Dagur - 19.11.1998, Qupperneq 8
8- FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
FRÉTTASKÝRING
Á nriðjimni inn í i
SIGUKDÓR
SIGURDÖRS-
SON
SKRIFAR
Halldór Ásgrímsson
haíiiar íiiUyröingum
Steingruns Hermanns-
sonar um að Fram-
sóknarflokkurinn sé í
hægri sveiflu. Varafor-
mannsslagur á flokks-
þingi flokksins sem
hefst á morgun dregur
að sér athygHna.
Flokksþing Framsóknarflokksins
hefst á morgun í Súlnasal Hótel
Sögu. Það er einkum tvennt sem
menn bíða spenntir eftir að sjá á
þessu flokksþingi. Annars vegar
hvernig stefnu flokkurinn markar
sér í hinum ýmsu málaflokkum
inn í nýja öld og hins vegar hver
verður kjörinn varaformaður
hans. Tvö eru í framboði, Finnur
Ingólfsson, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra og Siv Friðleifsdóttir al-
þingismaður.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, var spurður
hvort hann teldi að einhver
ákveðin mál myndu rísa hærra en
önnur á þinginu og á hvaða mál
eða málaflokka hann legði mesta
áherslu á flokksþinginu?
„Það er erfitt að gera þar upp á
milli. Eg mun í minni ræðu tala
um þau mál sem ég tel að verði
mikilvægustu úrlausnarefni í
upphafi nýrrar aldar, sem senn
gengur í garð. Það er komin ný
aldamótakynslóð á Islandi og hún
þarf að líta langt ffam á veg. Þess
vegna tel ég að mikilvægasta mál
flokksþingsins verði að ræða það
hvernig við sjáum framtíðina fyr-
ir okkur. Ég tel það líka verða
mikilvægasta mál komandi al-
þingiskosninga. Inn í þennan
ramma sem ég er að tala um falla
atvinnumál, umhverfismál, fjöl-
skyldumál, velferðarmál, staða ís-
lands í samfélagi þjóðanna og
ýmis önnur mál mætti nefna, sem
verða til umfjöllunar á þinginu,"
sagði Halldór.
Sækjum fram á miðjiumi
- Steingímur Hermannsson, for-
veri þinn á formannsstóli, sagði á
dögunum að Framsóknarflokkur-
inn hefði þokast til hægri og væri
orðinn hallur undir frjálshyggj-
una í stað þess að vera flokkur fé-
lagshyggjunnar. Ertu á leið með
flokkinn af miðjunni og yfir til
hægri?
„Ég hef aldrei kunnað þetta
mat sumra í Framsóknarflokkn-
um hvenær menn ,eru hægri
menn og hvenær vinstri menn.
Ég minnist þess að Steingrímur
Hermannson var kallaður hægri
maður í Framsóknarflokknum
vegna þess að hann studdi bygg-
ingu álvers í Straumsvík. Hann
var svo kallaður vinstri maður
þegar hann gekk gegn samning-
unum um evrópska efnahags-
svæðið. Eysteinn Jónsson var
kallaður hægri maður þegar hann
studdi varnarsamninginn og að-
ildina að NATO.
Við sem stöndum í forystu
Framsóknarflokksins núna erum
að ganga með flokkinn inn í nýja
öld og til móts við nýja tíma. Það
hefur orðið mikil breyting á í okk-
ar umhverfi. Frjálsræði hefur
aukist í heiminum, alþjóðavæð-
ingin fer vaxandi og markaðsbú-
skapur er almennt orðinn grund-
völlur velferðar samfélaganna. Á
grundvelli þess búskaparlags get-
um við byggt sterkt velferðarkerfi
og það erum við að gera. Ég tel að
við séum að reka miðjustefnu. Ég
tek eftir því að jafnaðarmanna-
flokkar í Evrópu leggja sig fram
um að flykkjast inn á miðjuna.
Dæmin frá Bretlandi, Þýskalandi
og raunar víðar sýna þetta glöggt.
Framsóknarflokkurinn hefur
alltaf verið miðjuflokkur. Ég gekk
í hann sem slíkan fyrir nær 35
árum og lít enn á hann sem
miðjuflokk. Við ætlum okkur að
sækja fram á þessari miðju á nýrri
öld,“ sagði Halldór Ásgrímsson.
Þungar áherslur í
iimliverfisináluni
Olafur Orn Haraldsson telur að
leggja þurfi þunga áherslu á
umhverfismál á flokksþinginu.
Hann telur rétt að staldrað verði
við { virkjunarmálum og endur-
metin sambúð nýtingar og nátt-
úruverndar.
„Ég held því fram að nú sé
tækifæri til að gera þetta vegna
þess að það hefur gengið mjög vel
og miklum árangri verið náð í
virkjunar- og stóriðjumálum. Það
hefur verið einn stærsti þátturinn
í að koma hjólum atvinnulífsins
af stað, sem hefur svo aftur skap-
að þann mikla hagvöxt sem hér er
um þessar mundir. Við erum í
þeirri stöðu að geta staldrað við
og skoðað málin. Það eru komnar
nýjar áherslur í umhverfismálum
og þær kalla á að við köstum að-
eins mæðinni. Ég vil Iíka láta
skoða aðra virkjunarmöguleika en
þá sem hafa undanfarið verið
mest í sigtinu," sagði Ólafur Örn
Haraldsson.
Átök um einstök mál
Flestir þingmenn Framsóknar-
flokksins sem Dagur ræddi við
bentu á sjávarútvegsmál, um-
hverfismál, fjölskyldumál og
byggðamál, sem stærstu mál
flokksins. Magnús Stefánsson
sagðist hiklaust nefna þessa
málaflokka þegar hann væri
spurður um mál málanna á þing-
inu. Hann sagðist vonast eftir líf-
legum umræðum enda væru
skiptar skoðanir innan Fram-
sóknarflokksins, eins og annarra
flokka, um ýmis þau mál sem efst
eru á baugi.
Hjálmar Árnason tók mjög í
sama streng. Hann sagðist að
vísu eiga von á því að sjávarút-
vegsmálin verði átakamál eins og
alltaf. Sömuleiðis sagðist hann
eiga von á líflegum umræðum um
umhverfismál og þá sérstaklega
virkjunarmálin. Hann bendir á að
fyrir síðustu þingkosningar hafi
slagorðið verið Fólk í fyrirrúmi.
Hann segir að við það hafi verið
staðið. Það hafi tekist að skapa
nærri 14 þúsund störf, atvinnu-
leysið væri horfið, kaupmáttur að
aukast um 20%, boðuð væri
skattalækkun og bönd komin á
ríkisútgjöldin, svo dæmi væru
tekin. Nú væri það Fjölskyldan í
fyrirrúmi. Um þann málaflokk
taldi Hjálmar að yrði sátt. Hann
sagðist spá sæmilega friðsömu
flokksþingi.
„En ég vona að það verði ekki
náttúrulaust," sagði Hjálmar
Árnason.
Fiimiir eða Siv
Þau Finnur Ingólfsson og Siv
Friðleifsdóttir munu glíma hart
um varaformennskuna. Menn
skiptast í þijá flokka í spá um úr-
Siv Friðleifsdóttir er sögð koma
sterk inn í baráttuna um varafor-
mannssætið.
slit. Að vísu spá flestir Finni sigri,
telja hann eiginlega alveg örugg-
an. Sumir segja að fylgi þeirra
verði mjög jafnt en Finnur hafi
það. Aðrir spá að hann sigri 60:40
en enn aðrir 75:25.
Helstu rök þeirra sem spá
Finni Ingólfssyni sigri eru þau að
framsóknarmenn séu allra
manna foringjahollastír og það
komi mjög við hjartað í þeim að
meiða ráðherra flokksins póli-
tískt. Þau rök eru einnig notuð að
Siv sé kornung og hennar tími
sem varaformaður sé ekki kom-
inn. Hún er að vísu hörku dugleg
í pólitík og hefur mikinn metnað.
Það er einnig sagt vinna gegn
henni að hún þykir ekki lands-
byggðavænn þíngmaður. Hún sé
þéttbýlisbarn. En hún er sögð
óútreiknanleg. Þess vegna eru
þeir til sem segja að það geti allt
eins verið að henni takist að
skapa slíka stemmningu á flokks-
þinginu að hún nái alveg upp að
hliðinni á Finni. Samt sem áður
hef ég engan hitt sem spáir henni
sigri. Allir eru sammála um að
hún megi ekki fá niðurlægjandi
kosningu, hún sé alltof efnilegur
pólitískus til þess. Það sé hins
vegar rétt af henni að minna á
sig. Hún verði þó að læra það í
pólitík að það þýði ekki að vera
eins og maðurinn sem kom inn á
veitingahús, fékk í hendur 30
rétta matseðil og þegar hann átti
að velja sér rétt sagðist hann helst
vilja þá alla.
Framsóknarmenn benda á að
Finnur Ingólfsson þurfi að fá
Finnur Ingólfsson er talinn sigur-
stranglegri en þó ekki endilega
öruggur.