Dagur - 26.02.1999, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 - 27
Dz#ur_
LÍFIÐ í LANDINU
MEINHORNIÐ
• Kennarafrí eru
framundan hjá
meinhyrningi tvo
föstudaga í röð,
fyrsta svokallað-
ur skipulagsdag-
ur og svo ein-
hver aukafrídag-
ur sem bara gild-
ir fyrir viðkom-
andi skóla. I Iok
apríl verður svo
enn einn skipu-
Iagsdagurinn og
það í lok annar-
innar. Mein-
hymingur spyr
þess vegna:
Hvemig er það
með kennara,
fara þeir að
skipuleggja
skólastarfið þeg-
ar önnin er að
verða búin?
Okkur hinum á
vinnumarkaði
þykir þetta full-
mikið af skipu-
lagsdögum.
• Tímasetning
íþróttaæfinga,
ballett-tíma og
allra þessara
aukatíma sem
nauðsynlegt þyk-
ir fyrir böm og
unglinga að
sækja nú á dög-
um er óþolandi
fjölskyldufjand-
samleg. Það að
krakkar séu að
fara í slíka iðkun
á tímanum frá
fimm til níu á
kvöldin, akkúrat
þegar Ijölskyldan
á að vera heima
hjá sér að borða
heitan kvöldmat,
er fáránleg.
Meinhymingur
segir: aukatím-
ana alla á tím-
ann frá tvö til
fimm. Það er al-
veg hægt ef
skipulagt er í
samstarfi við
skólana og út frá
aldri bamanna.
FOLKSIIMS
Svín sem hrín
GRIMUR HAKONARSON NEMI
SKRIFAR
Háttvirtur þingmaður og (væntanlega)
verðandi 1. þingmaður Reykjaneskjör-
dæmis, Arni M. Mathiesen, hæðist að
vinstrimönnum og nýafstöðnu prófkjöri
þeirra í Reykjavík í grein sinni í DV
þann 11/02 síðastliðinn. Báru skrif
Árna örvæntingarfull merki þess að
flokkur hans hyggst framlengja umráð
sín yfir stjórnarráði Islendinga á vori
komanda. Davíð var illa viðlátinn í
heimboði hjá einræðisherra nokkrum
suður í höfum og því þurfti einhver að
taka í hrok-tauminn fyrir flokkinn. Það
gerði Arni af hollustu - en síður af list.
Hinn iUræmdi Þjóðvilji
Arni ávítar í grein sinni ákveðna ein-
staklinga á lista Samfylkingar fyrir vafa-
sama fortíð og nefnir til bönd þeirra við
fornar skepnur eins og Þjóðviljann og
Sósíalistaflokkinn. Mörður, Ossur og
Arni Þór eru allir fyrrverandi ritstjórar
Þjóðviljans, segir Arni eins og maður
sem uppljóstrar um fyrirfram vituð
sannindi. Þjóðviljinn er vissulega blað
með fortíð - var Moskvu-stýrt málgagn
fram eftir öldinni og fór síðan á hausinn
með stæl í lok síðasta áratugar. Og Sósí-
alistaflokkurinn (Guð minn almáttug-
ur!) studdi innrásina í Finnland 1938
og griðarsamning Stalfns við Hitler ári
seinna. Stuttlega dregin saman eru
skilaboð Árna: Össur Skarphéðinsson,
Mörður Arnason og Arni Þór Sigurðs-
son eru allir stalínistar í nýpressuðum
flauelsjökkum!
Amiíbemni
Gaman væri að skyggnast aðeins inn í
hugarheim Arna, og jafnvel, reyna að yf-
irfæra hugsanaferli hans yfir á ritlegt
form, sérstaklega þegar hann skyggni-
lýsir tengsl Arna Þórs við Sósíalista-
flokkinn í gegnum forvera hans í þing-
sæti - Svavar Gestsson. Imyndum okkur
nú að við séum aðkomugestir í líki ör-
vera í hugarheimi Arna og getum greint
hugsanaferli hans, orsök þeirra og upp-
haf. Arni verður nú fyrir meðtekinni
skynjun sem er svohljóðandi fréttatil-
kynning: „Árni Þór Sigurðsson hafnaði í
6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík..." Skynjunin kemur af stað
hraðri keðjuverkun hugsana og við
púnktum niður hjá okkur. Utkoman
verður erftirfarandi á prenti: Árniþó-
rsvavarstasigúlagstalínríkisvaldþjóðvilj-
ihonekerrauðursósíalismivont! N ánari
útlistun: Árni Þór fyllti upp það rými
sem Svavar skildi eftir sig á vinstrikant-
inum og er því holdtekin arfleið gömlu
vinnubragða sovéttímans = vont! Svavar,
skyggnilýstur, útlegst á móðurmáli
hægrimanna: stasiþjóðviljivont! Og þeg-
ar þeir vinna saman, eins og þeir gerðu í
kosningunum þar sem Svavar mælti fyr-
ir kjöri Árna Þórs, jafngildir það sam-
runa tveggja vélrænna sovétheila = mjög
vont! Og það má ekki gerast því þá
verða fimmáraáætlanir teknar í gagnið.
Maöiir eða svín?
Þessi marg kunnuglega (og nánast
heimilislega) áróðurslist sjálfstæðis-
manna í aðdraganda kosninga, hvort
sem hún stafar af gefnum eða ógefnum
forsendum, verður seint til þess fallin
að greina mann frá svíni - heldur þver-
öfugt: hún veldur gagnkvæmri svínslíð-
an meðal okkar, bæði hjá þeim sem fyrir
henni verða og þeim sem fyrir henni
standa. Hættum að hegða okkur eins og
svín.
Sameinaðir stöndum vér!
BREF FRÁ
SELFOSSI
Helga R.
Einarsdóttin
skrifar
Það er alveg með
endemum hvað allt virð-
ist hafa verið sundur-
Iaust hjá okkur Islend-
ingum fram að þessu.
Nú er þó loksins búið
að uppgötva þetta og
Iagfæringarnar í fullum
gangi. Ekkert er svo
ómerkilegt að ekki borgi
sig að sameina það ein-
hverju öðru. Sameinuð
kjördæmi, sameinuð út-
gerðarfélög, sameinaðir
sameinuð sveitarfélög,
íþróttafélög. Sameinuð
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
sérleyfishafar,
tryggingafélög,
verkalýðsfélög, bankar, stór-
markaðir, verktakar og
sjúkrahús. Sameiginleg
framboð.
Lausn alls vanda
Það er merkilegt að ekki
skuli fyrir löngu vera búið að
koma auga á þessa einföldu
lausn á öllum vanda. „Þjóð-
hagslegur sparnaður.“ „Auk-
in hagkvæmni." „Minni
kostnaður við yfirstjórn.“ En
svo einkennilegt sem það er
várðist stjórnendum og
framagosum hreint ekkert
fækka. Fari einhversstaðar
slysalega að yfirmanni
ofaukið er bara búin til
Þörf eða
svo
eða oddvita sé
ný stjórastaða handa honum.
óþörf, skiptir ekki máli!
Nú hef ég komið auga á enn einn
sameiningarkost sem mér þætti ekki
ólíklegt að einhver stjórnarsnillingurinn
slægi út sem góðu trompi, þó sennilega
ekki fyrr en eftir kosningar.
Sameinað fólk
Við hjónin erum nú orðin tvö eftir í kot-
inu, börnin farin hvert í sína áttina og
við dreifum okkur með allslags dót um
yfirgefin herbergin þeirra. Er þetta
nolvkurt vit? Hugsið ykkur þjóðhagslega
sparnaðinn af því að fólk á borð við okk-
ur yrði sameinað. Heilu hverfin eru
byggð á þennan hátt, hjón á besta aldri
hringsóla alein í einbýlishúsum, jafnvel
láglaunafólk!
Tilskipunin gæti hljómað eitthvað líkt
þessu: „Að eigi skuli færri en Ijórir búa í
hverju 120 fermetra eða stærra húsi eða
íbúð, svo fremi að mánaðarlaun hvers
og eins séu ekki yfir 200.000 krónurn."
Ein kaffikanna, einn sími, ein ryksuga,
eitt sjónvarp, ein þvottavél, eitt jólatré.
Endalaust má telja það sem sparaðist
með þessu í innflutningi og gjaldeyri.
Vöruskiptajöfnuðurinn )'rði hagstæður
svo um munaði og áhrifin á vísitölurnar
og vextina! Eða þá hlutabréfin maður!
Allir myndu vilja eiga hlut í einhverju
sameinuðu hlutafélagi á Islandi.
Leita aö geðgóðum
Hugsið ykkur allt gamla fólkið og öryrkj-
ana, „stærsta vanda þjóðarinnar". Þar er
oft um að ræða einstaklinga í íbúð. Væri
ekki öllu borgið með sameiningu þeirra?
„Félagsleg einangrun" yrði úr sögunni.
Það er engu að treysta, ég ætla að líta í
kringum mig eftir geðgóðu sambýlisfólki
í þeirri veiku von að maður fái einhverju
um það ráðið. Allur er varinn góður.
VEÐUR
Veðrið í dag...
Simnan- og suðaustan kaldi og sums staðar stinningskaldl.
É1 verða sunnan- og suðvestanvert, en úrkomulaust
norðanlands og austan og snms staöar léttskýjað.
Hiti -4 til 0 stig
Blönduós Akureyri
CC) mn V.. I C1
-10 I 5“ -5 0- -0 . -5- l->.^ ll
Fim Fös
Þri Miö Flm Fös
J /
Egilsstaðir
■//: i n i:
Bolungarvik
Mán Þri
\ n
Reykjavík
Kirkjubæjarklaustur
e E 1 5 r.5 ,o<j -10 1 s- -5 j 0- 2) mm I.
■ I 1,1 1,. -, -0 1 -5“ 1.1,1 ■ B
Fim Fös Lau
Stykkishóimur
Þrl Miö Rm Fös
Stórhöfði
*C) rnrr | -,s ,okE -io ; 5-, ) mm 1
1 - ■ ■ - -.■ - -0 -5- 1 1,1 lls
Flm Fös
///
í l l S
VEÐURSTOFA
ÍSLANDS
Veðurspárit
Mán Þrl Mið
í /í r í
25. 2.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður
með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s.
. v
Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegum
í gærkvöld var hálka á Hellisheiði og í Þrengslum.
Skafrenningur var á Holtavörðuheiði, þæfingsfæró og
skafrenningur á Bröttubrekku. Að öðru leyti var góð
vetrarfærð á aðalleiðum landsins.
SEXTIU
OG
SEX
NORÐUR