Dagur - 23.01.1999, Side 18

Dagur - 23.01.1999, Side 18
34 - LAUGARDAGUR 23. JANVAR 1999 - Fram og aftur „Poppblindgötuna“ Nú þegar nýja árið, 1999, er í rólegheit- um byijað að tölta sinn mjóa veg, er hið nýliðna 1998 komið í safn minninganna og sem slíkt tilhlýðilegt til skoðunar. Aður hafa lesendur séð hið árvissa og jafnframt hæfilega alvarlega val á athyglisverðustu plötunum frá 1998, en núna er kannski ekki úr vegi að skoða árið frá fleiri hliðum og drepa á einhveijar staðreyndir sem því tilheyrðu. Ýmsir straumar og stefnur Eins og mörg undangengin ár var útgáfan á árinu 1998 býsna fjölbreytt og ýmsir straumar og stefnur í gangi. Að dómi flestra sem grannt fylgjast með, var í stór- um dráttum þó um rokkár að ræða, þ.e. að það var meira áberandi í útgáfunni og snertir. Þessi þróun hefur á síðustu árum verið að eiga sér stað jafnt og þétt á heimsvísu, stærstu stjörnurnar í dag eru t.a.m. í flestum tilfellum konur, nægir bara að nefna Spice Girls og Celine Dion í þeim efnum. Hérlendis hefur þessi þróun kannski gerst hægar, af skiijanlegum ástæðum þar sem áherslur og markaðurinn almennt er gjörólíkur því sem gerist víðast hvar ann- ars staðar. Það er hins vegar engum blöð- um um það að fletta, að á nýliðnu ári varð manni liggur við að segja bylting. Ekki að- eins sjást fleiri plötur gefnar út af stelp- um/konum, heldur eru þær hreinlega í fararbroddi íslenskrar tónlistar að meira eða minna leyti í útrás hennar á heims- markaðinn. Með Björk auðvitað sem við. Það þarf svo heldur ekki að fara mörgum orðum um, að m.a. vegna smæð- ar þjóðarinnar og þ.a.l. markaðarins hafa ýmis vandræði og leiðindi komið upp, sem undirritaður nennir reyndar ekki að reifa frekar, en gerir ráð fyrir að lesendur flestir kannist við og muni eftir dæmum sem því tengjast. Áreiðanleiki sölutalna hefur lengst af verið umdeildur og aðferðin til að reikna út söluna sömuleiðis. Með samstarfi við fagaðila í slfkum málum, virðist þó nokk- uð hafa ræst úr nú fyrir jólin, allavega hvað varðaði þá leið samtaka hljómplötu- útgefenda að birta lista úr ákveðnum verslunum sunnanheiða unna af viðkom- andi fagaðilum. Ymsar jólasöluherferðir, t.d. að láta eintök af ýmsum titlum fylgja Var hún víst tekin upp á örskömmum tíma og aðeins með tveimur meðspilur- um. Má því alveg hugsa sér að tekjurnar af henni, u.þ.b. 6,75 milljónir (þ.e. um 4500 seld eintök x 2.000 kr - 25 prósent í VSK) hafi verið vel ríflega yfir þeim kostnaði sem varð við gerð plötunnar. Er í þessu dæmi gert ráð fyrir að Skífan, út- gefandi plötunnar, selji plötuna jafnframt að Iangstærstum hluta í smásölu, í eigin verslunum. M.ö.o. hafi bæði tekjurnar af smásölunni og álagningunni. Þetta dæmi ber auðvitað að taka með ákveðnum fyrir- vara, en gefur samt vissa vísbendingu um að sölutölurnar segja ekki alla söguna. Þá er einnig hægt að benda á dæmi þar sem einstaklingar eiga alfarið í hlut við flutning og útgáfu, en það var einmitt eitt Lhooq. Ein þeirra sveita sem hefur freistad þess að skapa sér nafn erlendis. æ r-fui r / A Bubbi Bubbi. Seldi minna en oftast áður, en sagði það alla söguna? e.t.v. betra en t.d. árið áður. Áttu sveitir á borð við Botnleðju, Sead Sea Apple, Ens- íma, 200.000 naglbíta, Unun, Bellatrix o.fl. þar stóran þátt í, sendu allar frá sér plötur sem settu svip á flóruna. Popp/dans/rapp/R&B tónlist með meiru var auðvitað líka í sviðsljósinu, en með til- liti til fyrra árs, 1997, þar sem Quarashi, Subterranean o.fl. stóðu upp úr að mörgu leyti og þá kannski sérstaklega sú fyrr- nefnda með plötusölu upp á um 6000- 7000 eintök, þá var ekki um sambærilegt ár að ræða hvað hina fjölbreyttu deild popp- og danstónlistar áhærði: Bang Gang dúettinn, Móa og Magga Stína (sem reyndar verður ekki svo glatt flokkuð með einum eða neinum) ásamt Lhooq þríeykinu og Gus gus auðvitað líka gerðu þó vissulega góða hluti og eru svo í öllum tilfellum að skapa sér nafn erlendis. Má reyndar ekki gleyma því, að í þeim efnum er íslensk popptónlist í þeim víða skilningi sem birtist í þessum Iistamönnum, komin Iengra að því best verður séð, en rokkið hvað það varðar að skapa íslandi nafn á erlendum poppmörkuðum. Sleipar stelpur Á vettvangi Poppsíðunnar hefur oftar en einu sinni verið reifuð sú staðreynd að kvenþjóðin er meir og meir að taka völdin í tónlistinni, allavega hvað vinsældimar brautryðjanda, koma svo hinar „drottning- arnar“ hver á eftir annarri í kjölfarið: Alda Björk, Móa, Magga Stína, Bellatrix. Þessi upptalning segir sitt og eru þá ónefndar fleiri, t.d. Emiliana, Anna Mjöll og Svala Björgvins, sem allar hafa hver á sinn hátt verið að undirbúa jarðveginn, auk svo allra söngkvennanna í hinum ýmsu sveit- um er slíkt eru að gera einnig eða hafa í huga, í Bang Gang, Lhooq, Unun o.fl. Drengirnir í Botnleðju og Dead Sea Apple eru auðvitað á svipuðu róli, en stelpurnar hafa einfaldlega vinninginn, ef hægt er að tala um slíkt í þessum efnum. I ofanálag var svo ein söngdúfan til, Sigga Beinteins, sá einstaklingur sem seldi mest fyrir jólin, barnaplötuna sína Flikk flakk. Það minnir á að 1998 voru kvennskör- ungar reyndar einnig söluhæstar, Diddú og Björk, þannig að þótt sagt sé með sanni að einskonar bylting hafi orðið með stelpurnar á liðnu ári, þá hafi það átt sér sinn aðdraganda og þær verið áberandi í miklum mæli fyrr. Salan Þegar horft er yfir nýliðið ár eins og núna, verður ekki hjá því komist að tala um söl- una og hvernig hún þróaðist. Það er reyndar þannig með íslenskan plötusölu- markað, að hann er illútreiknanlegur og margt í honum sem ekki er auðvelt að fást með annarri vöru, sem kaupmenn hafa í æ ríkara mæli tekið upp fyrir jólin, skekkja þó áfram myndina. Sem fyrr sagði, virðast óyggjandi tölur sýna að Sigga Beinteins hafi átt sölu- hæstu plötuna hjá einstaklingum. Á plöt- unni eru þó fáar ef nokkrar nýsmíðar. Segir það nokkuð um söluna nú fyrir jól- in, plötur með NÝRRI íslenskri tónlist náðu nefnilega í engum tilfellum há- markssölu, ólíkt því sem verið hefur mörg undanfarin ár. Góð sala, vond sala? Plötur Bubba, Lands og sona, Sálarinnar, (sú tvöfalda sem hafði innanborðs nýtt efni auk valinna smella) og Skítamórals, sem reyndar kom út um sumarið, voru auk Flikk flakk plötur sem nokkuð áreið- anlega má telja að fóru í yfir 4000 eintök- um í sölu og vel rúmlega það. Þær náðu hins vegar engan veginn eins góðri sölu og ýmsar safnplötur með eldri tónlist er komu út fyrir jólin, Söknuður og Heimur- inn og ég, er fóru báðar í yfir 10.000 ein- tökum að sagt er. Áætlaðar tölur um söl- una, segja þó ekki í mörgum tilfellum alla söguna. Arfurinn hans Bubba mun víst hafa selst nær tvöfalt minna u.þ.b. en sú næsta á undan, Trúir þú á engla. Það seg- ir þó ekki nema hálfa söguna, því um allt öðru vísi og ódýrari plötu var að ræða nú. einkenni á útgáfunni 1998, hversu marg- ar góðar plötur af slíku tagi Iitu dagsins ljós. Er þeirra kostnaður ærið misjafn, mismikið í verkin lagt, þannig að það gef- ur auga leið að til að þær borgi sig þarf mismunandi mikla sölu. Þykir ekki mikið í augum margra að selja 1000 eintök, en það kann samt að vera nóg og rúmlega það íyrir viðkomandi plötu svo að hún skili skapara/sköpurum sínum arði. Eftir virðist hins vegar standa í stórum drátt- um, að salan almennt á nýrri íslenskri tónlist dróst saman að einhverju marki gagnvart endurútgáfum/safnplötum. Kemur þetta ekki á óvart í ljósi þess m.a. sem ritari Poppsíðu hefur reifað áður um þessi mál. Spáði hann reyndar ein- hveiju þessu Iíkt fyrir allnokkru er inn- flutningur á erlendum sveitum stóð sem hæst og benti á að smæðin leyfði ekki til lengdar þennan mikla innflutning og að hann myndi bitna á innlendum tónlistar- mönnum. En hvað sem því líður er ekki í megindráttum ástæða til annars en að vera bjartsýnn fyrir hönd íslenskrar tón- listar. Það er fullt að gerast út um allt land og má mikið vera ef ekki verður um mjög svo blómlegt tónlistarár 1999 að ræða. Svo er aldrei að vita nema að fleiri skref verði stigin á árinu í að markaðssetja íslenska tónlist frekar erlendis. Við bíðum og sjáum til.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.