Dagur - 04.11.1998, Page 4
m ti ^ t.
4- MIÐVIKUDAGUR i. NÓVEMBER 1998
FRETTIR
LAGGOTT
INNLENT
Nýr viðskiptahugbúnaðiir á markað
Ný kynslóð af Concorde viðskiptahugbúnaði kom út á íslensku nú um
mánaðamótin, en þennan búnað hafa mörg stærstu fyrirtæki landsins
notað um árabil. Yfir hálf milljón notenda í 28 löndum er með þenn-
an viðskiptahugbúnað og hann er ráðandi á markaðnum á Norður-
Iöndum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá umboðsfyrirtæk-
inu hér á landi.
Nýja kynslóðin hefur hlotið nafnið Axapta og sérstaða hennar er
sögð felast fyrst og fremst í því hversu auðvelt er að sníða hugbúnað-
inn að þörfum hvers fyrirtækis og starfsmanns. Axapta sameinar m.a.
fjárhagsbókhald, vöru- og framleiðslukerfi og er hannað til að halda
utanum viðskipti á Netinu og viðskipti í Evrunni, hinum nýja gjald-
miðli Evrópusambandsins.
Breyta þarf viimutilhögim LH-þinga
Jón Albert Sigurbjörnsson frá Reykjavík var kjörinn formaður Lands-
sambands hestamannafélaga á 49. ársþingi LH, sem fram fór í
íþróttaskemmunni á Akureyri um síðustu helgi. Varaformaður er Har-
aldur Þórarinsson í Laugardælum í Arnessýslu en aðrir stjórnarmenn
eru Sigfús Helgason á Akureyri, Sigrún Olafsdóttir frá Hallkelsstaða-
hlíð í Kolbeinsstaðahreppi, Sveinbjöm Sveinbjörnsson í Kópavogi,
Páll Dagbjartsson í Varmahlíð í Skagafirði og Sigurður Ragnarsson í
Garðabæ.
Þingið afgreiddi yfir 50 breytingatillögur að keppnisreglum sem
vakti upp þær spurningar hjá mörgum þingfulltrúum hvort ekki væri
orðið tímabært að breyta vinnutilhögun þinganna, þar sem allt of
mikill tími færi í þessi mál á kostnað annarra þingstarfa.
„Með fullri virðingu fyrir keppendum megum við ekki gleyma því að
70% hestamanna í landssambandinu hafa engan áhuga fyrir keppnis-
reglunum," segir Sigfús Helgson á Akureyri, formaður hestamannafé-
lagsins Léttis, og nýkjörinn stjómarmaður í LH. — GG
Jámblendifélagið hæst á Vesturlandi
Islenska járnblendifélagið á Grundartanga greiðir hæst samanlögð
gjöld lögaðila á Vesturlandi samkvæmt nýútkominni álagningarskrá,
eða 37,9 milljónir króna, Sparisjóður Mýrasýslu er með 19,6 milljón-
ir króna og Haraldur Böðvarsson með 15,6 milljónir króna. Islenska
járnblendifélagið greiðir hæstan eignarskatt Iögaðila, eða 30,8 millj-
ónir króna, síðan Haraldur Böðvarsson á Akranesi með 12,2 milljón-
ir króna, Sementsverksmiðjan á Akranesi með 8,8 milljónir króna og
Hvalur í Hvalfirði með 7,8 milljónir króna.
Hæstan tekjuskatt greiðir Sparisjóður Mýrasýslu í Borgarnesi, eða
12,4 milljónir króna, IA-hönnun á Akranesi greiðir 5,6 milljónir
króna og Straumnes á Akranesi 3,8 milljónir króna. Haraldur Böðv-
arsson greiðir hæst markaðsgjald, eða 807 þúsund krónur, Islenska
járnblendifélagið greiðir 589 þúsund krónur og Fiskmarkaður Breiða-
fjarÖar 256 þúsund krónur. - GG
MF gialdhæst á Suðurlandi
Heildarálagning vegna lögaðila á Suðurlandi nam 286 milljónum
króna á árinu 1998, þar af tekjuskattur 212 milljónir króna og eign-
arskattur 62 milljónir króna.
Hæstu lögaðilar eru Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi með 47,5
milljónir króna, Suðurverk á Hvolsvelli með 13,6 milljónir króna,
Fossvélar á Selfossi með 11,4 milljónir króna, Bakkalág íslands í Þor-
lákshöfn með 10,1 milljón króna og Set á Selfossi með 9,6 milljónir
króna.
í Vestmannaeyjum bar Ufsaberg hæstu gjöld, eða 16,5 milljónir
króna. Isleifur var með 14,9 milljónir króna, Sparisjóður Vestmanna-
eyja með 13,6 milljónir króna, Net með 3,2 milljónir króna og Eyjaís
með 2,8 milljónir króna. — GG
Síldarviuuslan hæst á Austurlandi
Síldarvinnslan á Neskaupstað ber hæst gjöld lögaðila í Austurlands-
umdæmi 1998, samtals 61,2 milljónir króna. SVN er með 14,9 millj-
ónir króna í eignarskatt, 42,1 milljón króna í tryggingargjald, 3,5
milljónir króna í slysatryggingargjald vegna sjómanna og 777 þúsund
krónur í markaðsgjald og iðnaðarmálagjald.
Hraðfrystihús Eskifjarðar er með 22,1 milljón króna í tekjuskatt, 28
milljónir króna tryggingargjald, 2,1 milljón króna slysatryggingargjald
vegna sjómannna og 575 þúsund krónur í markaðsgjald og iðnaðar-
málagjald, eða samtals 52,9 milljónir króna. Næst koma Kaupfélag
Fáskrúðsfírðinga með 20 milljónir króna, Kaupfélag Héraðsbúa með
17,7 milljónir króna, Kaupfélag Austur-Skaftfellinga með 15 milljón-
ir króna og Borgey á Hornfirði með 14,2 milljónir króna. — GG
Sparisjóður Boluugarvíkur hæstur á
Vestfjörðuui
Heildargjöld lögaðila í Vestfjarðakjördæmi nemur 140,9 milljónum
króna sem skiptist á 441 aðila en framteljendur eru 511. Heildarfjár-
hæð tekjuskatts er 99,6 milljónir króna, eignarskattur 29,5 milljónir
króna, sérstakur eignarskattur 6,2 milljónir króna, markaðsgjald 3,4
milljónir króna og iðnaðarmálagjald 1,9 milljónir króna. Inni í þess-
um tölum er ekki tryggíngargjald sem var tilkynnt í sumar.
Hæstu álagningu lögaðila bera Sparisjóður Bolungarvfkur með 19,5
milljónir króna, vélsmiðjan Þrymur á ísafirði með 5,1 milljón króna,
vöruflutningar Armanns Leifssonar í Bolungarvík með 3,9 milljónir
króna, Rafverk í Bolungarvík með 3,8 milljónir króna og Kaupfélag
Steingrímsfjarðar á Drangsnesi með 3,3 milljónir króna. - GG
Norðurpóllinn rís brátt á flötinni fyrir framan Samkomhúsið á Akureyri. Þetta er vinnuteikning afþorpinu sem m.a.
státar af skóla, pósthúsi og fleira. Mörg handtök fylgja uppsetningu þorpsins, s.s. rafmagnslagnir, sími, gatnagerð
auk flutnings húsanna. Myndlistarskólinn á Akureyri mun sjá um skreytingar.
Á milli 10 og 15 jóla-
sveinar skráð sig
Alvöru jólasveinar
nmiiu jiinga á Aknr
eyri iiiiian skanuns.
Bæjarbúar sagðir já-
kvæðir fyrir því að
flýta jólaljósaskreyt-
inguin.
10-15 jólasveinar hafa skráð sig á
Jólasveinaþingið sem fram fer á
Akureyri 20. -22. nóvember nk.
Að sögn Tómasar Guðmundsson-
ar, forstöðumanns Ferðamála-
skrifstofu Eyjaljarðar á Akureyri,
geta jólasveinar ennþá tilkynnt
þátttöku. Þingið fer að lfkindum
fram á Norðurpólnum, þorpi sem
senn rís fyrir framan Samkomu-
húsið á Akureyri.
„Þetta eru iðnaðarmenn, kenn-
arar og fjölmiðlafólk. Nokkuð
góður þverskurður, sýnist mér.
Þessir aðiiar taka hlutverk sitt
mjög alvarlega. Þeir hafa undir-
búið og þróað sína eigin tækni í
að heimsækja börn fyrir jólin.
Hagurinn er fyrst og fremst sá að
lífga upp á skammdegið hjá ná-
grannanum og skemmta sér.
Þetta eru ekta jólasveinar," segir
Tómas.
Jákvæðir bæjarbúar
Þeir sem standa að því að breyta
Akureyri í jólabæ með Iátlausum
uppákomum frá 20. nóvember
fram að aðfangadegi, hafa hvatt
bæjarbúa til að setja upp jólaserí-
urnar fyrir 20. nóvember nk. Von-
ast er til þess að jólahúllumhæið
verði til þess að Iaða fólk í bæinn
og segir Tómas nauðsynlegt að
hinn almenni bæjarbúi taki þátt í
verkefninu með skreytingunum.
„Viðbrögð bæjarbúa hafa almennt
verið mjög jákvæð, en þó örlar á
því að sumir óttist að verða fyrst-
ir eða þeir einu sem skreyti svona
snemma. Eg held hins vegar að
þegar þeir fyrstu taki af skarið,
muni hinir fylgja á eftir." - BÞ
Franska byltingm
í flokk Sverris
Aðalfimdur Samtaka
mn þjóðareign. Nýr
formaður. Stjómmála-
yfírlýsing um gmnnat-
riðin í stefnu Frjáls-
lynda fíokksins.
Frelsi, samstaða og
jafnrétti.
„Helstu mál aðalfundarins eru að
sjálfsögðu kvótinn og væntanleg
flokksstofnun. Það hefur verið
ákveðið af stjórn samtakanna að
stofna Fijálslynda flokkinn 28. og
29. nóvember nk. með stuðnings-
mönnum Sverris Hermannsson-
ar,“ segir Bárður G. Halldórsson,
varaformaður Samtaka um þjóð-
areign.
Stjónunálayfirlýsiiig
Á fundinum, sem haldinn verður
í kvöld, miðvikudag, í Rúgbrauðs-
gerðinni verður birt stjórnmálayf-
irlýsing sem lögð verður fyrir
stofnfund Frjálslynda flokksins í
næsta mánuði. Bárður Halldórs-
son segir að þessari yfirlýsingu
verði ekki dreift, enda sé hún enn
í vinnslu. Kjarnanum ( henni
verður hins vegar komið á fram-
Báður G. Halldórsson verðandi
formaður Samtaka um þjóðareign
segir það vera aðalmarkmiðið að
innleiða frönsku byltinguna á ís-
landi.
færi við fundarmenn með því að
birta hana á tjaldi í fundarsal. Þar
koma fram grunnatriðin í stefnu
Frjálslynda flokksins. Þau eru
frelsi, samstaða og jafnrétti. Þar
er átt við frelsi einstaklingsins til
orðs og athafna, jafnræði allra
þjóðfélagsþegna og samstaða ís-
lensku þjóðarinnar. Aherslan á
þessi atriði helgast m.a. af þeirri
skoðun að á Islandi sé ekki fullt
Iýðræði vegna þess að innlendri
valdastétt var aldrei hrundið af
stalli í anda frönsku byltingarinn-
Býlting
„Eg hef oft haldið því fram að það
væri okkar aðalmarkmið að inn-
leiða frönsku byltinguna á Is-
landi,“ segir Bárður Halldórsson,
varaformaður Samtaka um þjóð-
areign.
Hann segir að það verði m.a.
gert með því að breyta lögum og
stjórnarskrá og kalla saman
stjórnlagaþing. Þá þarf að aðskilja
betur en gert hefur verið fram-
kvæmdavald, dómsvald og lög-
gjafarvald. Enn fremur verður að
tryggja að einstaklingar hafi sama
vald og þeir sterku og stóru hvort
sem þeir heita LIU, Landsbank-
inn, Hitaveitan, Rafveitan, Ríkið,
Reykjavíkurborg og fleira í þeim
dúr.
Nýr formaður
Þá mun stjórn Samtaka um þjóð-
areigin Ieggja það til við fundinn
að Bárður G. Halldórsson verði
kjörinn formaður í stað Jóns Ara-
sonar, skipstjóra f Þorlákshöfn.
Búist er við allt að 200 manns á
aðalfundinn, víðs vegar af land-
inu. Um 2400 manns eru í sam-
tökunum. — GHll