Dagur - 26.02.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 - 25
Ifc^ur.
LÍFIÐ t LANDINU
Karólína Mónakóprinsessa
gifti sigfyrir skömmu í
þriðja sinn. Lífprinsessunar
hefurmarkastafáfóllum í
einkalífi en nú vona þegnar
hennarað hamingja hennar
verði varanleg.
Karólína Louise Marguerite fæddist níu
mánuðum og fjórum dögum eftir brúð-
kaup foreldra sinna, Rainers fursta og
leikkonunnar Grace Kelly. Foreldrar
hennar gerðu sér far um að halda henni
og tveimur systkinum hennar frá sviðs-
ljósinu. Frá upphafi var það svo að segja
vonlaust verk því Grace furstaynja þótti
með glæsilegustu konum heims og ljós-
myndarar eltu hana og fjölskyldu hennar
á röndum.
Grace sagðist vera mjög ströng móðir
en lítið varð vart við þær ströngu uppeld-
isaðferðir sem hún sagðist beita. Vinir
hennar héldu því fram að hún léti allt
eftir börnum sínum og þegar börn henn-
ar komu fram opinberlega þóttu þau sér-
lega óheft. Eldri börn furstahjónanna
Karólína og Albert fylgdu oft móður sinni
á málverkasýningar og á tískusýningar.
Þar hlupu þau um og fiktuðu við ómetan-
lega dýrgripi án þess að móðir
; sínum Ernst prins af
ij við eiginkonu sína tii að
-,t Karólínu.
þeirra gerði athugasemdir. Aðrir
þorðu ekki að skipta sér af börnunum.
Þegar Karólína var táningur sendi móð-
ir hennar hana í klausturskóla en dvölin
átti ekki vel við Karólínu sem var upp-
reisnargjarn og þrjóskur unglingur. Hún
var fullkommlega meðvituð um sérstöðu
sína sem furstadóttir en hafði engan
áhuga á að sinna þeim skyldum sem slíkri
stöðu fylgja. Abyrgum Mónakóþegnum
leist ekki á blikuna þegar hin nítján ára
Karólína fór að sjást í fylgd með alræmd-
um glaumgosa, Philippe Junot, sem var
sautján árum eldri en hún. Hann þótti
vissulega töfrandi og skemmtilegur, en
hann var líka fullkomlega ábyrgðarlaus og
mikill kvennamaður. Foreldrar Karólínu
Iögðust mjög gegn sambandi þeirra því
þau fyrirlitu Junot og töldu hann síst efni
í viðunandi tengdason. Eftir eins árs ást-
arsamband bað Junot Karólínu og hún
tók honum. Hún sagði foreldrum sínum
að ef þau samþykktu ekki ráðahaginn
*ffiyhdi hún búa með Junot í óvígðri sam-
pnnsessu
Með Stefano sem lést í sjóslysi einungis
þrítugur. Hjónaband þeirra var talið einstak-
lega hamingjuríkt.
búð. Hinum kaþólsku furstahjónum þótti
óhugsandi að dóttir þeirra byggi í synd.
Þau giftust í júnímánuði 1978 og fljót-
lega kom í ljós að hjónabandið átti ekki
langa Iífdaga fyrir höndum, mestan part
vegna ótryggðar eiginmannsins. Þegar
Juno var í kaupsýsluferðum erlendis birt-
ust hvað eftir annað myndir af honum í
slúðurblöðum þar sem hann var á diskó-
tekum í faðmi fagurra kvenna. Karólína
reyndi opinberlega að leika hlutverk sæll-
ar eiginkonu en vanlíðan hennar í hjóna-
bandi varð sífellt meiri. Það var Grace
prinsessa sem ráðlagði dóttur sinni að
skilja við mann sinn. „Við erum trúuð
fjölskylda, hvernig geturðu sagt þetta?“
sagði Karólína sem stóð í þeirri meiningu
að kaþólikkar skildu ekki. „Trúin er til að
hjálpa fólki, ekki til að gera líf þess ömur-
legt,“ svaraði Grace.
Áföll í einkalííi
„Þegar maður er ungur gerir maður mis-
tök, sagði Karólína seinna um hjónaband
sitt og Junots. Þau skildu árið 1980.
Tveimur árum síðar lést Grace Kelly í
hörmulegu bílslysi. Eftir dauða móður
sinnar tók Karólína að sér skyldur henn-
ar. Hún þótti á skömmum tíma taka út
mikinn þroska og ávann sér ást og virð-
ingu Mónakóbúa sem margir hverjir vilja
að hún taki við ríkinu eftir föður sinn en
ekki Albert bróðir hennar. Hún giftist
ungum ítölskum kaupsýslumanni Stefano
Casiraghi árið 1983. Þau eignuðust þrjú
börn sem hún reyndi að vernda eftir
megni fyrir íjölmiðlum og veitti sárasjald-
an viðtöl. Hjónin voru greinilega mjög
samrýnd en endir var bundinn á ham-
ingju þeirra í októbermánuði árið 1990.
Casiraghi að keppa í hraðsiglingu á báti
sínum þegar hann missti stjórn á bátnum
sem tókst á loft og kastaðist síðan niður í
hafið af miklu afli. Casiraghi lést sam-
stundis. Hann var einungis þrítugur.
Karólína var harmi sleginn eftir lát eig-
inmanns síns. Hún klippti hár sitt stutt
og sást yfirleitt ganga í svörtum fötum.
Hún flutti ásamt börnum sínum frá
Monakó og í franskt sveitaþorp. Þar sást
hin 34 ára gamla prinsessa oft ferðast um
á hjóli, versla á markaðnum og fara með
börnin sín í skólann. Hún lifði einföldu
lífi og reyndi eftir mætti að öðlast sálarró.
Slúðurblöð heims gagnrýndu hana jafn-
vel fyrir að syrgja um of, þau vildu fá
prinsessuna aftur inn í danssalina.
Prinsessa litmur prins
I bakgrunni var góður Hnur, Ernst prins
af Hannover, sein Karólína hafði þekkt
lauslega frá táringsaldri. Grace móðir
Karólínu hafði á sínum tíma talið hann
heppilegan eiginmann en Karólínu fannst
hann leiðinlegur. Skoðun hennar á hon-
um breyttist og meðan Karólína var í
hjónabandi með Stephano fóru hjónin
einstaka sinnum í sameiginlegar skíða-
ferðir með Ernst prinsi og Chantel eigin-
konu hans. Eftir dauða Casiraghi styrkt-
ist vinátta þeirra Ernst mjög og hann
reyndist henni sérlega vel. Um ástarsam-
band var þó ekki að ræða fyrr en fimm
árum eftir að Karólína varð ekkja. Eftir
lát eiginmanns síns sást Karólína í fylgd
með franska leikaranum Vincent Lindon
en samband þeirra varð æ lausara í reip-
unum eftir því sem tilfinningar Karólínu
og Ernst urðu sterkari í hvors annars
garð. í byrjun árs 1996 sáust þau oft
saman á almannafæri við lítinn fögnuð
eiginkonu Ernst. A þessum tíma fór Kar-
ólína að missa hárið
vegna álags sem flóknu
ástarlífi var kennt um.
Chantal, eiginkona Ernst,
skildi loks við mann sinn
eftir 16 ára hjónaband.
Sú niðurstaða virðist hafa
verið mikill léttir fyrir
Karólínu sem jafnaði sig
samstundis á sjúkdómi
sínum.
Ernst prins er ekki jafn
frægur og Karólína en er
af fínni ættum. Hann er
kominn í beinan karllegg
af Vilhjálmi II Þýska-
landskeisara og Georgi
III Englandskonungi og
þurfti að fá leyfi Elísabet-
ar Englandsdrottningar
til að giftast Karólínu.
Vinir hans Iýsa honum
sem mjög greindum,
tryggum og skemmtileg-
um. Hann á tvo syni með
fyrri eiginkonu sinni og
börn Karólínu er sögð
mjög hænd að honum.
Síðasliðinn janúar gift-
ist Karólína Ernst prinsi
við látlausa athöfn í
Mónakó á fertugasta og
öðrum afmælisdegi sín-
um. Einungis nánustu
fjölskyldumeðlimir voru
viðstaddir. Stephania,
systir Karólínu, var ekki
meðal boðsgesta enda
mun samkomulagið milli
systranna ekki vera upp á
það besta þessa dagana.
Karólínu mun mislíka
mjög lítt hefðbundnir
Iífshættir Stephaniu sem
hefur fætt þrjú börn utan
hjónabands. Víst er að
hjónin munu verða mjög
í sviðsljósi fjölmiðla á
komandi árum. Vinir
hjónanna segja allar líkur á að hjóna-
bandið muni verða farsælt þvf parið eigi
einstaklega vel saman. Kannski er Karó-
lína prinsessa fyrst nú að upplifa ævintýri
sem fær farsælan endi.
Karólína Mónakóprinsessa nýtur mikilla vinsælda hjá þegnum sin-
um sem margir hverjir vilja að hún taki við rikinu eftir föður sinn.