Dagur - 23.01.1999, Síða 17
LAVGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 - 33
Xfc^ttr
LÍFIÐ í LANDINU
Fyrir neðan Bakkann á
Húsavík er sérstakt sam-
félag trillukarla og annara
sjósóknara. Helgi Héðins-
son hefurstundað útgerð í
meira en hálföld og hér
segirhann frá selveiði,
grásleppu, átu í Skjálf-
anda og bévítans kvótan-
um
„Kvótinn hefur haft mikil áhrif á
sjósókn hér á Húsavík og þessir
miklu peningar sem eru í spilinu
hafa ruglað menn í ríminu. Hafa
spillt öllu verðmætamati. Sjálfur
er ég alinn upp í þeirri trú að ég
geti unnið mig upp eftir því sem
ég afla og starfa og að verðmæt-
ið liggi þá í peningum, bátum
eða öðru handföstu en ekki
óveiddum fiski í sjó,“ segir Helgi
Héðinsson trillukarl á Húsavík,
sem er ókrýndur konungur
þeirrar sérstæðu veraldar sem
gamlir sjósóknarar eiga með sér
á Húsavík þar sem heitir Fyrir
neðan Bakkann. I skúrnum hjá
Helga safnast saman daglega
helstu spekingar bæjarins og
ræða þar um kaupin einsog þau
gerast á eyrinni á hverjum tíma.
Og tala enga tæpitungu eða
rósamál.
„Bjarki er mikil
happafleyta“
Helgi Héðinsson er fæddur á
Húsavík á gamlársdag 1928 og
því nýorðinn sjötugur, en afmæl-
ið hélt hann einmitt uppá með
veglegum hætti á síðasta degi
nýliðins árs. Barnungur byrjaði
Helgi til sjós með föður sínum,
Héðni Maríussyni, en saman
fóru þeir út í útgerð árið 1956.
Það ár keyptu þeir bátinn
Helgu, sem þeir gerðu út í nokk-
ur ár. Var róið frá Sandgerði á
vetrarvertíðum, en frá Húsavik á
sumrin.
„Það var 1962 sem við pabbi
keyptum 5 tonna bát sem
nefndur var Sæfari ÞH. Þetta er
sami báturinn sem ég á enn í
dag. Pabbi var með mér í út-
gerðinni lengi vel alveg fram
undir 1980. Þá þurfti ég að
breyta nafni bátsins þar sem
pabbi átti réttinn á því. Ég fór til
fulltrúa sýslumanns og sagði að
nú ætlaði ég að breyta nafninu
og þar sem sonur minn, Bjarki,
hefði stundum verið með mér á
væri best að báturinn yrði
nefndur eftir honum. Þar við sat
og enn í dag geri ég út Bjarka,
þann góða bát, sem alla tíð hef-
ur reynst mér mikil happa-
fleyta," sagði Helgi í upphafi
samtals okkar á dögunum.
„Þá umtumaðist allt
í Flóanmn“
Helgi minnist þess hve vel aflað-
ist á línu og handfæri í Skjálf-
andaflóa á lyrstu árum sjöunda
áratugarins og það hefði í raun
alveg haldist framundir 1990.
„Þá fór þetta alveg snarminnk-
andi og niður í þetta 5 til 10
fiska á bjóðið sem er náttúrlega
ekkert. Þetta held ég að hafi
ekki komið til vegna ofveiði
heldur vegna breyttra haf-
Helgi um bord í bát sínum, Bjarka ÞH 271, sem hann hefur gert út í tæpa fjóra áratugi. „Ég fór til fulltrúa sýslumanns
og sagði að nú ætlaði ég að breyta nafninu. Þar sem sonur minn, Bjarki, hefði stundum verið með mér á væri best að
báturinn yrði nefndur eftir honum.“ myndir: sbs.
Selkjöt mörgum drjúgt til
matar
„Það er hið mesta nauðsynjaverk
að veiða blöðruselinn, hann er
gjarn á að fara í fiskinet sem
liggja úti og fara í lifur fisksins
°g sjúga hana út. Selurinn
hreyfir fiskinn ekki að öðru leyti
en eyðileggur hann alveg fyrir
því. Núna sýnist mér að selur sé
að aukast aftur, en oft hef ég
verið að veiða talsvert af honum.
Arið 1995 náði ég til dæmis ein-
um sex stykkjum sem voru oftast
í kringum 400 kíló. Það er alveg
hægt að nýta selinn í refafóður
og það hef ég talsvert gert af.
Spildð er sfðan gott að nota sem
beitu, sé maður í hákarlaveiði."
Helgi segir að selkjötið hafi
forðum daga orðið mörgum
dijúgt til matar. „Föðurbróðir
minn, Þorgrímur Maríusson,
sagði mér þá sögu fyrir Ianga
löngu síðan að einhveiju sinni
vel fyrir síðustu aldamót hefðu
menn róið til fiskjar í Flatey á
Skjálfanda og það fyrsta sem
kom á færi þeirra var stór
blöðruselur. Þá var hungrið í
eynni orðið slíkt að menn réru
strax í land, þar sem seinum var
skipt upp á milli heimila svo all-
ir fengju sitt. Mun það oft hafa
verið svo í eynni að þar hafði
fólk ekki mikið til matar, einsog
þessi saga segir.“
„ Aflar matar á sinn disk“
Alls er það um 20 manna hópur
sem tilheyrir þvf sérstæða samfé-
lagi sem á sér samastað í skúr
Helga Héðinssonar. Umræðuefn-
ið er einna helst útgerð og afla-
brögð „Stundum tölum við líka
um pólítík og kveðskap, en það
var reyndar sérstaldega gert með-
an eins félaga okkar, Jónasar Eg-
ilssonar, sem lést síðastliðið vor,
naut við,“ segir Helgi Bjarnason,
sem var meðal þeirra góðu
manna sem heiðruðu Helga
Héðinsson á gamlárdag og ekki
gátu menn lýst afmælisbarni
dagsins betur en í þeim tveimur
ferskeytlum sem héðan að neðan
og eru eftir Osk Þorkelsdóttur:
Aflar matar á sinn disk,
enn þaðforna leyfist,
strauma og átuleysis. Af þeim
sökum umturnaðist allt hér í
Flóanum og þorsk var ekki ann-
arsstaðar að hafa en hér uppi í
þara, beint hér norður af Höfð-
anum,“ segir Helgi. Þetta segir
hann að hafi þó lagast í seinni
tíð og aflabrögð segir hann að
hafi glæðst. Én það segi ekki
nema hálfa söguna; í dag hafi
hann ekki nema fjögur og hálft
tonn í þorskkvóta, fimm tonn af
ýsu, 70 kíló í ufsa og örfá kíló í
steinbít. Veiðiheimildirnar séu
sem sagt ekki meiri eftir sjósókn
í meira en hálfa öld. Segir Helgi
að margt hafi óréttlætið verið
við úthlutun kvóta á síðustu
árum og margur hafi getað
makað þar krókinn, jafnvel í tvö-
faldri merkingu þess orðatiltæk-
is.
„Grásleppuveiðin, sem er utan
kvóta, hefur alltaf verið mikil
búbót, í bestu árum hefur mað-
ur verið að fá þetta 5 til 6 tonn
af hrognum. En stundum hefur
þetta Iíka dottið niður úr öllu
valdi og fyrir fjórum árum voru
þetta ekki nema um 1.200 kg. á
einni vertíðinni. Síðan gefur
rauðmaginn líka alltaf sitt. Sú
vertíð fer af stað uppúr miðjum
febrúar og stendur eitthvað fram
á vorið. Já, rauðmaginn gefur
alltaf talsvert af sér og í mörg ár
seldi ég hann suður til Beykja-
víkur í Fiskbúð Hafliða þar sem
hann seldist drjúgt. Og það hef-
ur svo sem engin neyð verið að
hafa i sig með þeim veiðiheim-
ildum sem ég hef í dag þegar ég
hef grásleppuna líka.“
Blöðruseluriim út við Flatey
Veiðimaður af Guðs náð er sú
umsögn sem góðvinur Helga
Héðinssonar, nafni hans Bjarna-
son gefur honum. „Hann er
margan matarbitann búinn að
afla fyrir sjálfan sig og aðra; með
önglum, færum, netum eða
byssunni sinni,“ segir Helgi um
þennan félaga sinn og sjálfum
finnst þeim félögum ekkert
skemmtilegra en fara í Ijöru-
snatt sem þeir kalla svo.
„Það sem við köllum Qörusn-
att er að sigla hér eitthvað út
með Ilúsavíkurljörum eða allt
vestur undir Flatey þar sem sel-
ur heldur sig mikið. Einkum er
það blöðruselurinn sem þar
heldur sig og er þá niður á 118
ArniSvemsson, útibústjóri Landsbanka íZZ u '1'hdnS Hédins$on og
faðma ~ ' -
dýpi. En virkilega þolinmæði
þarf til þess að veiða selinn, því
hann er yfirleitt í kafi í þetta 8
til 12 mínútur og er ekki allur
þar sem hann er séður,“ segir
Helgi Héðinsson og hann held-
ur áfram í frásögn sinni um sel-
inn:
veiðir sel og veiðir fisk,
veiðir allt sein hreyfist.
I skúrinnfræga sérhver sál,
siturfundi lengi.
Einskis virði er það mál,
sem enga dóma fengi.
-SBS.
"'■rrf~T-?airi'ni'nirrritr~:i Tiiiri iitriBiT' T