Dagur - 03.10.1998, Side 10
10-LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
Sérkjara-
samningar
kennara
Nokkur bæjarfélög
gerðu í sumar sér-
kjarasamninga við
þá kennara sem
starfa í viðkomandi
sveitarfélögum en
að öðrum kosti
blöstu við forráða-
mönnum þessara
sveitarfélaga fjölda-
Kennarar á Akureyri sögðu margir upp í vor, en uppsagnir kennara,
samningar náðust um síðir við bæinn um iauna- þ.e. í Reykjanesbæ,
hækkun. Bessastaðahreppi
og á Akureyri. I
Reykjanesbæ fá
grunnskólakennarar fjórar klukkustundir á dag auk tveggja launa-
flokka hækkunar; í Bessastaðahreppi er samið um 10-13% launa-
hækkun auk 50 þúsund króna eingreiðslu; á Akureyri eru greiddar
frá 7 upp í 12 stundir á mánuði; á Akranesi eru greiddar 16-20
stundir, auk tveggja Iaunaflokka hækkunar frá 15. júní; í Borgar-
byggð eru greiddar tvær stundir á viku í 40 vikur auk þess sem
greiddar eru 25 þúsund krónur fyrir vinnu við bekkjanámskrár. Bæj-
arstjórn Garðabæjar ákvað að greiða kennurum 1. til 6. bekkjar 7,5
klst. á viku miðað við að kennari mæti og sé með nemendum í 20
mínútur áður en kennsla hefst auk þess að bæta við sig einni klst. á
dag sem nestis- og næðisstund með nemendum.
Alþjóðadagur
kennara
Alþjóðadagur kennara er mánu-
daginn 5. okóber og gangast kenn-
arafélögin KÍ og HIK þá fyrir fjöl-
breyttri dagskrá á Hótel Borg.
Meðal efnis verður upplestur,
söngur, tónlist og ræða. Aðalræðu-
maður kvöldsins veður Kári Arn-
órsson, fyrrverandi skólastjóri og
hestamaður.
Kári Arnórsson.
Allir landsmeim skrifi dagbók
Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns íslands og handritadeild Landsbóka-
safnsins standa fyrir degi dagbókarinnar 15. október og er hugmynd-
in að þá verði allir Islendingar beðnir að skrifa dagbók og senda Þjóð-
minjasafninu. Jafnframt verða þeir sem hafa gamlar eða nýlegar dag-
bækur undir höndum hvattir til að afhenda þær handritadeild Lands-
bókasafnsins. Atak af þessu tagi hafa verið gerð í Danmörku og Sví-
þjóð og gefist vel. Móðurmálskennarar um allt land eru hvattir til að
leggja þessu máli lið og hvetja nemendur til þátttöku.
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
barna.
Ráðstefna um eiu-
elti
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
barna, býður börnum og fullorðn-
um að setjast saman á rökstóla 17.
október á ráðstefnu um einelti sem
er með alvarlegri samskiptavanda-
málum barna og unglinga, en um
10% barna eru talin verða fyrir þvf.
Unnið verður í blönduðum um-
ræðuhópum og þannig reynt að
tryggja virka þátttöku allra sem
ráðstefnuna sækja.
Skóliun og foreldramir
Skólastjórafélags Islands stendur fyrir námsstefnu á Akureyri 6.-8.
nóvember þar sem fjallað verður um tvö málefni; annars vegar „Tími
til stjórnunar og sjálfstæði skóla" og hinsvegar „Skólinn og foreldr-
arnir - samstarf og áhrif'. Skólastjórafélagið mun taka mið af umræð-
unni sem fram fer á námsstefnunni við mörkun stefnu um foreldra-
samstarf en gert er ráð fyrir að leggja tillögur að slíkri stefnu fyrir að-
alfund félagsins í mars árið 2000. — gg
Þa^
hús á Keldiun
verður opið hús hjá Tilraunastöð Háskóla Islands í meinafræð-
um á Keldum við Vesturlandsveg á sunnudaginn. Þetta er í tilefni af
50 ára afmæli stöðvarinnar. Reksturinn verður kynntur með margvís-
Iegum hætti. Starfsmenn munu gefa gestum upplýsingar um helstu
verkefni og viðfangsefni stöðvarinnar.
FRÉTTIR
ro^r
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Halldór J. Kristjánsson bankastjóri undirrita samninginn í gær. Að baki þeirra
standa bæjarfulltrúar, starfsmenn og fulltrúar Landsbankans. mynd: geir
Uttekt á rékstri
Akureyrarbæjar
Akureyrarbær og Landsbankinn
hafa undirritað samning um að
bankinn geri úttekt á fjármögnun
og rekstri fasteigna á vegum bæj-
arsjóðs. Gert er ráð fyrir að
Landsbankinn muni skila bæn-
um fyrstu tillögum að breyttu
eignar- og rekstrarfyrirkomulagi
þessara fasteigna í lok þessa
mánaðar. I þessu samhengi má
riQa upp að Kristján Þór Júlíus-
son, bæjarstjóri, hefur ekki úti-
lokað að bærinn taki upp svipað
kerfi og Reykjavíkurborg hefur
gert varðandi leiguhúsnæði og
stofni um það sérstakt félag.
Forsvarsmenn Akureyrarbæjar
álíta þennan samning tækifæri til
þess að vera þátttakandi í því að
nýta leiðir og þau tækifæri sem
bjóðast f fjármögnun og rekstri
sveitarfélaga. Samningurinn fell-
ur vel að þeirri stefnu Lands-
bankans að auka umsvif í þjón-
ustu við sveitarfélög og fjár-
mögnun húsnæðis.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri, sagði markmiðið væri að
samningurinn yrði grundvöllur
að frekari samvinnu Akureyrar-
bæjar og Landsbankans.
„Landsbankinn nýtur mikillar
viðskiptavildar á þessu svæði og
við viljum endurgjalda hana með
því að efla starfsemi viðskipta-
stofunnar," sagði Halldór J.
Kristjánsson. Bankaráð Lands-
bankans ásamt helstu starfs-
mönnum var viðstatt undirritun-
ina í fundarsal bæjarstjórnar Ak-
ureyrar. — GG
MiMllhalli á dóms-
málaráðimeytmu
Fjárlög gera ráö fyrir
2 x 20 milljóna fram-
lögum til að rétta af
uppsafnaðan halla-
rekstur á aðalskrif-
stofu dómsmálaráðu-
neytisins.
Gert er ráð fyrir að aðalskrifstofa
dómsmálaráðuneytisins fái 20
milljóna króna raunhækkun á
rekstrargjöldum milli ára, eða
alls um 173 milljónir á næsta
ári. Fjárlagafrumvarp segir að
umsvif ráðuneytisins hafi aukist
á síðari árum. „Umtalsverður
halli hefur skapast á hverju ári
sem hefur verið leystur með
millifærslum frá öðrum liðum.
Sýnt þykir að ekki muni draga úr
starfsemi á aðalskrifstofu og er
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð-
herra: Umsvif ráðuneytis hans hafa
aukist og talsverður halli verið á
hverju ári.
því Iögð til hækkun á næsta ári
og samsvarandi hækkun fyrir
þetta ár í frumvarpi til fjárauka-
laga.“ í fjárlögum 1997 fékk
skrifstofan um 123 milljónir, svo
hækkunin verður kringum 40% á
tveim árum.
Heildarútgjöld dóms- og
kirkjumálaráðuneytis hækka um
8% milli ára í 9,7 milljarða - sem
samsvarar um 35 þús. kr. á
mann. Um 2,6 milljörðum er
varið í kirkjumál, en meirihlut-
inn, 5,8 milljarðar, í Iöggæslu-
stofnanir og sýslumenn og 1,1
milljarður í dómstóla og fangelsi.
I fjárlagafrumvarpinu segir að í
haust verði gerð sérstök rekstr-
arúttekt á sýslumannsembættinu
á Akranesi, enda rekstur þess
verið erfiður í nokkur ár. Nefnd
dóms- og kirkjumálaráðherra
vinnur síðan að því að fara yfir
rekstur sýslumannsembætta í því
skyni að samræma fjárveitingar
til þeirra. Markmiðið er m.a. að
auðvelda samanburð á kostnaði
embættanna og niðurstöðurnar
eiga að nýtast við fjárlagagerð
ársins 2000. - HEI
Fölsimarmálið í heild
Björgvin Þorsteinsson, verjandi
Péturs Þórs Gunnarssonar í
Galleríi Borg, sem ákærður hefur
verið í málverkafölsunarmálinu
svokallaða, segir það sína skoðun
að ekki hafi átt að taka hluta
rannsóknarinnar fyrir og ákæra,
heldur hafi átt að bíða niður-
staðna rannsókna og taka málið
fyrir í heild.
Pétur Þór hefur verið ákærður
íyrir meinta fölsun á þremur
málverkum, en tugir annarra
mynda, sem Gallerí Borg seldi,
eru i rannsókn vegna gruns um
fölsun. Pétur Þór er þess fyrir
utan ákærður vegna meintra
brota á bókhaldslögum og lögum
um sölu notaðra lausaQármuna.
Fyrirtöku málsins hefur tvisvar
verið frestað í héraðsdómi vegna
beiðni Iögmanns Péturs Þórs um
gögn úr rannsókninni.
„Ég teldi að það hefði verið
heppilegast að taka málið í heild
fyrir; en ekki taka þijú málverk út
úr. Ég veit satt að segja ekki hvað
býr að baki því að búta málið
þannig niður. Ég reikna ekki með
að farið verði eftir þessari skoðun
minni, þótt ekkert banni það,“
segir Björgvin. - fþg