Dagur - 26.02.1999, Page 8
24- FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
im£l
Láttu ekki deigan síga...
Leikltetartiópur Ung-
mennafélagsins Efl-
ingar í Reykjadal sýnir
um þessar mundir
leikritið „Láttu ekki
deigan síga, Guð-
mundur“að Breiðu- ;
tnýri í Reykjadal. Sýn-
ing verður í kvöld
klukkan 20.30 og á
sunnudagskvöid klukkan 20.30. Boðið er upp á árshátíðar-
pakka/leikhúspakka í samvinnu við Ferðaþjónustuna á Narfastöð-
um, þ.e. leiksýningu ásamt gistingu, kvöldverði og morgunverði á
Narfastöðum.
Miðapantanir eru í síma 464 3175 klukkan 17-19 og sýningardaga
eftir klukkan 19 í síma 464 3145. Næstu sýningar: 5. og 6. mars
klukkan 20.30 og 7. mars klukkan 16.30.
Skúffuskáldakvöld
Gilfélagið á Akureyri stendur fyrir skúffu-
skáldakvöldi í Deiglunni á laugardags-
kvöld klukkan 21.00. Húsið verður opn-
að klukkan 20.30. Marion Herrera og
Stefán Arnar Arnarsson taka á móti
gestum með hörpuslætti og sellóleik og
leika einnig í hléi.
Kynnir verður Aðalsteinn Svanur Sigfús-
son en skúffuskáldin eru: Arnrun Halla
Arnórsdóttir, Bjarki Þ. Baldvinsson,
Brynjólíur Ingvarsson, Hallgrímur Indriða-
son, Haraldur Bessason, Haraldur Ing-
ólfsson, Helgi Þórsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir og Jón Erlendsson.
Skúffuskáld teljast vera þau sem af starfslegum eða öðrum orsökum
hafa ekki gefið út verk sín á bók en fást engu að síður við ritlistina af
sömu þörf og önnur. Fleiri skúffuskáld munu ef til vili koma úr kofa
sínum þegar líða fer á. Allir velkomir og aðgangur ókeypis.
Opið hús Hafró og RF
Hafrannsókna-
stofnunin og
Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins
kynna starfseml
sína í húsnæði
Háskóláns á Ak-
ureyri að Glerár-
götu 36 á morg-
un klukkan 13-
18. Þar geta :
gestir kynnst starfsemi þessara stofnana, skoðað sjávardýrasýningu,
veggspjöld, myndbönd og hlýtt á fyrirlestra. Klukkan 14.00 flytja Jó-
hann Sigurjónsson forstjóri Hafró og Hreiðar Þór Valtýsson sérfræð-
ingur Hafró á Akureyri fyrirlestra og klukkan 16.00 þeir Hjörleifur Ein-
arsson forstjóri RF og Jóhann Örlygsson sérfræðingur RF á Akureyri.
Heitt kaffi á könnunni, allir velkomnir.
■ HUflfl ER Á SEYDI?
Skákfélag Akureyrar
A sunnudag klukkan 14.00 verður 15
mínútna mót í Skákheimilinu að Þing-
vallastræti 18.
Færeysk nútíðarlist
Sýningu á verkum þrettán færeyskra
listamanna í Listasafninu á Akureyri
lýkur sunnudaginn 28. febrúar. Sýn-
ingin er samvinnuverkefni Listaskál-
ans í Færeyjum og Kjarvalsstaða. Fær-
eysku listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru: Astrid Andreasen,
Zacharias Heinesen, Bárður Jákups-
son, Rannvá Pálsdóttir Kunyo, Amariel
Norðoy, Hans Pauli Olsen, Marius Ol-
sen, Torbjörn Olsen, Tróndur Paturs-
son, Gudriö Poulsen, Ingálvur af
Reyni, Kári Sveinsson og Tita Vinter.
Hamingjuránið
Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit
frumsýnir leikritið Hamtngjuránið
laugardaginn 6. mars næstkomandi í
Freyvangi. Hér er um að ræða ástar-
og örlagasögu íslensks karlmanns og
ítalskrar blómarósar, sem hittast fyrir
tilviljun í Frakklandi og eiga í talsverð-
urm erfiðleikum með að gleyma hvort
öðru. Leikstjóri sýningarinnar er Jón
Stefán Kristjánsson.
Vélsleðamót - Mývatn 1999
Mývatn 1999, árlegt mót vélsleða-
manna í Mývatnssveit, fer fram í dag
og á morgun. Mótið hefst í dag klukk-
an 13.00 með GPS-fjallaralli. 4 menn
verða í liði og verða 3 að skila sér í
mark en samanlagður tími telur til
vinnings. Fyrsti punktur er gefinn upp
en þeir verða 6-7 talsins en eknir verða
um 70 km. Síðan verður keppt í ís-
spyrnu og þar reynir á hver á öflugustu
græjuna en dagskrá föstudagsins lýkur
með barílugukvöldi á Skútustöðum.
Laugardagurinn byrjar með sam-
hliða brautarkeppni og er keppt í
tveimur flokkum, mínus 500 c/c og
plús 500 c/c en síðan tekur við
skemmtiferð um Mývatnssveit fyrir þá
sem ekki hafa áhuga á beinni þátttöku
í sleðamennskunni en síðan fer fram
keppni í snjókrossi í 800 til 1200
metra braut, þar sem hámarkshraði er
um 100 km. Verðlaunaafhending fer
fram í kvölddagskrá í Skjólbrekku og
þar verður m.a. valinn maður mótsins.
Spástefna á Sauðárkróki
Ræðuklúbbur Sauðárkróks, Verkalýðs-
félögin Fram og Aldan, Atvinnumála-
nefnd Skagafjarðar og Fjölbrautarskóli
Norðurlands vestra á Sauðárkróki efna
til spástenu í dag klukkan 13.30-18.00
undir yfirskriftinni „Alþjóðaþróun -
byggðaþróun, framtíð íslenskra
byggða’*. Fyrirlesarar verða Bjarki Jó-
hannesson, Eyþór Arnalds, Fríður
Finna Sigurðardóttir, Halldór Asgríms-
son, Hermann Guðjónsson, Ingimar
Hansson,Jón Þórðarson, María Hildur
Maack og Þorsteinn Gunnarsson.
Hver fyrirlesari heldur 10-15 mínútna
erindi í upphafi. Að framsögum lokn-
um setjast fyrirlesarar við pallborð og
w
I helgarblaði Dags
Atkvædafölsun
fyrir vestan
- Fridrik Þór
skrifar um sönn
dómsmál
Ari Magg og
innbúid
"Mosterid er
réttiaust"
Fluguveidi, krossgáta, Líf & stíll, matargatid, bókahillan, bíó.
flBHBMI^flBHBMBHBHHHflBHBHflBBBflflHBBBBHBHflBHBHflflBBM
Ttewmr
mmmmmmmj^i^ltemmm
Áskriftarsíminn er 800-7080
svara íyrirspurnum. Að því loknu gefst
tækifæri til opinna umræðna.
Spástefnan er haldin í tengslum við
„Frumkvöðladaga’* í Fjölbrautaskólan-
um og verður í sal bóknámshúss Fjöl-
brautaskólans
Hlutur kvenna á ísafírði
Opinn kaffifundur verður um aukinn
hlut kvenna í stjórnmálum í kvöld kl.
20.00 f Stjórnsýsluhúsinu á Isafirði.
Allir velkomnir.
■ Á DAGSKRÁNNI
Stöð 2
- laugardagur kl. 21.05:
Herbergi Marvins. Stöð 2 sýnir bandarísku bíómyndina Her-
bergi Marvins, eða Marvin’s Room, frá 1996. Hér er á ferðinni
áhrifarík fjölskyldusaga og skartar myndin mörgum helstu stór-
leikurum samtímans í aðalhlutverkum. Systurnar Bessie og Lee
eru mjög ólíkar og það hefur aldrei verið kært á milli þeirra. Þeg-
ar Bessie fær mjög válegar fréttir frá Iækni sínum verður það til
þess að Lee flytur til hennar með syni sína tvo en annar þeirra er
vandræðagemlingurinn Hank. Myndin fær þrjár og hálfa stjörnu
í kvikmyndahandbók Maltins. I aðalhlutverkum eru Meryl
Streep, Diane Keaton, Leonardo DiCaprio og Robert De Niro.
Leikstjóri myndarinnar er Jerry Zaks.
Sjónvarpið - laugardagur kl. 23.15
Strákarnir í hverfinu (Boyz N the Hood). Bandarísk bíó-
mynd frá 1991 um hóp ungs fólks í miðborg Los Angeles þar
sem barátta bófagengja um yfirráð setur svip sinn á mannlífið.
Kvikmyndaeftirlit ríkisins telur myndina ekki hæfa áhorfendum
yngri en 16 ára. Leikstjóri: John Singleton. Aðalhlutverk: Ice
Cube, Cuba Gooding, Morris Chestnut, Laurence Fishburne,
Nia Long og Tyra Ferrell. Þýðandi: Reynir Harðarson.
tfj
i