Dagur - 13.11.1998, Page 3
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 19 9 B - 19
Da^wr.
LÍFH) í LANDINU
Þjóðhátíð
Grímsey-
ingavarí
fyrradag, á
Fiskedag-
inn, sem er
11. nóvemher. Ajjúpað
varminnismerki um
velgjörðarmanninn
Willard Fiske og út í
eyju komu á þessum
degi bæði listamenn og
skákmeistarar.
„Willard Fiske átti Sér draum um
einkennilega Eden í Norðurhöf-
um,“ sagði Kristján Karlsson bók-
menntafræðingur í erindi sem
hann flutti á samkomu sem hald-
in var í Grímsey í fyrradag, á
Fiske-deginum 11. nóvember.
Líkt og venja er til var mikið um
dýrðir meðal eyjarskeggja á þess-
um degi þegar minnst var fæðing-
ardags þessa mikla velgjörðar-
manns Grímseyinga. Má segja að
þetta sé einskonar 17. júní þeirra
Grímseyinga, sem eiga sér því í
raun og veru tvo þjóðhátíðardaga.
Eyjan í Dumbshafmu
Sagan af Willard Fiske er merki-
leg. Hann var fæddur vestur í
Bandaríkjunum 11. nóvember
árið 1831, fór ungur til mennta
og í háskóla vöktu norræn fræði
og íslenskt mál áhuga hans og í
framhaldinu kom áhugi á Is-
landi sjálfu, Iandi og þjóð. Arið
1879 kom hann hingað til Iands
og þegar hann fór í hringferð
með skipi norður fyrir landið sá
hann hylla undir eyju í Dumbs-
hafinu, Grímsey. Þangað átti
Fiske þó aldrei eftir að koma, en
eyjan og frásagnir um hana urðu
honum hugleiknar. Seinna þeg-
ar Fiske komst í álnir fór hann
að senda rausnarlegar gjafir til
eyjarskeggja, sem áttu eftir að
koma sér vel.
Skákáhugi hefur alltaf verið
mikill í Grímsey og Fiske gaf því
eyjarskeggjum skákborð og tafl-
menn og efldi það skákáhuga
eyjarskeggja enn frekar. Þá gaf
Fiske til Grímseyjar bækur um
skák sem og orðabækur og ýmis-
konar alfræðirit. - Fiske lést árið
1904 og í erfðaskrá hans var
ákvæði um að Grímseyingum
bæri 12.000 dala sjóður, eða um
20,4 millj. kr. væri sjóðurinn
framreiknaður til núvirðis. Sjóð-
ur þessi átti eftir að koma sér vel
og var notaður til margra fram-
faramála í Grímsey, til að mynda
byggingar skólahúss sem lengi
stóð og einnig voru þessir pen-
ingar notaðir til góðgerðarmála
ýmiskonar.
„Minning hans
skal ávallt eiga“
Dagskrá Fiske-dagsins var ef til
vill nokkuð íburðarmeiri að þessu
Sigunöup Bogi
Sævarsson
skrifar
Við minmsmerkið. Mmmsmerkið um
Willard Fiske stendur nærri höfninni
og er í alfaraleið þegar farið er um
Grímseyjarþorp. Við merkið standa,
frá vinstri talið, Gunnar Árnason, sem
gerði verkið, bræðurnir Jóhannes og
Bjarni Magnússynir, sem afhjúpuðu
verkið. Lengst til hægri er Dónald Jó-
hannesson, skólastjóri og formaður
Kiwanisklúbbsins Gríms.
Ærinn lilut af auði sínum,
eyjarbúum gaf.
Minning hans skal úvallt eiga,
æðsta sæti hér.
Meðan ægir örmum vefur,
okkar litla sker.
Skákmeistararnir Jóhann Hjartarson og Friðrik Ólafsson
mættu til Grímseyjar til þess að heiðra minningu Fiske sem
efldi skáklistina á ýmsa lund. Hér sjást þeir skera í tertu sem
var skreytt einsog skákborð en konur í Kvenfélaginu Baugi
báru fram góðar veitingar á samkomu sem haldin var í fé-
lagsheimilinu Múla.
sinni en oft áður. Á vegum
Kiwanisklúbbsins Gríms f Gríms-
ey hefur verið gert minnismerki
um Fiske af Gunnari Amasyni
myndhöggvara og var það af-
hjúpað á þessum hátíðisdegi.
Merkið er úr jámi og sýnir skip á
siglingu, sem er nokkuð táknrænt
fyrir söguna af Fiske og kynnum
hans af eynni. Verk þetta er þó
ekki nema hálfgert því á næsta ári
stendur til að setja upp á stétt
sem merkið stendur á manntafl í
fullri stærð.
Það voru bræðurnir Jóhannes
og Bjarni Magnússynir sem af-
hjúpuðu merkið, en þeir hafa
búið í Grímsey alla sína tíð. Er
merkið ekki ein-
asta sett upp
til minningar
um Fiske
heldur líka í
þeim tvíeina
tilgangi að á
þessu ári varð
kiwanisklúbburinn tuttugu ára
og er merkið því að sumu leyti
gjöf hans til eyjunnar. Á merkið
er svo letrað eitt erindið úr söng
Grímseyinga um Fiske, sem er
eftir Hreiðar Geirdal, sem var
lengi kennari í Grímsey.
Willard Fiske t' röðulrúnum,
réði sérhvem staf.
Vorsónatan
Fyrir tilstilli Halldórs Blöndals
mættu að þessu sinni til Gríms-
eyjar þau Guðný Guðmunds-
dóttir fiðluleikari og konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar
íslands og píanóleikarinn Gerrit
Schuil. Þau léku saman í félags-
heimilinu Múla hin ýmsu verk,
meðal annars eftir Atla Heimi
Sveinsson tónskáld, sem kom
með þeim út í eyju af því tilefni.
Eins léku þau 1. kafla Vorsónötu
Beethovens, en Guðný segir að
alltaf sé vorhugur í Grímseying-
um þegar hún komi þangað.
Guðný rekur ættir sínar til
Grímseyjar. Föðurafi hennar,
Matthías Eggertsson, var þar
sóknarprestur frá því nokkru fyr-
ir aldamót og fram til ársins
1943. Faðir Guðnýjar, sem var
kennari, Iengi vrið Kennaraskóla
íslands og organisti við Kópa-
vogskirkju, var einn þrettán
barna Matthfasar og Guðnýjar
Guðmundsdóttir, konu hans.
Eitt barna þeirra hét Willard
Fiske, sem reyndar lést ungur
maður; féll fyrir björg. Drottinn
gefur og drottinn tekur. - „Það
er alltaf sérstök tilfinning að
Ieika fyrir Grímseyinga, Þeir eru
góðir hlustendur og tónleikar
hér eru alltaf óþvingaðir. Það er
einsog ég sé að leika fyrir eina
stóra Ijölskyldu, enda hafa
Grímseyingar Iíka sagt að þeir
séu einmitt þannig,“ segir Guð-
ný.
Eim gefur Fiske
Skákmeistararnir Friðrik Olafs-
son og Jóhann Hjartarson
mættu til hátíðarinnar í Gríms-
ey. Þeir komu út í eyju meðal
annars til að kynna sér sögu
þessa mikla velgjörðarmanns
skáklistarinnar. „Margt væri
öðruvísi í skáklistinni hér á landi
hefði Fiske ekki notið við, hann
gaf töfl, skákmenn og skákbæk-
ur á marga staði; ekki bara hing-
að til Grímseyjar," segir Friðrik
Olafsson. Hann og Jóhann voru
meðal keppenda á helgarskák-
móti sem haldið var í Grímsey á
Jónsmessunótt 1980, en það
mót hófst á útiskákmóti
þar sem
skákborðum
var raðað
upp á þverri
heimskauts-
baugslín-
unni. Friðrik
var sigurveg-
ari þess.
Áuk þeirra
sem áður eru
nefndir mætti
til hátíðarinn-
ar í Grímsey
Day Olin
Mount, sendi-
herra Banda-
ríkjanna á Is-
landi. Hann
kom ekki tóm-
hentur til
Grímseyjar því
frá sendiráðinu
og Fiske-stofn-
uninni í Reykja-
vík kom fullur
kassi af góðum
bókum auk pen-
ingagjafar, 500
dollarar. Er gjöfin eyrnamerkt til
bókakaupa og má því segja að
Fiske sé enn að; að gefa Gríms-
eyingum sitthvað til menningar-
auka - líkt og hann hafði í huga
þegar hann tók ástfóstri við
þessa heimskautaeyju fyrir
meira en hundrað árum.