Dagur - 26.02.1999, Blaðsíða 2
18-FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
Du^ur
LÍFIÐ í LANDINU
ÞAÐ ER KOMIRI HELGI
Hvað
ætlarþúað
gera?
„Á laugardag er árs-
hátíð hjá starfsfólki
Viðskiptablaðsins,"
segirAri Edvaid.
Árshátíð á Borginni
„Á föstudagskvöld ætlum við hjónin að hittast
ásamt fleiru góðu fólki á myndakvöldi heima
hjá Boga Pálssyni forstjóra og konu hans
Kristínu Dóru. Við vorum saman á dögunum
í skíðaferð úti á Italíu og nú Iiggur fyrir að
fara yfir myndabunkann," segir Ari Edvald,
ritstjóri Viðskiptablaðsins.
,Á laugardag er árshátíð hjá starfsfólki blaðs-
ins. Hún hefst á vélsleðaferð á Hellisheiði, en
síðan förum við í heimboð hér í bænum. Kvöld-
verð borðum við síðan saman á Hótel Borg.
Mér þykir ekki ósennilegt eftir þetta að svona
gömlum manni einsog mér veiti ekkert af því
að hvíla sig á sunnudeginum fyrir átök kom-
andi viku.“
„Þetta eru spennandi
tónleikar, “ segir Vigdís
Esradóttir.
Tveimtr tónleikar
„Eg verð í vinnunni um helgina. Á föstudags-
kvöld á ég þó frí og mun þá sjálfsagt fylgjast
spennt með spurningakeppni framhaldsskól-
anna í sjónvarpinu. Og hlusta á Jónas í Út-
varpinu á tólfta tímanum," segir Vigdís Esra-
dóttir, forstöðumaður Salarins, tónlistarhúss-
ins í Kópavogi.
„I eftirmiðdag á laugardag er tónskóli Sig-
ursveins með skólatónleika strengjasveitar
sinnar í Salnum og er efnisskrá Ijölbreytt.
Þegar þeim lýkur ætla ég að leyfa Þorsteini
Gauta Sigurðssyni píanóleikara að koma og
æfa sig á flyglinum hér fyrir tónleika sem
hann er með næsta þriðjudag. Á sunnudag er
Skólakór Kársness með tónleika hér sem bera
yfirskriftina Umhverfis jörðina. Þetta eru
spennandi tónleikar sem ég hlakka til að
hlusta á.“
„Menn sleppa fram af
sér beislinu, “ segir
Gunnar Bragi
Sveinsson.
Barlómar hitta Molduxa
„Ég þarf að vera heima um helgina. Börnin
eru veik, og fer tími í að sinna þeim,“ segir
Gunnar Bragi Sveinsson, aðstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra.
„Ég sé svo fyrir mér skemmtilega stund á
laugardag, þar sem menn sleppa fram af sér
beislinu um stund. Þá kemur í bæinn körfu-
boltaliðið Molduxar, sem er lið Old boys
gaura í Skagafirði en þeir munu etja kappi við
okkur í Barlómunum, sem erum flestir brott-
fluttir Norðlendingar. Þetta verður sjálfsagt
mjög öruggur sigur hjá okkur í Barlómunum,
enda vanir menn á ferð. Nei, ég býst ekki við
að það verði neitt gert eftir leikinn."
Fyrir röskum þrjátiu árum stigu þrír strákar í Kópavogi á stokk og fóru að syngja
gamanvísur og þjóðlög afýmsum toga. Þeirra á meðal var Helgi Pétursson og
enginn reiknaði þá með að hann ætti eftir að verða borgarfulltrúi norðan lækjar.
En svona breytast tímarnir og menninrir með, þar á meðal Helgi sem síðan
þessi mynd var tekin er búinn að vera fréttamaður, ritstjóri, útvarpsstjóri, og
ferðaskrifstofugúrú og sitthvað fleira.
■ LÍF OG LIST
Flögð og fögur skill
Élögð " Og
fögur skinn, sem kom út í
tengslum við Listahátíð í
Reykjavík og sýningu sem
haldin var í Nýlistasafninu.
Mannslíkaminn er viðfangsefni
þessa velunna greinasafns og í
hinum ótrúlegustu myndum
sfnum. Ljósmyndirnar í bók-
inni eru ótrúlegar enda ekkert
sett í form hins eina rétta. Þá
er ég nýbúin að lesa jólaskáld-
sögu Kristins R. Ólafssonar og
fannst hún ágæt en ekkert
spes.“
Jazz as you like it
„Ég er að koma mér upp
djassáhuga með góðum ár-
angri og er núna að fara í
gegnum safn sem við keypt-
um og heitir Jazz as you like it. Eins hef ég verið
að hlusta á diska sem tengjast starfinu en
menningarmálanefnd úthlutar styrkjum til lista-
og menningarstarfsemi um miðjan mars. Ég
vildi samt gjarnan hlusta meira á tónlist sem ég
vel ofan í mig, ég sé það núna að ég hlusta of
mikið á útvarpstónlist.
Fimm Fóstbræðraþættir
„Myndbönd eru að verða vandamál hjá mér. Ég
er dyggur bíómyndaáhorfandi en virðist í seinni
tíð ekki fylgja markaðnum þar
■ sem mér líka þær myndir sjald-
■P' an sem leigurnar eru mcð.
Þetta er bagalegt þar sem ég
fyllist alltaf einlægri gleði við
ákvörðunina að skella mér út á vídeóleigu en er
svo geispandi yfir myndunum sem ég kem með
heim. Síðan fer bíómyndasmekkur okkar hjóna-
Ieysanna ekki alveg saman, um daginn lét ég
mig meira segja hafa það að horfa á endurgerð-
ina af Leitinni af týndu örkinni með Harrison
Pord, sem var þar mikill hasar fornleifafræðing-
ur. Síðasta spóla sem ég horfði á og skemmti
mér konunglega yfir var heimagerð en á henni
voru fimm Póstbræðraþættir. Systir mín tók
þættina upp þar sem ég er ekki með Stöð 2 og
nú get ég spólað aftur og aftur á atriðin sem
mér finnast fyndnust."
■ fra degi til dags
„Hægt mun að festast, bágt mun úr að
VÍkja.“ Jón Helgason
Þetta gerðist 26. febrúar
• 1815 hélt Napóleón af stað frá Elbu
ásamt 1200 manns til þess að ná
Prakklandi aftur á sitt vald.
• 1848 birtist Kommúnistaávarpið eftir
Karl Marx og Priedrich Engels.
• 1885 var haldin ráðstefna í Berlín þar
sem ákveðið var að Kongó skyldi til-
heyra Belgíu en Nígería Englandi.
• 1924 hófust réttarhöld gegn Adolf
Hitler í Múnchen.
• 1930 birtist fræg grein Jónasar frá
Hriflu, Stóra bomban, í Tímanum, og
fylgdu miklar deilur í kjölfarið.
• 1952 tilkynnti Winston Churchill að
Bretland hefði smíðað kjarnorku-
sprengju.
• 1980 skiptust Israel og Egyptaland á
sendiherrum í fyrsta sinn.
Þau fæddust 26. febrúar
• 1671 fæddist breski stjórnmálamaður-
inn og heimspekingurinn Anthony As-
hley Cooper Shaftesbury.
• 1852 fæddist John Harvey Kellogg, sá
sem fann upp kornfleksið.
• 1913 fæddist breska skáldið George
Barker.
• 1930 fæddist Sverrir Hermannson,
sem mun vera frjálslyndur íslenskur
stjórnmálamaður.
• 1932 fæddist bandaríski sveitasöngvar-
inn Johnny Cash.
• 1959 fæddist Ásdfs Thoroddsen kvik-
myndagerðarmaður.
Vísan
Vísa dagsins er grískt ástarkvæði:
Komdu með vatnsker og vín
og vönd afilmandi rósum,
Erosi get ég þd greitt
grimm og verðskulduð högg.
Afmælisbarn dagsins er William
Frederick Cody, eða Buffalo Bill
eins og hann var oftast kallaður.
Hann fæddist í Iowa í Bandaríkjun-
um árið 1846, en lést árið 1917.
Viðurnefnið fékk hann vegna þess
hvað hann var duglegur að skjóta
buffala í matinn handa verkamönn-
um sem voru að Ieggja járnbrautar-
teina. Hann var einnig duglegur að
elta uppi indjána fyrir herinn, sem
lék þá illa. Seinni hluta ævinnar
starfaði hann sem sýningargripur í
eigin farandsýningu.
Brandari dagsins
Þeir sátu þrír saman, kaþólskur prestur,
lúterskur prestur og rabbíni, sem vita-
skuld var gyðingur. Umræðuefnið var
fóstureyðingar og hvenær hægt sé að tala
um að Ííf sé kviknað í móðurkviði.
„Að mínu viti hefst lífið strax við getn-
að, um leið og egg í móðurkviði frjóvg-
ast,“ sagði sá kaþólski. Hinn Iúterski vildi
ekld ganga svo langt, og sagði þungt
hugsi: „Að vísu tel ég að lífið hefjist tölu-
vert fyrir fæðingu, en varla strax við
getnað.“ Svo deildu þeir tveir góða stund
um þetta, uns þar kom að þeir spurðu
rabbínann álits. Hann leit þreytulega á
félaga sína, og sagði: „Lífið hefst þegar
börnin flytja að heiman og hundurinn er
dauður.“
Veffang dagsins
Þeir sem vilja fylgjast með nýjustu frétt-
um úr poppheiminum, og sjá viðtöl við
stærstu stjörnurnar, ættu að líta á
www.Iaunch.com