Dagur - 04.11.1998, Síða 9
8- MIÐVIKVDAGVR 4. NÓVEMBKR 1998
MIÐVIKVDAGVR 4. NÓVEMBER 1998 - 9
FRÉTTASKÝRING
Em tvö neytendas amtök í landinu?
Verðkönuuu þriggja
neytendafélaga á
landsbyggðiuni vekur
hörð viðbrögð kaup-
maima. Kaupmenn
reiðir Vilhjálmi Inga
Ámasyni. Eru tvö
neytendasamtök í
landinu?
I verðkönnun þriggja neytendafé-
Iaga á landsbyggðinni sem gerð
var í síðustu viku kom fram mik-
ill munur á hæstu og Iægstu verð-
um. Könnunin var gerð á vegum
Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis, Neytendafélags Suður-
lands og Neytendafélags Vest-
fjarða og náði til sjötíu vöruteg-
unda í fjórtán verslunum. Hjá
KSH á Hólmavík er verðlagsstuð-
ull þeirra vara sem könnunin
náði til 62 prósentum hærri en
hjá KEA Nettó á Akureyri. Á
meðan Akureyringur getur látið
sér nægja um 8.000,- krónur fyr-
ir körfuna þarf Hólmvíkingur að
leggja út um 13.000,- krónur.
Hvað segja kaupmenn? Er slík-
ur samanburður réttlátur? Er
verðmunurinn eðlilegur miðað
við aðstæður? Er þetta verðið sem
við þurfum að greiða ef við viljum
búa utan stærstu þéttbýliskjarn-
anna? Hvað segja Vilhjálmur Ingi
Árnason og Jóhannes Gunnars-
son? Er rétt að skoða í sömu
andrá verslun KEA Nettó á Akur-
eyri og verslun Kaupfélags Stein-
grímsfjarðar á Hólmavík? Eru tvö
neytendasamtök í landinu?
Forkastanlegt
Gunnar Guðmundsson, kaup-
maður í Horninu á Selfossi, seg-
ist ekki ánægður með könnunina,
hún sé illa unnin og ósanngjörn.
„Þessi könnun er fyrir það
fyrsta afskaplega illa gerð. Það
var tekin fyrir þurrvara nánast
eingöngu þar sem við komum
vissulega illa út. Við stöndum
okkur miklu betur í kjötvöru og
öðru slíku þar sem segja má að
við séum á heimavelli.
Það sem er þó forkastanlegast
við þetta er hvemig þessi maður á
Akureyri [Vilhjálmur Ingi Árna-
son] er að bera saman lágvöru-
verðsverslanir sem eru opnar
kannski í sex klukkustundir á dag
og kaupmannsverslun eins og hjá
okkur sem er opin í sautján
klukkustundir á dag alla daga vik-
unnar. Ef við værum með sama
afgreiðslutíma og KEA Nettó
þyrftum við fjóra í vinnu en við
erum með átján.“
Gunnar segist ekki geta sagt til
um það hvort sá munur sem fram
kemur í könnuninni geti talist
eðlilegur miðað við aðstæður.
Samstarfi teflt í tvtsýnu
Benedikt Kristjánsson, formaður
Kaupmannasamtaka Islands, er
allt annað en ánægður með um-
rædda könnun og hvernig staðið
var að henni. Kaupmannasam-
tökin sendu frá sér fréttatilkynn-
ingu á mánudag þar sem meðal
annars kemur fram að andstæð-
ingur framkvæmdastjóra og
stjórnar Neytendasamtakanna
hafi freistað þess að koma höggi á
andstæðinga sína með því að
sniðganga samkomulag um fram-
kvæmd og birtingu verðkannana
og fara sínar eigin leiðir við
verðkannanir. Þetta hafi tvímæla-
laust skaðað samtökin og teflt í
tvísýnu samskiptum og sam-
komulagi þeirra við kaupmenn.
„Eg er búinn að fá upp fyrir
haus af því að maður nokkur á
Akureyri sem heitir Vilhjálmur
Ingi Árnason skuli alltaf hreint
koma fram á völlinn með þeim
hætti sem hann gerir núna,“ segir
Benedikt Kristjánsson. „Eitt atriði
í samkomulaginu var að tryggja að
menn væru ekki að bera verslanir
sem eru að þjóna nokkur hundruð
manna byggðarlögum saman við
Bónus eða Nettó. Það er ósann-
gjarnt að gera þetta með þeim
hætti en Vilhjálmur Ingi hlustar
aldrei á það. I þessari verðkönnun
eru menn að setja samasemmerki
á milli Nettó á Akureyri og Kaup-
félagsins á Hólmavík. Þetta er
bara bull.
Eitt af frumskilyrðunum í sam-
komulaginu sem gert var er að
verðkannanir séu gerðar um allt
Iand á sama tíma,“ segir Benedikt
og bendir á að sá tími sem það
tekur að gera verðkannanir í
nokkrum verslunum á sama
svæði sé of langur. Kaupmenn
séu sífellt að gera verðkannanir
hver hjá öðrum og breyta verði.
Benedikt Kristjáns-
son: „Þetta er niður-
rifsstarfsemi og mér
þykir afskaplega mið-
ur að menn skiili koma
fram og gera þetta með
þeim hætti sem Vil-
hjálmur gerir. Þetta er
algjört bull. Þetta er
svínarí og menn eru
búnir að fá alveg npp
fyrirbaus af þessu.“
„Vilhjálmur Ingi hunsar þetta
æ ofan í æ og nú verða menn að
átta sig á því að það gengur ekki
að það séu tvö neytendasamtök í
þessu landi, annars vegar neyt-
endasamtök Vilhjálms Inga Árna-
sonar og hins vegar Neytenda-
samtök Islands. Innanhúsdeil-
urnar sem þar eru verða menn að
fara að Ieysa,“
Gunnar Guðmundsson í Horninu á
Selfossi: Er með átján manns í
vinnu en þarf fjóra miðað við
afgreiðslutíma eins og i Nettó.
Vilhjálmur Ingi Árnason, formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis, með tækið sem hann notar tii að skanna inn vöruverð. „Fyrir hvern erum við að gera
könnunina?" spyr hann. „Neytendur á þessum stöðum eða kaupmennina?" - mynd: brink
Niðurrifsstarfsemi
- Er sú munur ú vöruverði sem
fram kemur í könnuninni einfald-
laga það verð sem fólk þarf uð
greiða fyrir að búa í dreifbýli.
„Það má segja það,“ segir Bene-
dikt. „Hins vegar hafa menn ver-
ið að styrkja stöðu sína með því
að bindast samtökum til að eiga
möguleika á að vera samkeppnis-
færir í innkaupum. Menn eru
alltaf að vinna í því.“
- Þérfinnst könnun eins og þessi
ekki vera til þess fallin að styðja
það starf?
„Nei. Þetta er niðurrifsstarf-
semi og mér þykir afskaplega
miður að menn skuli koma fram
og gera þetta með þeim hætti
sem Vilhjálmur gerir. Þetta er al-
gjört bull. Þetta er svínarí,“ segir
Benedikt Kristjánsson, formaður
Kaupmannasamtakanna.
Öbundinn af samkomulagi
Vilhjálmur Ingi Árnason, formað-
ur Neytendafélags Akureyrar og
nágrennis, segir ekkert rangt við
að gera slíkar kannanir sem hér
er rætt um. Þeim sé meðal annars
ætlað að upplýsa hver sá aðstöðu-
munur er sem verslanir og neyt-
endur á landsbyggðinni mega búa
við miðað við þéttbýliskjarnana
Akureyri og Reykjavík.
„Fyrir hvern erum við að gera
könnunina?" spyr Vilhjálmur
Ingi. „Neytendur á þessum stöð-
um eða kaupmennina? Er það þá
ekki óréttlátt fyrir fólk að eiga
heima á svona stöðum? Það hef-
ur kosið að búa þarna og borgar
vissan toll fyrir að búa á útkjálka
og krummaskuði og við erum
bara að reyna að sýna hve tollur-
inn er hár í matvörunni."
- Eitt markmið verðkannana er
að veita kaupmönnum aðhald og
jafnvel lækka vöruverð. Er með
Benedikt Kristjánsson, formaður
Kaupmannasamtaka íslands: „Það
gengur ekki að það séu tvö neyt-
endasamtök í þessu landi."
Jóhannes Gunnarsson formaður
Neytendasamtakanna: „Ég hefði
sett könnunina fram með öðrum
hætti."
þessari könnun verið að setja
óeðlilegan þrýsting á minni versl-
anir að nálgast verð hjá þeim
stærri?
„Þeir geta það ekki og það er
ekki sanngjarnt að ætlast til þess.
Þeir hafa ekki þá aðstöðu en það
þýðir ekki að við megum ekki
skoða hver munurinn er. Við eig-
um ekki að hafa það mikið vit fyr-
ir fólki á þessum stöðum að það
megi ekki láta fólk vita hver stað-
an er. Þetta er upplýst samfélag
og við erum að sýna neytendum á
litlu stöðunum hvernig staðan er.
Þeir vita að þeir búa við mikinn
aðstöðumun og þarna var bara
verið að mæla hann."
- Neytendasamtökin og Kaup-
mannasamtökin hafa gert með sér
samkomulag um framkvæmd og
birtingu verðkannana. Ert þú
óbundinn af því samkomulagi?
„Eg et gjörsamlega óbundinn af
því og ég tel vafa hvort það sam-
komulag þjónar hagsmunum
neytenda eða kaupmanna. Eg hef
alla tíð verið ósáttur við það sam-
komulag.“
- Eitt atriði í samkomulaginu er
að verðkannanir eigi að gera sam-
timis um allt land. Er hægt að
segja að verðkönnunin sé gerð
samtímis í þeim fimm verslunum
sem þú fórst einn í á Akureyri?
„Eg er um hálftíma í hverri
verslun og ég beið við dyrnar þeg-
ar þrjár þeirra opnuðu. Þeir vissu
svo vel af þessari könnun að allir
höfuðpaurar verslananna á Akur-
eyri voru staddir í Reykjavík og
þeir vissu ekki einu sinni þegar ég
var búinn að gera könnunina að
ég hafði gert hana. Ég er eins og
grár köttur í verslunum næstum
því hvern einasta dag þannig að
þeir vita ekki hvenær ég er að
gera könnun og hvenær ég er að
skoða."
- Vekja deilur innan Neytenda-
samtakanna vantrú á vinnubrögð-
urn þeirra? Eru tvö neytendasam-
tök í landinu?
„Það eru því miður engir hjá
Neytendasamtökunum núna sem
geta unnið svona kannanir þann-
ig að formenn hinna sjálfstæðu
neytendafélaga á landinu tóku
ákvörðun um að gera kannanir á
okkar svæðum. Þó að Neytenda-
samtökin séu ekki í stakk búin til
að gera könnun þá þurfum við
ekki að liggja á liði okkar. Þessi
SýTiislioni úr köinmnmni
Til upplýsingar fylgir hér hæsta og lægsta verð á nokkrum vörum
úr könnuninni. Annars vegar á sjö vörutegundum þar sem mestur
munur var á hæsta og lægsta verði og hins vegar á nokkrum
algengum vörum sem valdar voru af handahófi af listanum. Marg-
feldisstuðullinn er fenginn með því að deila lægsta verði upp í það
hæsta. I svigunum eru þær verslanir sem buðu lægsta og hæsta
verð á viðkomandi vöru.
Mesti munurinn:
Lyftiduft, Royal, 420 grömm,
(Nettó Akureyri / KSH Hólmavík)
Spaghetti, Honig, 500 grömm
(Nettó Akureyri / Kaupangur Akureyri)
Kjöt- og grillkrydd, Knorr, 88 grömm
(Hagkaup Akureyri, Hrísalundur Akureyri
/ KSH Hólmavtk)
Rasp, Paxo, 225 grömm
(Hagkaup Akureyri / Hornið Selfossi)
Blandaðir ávextir, Hagver, 250 grömm
(Nettó Akureyri / KSH Hólmavik)
Púðursykur, Dansukker brun, 500 grömm,
(Nettó Akureyri / KSH Hólmavik)
Nokkrar algengar vörur:
Grænar baunir, ORA, 1/2 dós
(Hrísalundur Akureyri / KSH Hólmavík)
Salt, gróft, 1 kíló
(Nettó Akureyri / Hverakaup Hveragerði)
Dömubindi,
Always ultra/normal/plus, 14 stk.
(Nettó / KSH Hólmavík)
Cocoa Puffs, General Mills, 553 grömm
(Nettó Akureyri / KSH Hólmavík)
Mjólk, 1 lítri
(Nettó Akureyri, / Samkaup Isaftrði,
KA Hveragerði, Þorlákshöfn og Selfossi,
Kaupangur Akureyri, Hverakaup Hveragerði
Sunnuhlíð Akureyri, Eló ísaftrði
lægst hæst margf. munur
79 299 2,78
29 79 1,72
76 183 1,41
52 125 1,40
69 165 1,39
42 99 1,36
42 82 1,95
34 66 1,94
190 323 1,70
249 378 1,52
68 74 1,09
þrjú félög eru sjálfstæð og mega
gera sínar kannanir ef þau vilja.
Það myndi ekki þjóna hagsmun-
um neytenda ef Neytendasam-
tökin gætu bundið hendur allra
neytendafélaga í landinu.“
- Er sá munur sem fram kemur
í könnuninni eðlilegur miðað við
aðstöðumun á þessum stöðum?
„Eg held að hann sé ekkert svo
gríðarlega fjarri lagi því ég efast
um að verslanir á þessum litlu
stöðum geti verið með mikið
lægra verð. Litlu verslanirnar
geta aldrei keppt við þær stóru en
síðan er það aftur pólitísk ákvörð-
un til dæmis stjórnvalda hvort
virðisaukaskattur á að leggjast á
stjórn," segir Jóhannes Gunnars-
son formaður Neytendasamtak-
anna. „Ég fagna því að neytenda-
félög séu virk.“
Jóhannes segir að hann sjálfur
hefði sett könnunina fram með
öðrum hætti ef hún hefði verið
framkvæmd af Neytendasamtök-
unum. „Niðurstöður þessarar
könnunar eru réttar. Það má
hins vegar deila um framsetning-
una,“ segir hann og bætir við að
hann telji rangt að miða við að
vara kosti núll á einum stað og
miða hlutfallslegan samanburð
við það. Samanburðinn eigi að
miða út frá því að ein verslun fái
gildið hundrað.
- Eiga verslanir á landsbyggð-
inni ef til vill í vök að verjast út af
þrýstingi sem skapast með svona
verðkönnunum?
„Þrýstingur á þessar verslanir
skapast með ýmsum hætti, meðal
flutningskostnað og þess háttar.
Það væri hægt að sleppa honum
alveg eins og það er enginn virð-
isaukaskattur á laxveiði og jafna
þannig búsetumuninn. Þetta er
bara dæmi um að það eru margar
pólitískar leiðir til að jafna bú-
setumuninn."
- I könnuninni kemur þá fram
kostnaðurinn við það að búa á
þessum stöðum.
„Akkúrat. Það er það sem við
erum að reyna að sýna fram á.“
Aðra framsetningu
„Það eru til samtök sem heita
Neytendasamtökin. Þar er ég for-
maður og Vilhjálmur Ingi situr í
annars með birtingu verðkann-
ana en ekki síst með samanburði
fólks sjálfs. Islendingar ferðast
bæði á samkeppnissvæði hér inn-
anlands og til útlanda. Þannig
hefur fólk ýmiss konar saman-
burð þegar það er að versla.“
- Ef við skoðum niðurstöðurnar
er þá sá munur sem þar kemur
fram eðlilegur að þínu mati miðað
við aðstæður?
„Ég ætla ekki að fara að gefa
verði í einhverri verslun stimpil-
inn „eðlilegur" eða „góður“.
Verslanir eru með frjálsa verð-
lagningu. Þær ákveða sjálfar hvað
þær þurfa að fá til að geta rekið
sig. Markaðurinn stjórnar því.
Það sem er „eðlilegt" verðlag í
einni verslun er mjög „óeðlilegt"
verðlag í annarri. Er ekki það
verð eðlilegt sem þú ert tilbúinn
að greiða þegar þú ferð út í búð?“
NYR LUXUSJEPPI
Grand Vitara er alvöru jeppi. Sjálfstæð grindin
og hátt og lágt drif tryggja að hann kemst
þangað sem honum er ætlað að fara.
Hann er byggður á traustum.grunni
Suzuki Vitara, bara. enn betur utbúinn,
breiðari og glæsilegri.
Svo er hann á sérlega ánægjulegu verði:
fró 2.179.000 kr.
ALLIR
SUZUKI 8ÍLAR
ERU ME0 2 ÓRYGGIS-
LOFTPUÐUM.
SUZUKI
AFL OG
ÖKYGGI
SUZUKI
FUllJg
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garöabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„
Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95.
Keflavik: BG bilakringlan, Grðfinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is