Dagur - 05.03.1999, Qupperneq 8

Dagur - 05.03.1999, Qupperneq 8
24- FÖSTUDAGUR 5. MARS 19 99 ro^tr ua& f|or Út í vorið á Húsavik Á morgun klukkan 16,00 heldur karia- kvartettinn Út f vorið tónleika í sal Tónlist- arskólans á Húsavfk. Á efnisskránni eru meðal annars Haf, blikandi haf, Óli lok- brá og Ó Pepíta; einnig útsetningar Carls Billich, sem hann gerði fyrir MA kvartettinn. Þá hefur Bjarni Pór Jónatansson útsett lög fyrir kvartettinn og verða nokkur þeirra flutt á tónleikunum. Loks má nefna útsetningar Magnúsar Ingimarssonar á lögum, sem vinsæl voru fyrir nokkrum áratugum. Kvartettinn skipa þeir Einar Clausen, Halldór Torfason, Þorvaldur Friðriksson og Ás- geir Böðvarsson. Á síðari hluta tónleikanna leikur Daníel Þorsteins- son með á harmoníku. Við píanóið er Bjarni Þ. Jónatansson. Deildakeppnin í skák Um helgina stendur Skákfélag Akureyrar fyrir síðari hluta Deildakeppninnar í skák. Hér er um að ræða fýrstu og aðra deild og mæta allir fremstu skákmenn þjóðarinnar til leiks. Teflt verður f húsakynnum Há- skólans vtð Þingvallarstraati sem og skákheimilinu. Á sunnudaginn gengst Skákfélagið síðan fyrir íslandsmótinu í hraðskák og verður það haldið í Háskólahúsinu. Þangað eru allir velkomnir, þátttökugjald er kr. 800. Myndin er af forseta Skáksambands íslands, Ágústi Sindra Karlssyni. Jón Laxdal i Svartfugli Á morgun klukkan 16.00 hefst sýningahald að nýju eftir vetrarfrí í Gallerí Svartfugii í Grófargili á Ak- ureyri. Pá opnar Jón Laxdal Hall- dórsson rnyndiistarsýningu. Á sýningunni er eitt verk, „Mynd án veggs" sem heitír eftir samnerndu Ijóði Stefáns Harðar Gnmssonar í Ijóðabókinni „Farvegir" frá 1981. Sýningin er einskonar sviðsetning Ijóðsins og styðst við liti, form og sýningargestina sjálfa sem full- gera myndina með nærveru sinni. Sýningin stendur til 21. mars. Gallerí Svartfugl er opið alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Engin boðskort eru send að þessu sinni og eru allir velkomnir. ■ HVAfl ER Á SEYDI? Opnun í Nýló A laugardaginn kl. 16.00 verða þrjár einkasýningar opnaðar í Nýlistasafn- inu við Vatnstíg 3b. Sýnendur eru Rósa Gísladóttir, Ivar Brynjólfsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir. Nýtt Nato Klukkan 12.00 á laugardaginn heldur Werner Bauwens, einn yfirmanna al- þjóðadeildar Nato í Brussel, erindi á sameiginlegum fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs í Skála, Hótel Sögu. í tilefni af 50 ára afmælis Nato vilja félögin leggja áherslu á fræðsluerindi um starfsemi handalagsins, bæði hvað varðar örygg- is- og hernarhliðina og pólitísku hlið- ina. Fundurinn er opin öllu áhugafólki um erlend málefni. Opið hús í leikskólum A laugardaginn opna þrír leikskólar í Bakkahverfí í Breiðholti dyr sínar fyrir almenningi. Bakkaborg verður opin frá kl. 10.00 til 12.00. Fálkaborg frá kl. 11.00 til 13.00. Arnarborg frá kl. 12.00 til 14.00. Tilgangur með opnu húsi er að gefa fólki tækifæri til að skoða lcikskólana og kynnast starfsem- inni sem þar fer fram. Það eru allir velkomnir í heimsókn þennan dag en þarna gefast foreldrum í hverfinu tæki- færi til þess að kynna sér verkefni skól- anna. Æskulýðsdagurinn í Grafarvogs- kirkju Sunnudaginn 7. mars verður æsku- lýðsguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14.00. Hugleiðingu flytur Svanfríður Ingjaldsdóttir, æskulýðsleiðtogi og starfsmaður í Félagsmiðstöðinni Fjörg- yn. Félagar úr Æskulýðsfélagi Grafar- vosgkirkju aðstoða við helgihaldið. Um morgunnin kl. 11.00 verður barnaguðsþjónusta í Grafarvogskirkju og þar mun Barnakór Grafarvogskirkju syngja undir stjórn Hrannar Helga- dóttur. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna ásamt sr. Vigfúsi Þór Arnasyni, sóknar- presti. LANPIÐ Dorgveiði í Vatnshlíðarvatni Ferðamálabraut Hólaskóla stendur fyr- ir dorgveiðikeppni á Vatnshlíðarvatni í Vatnsskarði laugardaginn 6. mars. Skráning ástaðnum frá kl. 13:00, keppnin hefst kl. 13:30 og stendur til kl. 17:00. Keppnin er hugsuð fyrir alla fjölskylduna og verða holur boraðar í ísinn fyrir þátttakendur. Verðlaun eru veitt fyrir stærstu fiskana, þyngsta afl- ann, flestu fiskana og minnsta fiskinn. Veiðarfæri verða til leigu á staðnum og hægt að fá ókeypis beitu. Þátttökugjald er 500 krónur. Nemendur ferðamála- hrautar hafa haft veg og vanda af und- irbúningi keppninnar og er það liður í námi þeirra á Hólum. Fluguveiði. krossgáta, matargatið. bókahillan. bíó. o.m.fl. Áskriftarsíminn er 800-7080 Gam skylmast við menn - segir Björn Bjarnason í viðtali við Kolbrúnu Morðið í verbúðinni Austantjalds- konur Kveðja Akureyri og halda suður Skítamórall á Selfossi Þeir blanda geði við Selfyssinga strák- arnir í Skítamóral og spila á Inghóli á laugardagskvöldið. Utvarpsstöðin Mono verður á staðnum. Píanótónleikar á Höfh í Horna- firði Það er Örn Magnússon, píanóleikari frá Ólafsfirði sem mun gleðja eyru Hornfirðinga á sunnudagskvöldið. A tónleikunum sem verða haldnir í Hafnarkirkju kl. 20.30 mun Örn Ieika Rimnadansa Op 11 ásamt þremur köflum úr Op 2 eftir Jón Leifs og Tunglskinssónetu Beethovens ásamt Image 1 eftir Debussy, lokaverkið á tónleikunum verður svo Eyja gleðinnar einnig eftir Debussy, einu fegursta verki tónbókmenntanna. Djassað á Húsavík Þeir félagar í Tríói Ólafs Stephensen djassa íyrir Þingeyinga á Hótel Húsa- vík í kvöld kl. 21.00. Karlakvartett á Húsavík Ut í vorið er heiti kvartettsins sem heldur söngtónleika í Sal Tónlistar- skólans á Húsavík á morgun laugardag kl. 16.00. Þetta eru fjörugir piltar sem mótast mjög af þeirri hafð, sem ríkti meðal íslenskra karlakvartetta fyrr á öldinni. Land og synir í Sjallanum Hljómsveitin Land og synir halda uppi íjörinu í Sjallanum á föstudagskvöldið. Góða skemmtun. 1/2 árs afmæli Anna Richards er hálfnuð með að þrífa miðbæ Akureyrar og ætlar af því tilefni að að bjóða til afmælissamsætis 1 göngugötunni kl. 16.30 í dag íyrir framan Bókval. Með henni að þessu sinni eru tónlistarmennirnir Karl Pet- ersen, slagverk, Axel Arnason (200 þús.Nag.) slagverk og Wolfgang Frosti Sahr á saxófón. Til hamingju með dag- inn Anna. (sjónvarpið verður á staðn- um) Góugleði Akureyrarlistans Haldin í kvöld kl. 21.00 í Skipagötu 18 2. hæð. Félagar hittumst og eigum saman ánægjulega stund. Óvæntar uppákomur, tónlist og söngur. Sjáumst hress. Framtíðin selur merki Kvenfélagið Framtíðn á Akureyri stendur fyrir árlegri merkjasölu sinni í dag, föstudag og á laugardag. Að þessu sinni verða merkin scld við stómarkaði bæjarins. Að sögn Margrét- ar Kröyer hjá Framtíðnni munu kven- félagskonur sjálfar selja merkin að þessu sinni, en allur ágóðinn rennur að venju til málefna aldraðra. Mar- grét segist vonast til að bæjarbúar taki erindi kvenfélagskvenna vel. VIKING! Stjómandi listans er | i Þróinn Brjónsson NR. LAG FLYTJANDI 1 You don'tknowme Armon van helden 2 Lodyshave Gus gus 3 Mo Baker Boney M og sash 4 More then this Emmie 5 Notting really matters Madonna j 6 Baby one more time Britney spears j 7 1 want you for myself Another level 8 A good sign Emilio 9 You make love come down Sweetbox 10 Bad girls Juliet roberts 11 1 never told you Flip da scrip 12 Cant get enough Soulseorcher 13 One and one Edytha goniak 14 Given up Mirrorboll 15 Strong enough Cher j 16 Birtir til Land og synir 17 Upside down Risquée 18 Its all been done Barenaked ladies 19 Lotus Rem j 20 It may be witer outside Emmo íjlÐASTA VIKUR VIKA Á LISTA 111 Listinn er spilaður á föstudögum milli kl. 20 og 22 Hlustaðu á Frostrásina í beinni á internetinu http://nett.is/frosrasin • E-mail: frostras@nett.is • Stjórnandi listans er Þráinn Brjánsson

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.