Dagur - 26.02.1999, Page 6
22 - FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
Dggur
Ómar i Fold
Myndlistarmaðurinn Ómar Stefánsson opnar sýningu á olíumál-
verkum sínum í Gallerí Fold á Rauðarárstíg á morgun kl.15 en
hún stendur fram á sunnudaginn 14. mars. Ómar hefur auk
þess að mennta sig á íslandi og í Þýskalandi starfað við List-
miðlunina Inferno 5 (veffang: www.this.is/lnferno 5/) en það fyr-
irtæki hefur séð um listviðburði ýmiss konar og útgáfu. Galleríið
eropiðfrákl.10-18 virkadaga, 10-17 álaugardögum og 14-
17 á sunnudögum.
Áfram
Wagner
Á morgun klukkan 14
mun Richard Wagner
félagið halda áfram að
sýna í Norræna húsinu
kvikmynd Tony Pal-
mers um Richard
Wagner. Að þessu sinni
verður fjallað um ævi
tónskáldsins á árunum
1859-1867. Tímabilið
hefst á Parísardvölinni
og hneykslinu við flutn-
ing Tannháusers þar.
Skömmu síðar er skiln-
aðurinn við Minnu.
Kynni Wagners við Ludwig II. hefjast og ástarsamband
við Cosimu dóttur Franz List og eiginkonu Flans von
Buow. Richard Burton leikur Richard Wagner og
Vanessa Redgrave leikur Cosimu.
Ketilssaga flatnefs
Næstu fjóra sunnudaga klukkan 15
verður sýnd í Iðnó leiksýningin Ket-
ilssaga flatnefs eftir Flelgu Arn-
alds. Áð undanförnu hefur verið
farið með sýninguna milli skól-
anna í landinu og hún fengið
góð viðbrögð og góða
dóma.
Inntak sögunnar er fengið úr
íslendingasögunum og fjall-
ar sagan um fyrstu kynni
foreldra Auðar djúpúðgu,
þeirra Ketils flatnefs og Yng-
vildar frá Flringaríki. Leiksýn-
ingin er allt i senn, brúður,
grímur, látbragð, texti, leikur og
tónlist. Sýningin er jafnt fyrir börn
og fullorðna en sérstaklega fyrir ald-
urshópinn 6-15 ára. Sýningin er á veg-
um Leikhússins 10 fingur, leikstjóri er Pór-
hallur Sigurðsson og Petr Matásek sá um leik-
mynd. Brúður og leikur eru í höndum Helgu Arnalds.
HVAfl ER Á SEYfll?
Við rætur BlávatnsQalls
Sænsk ævintýramynd fyrir böm og full-
orðna verður sýnd í Norræna húsinu á
sunnudaginn kl. 14.00. Myndin heitir á
frummálinu Bama frán Blásjöfjallet,
handritið gerðu Björn Norström og
Jonas Sima eftir samnefndri sögu.
Margir þekktir leikarar koma fram í
myndinni s.s. Rolv Wesenlund, Beppe
Wolgers, Lasse Poysti og fleiri.
Leonardo ráðstefna
Dagana 26.-27. febrúar verður haldin
ráðstefna á Hótel Loftleiðum á vegum
Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun-
ar Evrópusambandsins, en Leonardo er
ætlað að koma á framfæri nýjungum í
starfsmenntun, bæði innan skólakerfís-
ins og í atvinnulífinu. Yfirskrift ráðstefn-
unar er Developing Self-esteem and
Entrepreneurial Spirit. Skipuleggjendur
eru Landsskrifstofa Leonardo á Islandi
og stjórnardeild Menntamála hjá Evr-
ópusambandinu. Ráðstefnan hefst kl.
09.00 á föstudag og lýkur kl. 18.00 á
laugardag. A meðan á ráðstefnunni
stendur verður sýning á verkefnum sem
unnin hafa verið með styrk frá Leonardo
da Vinci starfsmenntaáætluninni í fund-
arsal Hótel Loftleiða.
Kókóhundur á Kakóbar
Hljómsveitin Kókóhundur spilar á Síð-
degistónleikum Hins Hússins og Rásar
2 á Geysi Kakóbar í Aðalstræti í dag kl.
17.00. Kókóhundur er þriggja manna
band, skipað sveinum á aldrinum 21 -
22ja ára. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimil meðan húsrúm leyfír.
Saga nikkunnar í eina öld
Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavík-
ur gefa innsýn í það hlutverk sem
harmonikan hafði um langt árabil í
dansmenningu á Islandi í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans mánudaginn 1. mars
kl. 20.30. Tónlist, dans og saga tvinn-
ast saman í sérlega skemmtilega og
fróðlega dagskrá. Húsið opnar kl.
19.30 og er aðgangseyrir kr. 800.
Kvenfélag Háteigssóknar
Þriðjudaginn 2. mars býður Kvenfélag
Háteigssóknar Kvenfélagi Laugarnes-
sóknar í heimsókn á félagsfund Kven-
félagsins í Safnaðarheimili Háteigs-
kirkju kl. 20.00. Margt verður gert til
gamans á fundinum og eru félagskon-
ur hvattar til að fjölmenna.
Sýning í Gallerí Fold
Omar Stefánsson opnar sýningu í bak-
sal Gallerís Foldar við Rauðarárstíg á
morgun laugardag kl. 15.00. Ómar út-
skrifaðist frá MHÍ 1981 og stundaði
framhaldsnám við Hochscule der
Kúnste í Vestur Berlín 1982-86. Ómar
hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum hérlendis og erlendis, og þetta
er ellefta einkasýning hans.
Hrafnhildur í Kringlunni
I sýningarrými Gallerís Foldar í Kringl-
unni stendur yfir sýning á málverkum
Hrafnhildar Bernharðsdóttur. Verk
hennar eru unnin með olíu á tré. Sýn-
ingarrýmið er á annarri hæð í Kringl-
unni gegnt Hagkaupi og er opið á opn-
unartíma verslananna.
Umhverfis jörðina
Umhverfis jörðina er yfirskrift tónleika
Skólakórs Kársness sem verða haldnir í
Salnum á sunnudagskvöldið 28. febrú-
ar kl. 20.30. Tónleikarnir eru í tón-
leikaröðinni Ttbrá sem Kópavogsbær
stendur fyrir. Efnisskrá tónleikanna er
afar fjölbreytt og verða flutt um 30 lög
frá 25 löndum. Þar gefur að heyra
mörg lög sem ekki hafa verið sungin
áður hér á tónleikum. Drengjakór
Kársnesskóla heiðrar tónleikagesti með
amerískum kúrekasöngvum, Guðrún
S. Birgisdóttir Ieikur á flautu og
strengjasveit skipuð ungum kórsöngv-
urum leikur með í einu verki.
Skinnasýning á Sögu
Samband íslenskra loðdýrabænda og
Eggert feldskeri standa íyrir sýningu á
skinnum og loðfeldum á Hótel Sögu
laugardaginn 27. febrúar. A sýning-
unni má sjá skinn frá allflestum loð-
dýrabúum í landinu eða um 600 skinn
í helstu litarflokkum sem íslenskir loð-
dýrabændur framleiða. Sýningin hefst
kl. 13.00 og lýkur kl. 16.30. Tískusýn-
ing á vegum Eggerts feldskera verður
svo í Súlnasalnum kl. 15.15 þar sem
kynntar verða athyglisverðar nýjungar.
Orsýning í Landsbókasafninu
Kvennasögusafni Islands barst nýlega
að gjöf málverk Gunnlaugs Blöndals af
Bríeti Bjarnhéðinsdóttur (1856-1940),
helstu sporgöngukonu kvenréttinda á
íslandi. Verkið málaði Gunnlaugur
árið 1934. I tilefni áf því hefur verið
sett um Örsýning um Bríeti í forsal
þjóðdeildar Landsbókasafns Islands -
Háskólabókasafns. Þar er málverkið til
sýnis ásamt skrifborði Bríetar og gögn-
um úr fórum hennar. Málverkið er gjöf
frá Gurúnu Pálsdóttur. Sýningin er
opin mánudaga til föstudaga kl. 08.1 5-
19.00 og laugardaga kl. 10.00-17.00.
Námskeið MHÍ
Þrívíddargraffk fyrir byrjendur. Helstu
grunnatriði í gerð þrívíddar- og þrí-
víddarhreyfimynda. Kennari er Arn-
finnur R. Einarsson myndlistarmaður.
Kennt í húsnæði MHI í Laugarnesi
þri. og fím. 2.-11. mars, kl. 18.00-
22.00.
Hafnarborg Hafnarfirði
Vtðemi Norðursins er yfirskrift sýning-
ar veflistakonunnar Gun Johansson
sem opnuð var þann 13. febrúar s.l. í
Hafnarborg menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar. Sýningin er opin alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 12.00 til
18.00 og lýkur 1. mars.
Hafnarborg Hafnarfirði
Sigurlaugur Sverrisson sýnir tréristur í
Sverrissal Hafnarborgar. Þetta er 10.
einkasýning Sigurlaugs og stendur til
1. mars. Opnunartími er kl. 12.00 til
18.00.
Listhús Ófeigs
Vegna mikillar aðsóknar verður sýning-
in á málverkum Sigurðar Magnússon-
ar, myndlistarmanns opin bæði laugar-
dag og sunnudag frá kl. 14.00 til
17.00, en að jafnaði eru sýningar í
Listhúsinu aðeins opnar á laugardög-
um.
Húnvetningafélagið
Félagsvist sem vera átti á laugardaginn
nk. fellur niður. Hjálmur St. Flosason,
formaður sími 557-3197.
Fræðslumorgun í Hallgríms-
kirkju
Á sunnudagsmorguninn nk. kl. 10.00
mun Guðmundur Hallgrímsson lyfsali
scgja frá heimsókn til íslenskra fóstur-
barna á Indlandi og sýna skyggnur. Á
s.l. ári fór hópur íslenskra fósturfor-
eldra í ferð til Indlands til þess að
kynnast börnunum persónulega og
fræðast um aðstæður þeirra og þjóðfé-
lagið sem þau búa í.
Þróunarkenningin á Islandi
Hið íslenska bókmenntafélag efnir til
fimm kvölda lærdómsnámskeiða tengt
efni bókarinnar „Um uppruna dýrateg-
unda og jurta“ eftir Þorvald 'fhorodd-
sen. Námskeiðið nefnist: Þróunar-
kenningin á Islandi um og eftir síðustu
aldamót: Darwin, Benedikt Gröndal,
Þorvaldur Thoroddsen, Ágúst H.
Bjarnason. Leiðbeinandi á námskeið-
inu verður Steindór J. Erlingsson en
hann undirbjó útgáfu bókarinnar og
ritaði formála.
Skráning og upplýsingar eru í síma
588 9060 til og með 3. mars.
Sýningalok í Nýlistasafninu
Á sunnudag lýkur fjórum einkasýning-
um og safnsýningu í Nýlistasafninu að
Vatnsstíg 3b. Að einkasýningunum
standa Kristján Steingrímur, Helga
Þórsdóttir, Gunnar Straumland og Jón
Sæmundur Auðarson. Umsjónarmenn
safns)mingarinnar eru Pétur Orn Frið-
riksson og Birgir Snæbjörn Birgisson.
Sex í sveit
Á sunnudag verður gamanleikurinn
Sex í sveit sýndur í sjötugasta sinn á
Stóra sviði Borgarleikhússins. Verkið
var frumsýnt 12. mars í íyrra og tekinn
upp aftur 12. september eftir sumar-
leyfi. Verkið hefur gengið íyrir troð-
fullu húsi í allan vetur og hafa nú yfir
þrjátíu og fimm þúsund manns séð
sýninguna.
LANPIÐ
Alþingi æskunnar
I tilefni 50 ára afmælis Evrópuráðsins
mun utanríkisráðuneytið í samvinnu
við námsmannahreyfingar efna til Al-
þingis unga fólksins dagana 29.-31.
mars. Þar mun 63 ungmennum af öllu
landinu á aldrinum 16-20 ára verða
boðið til þingfundar til að fjalla um
málefni sem tengjast Evrópuráðinu.
Umsóknareyðublöðum hefur verið
dreift í alla framhaldsskóla landsins og
þurfa að berast til ÆSÍ, Hverfisgötu
105 í Reykjavík, eigi síðar en 8. mars.
Ekkert þátttökugjald. Allar nánari upp-
lýsingar veitir verkefnisstjóri á skrif-
stofu ÆSÍ í síma 562 3035.
Fatlaðir í ÍTamhaldsskóIum
Kynningar- og umræðufundur á vegum
Þroskahjálpar á Norðurlandi eystra um
# staðgreiðsluafsláttur
Tsekiðerhelstatryggingin
. Skattalegt hagræði
. Sveigjanleg greiðslubyrði
Allt að 100% fjármögnun
EinfaH daemi með
■ mCl■ ■ ■■ mJPwm■ ■ ■■
mp IwmF
SP-FJÁRMÖGNUN HF
SP Fjármögnun • Vegmúla 3 • 108 Reykjavík • Sími 588 7200 • Fax 588 7250
§
Skoðaðu vefinn okkar
www.sp.is