
leikara, en eins og greint var frá í
Degi á dögunum sendi félagið
bæjarráði bréf á dögunum þar
sem mildum áhyggjum var lýst
með þróun mála hjá Leikfélag-
inu. Félag leikara hafði sérstakar
áhyggjur af fækkun atvinnuleik-
ara hjá Leikfélaginu og óttaðist
að hún kæmi niður á starfi Leik-
hússins. I svarbréfi bæjarstjóra
er á það bent að bæjarstjórn hafi
ekkert með daglegan rekstur
Leikfélagsins að gera og það sé
alfarið mál stjórnar LA að ákveða
hvernig spilað er úr þeim fjár-
munum sem rekstri Leikfélagsins
leggjast til, þar á meðal eru
ákvarðanir um fastráðningu leik-
ara.
MÓT0RSTILUNG,
HJÓLASTILLING,
VETRARSK0DUN!
Tilboð næstu vikur.
Notið tækifærið og
undirbúið bílinn
fyrir veturinn.
Leitið upplýsing3
öldur ehf.
Bifreiðaverkstæði
Draupnisgötu I • Sifflf 461 3015