Dagur - 16.01.1999, Qupperneq 5
T
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 - S
FRÉTTIR
Vilja afnema lög um
vemdun Mývatns
Árni Bragason, forstöðumaður Náttúruverndar ríkisins, segir allar rannsóknir
sýna að vinnsluaðferðir við kísilgúrtöku hafa slæm áhrif á lífríkið.
Sveitarstjóriim í Mý-
vatnssveit segir að
friðimarlögin frá
1974 séu tímaskekkja
og stangist jafnvel á
við nýrri lög. Náttúru-
vemd ríkisins segir
sannað að Kísiliðjan
skaði lífríki Mývatns.
Sigbjörn Gunnarsson, sveitar-
stjóri í Mývatnssveit, vill Iáta af-
nema lög um verndun Mývatns
og Laxár frá 1974. Hann segir
lögin tímaskekkju og hugsanlega
standist þau ekki breytingar á
stjórnarskrá. Mývetningar eru að
láta kanna þetta lögfræðilega,
enda segir Sigbjörn engan bú-
setugrundvöll vera fyrir hendi í
Mývatnssveit nema lögin verði
afnumin. „Ef ég teldi ekki pólit-
ískan vilja fyrir því að afnema
þessi lög, væri ég ekki hér. Við
gætum allt eins pakkað saman
strax,“ segir Sigbjörn.
Náttúruvernd ríkisins hefur
hafnað stækkun kísilvinnslu-
svæðis í Mývatni. Kísiliðjan er að
Iáta meta umhverfisáhrif frekari
vinnslu en leyfi Náttúruverndar
vantar til frekari breytinga. Þar
sem efnisþurrð blasir við hjá Kís-
iliðjunni á leyfilegu vinnsluvæði
innan fárra ára er staða fyrirtæk-
isins slæm að óbreyttu og atvinna
tuga íbúa í hættu. Vinnsluleyfi á
núverandi námasvæði rennur út
árið 2010 en meðal þess sem
Kísiliðjan hefur skoðað eru nýjar
aðferðir við kísilnámið, svokall-
aður undanskurður.
Valdið tekið
„Ef mannlíf á að þrífast hér
áfram verður að afnema lög
númer 36/1974. Þessi lög eru
tímaskekkja. Það voru engin al-
menn náttúruverndarlög í gildi á
þeim tíma sem þau voru sam-
þykkt. Eg held reyndar að stjórn-
arskrárbreytingarnar sýni að lög-
in fáist ekki lengur staðist. Vald-
ið er tekið frá hinum kjömu full-
trúum þessa sveitarfélags.
Skipulagsskylda hvílir á sveitar-
stjórnum en náttúruverndin þarf
að leggja blessun sína yfir allt
sem við skipuleggjum. Við erum
með yfirfrakka,“ segir Sigbjörn.
Arni Bragason, forstöðumaður
Náttúruverndar ríkisins, segir að
menn megi ekki gleyma því að
lífríki Mývatns sé einstætt á
heimsmælikvarða. Markmið lag-
anna sé verndun þessa svæðis.
„Það hefur stundum verið haft
eftir sveitarstjórnarmönnum í
Mývatnssveit að Náttúruverndin
hugsi bara um náttúruna og ekk-
ert um mannfólkið. Okkur er
ætlað að tryggja lífríki Mývatns
til framtíðar,“ segir Arni.
Hefux slæm áhrif
I nýlegri fundargerð Náttúru-
rannsóknarstöðvarinnar við Mý-
vatn segir að ef Iífríki vatnsins
hrynur vegna áhrifa mannsins,
hafi það veruleg áhrif á ferða-
þjónustu, veiðar og fleira. Arni
segir staðreynd að eftir að kísil-
vinnsla hófst þá hafi veiðin hrun-
ið úr 30.000-35.000 fiskum á ári
í um 10.000 og sveiflurnar séu
miklu meiri nú en áður en
vinnslan hófst. „Þegar menn
koma að jafn stóru atriði og að
útvíkka vinnslusvæðið í Mývatni
þá verður að hafa í huga að allar
rannsóknir sýna að vinnsluað-
ferðir við kísilgúrtöku hafa slæm
áhrif á lífríkið. Það er ekki eins
og við byggjum á ótraustum
grunni. Mývatn er mest rannsak-
aða vatn á Islandi," segir Arni.
Eitgir niðingar
Sveitarstjórinn í Mývatnssveit
segist gera sér fulla grein fyrir því
að krafan um afnám verndunar-
laganna um Mývatn og Laxá,
muni vekja viðbrögð. „Eg þykist
vita að þetta kalli á heiftarlega
umræðu um að hér ætli íbúar að
ganga yfir allt og eyðileggja Mý-
vatnssveit. Það er ekki svoleiðis.
Engum er ljósara en ibúum þessa
svæðis hve mikilvægt er að
vernda náttúruna," segir Sig-
björn. - BÞ
Uppselt á Pétar
Gaut
Mjög góð aðsókn var á leiksýning-
una Pétur Gaut hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar í gær og fullt á sýninguna í
kvöld, að sögn Sigurðar Hróarsson-
ar leikhússtjóra. Er það háð því að
flogið verði frá Reykjavík. Þess má
geta að Olafur Ragnar Grímsson,
forseti Islands, hyggst sjá sýning-
una £ kvöld, laugardagskvöld. Þá er
búið að selja talsvert af miðum um
næstu helgi. Eftir að fella þurfti niður sýningu sl. sunnudagskvöld
heyrðust vangaveltur um hvort leikritið hefði fallið en svo virðist ekki
vera miðað við aðsóknina nú. Forráðamenn leikhússins töldu raunar
að messufallið á sunnudag mætti rekja til þess að Akureyringar ættu
því ekki að venjast að boðið væri upp á sunnudagssýningar en það var
gert í tilraunaskyni. Sigurður Hróarsson segist vera mjög ánægður
með aðsóknina í heild, enda hafi hún verið mjög góð. Leikverkið hef-
ur fengið fádæma góða dóma gagnrýnenda.
Jón á Hólum í prófkiör
Jón Bjarnason, skólastjóri Bændaskólans á Hól-
um í Hjaltadal, hefur ákveðið að taka þátt í próf-
kjöri samfylkingarinnar á Norðurlandi um val á
lista hennar við alþingiskosningarnar í vor. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu sem Jón sendi frá
sér í gær. Segist Jón þar tilbúinn til þess að leiða
framboð Samfylkingarinnar í kjördæminu og því
sækist hann eftir efsta sæti listans.
Herdís styður Pál
Herdís Sæmundardóttir sem boðið hefur sig fram
í 2. sætið í prófkjöri framsóknarmanna á Norð-
urlandi vestra vill taka fram vegna fréttar í Degi í
vikunni að hún styður heilshugar Pál Pétursson í
1. sætið. Herdís segir að Páll viti af sínum stuðn-
ingi og þeir sem fylgst hafi með hennar málílutn-
ingi viti það Iíka.
Herdís Sæmundar-
dóttir.
Jón Bjarnason.
Pólitík í vedrinu á
prófkj örss væðum
Sjálfstæðismenn á
Austfjörðum hafa
þegar frestað sínu
prófkjöri um viku
vegna veðurs.
„Við höfum ákveðið að fresta
prófkjörinu um viku eða til laug-
ardagsins 23. janúar vegna þess
hve veðurútlitið hér eystra er
slæmt,“ sagði Jónas A. Þ. Jóns-
son, formaður prófkjörsstjórnar
sjálfstæðismanna í Austurlands-
kjördæmi. Þar átti prófkjör að
fara fram í dag og á morgun.
Hún var heldur ekki gæfuleg
verðurspáin fyrir Norðurlands-
kjördæmin en þar eiga að fara
fram prófkjör framsóknarmanna
í dag. Einar Sveinbjörnsson veð-
Einar Sveinbjörnsson: Pólitískt
gjörningaveður.
urfræðingur sagði spána gera ráð
fyrir „pólitísku gjörningaveðri,"
því spáð væri ofankomu og allt
að 10 vindstigum og skafrenningi
á Norðurlandi eystra og Aust-
fjörðum þar sem veðrið verður
verst. Hann sagði Ijóst að ef
þessi spá gengur eftir lokast allir
vegir og ekki viðlit að opna þá
fyrr en veðrið gengur niður.
Við öllu Tiiínir
„Eg hef nú ekki trú á þessu ofsa
veðri hér. Við höldum bara okkar
striki og hefjum prófkjörið í
fyrramálið,11 sagði Magnús Ólafs-
son, bóndi á Sveinsstöðum, for-
maður kjördæmisráðs framsókn-
armanna á Norðurlandi vestra.
Arni Friðriksson, talsmaður
kjörstjórnar framsóknarmanna
áNorðurlandi eystra, sagði menn
við öllu búna og alveg eins gera
ráð fyrir því að þurfa að fram-
lengja prófkjörið ef allt verður
ófært. - s.DÓR
Sameinast frjálslyndix?
„Ég skal nú ekki segja, en Valdi-
mar Jóhannsson kom hingað til
mín í heimsókn og við ræddum
málið nokkuð. Af því er ekki
fleira að segja í bili annað en það
að við ætlum að hittast aftur
seinna þegar menn eru búnir að
skoða sig um bekki. Ég held að
þessi svo kallaði Frjálslyndi lýð-
ræðisflokkur sé varla á lífi,“ sagði
Sverrir Hermannsson, fyrrver-
andi bankastjóri og stjórnmála-
maður, um sögusagnir þess efnis
að frjálslyndu flokkarnir tveir
séu að sameinast.
Sem kunnugt er kom upp
kengur í samstarfi þeirra Sverris
Hermannssonar annars vegar og
Bárðar Halldórssonar og Valdi-
mars Jóhannssonar hins vegar,
við flokksstofnun frjálslynds
stjórnmálaflokks. Svo fór að
Sverrir stofnaði Frjálslynda
flokkinn en Bárður og Valdimar
Frjálslynda lýðræðisflokkinn. I
skoðanakönnun mælist nokkurt
fylgi við flokk Sverris en ekkert
við Frjálslynda lýðræðisflokkinn
og virðist komin uppgjöf í Bárð
Halldórsson ef marka má örvið-
tal við hann í DV eftir síðustu
skoðanakönnun.
Valdimar til Sverris
„Ég hef ástæðu til að vera dálitið
bjartsýnn. Ég held að margt eigi
eftir að koma á daginn og margt
að breytast. Ég ætla ekki að segja
meira því fæst orð bera minnsta
ábyrgð,“ sagði Sverrir Her-
mannsson. - s.dór