Dagur - 14.11.1998, Blaðsíða 19

Dagur - 14.11.1998, Blaðsíða 19
RQftt HSRMS'ÍÖVl .k t B\1 O KQ H KÖ'J k. A ,tl LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 - 35 LÍFIÐ í LANDINU Safnahúsið. Segja má að safnahúsið í Reykjavík sé mikil staðarprýði, enda fallega teiknað og vel gert hús. Hvað ár er það byggt - og hvaða söfn voru þar til húsa lengi framan af, sem smám saman hafa verið að flytjast í önnur húsakynni. Forsetinn og páfinn. í Ítalíuheimsókn sinni heimsótti forseti íslands m.a. Páfagarð og átti þar fund með Jóhannesi Páli páfa II. Kom þar fram að Vatíkanið myndi væntan- lega leggja Kristnitökuafmælinu árið 2000 lið. En hvaða ár varþað sem páfi komi í heimsókn hingað til lands og hver var síðasti kaþólski biskupinn hér á landi? Rektorarnir tveir. Þeir Páll Skúlason rektor Háskóla íslands og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri skoðuðu togara við Akureyrarhöfn þegar útvegsmenn buðu landsmenn velkoma um borð. Hvar er Páll uppalinn og hvert rekur Þorsteinn ættir sínar? íÁrnessýslu. Hver er kirkjustaðurinn í upp- sveitum Árnessýslu sem hér sést á mynd? Rithöfundurinn. Þórarinn Eldjárn er þessa dagana að senda frá sér nýtt smásagnasafn, sem Vaka Helgafell gefurút. Hvað heitirþað og hver er eiginkona Þórarins, landsþekkt kona? ]. Þjóðminjasafnið á í fór- um sínum merkilegt safn vaxmynda af m.a. ráðherrum nýsköpunar- stjórnarinnar svo- nefndu. Hver var það sem gaf þetta merka safn og af hvaða tilefni? 2. Spurt er um þingkonu Sjálfstæðisflokksins, sem átti sæti á þingi frá 1930 til dánardægurs árið 1938. Hún fórst, ásamt tveimur dætrum sínum, þegar bíll sem hún var í lenti í Tungufljóti í Biskupstungum. Hver var hún? 3. Hvar á landinu eru félagsheimilin Hnitbjörg, Félagslundur, Hlaðir og Víðihlíð? 4. Hvar á landinu er það sem kallað var Sjálfskaparvíti? 5. Hvaðan af landinu er hljómsveitirnar Skítamórall og 200 þúsund Naglbítar? 6. Hvað heitir hábunga Eyjafjallajökuls? 7. Hvar á landinu var áður býlið Eld- leysa? 8. Við hvern er Guttormslundur í Hall- ormsstaðaskógi kenndur? 9. Hvar á landinu er Finnafjörður. 10. Drápuhlíðarfjall er í norðanverðu Kerlingarskarði á Snæfellsnesi. Fyrir hvað er þetta fjall þekktast? LflWD OG ÞJÓÐ Sigurður Bogi Sævarsson skrifar Svör: ■nujc[ nuipueq i Ji8as ^úpuejsj e bjjbCj njsmSapij bjjjb jegaui gecj efjáj jsnejeja ej^[ -ijijedij jn jjj uejo gec} J3 epua ‘jjjjaus jnejijsjij qbaij mn -jjolj uinjgo bjj 8is jajjs jjeþjegijijndejQ“ •() j HIBÖ -jn^jiAsjjouuny) eSajgnjjjjiui 8o ejjjS um -juioq nuiq je jngns ‘njsXsejnj/y-jngjojvj i pupJissaueSueq e jsjáu ja jngjpfjeuuiq -g •suueuisiSuicJje jeuossuuojjny) sjiaj -jofjj Jjgej jba uueij ua ‘gejssuuojjejj e gjoAjeSpqs ‘uossjej uuojjng giA jnpuuaq J3 iSoqsegejssuuojjejj i jnpunjsuuojjnQ ‘8 •eSuejejeQ 8o nqqajg ijjiui nSaA efpiui jiq pecj uin ‘igjijeofpy i jeA esXajpjg •/, •uuiajsego0 ‘9 ■iJÁajtujY ejj nja jejiqjSefsj punsncj 00Z 80 ÍSS0JPS 13 IieJpnJejpjS 'S •ijiAjedeqsjjefs i ias giuioq 8o sjioqji -jáj ue gejs je puej uuauueunþjjiA npjoq jnpjaq - uingej uingpS ge guej guaA pjqa igjaq euiunioq qia ge euiaui npjiA jiuins uias jecj unq qqaj giujetsj jeje uinuuouiieunfqjiA jsipuÁaj uias nui -gæAsnjjojq e ejoqjoq jba ijiAjedeqsjjefs -y •njSÁSSUJBA -eunjj-jnjsa^ i jepigiyy i ia QijqigJA §° pupijsjegJefjjBAjj e Jigejjq ‘eojq i iddajq -jefæcjefjaajnej) i 8o igjijiegÁag e jij igæq jnpunjsSejoq ‘ujoqiejneg e njo Sipfqjiupj •£ •jnpunjoqju mqiiAjoA nqsuuoui -8u;c} euuis ge iacJ juieijujef jba uias ‘injjppsnieq nunjgn0 uin jmds jo jojj ■£ •isÁjsofs I JSJpJ uias uuis uos uin jbSuiuuiui jij iipuÁui -xeA jessocj nuiujesefuiuigofq je8 uios isiaqspuejsj uossippjjejj JeqsQ jeA ge<j •( •jnSuigæijjngOA Jijjopsjejó muufj jo suuejOcj euo>ju8iq -os 8o luos pecj npjog jijpq suueipcj ujeseuSeseuis efÁu ggj * •iddajqeuueuieunjjj i jejpqddoijq nja puÁui e jsos joq uias uuiingejsnfqjiyj * •gjofjeudoA j jnjsne jeuis Jijjæ inqai uossieuun0 uuiajsiocj 8o iiÁojnqY eij jo uosejnqg jjeg * •uosbjy uof jba ipuejsj e jes uios uuidnqsiq pjsjo -cjeq ijsegjs 6861 QÞF SPUBI JJJ ge8uiq uqosuiiaq j uioq g ijed jjeg sauueqpf * •sujesejefqsgpfg injesjejjsoj nuisnq j jo 8ep j ua - Qiujesefuiuigofcj 8o gjujes -edij8ninjje|vj ‘giujesejeþjsgpfcj ‘gjujes -eqoqspueq sieuue jegaui esnq jij iSuoj niOA jeg '/061 g!JJ: unqjou j gpjoj e8oj -jeqddn jeA njpSsijjoAjj piA gisnqeujes Flu^uveiðar að vetri (93) Hversu djúpt er nógu djúpt? Allir alvarlega þenkjandi fluguveiðimenn þekkja spurninguna: hversu djúpt er nógu djúpt? Ég man þó eftir nokkrum háalvarlega þenkjandi fluguveiðimönnum sem segja fyrirlitlega: annað hvort veiði ég á flotlínu, eða ég veiði ekki neitt. Þetta eru menn sem eiga heima í öðru landi en okkar. Eða bara að fá að njóta sinnar sérvisku. Enskir aðalsmenn gengu dögum saman (og gera sumir enn) með bökkum og köstuðu ekki nema á fisk sem þeir sáu taka uppi. Annað þótti þeim óíþróttamannslegt. Sama viðhorf gildir um þá sem veiða bara á flotlínu, „annað hvort kemur fiskurinn upp eða ég vil hann ekki“. Flott viðhorf. Ég er í hópi þeirra sem skammast mín ekki fyrir að senda fluguna niður til fisksins. FLUGUR Stefán Jón Hafstein skrifar Hvemig á að sökkva? Fyrsta flugulínana mín var að ráði færustu sérfræðinga hægt- sökkvandi lína. Það var gott ráð að byrja á henni. Flugan helst þá nokkurn veginn þar sem flestir fiskarnir halda sig við meðal að- stæður. Nú nota ég aldrei slíka línu. Reyndar er það frekar vitlaust. Flestir silungar halda sig svona nokkurn veginn rétt undir yfirborði. A eins til þriggja metra dýpi. Þar éta þeir. Laxinn er kyndugri skepna, en hægt- sökkvandi lína í stað flotlínu getur gert allan gæfumun við algengar aðstæður. Hann getur neitað að elta alveg upp í yf- irborð, en Iátið freistast fari flugan aðeins niður. Samt er ég ekki hrifinn af þessari línu. Það sem ég tók til ráða var að setja sökktaum á flotlínuna. Ég verð að viður- kenna að mér finnst það einna gjöfulasta aðferðin við silung í straumvatni, og mjög sannfærandi aðferð við lax líka, þótt ég kjósi nú að fá hann alla leið upp. Lengi vel gerði ég mig ánægðan með ofna sökktauma frá þekktum framleið- endum. Þessir taumar eru þægi- lega mjúkir og leggja fluguna fram, og þeir fást mismunandi þyngdir. Maður festir þá við flugu- Iínuna með „lykkju í Iykkju“ og setur stuttan girnisbút við hæfi framan á. Með því að nota hrattsökkvandi taum á flot- línu getur maður náð flugunni niður; ein- ungis tekur nokkrar sekúndur að skipta um tauma við breytilegar aðstæður. Okosturinn við þá var hve dýrir þeir eru, endast illa, og eiga til að vera óáreið- anlegir. Ég lét því plata mig til að kaupa línu með sökkenda. Vinsælar líiiur Línur með sökkenda eru vinsælar meðal veiðimanna. Og mjög vanmetnar. Þær sameina kosti flotlínu (auðvelt að sjá hvar hún liggur á vatninu, sekkur ekki til botns) en fremsti hluti línunnar sekkur hratt niður þangað sem áætlað er að fisk- urinn liggi. Vonbrigði mín með þessa Iinu voru þó mikil. Vegna þess hve sökkendinn á lín- unni er miklum mun þyngri en aðrir hlutar hennar kemur óstjórnlegur slynkur á stöngina þegar ég nota þessa Iínu. Fræknir veiðimenn segja að mismunur- inn milli framleiðenda sé mikill. Ég keypti mína Iínu af einum virtum, og ætla eklci að eyða þúsundum og aftur þúsund- um króna í leitinni að þeirri einu sönnu. Ég held nefnilega að ég sé búinn að finna réttu aðferðina til að sökkva flugu. Taiunar úr línuefni Nú hafa framleiðendur kynnt til leiks frammjókkandi tauma sem eru gerðir úr sams konar efni og flugulínan sjálf. Þeir eru tengdir við hana með lykkju í lykkju. Þetta prófaði ég síðasta sumar og var ánægður. Þessir taumar endast von úr viti. Held ég. Þeir eru í mismunandi lengdum og sökk- hraðinn er allt frá því að vera eng- inn (flot!) upp í dúndursökk sem slær við mestu sökklínum. Ég hallast að því að hinn hefð- bundni girnistaumur og mismun- andi sökkhraðar línur megi fara að biðja bænirnar. Þessir taumar eru frá fimm fet- um og upp í tíu fet, en sagt er að þeir séu svo Iögulega hannaðir að þeir leggi fram upp í fimmtán feta girnisenda sem við þá er tengdur. (Sé nú ekki þörfina á þeim ósköpum við flestar aðstæður.) Sökkhraðastigin eru sjö. Taumarnir hæfa mismunandi Iínuþyngd- um. Þar með er maður kominn upp í úr- val möguleika sem margföldunartaflan ein ræður við. Þegar ég geng til veiða kýs ég að hafa þijá sökkhraða til að tengja við eina flotlínu, og þá er nú ekki vitlaust að hafa báðar lengdir ( fimm og tíu fet) til að velja úr. Verstu að- stæður Ég áætla að þessi búnaður dugi við lang flestar að- stæður, að því gefnu að við eigum taum sem kallast því heillandi nafni „extra super fast sink“, og við nefnum hér dúndursökk. En segjum að við séum með flotlínu og 10 feta dúnd- ursökkvandi taum. Flugan fer hreinlega ekki lengra niður en þessi 10 fet og kannski rúmlega það. Ekki dugar að Iengja girnistauminn svo nokkru nemur, flugan sekkur ekki með honum. Hér vil ég kalla til sögunnar það varaafl sem getur bjargað í miklu vatni og kulda að vori. Dúndursökklínu. Stórir hyljir með miklu vatni geyma fiska sem liggja alveg við botn. Línan þarf að fara alla leið niður. Þótt þetta séu fremur leiðinlegar línur að kasta, þá hafa þær mun meira fram að færa en línur með sökkenda. Þær eru í betra jafnvægi, og þær fara hraðar niður og dýpra. Við erum sem sagt að tala um veiðar af fullum þunga. Ekki eru þær nettar. En heilögu vatnadísir: þegar stór- fiskur tekur í kolsvörtu djúpinu með þessu Iíka firna höggi! Þá vitum við að það er ýmislegt á sig leggjandi. Nema maður vilji ganga dögum saman þangað til hann sýnir sig uppi. Kaldur djúpur hylur, nú þarfflugan að fara niður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.