Dagur - 23.01.1999, Síða 6
22 - LAV G ARD AGV R 23. JANÚAR 1999
Tkypr
LÍFIÐ í LANDINU
á&TiÍlKFÉLAG BfRFYKJAVÍKURl® #
BORGARLEIKHÚSIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra svíð Sýnt á Stóra sviði kl. 20.00 Tveir tvöfaldir
Ray Cooney
Pétur Pan í kvöld Id. - nokkur sæti laus föd. 29/1 - örfá sæti laus
Id. 30/1 - örfá sæti laus
eftir Sir J.M. Barrie ídag 23/1, kl. 13:00 föd. 5/2 - Id. 6/2
- örfá sæti laus Brúðuheimili
sun. 24/1, kl.13:00 - uppselt
lau. 30/1, kl. 13:00 - laus sæti - Henrik Ibsen
sun. 31/1, kl.13:00 9. sýn. á morgun sud. - uppselt 10. sýn. fid. 28/1 - örfá sæti laus
- örfá sæti laus 11. sýn. sud. 31/1 - uppselt
lau. 6/2, kl.14:00 - uppselt 12. sýn. fid. 4/2
sun. 7/2, kl.14:00 - örfá sæti laus lau. 13/2, kl. 14:00 sun. 14/2, kl. 14:00 Sólveig - Ragnar Arnalds
mvd. 27/1- næstsíðasta sýning
sud. 7/2 - síðasta sýning
Stóra svið kl. 20.00
Horft frá Bróðir minn Ijónshjarta
brúnni - Astrid Lindgren á morgun sud. 24/1 kl. 14:00
- nokkur sæti laus
eftir Arthur Miller sud. 31/1 kl. 14:00
2. sýn. sun, 31/1 - grá kort - nokkur sæti laus
aukasýn. lau, 6/2 - uppseit 3. sýn. sun, 14/2 - rauð kort sud. 7/2 - nokkur sæti laus
4. sýn. fös, 19/2 - blá kort 5. sýn. fim, 25/2 - gul kort Sýnt á Litla sviði kl. 20.00
Abel Snorko
Stóra svið kl. 20.00 býr einn
Erik-Emmanuel Schmitt
Mávahlátur í kvöld Id. - uppselt föd. 29/1 - Id. 30/1 föd. 5/2 - Id. 6/2 -
eftir Kristínu Marju A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst.
Baldursdóttur
í leikgerð Jóns J. Hjartarsonar
Fös. 29/1
Verkið kynnt á Leynibar kl. 19:00 Sýnt á Smíðaverkstæði kl. 20.30 Maður í mislitum
sokkum
Stóra svið kl. 20.00 í kvöld Id. - uppselt sud. 24/1 - uppselt
Sex í sveit fid. 28/1 - uppselt föd. 29/1 - uppselt Id. 30/1 - uppselt
eftir Marc Camoletti fid. 4/2 - uppselt
í kvöld lau. 23/1 föd. 5/2 - uppselt
- uppselt, biðlisti Id. 6/2 - uppselt sud. 7/2 - síðdegissýning kl. 15:00
lau. 30/1 - uppselt föd. 12/2
fim. 4/2, fös. 12/2, lau. 20/2 Listaklúbbur
Litla svið kl. 20.00 Leikhúskjallarans Mánudagurinn 25. janúar
Búa saga PÓLSK GLÓÐ i NORÐRI. Mariola Kowalczyk og Elizabieta Kowalczyk frá Póllandi syngja létt
eftir Þór Rögnvaldsson klassísk lög. Undirleik annast Jerzy
sun. 31/1 - lau. 6/1 Tosiak-Warszawiak. Umsjón hefur Hólmfríður Garðarsdóttir. Dagskráin hefst 20:30 - húsið opnað 19:30 -
miðasala við inngang.
Miðasalan er opin daglega frá kl. 12 -18 og fram aö Ath. breyttan opnunartima miðasölu
sýningu sýningadaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Miðasalan er opin mánud. - þriðjud. 13-18, miðvikud. - sunnud. 13-20.
Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000 fax 568 0383 Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200.
HaukurMárHaraldsson,faðirungmrstúlku semfékk átta ára dómfyrir
að bera kókaínfrá Úrúgvæ tilKaupmannahafnarífebrúar 1996, telurað
fangelsisvist ífangelsinu íKópavogi sébeinlínis „mannskemmandi“.
Hann erafarósátturvið það hvemig búið erað fóngunum þarsem þeirfá
ekki að hafa neitt annaðfyrir stafni en að „hangsa“.
„Það er beinlínis
stefna Fangelsis-
málastofnunar
að fangavist sé
ekki betrun held-
ur refsing. Þetta
hefur einn af yf-
irmönnum henn-
ar sagt í útvarpi
og þetta þyldr
mér erfitt að
sætta mig við, sérstaklega fyrir
unga langtímafanga eins og
dóttur mína. Hún kemur inn í
fangelsið liðlega tvítug, á þeim
aldri þar sem hún ætti að vera
að læra og hafði hugsað sér að
fara að læra úti í Danmörku en
klúðraði því. I stað þess að eitt-
hvað sé gert til betrunar í fang-
elsinu þá þarf maður að fara að
slást við kerfið, til dæmis til að
koma henni í nám,“ segir Hauk-
ur Már Haraldsson.
Haukur Már hefur verið
óþreytandi við það síðustu miss-
eri að fjalla um fangamál og
málefni dóttur sinnar sem fékk
óvenju þungan dóm, átta ára
fangelsi fyrir að flytja kókaín frá
Urúgvæ til Kaupmannahafnar
fyrir Chike, Nígeríumanninn
sem nýlega var dæmdur í níu
ára fangelsi í Kaupmannahöfn.
Hún var einnig dæmd á Iíkum
fyrir aðra smiglferð sem hún
hefur ævinlega neitað að hafi
átt sér stað. Hún var lengi í ein-
angrun og gæsluvarðhaldi í
Danmörku en fékk sig flutta til
íslands þegar dómurinn var
kveðinn upp og afplánar nú í
fangelsinu í Kópavogi. Haukur
Már segir að aðstaðan þar sé
bágborin á allan hátt fyrir lang-
tímafanga.
Fangelsið í Kópavogi er tvílyft
einbýlishús með vírnetsgirðingu
umhverfis 100 fermetra garð og
Haukur Már telur að það sé að
ýmsu Ieyti óhentugt sem fang-
elsi. Einbýlishús eru lítil og „eðli
málsins samkvæmt þurfa fangar
að vera í fangelsinu allan sólar-
hringinn allt árið um kring,"
segir hann og rifjar upp umræð-
una um Smuguna hérna um
árið þegar sjómönnunum var
farið að líða illa verandi í sama
dallinum og sömu vistarverun-
um vikum saman.
Mjög þrúgandi
„Menn geta svo sem horft á
húsið og sagt að þetta sé huggu-
Iegasta hús. En á sama hátt og
sjómenn eru að verða geggjaðir
eftir sex til átta vikur í Smug-
unni þá getur maður ímyndað
sér sjálfan sig vera í þessu ein-
býlishúsi í fjögur ár án þess að
fá að skipta um umhverfí. Það
er þetta sem er svo erfítt. Stærð-
in á húsinu, Ijöldinn innanhúss
og aðstaðan er slík að þetta
verður mjög þrúgandi. Þú hefur
í raun og veru ekkert að fara ef
eitthvað er að. Ef þér líður illa
er ekki hægt að fara neitt. Það
er þetta sem er svo ofboðslega
erfitt," segir Haukur Már.
I fangeísinu er hvergi aðstaða
til tómstundaiðkunar og þegar
um kennslu er að ræða hefur
hún til þessa farið fram í setu-
stofunni, þar sem er stöðugur
umgangur, því að kennarar
mega ekki fara upp á herbergi
með nemendum sínum. I kjall-
ara hússins er tíu fermetra her-
bergi undir líkamsrækt og þar
eru aðeins örfá tæki; hjól, stig-
vél, fjölnota bekkur og magaæf-
ingatæki, sem fangarnir keyptu
sjálfir fyrir flöskupeninga.
„Kannski er skýringin sú að
það voru ekki gerðar svo miklar
kröfur til þess að hafa aðstöðu
til líkamsræktar fyrr en stelpan
mín kom en það má Iíka benda
á að aðstaðan er notuð ef hún
er fyrir hendi. Ef hún er ekki
fyrir hendi er hún ekki notuð.“
Erfið vrnnuaðstaða
Allir fangar eiga að eiga þess
kost að geta stundað atvinnu
eða nám í fangelsinu, að sögn
Hauks, en því miður gefst þeim
ekki alltaf kost-
ur á þessu.
Fangelsið í
Kópavogi var
upprunalega
kvennafangelsi
en er nú bland-
að fangelsi, sem
fyrst og fremst
er miðað við
varðhaldsvist,
það er skamm-
tímavist, og all-
ur rekstur þess
því miðaður við
varðhald þó að
þar séu fangar
að afplána
langa dóma.
Haukur Már
segir að vinnan
í fangelsinu í
Kópavogi sé
„dútlvinna" af
ýmsu tagi, sem felist í því að
stinga kortum inn í umslög og
tímaritum í plastpoka. Þessi
vinna henti kannski varðhalds-
föngum en ekki ungum og
sterkum föngum sem afplána
langa dóma.
Vinnan fer fram í litlu her-
bergi í kjallara fangelsisins og
segir Haukur að þar sé mjög lágt
til lofts. Það væri „gaman ef
þessi aðstaða væri tekin út af
Vinnueftirlitinu,“ segir hann. í
sumar féll vinnan niður og þeg-
ar hann spurði hverju því sætti
voru svörin þau að sumarleyfi
væru í Bjarkarási. „Við vitum að
vinnan í Bjarkarási er þess eðlis
að hún krefst ekki mikilla átaka,
hvorki andlegra né líkamlegra.
Þetta er vinna sem fullfrísku
fólki er boðið upp á. Hún krefst
einskis og gerir engar kröfur til
líkamlegrar eða andlegrar vinnu
sem er stórhættulegt í þessu
umhverfi," segir hann. „Að öðru
leyti er ekkert við að vera annað
en að hangsa."
Má ekki elda
í fangelsinu í Kópavogi er eld-
hús með öllum græjum en nýtist
illa því að föngunum er bannað
að elda. Fangarnir fá bakkamat
tvisvar á dag frá Múlakaffí og er
hann mjög misjafn. „Fyrir fólk
sem er í líkams- og heilsurækt
eins og dóttir mín þá er þetta
oft og tfðum mjög erfitt því að
það er ekki tekið tillit til hennar.
Hún vill til dæmis helst hvítt
kjöt og físk eða grænmeti og það
fæst lítið tekið tillit til þess,“
segir Haukur Már.
- Er ekki hægt að velja á milli
hakka?
„Það er val á
milli tveggja
samsetninga,
annað ekki,“
svarar hann.
Kaffí og kex á
milli mála og
morgunmatur-
inn hefðbund-
inn, mjólkur-
matur, kornfleks
eða annað
morgunkorn. I
sjoppunni er
hægt að kaupa
sælgæti en eng-
ar nauðsynjar,
ekld einu sinni
dömubindi. I
fangelsinu í
Danmörku, þar
sem Valdís var
áður en hún
kom til íslands, gat hún hins
vegar keypt mat og eldað sjálf.
Kjaftshögg!
Fangar geta sótt um dagsleyfi
Guörún Helga
Siguröardóttir
skrifar
„Aðstaðan er notuð ef
hún erfyrirhendi. Ef
hún erekki fyrirhendi
erhúnekki notuð, “
segirHaukurMár um
líkamsræktina, sem í
dagfelstíöifáum
tækjum í 1 Ofermetra
herbergiíkjallara
fangelsisins.