Dagur - 23.01.1999, Blaðsíða 2
18-LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999
J^MT'
LÍFIÐ í LANDINU
L
Fréttahaukurlnn knái Siguröur Þórður
Ragnarsson cr nú aftur kominn á skjáinn
eftir þann rcifarakennda bardaga sem hann
lenti í á fréttastofu Sjónvarpsins í fyrrasum-
ar. Nú segir hami landsmönnum fréttir af
veðri og veðurhorfum á Stöð 2 og stendur
þá í fullri stærð fyrir framan vcðurkortin.
Þar sést vel hve jakkafötin sem hann klæð-
ist fara honum engan veginn. Þau eru helst
til of stór og tala nú meim utn að hið biýn-
asta mál sé fyrir Sigurð að láta stytta fötin
sín.
Séra Gunnar Bjömsson sem í vetur þjónar
Selfossbúum þyklr standa sína plikt þar
með prýði. í ræðum sínum kcmur haim
víða við og bregðm á leik með því að herma
eftir ýmsum þekktum kennimönnum.
Þamúg hefúr haim bæði liermt eftir þeim
Bjama Jónssyni og Árelíusi Níelssyni og
þykir séra Gunnar nærri lagi þar fara í þess-
um stólræðum sínum.
Það glittir víst ekki i
dauða stund hjá
Hilmi Snæ Guðna-
syni sem leikm um þessar mundir í sýn-
ingu Loftkastalans á Músum og möimum
eftir John Steinbeck. Sýningu sem þykir
bera vitni um hugumstóran metnað en
tókst þó ekki að seðja fagurfræðilegt hung-
m gagmýnenda. Hvemig sem áhorfendm
munu taka stykkinu þá er víst að nóg verðm
að gera hjá Hilmi sem er að fara að leika í
tveimur bíómyndum. Örstutt er í að tökm
hefjist á bíómyndinni scm Baltasar Kormákm Ieikstýrir og er gerð
eftir skáldsögu Hallgríms Helgasonar, 101 Reykjavík. Þar leikm
Hilmir aðalpcrsónmia, þumbarann Hlyn sem á bágt með að slíta sig
frá því midmsamlega tæki - fjarstýringunni. Þá er þess ekki langt
að bíða aö tökur hefjist á myndimú sem gerð er eftir bók Einars
Más Guðmundssonar, Englar alheimsins, og mun Hilmir þar leika
einn af geðsjúklingunum fjórum...
Séra Gunnar Biörnsson.
Kastljós fjöhniölanna hafa mik
ið aðdráttarafl en þau geta líka
verið óskaplega sterk eins og
þeir vita sem lenta hafa
„ósminkaðir“ í sjónvarpsvélun-
um. Ráðherrar í rfldsstjóm ís-
lands hafa hins vegar fundið ráð
við því. Á fréttamannafundi
með fjóram ráðherrum í vik-
unni voru ekki bara mættir full
trúar blaða og ljósvakamiðla
heldur einnig starfsmenn Saga film. Ráðhcrramir höfðu leigt af
þeim ljóskastara og „sminkdömu" og sátu brosandi og farðaöir í
góðu Ijósi fýrir framan fréttamaimaherinn. Enda allt aimað að sjá
mennina í sjónvarpsfréttunum um kvöldið.
Iástaklúbbur leikhúskjallarans starfar af krafti og á mánudags-
kvöldið kl. 20.30 syngja þar pólsku systumar Mariola og Elz-
bieta Kowalczyk létt klassísk lög við píanóundirieik landa sms
Jerzy Tosik-Warszawiak. Elzbieta hcfur starfaö sem kennari við
tónlistarskólaim á Hólmavík síðan 1994 og Mariola er skólastjóri
við sama skóla og stjómar auk þess kirkjukór Hólmavíkur. Undir-
leikariim, Jerzy Tosik-Warszawiak, hefur starfað sem píanókennari
og undirieikari við Tónlistarskóla Borgarfjaröar sfðan 1992. í
þessu sambandi rhá rifja upp bréf sem skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri Tónlistarskólans á Akureyri skrifuðu bæjarstjóra smum ný-
lega þar sem meðal amiars var vakin atliygli á bágum launakjörum
tónlistarkemiara og að lausnhi væri oft sú að sækja tónlistarkeim-
ara til Austur-Evrópu. Það í sjálfu sér er þó varla vandainál, því iðu-
lega hefur einmitt það fólk litað tónlistariíf nýjum og ferskum lit-
um, sérstaklega á landsbyggðinni.
„Hún er séní kerlingin og algerlega óþolandi," segir Inga um aðalpersónu leikritsins, frú Klein sem var sálkönnuður á
fyrri hluta aldarinnar og átti í útistöðum við Freudista, dóttursína og aðstoðarkonu.
Leikritum sálkönnuðinn oggyðing-
innfrú Klein verðurfrumsýnt í Iðnó
annað kvöld.
Inga Bjarnason er forsprakki Hvunndagsleikhúss-
ins sem stendur fyrir uppfærslu á leikritinu Frú
Klein eftir breska leikhúsmanninn Nicholas
Wright. Inga leikstýrir verkinu en hlutverkin þijú
eru skipuð þeim Margréti Ákadóttur (frú Klein),
Steinunni Ólafsdóttur (Melitta dóttir frú Klein) og
Guðbjörgu Thoroddsen (Pála, aðstoðarkona frú
Klein). Inga var gripin í símann þar sem hún kom
hlaupandi lafmóð af einu Iokarennslinu, Iúin enda
búin að leggja nótt við dag að undanförnu. „Mað-
ur er bara orðinn ansi Ijótur og slitinn. Eg lít alla
vega ekki út eins og Marilyn Monroe einsog stend-
ur...“
Freud var karlremba
Leikritið Frú Klein er f rauninni eftir gamlan
kunningja Ingu, Nicholas Wright. „Það er nú svo
hlægilegt að í eldgamla daga þegar ég var leikkona
í Bretlandi þá stýrði Nicholas leiklrúsi sem við vor^
um að leika í. Eg hef ekkert frétt af honum síðast-
liðin 20 ár en ég sé að honum hefur vegnað vel,
hann er núna listrænn ráðunautur hjá National
Theatre.“
- Leikritið gerist drið 1934 t' London en um hvctð
er það?
„Þetta er um sálkönnuð sem heitir Frú Klein
sem er af gyðingaættum og kemur frá Búdapest.
Þessar fínu miðstéttarkonur höfðu lítið annað að
gera en að drekka sérrí og sauma út og það var
náttúrulega óbærilegt fyrir gáfaðar konur. Þannig
að hún féll í mikið þunglyndi og leiðindi en komst
svo yfir bók eftir Freud sem heitir Túlkun drauma.
Þar sá hún eitthvað sem hentaði henni. Fór í sál-
könnun hjá lærisveini Freuds og gerðist svo sál-
könnuður sjálf.“
Frú Klein var samtímakona Freuds en deildi
hins vegar mjög á sumar kenningar þessa föður
sálfgreiningarinnar. „Freud var náttúrlega karl-
rembusvfn og barn síns tíma,“ segir Inga og bætir
því við að frú Klein hafi komið hinu kvenlega sjón-
arhorni inní sálfræðina.
Bömln voru tilxaimadýr
Persónur verksins, frú Klein, dóttir hennar Melitta
og aðstoðarkonan Pála eru allar menntaðir sál-
könnuðir. Mikil tilfinningaleg átök eiga sér stað
milli frú Klein og dótturinnar enda markast sam-
band þeirra af ást, hatri og samviskubiti enda not-
aði frú Klein börn sín sem tilraunadýr rétt eins og
Freud sjálfur. Þetta var að sjálfsögðu alsiða áður
fýrr og var kannski ekki fyrr kona nokkur, starfandi
sálkönnuður, var kyrkt af stjúpsyni sínum sem
menn fóru að átta sig á því að „það er ekki hollt að
sálgreina börnin sín.“
Sálfræðikenningar, rammar tilfinningar og svo
„er leikritið líka fyndið á köflum því mikið af þess-
um kenningum eru dálítið framandi í dag en þetta
eru allt saman hámenntaðar konur að takast á. Og
þær kalia ekkert allt ömmu sína.“ LÓA
Maöur vikmmar
ertík...
... en samt ekki pólitík! Engin önnur en hún Tína litla, sem sla-pp
úr haldi og hélt til heiða eins og Halla forðum, vafalaust í leit að
sínum Fjalla-Eyvindi. í stað þess aðfagna því að Ttna séfrjdls -
sem jafnvel Keikó er ekki enn - leggjast allir á eitt um aðfanga
hana á ný. EfTína verður hreppt í þrældóm skipulags undaneldis
á ný verða örugglega stofnuð samtök undir kjörorðinu:
Frelsum Tínu!