Dagur - 26.02.1999, Síða 7
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 - 23
Tkyptr_
Harmoníkan i eina öld
[ Lístaklúbbi
Leikhúskjallar-
ans á mánu-
dagskvöld
verður kynnt
Saga harm-
oníkunnar í
eina öld. Félag-
ar úr Harm-
oníkufélagi
Reykjavíkur
gefa innsýn í
það hlutverk
sem harmoník-
an hafði um
langt árabil í
dansmenningu
á fslandi. Ungt fólk tekur þátt í dagskránni og sýnir Listaklúbbs-
gestum að harmoníkutónlistin Ér enn góðu lífi.
Tónlist dans og saga tvinnast sáman í sérlega skemmtilega og
fróðlega dagskrá. Húsið verður opnað klukkan 19.30 en dag-
skráin hefst klukkan 20.30. Aðgangseyrir er 800 krónur.
Fj; m r
Tríó
Suður-
lands
Tríó Suður-
lands, fyrsti
kammermús-
íkhópurinn
sem stofnað-
ur er á Suður-
landi, heldur
tónleika á sal
Tónlistarskóla
Rangæinga á
Hvolsvelli á sunnudag klukkan 16.00. Tríóið skipa þau
Agnes Löve pianóleikari, Ásdís Stross fiðluleikari og séra
Gunnar Björnsson sellóleikari. Á efnisskránni er píanótríó
opus 1 nr. 3 f c-moll eftir Ludwig van Beethoven og tríó
nr. 25 í g-dúr eftir Joseph Haydn.
Aðrir tónleikar verða í Þorlákshafnarkirkju 7. mars klukk-
an 16 og f safnaðarheimili Selfosskirkju 14. mars kl.
16.15.
Jazzklúbburinn Múlinn stendur fyrir
tónleikum á efri hæð Sólon fs-
landus á sunnudagskvöldið
kl.21.30 en þar kemur fram forn-
funkhljómsveitin Krókódíllinn og
mun flytja skriðdýrabúgalú (?!)
að hætti Lou Donaldson,
Eddie Harris og Hank Craw-
ford. Hér á myndinni má sjá
Sigurð Flosason, forsprakka
Krókódílsins, en meðhonurrt á
sunnudagskvöldið leika Þórir
Baldursson (ÍHammond B3 org-
el), Eðvarð Lárusson (gítar) og
Halldór G. Hauksson (trommur).
nám fatlaðra nemenda f framhaldsskóla
sem vera átti laugardaginn 20. febrúar
en féll niður vegna veðurs, verður hald-
inn á Fosshótel KEA laugardaginn 27.
febrúar kl. 10-13. Ingibjörg Auðunsdótt-
ir kynnir starf ráðgjafahóps á vegum
menntamálaráðuneytisins um nám fatl-
aðra nemenda í framhaldsskólunum,
Svanfríður Larsen segir frá undirbúningi
skólagöngu fatiaðra nemenda í fram-
haldsskóla á vegum skólaþjónustu Ey-
þings, Gunnhildur Bragadóttir, formað-
ur fræðslunefndar, fjallar um blöndun
og Lilja Guðmundsdóttir, formaður
Þroskahjálpar, (jallar um vonir og vænt-
ingar foreldra. Loks verða umræður og
fyrirspumir. Þátttökugjald er kr. 1000,
innifalin hádegisverður. Þátttaka er öll-
um heimil.
Ferðafélag Akureyrar
Farið verður í skíðaferð, Hrossdalur-
Veigastaðir á morgun. Auðveld ferð.
Brottför er klukkan 9.00. Ekið upp á
Víkurskarð, gengið þaðan suður á
Steinsskarð, síðan niður vestan í
Vaðlaheiði að Veigastöðum.
Kynning í HA
Hafrannsóknarstofnun og Rannsókn-
arstofnun fiskiðnaðarins kynna starf-
semi sína í húsnæði Háskólans á Akur-
eyri að Glerárgötu 36, laugardaginn
27. febrúar kl. 13.00 til 18.00. Hægt
verður að skoða sjávarlífverur, kynning
verður á verkefnum stofnananna og
forstjórar og sérfræðingar halda fyrir-
lestra.
Málþing um Hornstrandir
Isafjarðarbær boðar til málþings um
Hornstrandir í nútíð og framtíð föstu-
daginn 16. og laugardaginn 17. apríl
1999. Málþingið er haldið í samvinnu
við Náttúrustofu Vestíjarða, Ferða-
málasamtök Vestfjarða og Atvinnuþró-
unarfélag Vestíjarða hf. Markmið mál-
þingsins er að ræða skipulag svæðisins
og þá sérstaklega með tilliti til vaxandi
ferðamennsku.
15-30% afsl. af legsteinum
sem pantaðir eru í febrúar
15% afsl. á skrauti og stöfum
Vestlendingar athugið!!
Einnig er sérstakt tilboð á
pökkun og flutningi (kr. 2500,-)
til ykkar af þeim steinum sem
pantaðir eru á vetrartilboði.
tígf" Hringtö ogfátö sendan bœktíng
] Qranft sf.
Graöit 4 aetinu: www.granit.is
220 Hafnarfjörður sími: 565 2707
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN OG
RANNSÓKNASTOFNUN FISKIÐNAÐARINS
kynna starfsemi sína í húsnæði Háskólans á Akureyri að Glerárgötu 36
laugardaginn 27. febrúar frá kl: 13-18
Kynning á starfssemi
Sj ávardýrasýning
Veggspjöld
Myndbönd
Fyrirlestrar
Jöhann Siguriónsson, forstióri
Hafró kl: 14:00
Hreiðar Þór Valtýsson,
sérfræðingur Hafró á Ákureyri
Hjörleifur Einarsson, forstjóri RF
kl 16:00
Jóhann Örlygsson, sérfræðingur
RF Akureyri
Heitt kaffi á könnunni
Útsalan er hafin...
20 til 70 %
afsláttur
fyrir þig!