Dagur - 05.03.1999, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR S. MARS 1999 - 25
Dorís Day var ein vinsælasta
leikkona íHollywood á sjötta
áratugnum. Hún varímynd
heilbrígðis og hreysti en í
einkalífi liennar geisuðu
stomiar.
Doris Day fæddist árið 1924 og hét réttu
nafni Doris Mary Anne Kappelhoff. Móð-
ir hennar skírði hana Doris í höfuðið á
Doris Kenyon, einni af mótleikkonum
Rudolphs Valentinos. Tólf ára gömul
vakti Doris athygli fyrir dansa ásamt jafn-
aldra sínum og þau dönsuðu oft á góð-
gerðarsamkomum. Endir var bundinn á
dansferilinn þegar Doris var fjórtán ára
gömul en þá lenti hún í alvarlegu um-
ferðarslysi. Eftir fjórtán mánaða sjúkra-
húsdvöl var hún bundin hækjum og sat
Iöngum stundum fyrir framan útvarp og
hlustaði á söng helstu jazzista Bandaríkj-
anna. Eftirlæti hennar var Ella Fitzgerald
sem hún reyndi að stæla eftir megni.
Hún fékk vinnu á veitingahúsi fimmtán
ára gömul við að syngja fyrir gesti. Hún
söng á hækjunum og eitt kvöldið reyndi
hún dansspor á sviðinu en datt svo illa að
hún þurfti að nota hækjurnar eitt ár f við-
bót. Hún söng í útvarpi og með hljóm-
sveit Boh Crosbys en gekk síðan til liðs
við hljómsveit Les Browns sem á þeim
tíma naut mikilla vinsælda. Doris vakti
mikla athygli á þessum tíma en hún var
ástfangin af tónlistarmanninum A1 Jorden
og vildi fórna frægðinni fyrir hjónaband-
ið.
Heimilisofbeldi
A1 Jorden var eiginmaður sem var þjakað-
ur af sjúklegri afbrýðisemi. Þegar tónlist-
armaður bauð Doris inn á hótelherbergi
sitt til að gefa henni brúðargjöf réðst AI
inn og dró konu sína heim. Þar barði
hann hana í andlitið og kallaði hana
hóru. Þegar hann hafði gengið í skrokk á
henni nokkra stund féll hann í gólfið og
bað hana að fyrirgefa sér.
Eftir tveggja mánaða hjónaband varð
Doris barnshafandi. A1 sagði henni að
fara í fóstureyðingu en hún neitaði.
Hann hélt áfram að berja hana en hún
fékk litla samúð frá fjölskyldu hans. „Mér
sýnist hann ekki hafa barið þig fast,“
sagði tengdamóðir Dorisar þurrlega við
hana þegar Doris Ieitaði huggunar hjá
henni eftir eina árásina. I eitt skipti
beindi A1 byssu að kvið Dorisar og sagðist
ætla að drepa hana og barnið. Þegar hún
var komin átta mánuði á leið lamdi hann
hana svo illa að hún mátti þakka fyrir að
halda fóstrinu.
Þegar Terry' sonur þeirra fæddist lagði
A1 blátt bann við því að hann svæfi í
sama herbergi og þau hjónin. Hann veitti
syni sínum enga athygli en
keypti lítinn hvolp sem
hann dekraði við. Loks
félck Doris nóg og yfirgaf
eiginmann sinn. Henni var
orðið ljóst að ýmsu var
ábótavant í geðheilsu hans.
AI skaut sig einhverjum
árum síðar.
Doris sneri aftur til
hljómsveitar Les Brown.
Með hljómsveitinni hljóð-
ritaði hún lagið Senti-
mental Journey sem varð
fyrsta metsöluplata henn-
Með Terry syni sínum löngu
áður en Charles Manson sá
hann sem heppilegt fórnar-
lamb.
Frægó og frami
Nokkrum mánuðum eftir að Doris gekk á
ný til liðs við hljómsveit Les Browns varð
hún ástfangin af saxófónleikaranum Ge-
orge Weidler og giftist honum eftir stutt
tilhugalíf. Weidler virðist hafa fengið bak-
þanka stuttu eftir vígsluna því eftir átta
A hvíta tjaldinu var Doris ímynd hinnar sak-
lausu stúlku sem fann hamingjuna í hjóna-
bandi. Raunveruleikinn var allt annar.
Með moður
sínu í Hollywood
mánaða hjónaband skrifaði hann konu
sinni og sagðist vilja skilnað.
Þriðji eiginmaður Dorisar var Marty
Melchor sem var umboðsmaður hennar.
Þegar hann hóf störf fý'rir Doris var hann
giftur Patty Andrews einni af Andrews
systrum. Menn höfðu misjafnar skoðanir
á Marty. Margir töldu hann vera fégráð-
ugan mann sem hefði yfirgefið fyrri eigin-
konu sína þegar hann sá að Doris var
meiri tekjulind. Les Brown sagði Marty
vera hræðilegan mann sem hefði lifað á
eiginkonum sínum. Blaðafulltrúi Dorisar
sagði hann hins vegar hafa verið þægileg-
an mann með mikla kímnigáfu. Gallinn
hefði verið sá að hann var draumóramað-
ur og byggði skýjaborgir sem hrundu.
Þau giftust þegar Doris
var 27 ára og fyrstu árin var
hjónabandið hamingjusamt.
Marty tók að sér að sjá um
fjármál Dorisar og borgaði
sjálfum sér himinhá laun og
stóð í fjárfestingum sem
ekki var heil brú í. Eigin-
kona hans vissi ekkert af
því bralli, hún hafði tak-
markaðan áhuga á fjármál-
um.
Velgengni Dorisar var
mikil á sjötta og sjöunda
áratugnum og hún var eftir-
sótt krikmyndastjarna. Kvik-
myndagagnrýnendur voru reyndar aldrei
ýkja hrifnir af henni enda voru hlutverkin
einhæf og hún var ímynd hinnar saklausu
stúlku. Myndir hennar voru notalegar
söngva- og gamanmyndir þar sem vinsæl-
ustu mótleikararnir voru Gordon Macrae
og Rock Hudson.
Doris þótti ákaflega lipur í samstarfi og
Upp kemst um skiírkinn
Eiginmaður Dorisar varð stjórnsamari
með árunum og fór að sýna Terry syni
hennar yfirgang og lagði hendur á hann
sem varð til þess að Doris hótaði skilnaði.
Marty sagði henni að þar sem fjármál
þeirra væru svo samtvinnuð væri skilnað-
ur erfiður og bæði myndu þau bíða fjár-
hagslegan skaða af. Niðurstaðan varð sú
að þau ákváðu að búa undir sama þaki en
lifa hvort um sig eigin lífi. Þannig gekk
einkalífið fyrir sig í nokkur ár þar til Mar-
ty veiktist alvarlega og Iést 52 ára gamall.
Doris varð miður sín því þrátt fyrir allt
hafði henni þótt vænt um hann. Terry,
sonur hennar, var ekki jafn sorgbitinn og
sagði að það besta sem Marty hefði gert
móður sinni væri að deyja. Eftir dauða
Martys komst Ter.y að því að Marty hafði
féflett eiginkonu sína miskunnarlaust og
sólundað eignum hennar. Doris var stór-
skuldug og gjaldþrota. Doris fór í mál rið
helsta aðstoðarmann eiginmanns síns og
sakaði hann um að hafa átt þátt í að hafa
af sér stórfé. Hún vann málið og fékk
háar miskabætur.
Annað áfall í lífi Dorisar var morðið á
Sharon Tate og rinum hennar. Charles
Manson hafði ætlað sér að myrða Terry
son Dorisar, sem var hljómplötuframleið-
andi og hafði tvisvar heimsótt Manson
sem vildi selja honum lög sín sem Terry
þóttu léleg. Þegar Manson kom ásamt fé-
lögum sínum til aðseturs Sharon Tate
hélt hann sig myndu finna Terry en hann
var fluttur úr húsinu. Allir sem þar voru
gestkomandi voru myrtir. Doris og Terry
voru skelfingu lostin og óttuðust að
stuðningsmenn Mansons myndu grípa til
frekari blóðsúthellinga og réðu sér um
tíma Iífverði. Terry tók að drekka og neyta
eiturlyfja og kenndi móður sinni um allt
sem miður hafði farið í lífi hans. Hann
náði loks áttum eftir að hafa lent í alvar-
mótorhjólaslysi,
og gerðist fyrir-
myndar fjölskyldufaðir.
Doris hóf leik í sjón-
varpsþáttum sem
gengu í nokkur ár.
Hún giftist í Ijórða
sinna Barry Comden
verslunareiganda en
þau skildu eftir ljögur
ár. Doris ákvað þá að
snúa baki við leik-
ferlinum og helga sig
dýraverndunarmál-
um eins og Brigitte
Bardot og Kim
Novak. I dag er
Doris Day 75 ára og
býr harðánægð í
sambýli við hesta,
hunda og ketti.
þægileg
kona. Hún stundaði ekki sam-
kvæmislífíð, reykti hvorlú né
drakk. Eins og aðrir leikarar í
borginni mætti hún í vinnu
klukkan fimm að morgni og
vann til klukkan sex á kvöld-
Þessi langi vinnutími
Hollywoodstjarna átti meðal
annars þátt í því að margar
þeirra tóku örfandi lyf til að
geta stundað samkvæmislíf-
ið að kvöldi og geta komist
gegnum vinnudag sem
hófst eldsnemma næsta
morgun. Doris var ekki ein
af þeim. Hún var komin í