Dagur - 05.03.1999, Side 11
FÖSTUDAGUR S. MARS 1999 - 27
LÍFIÐ t LANDINU
VEÐUR
FOLKSINS
Bókhald LA löglega
fært og endurskoðað
Vegna forsíðufréttar í Degi
fimmtudaginn 25 febrúar 1999
um að bókhald Leild’élags Akur-
eyrar sé í ólestri vil ég koma eftir-
farandi yfirlýsingu á framfæri.
Eg hef starfað sem fjárreiðu-
stjóri Leikfélags Akureyrar um
árabil en sótti um ársleyfi frá
störfum frá 1. ágúst 1998 og
lagði þá metnað minn í að öll
reikningsskil og uppgjör væru á
hreinu að venju.
A aðalfundi Leikfélags Akureyrar sem haldinn
var 9. september 1998 lagði ég fram ársreikning
félagsins fyrir leikárið ágúst 1997 til júli 1998 til
samþykktar. Arsreikningurinn var undirritaður af
löggiltum endurskoðanda Þorsteini Kjartanssyni,
félagskjörnum endurskoðendum, þáverandi leik-
hússtjóra Trausta Olafssyni, þáverandi stjórn Leik-
félags Akureyrar og fulltrúum leikhúsráðs. Engar
athugasemdir voru gerðar við fyrrnefndan árs-
reikning. Vegna mjög slæmrar Ijárhagsstöðu Leik-
félags Akureyrar og umsóknar leikhúsráðs til Bæj-
arstjórnar Akureyrar um auka fjárveitingu var bók-
hald Leikfélags Akureyrar endurskoðað af löggilt-
um endurskoðanda Akureyrarbæjar. Engar athuga-
semdir hafa borist til mín, leikhúsráðs né heldur
til nýráðins leikhússtjóra Sigurðar Hróarssonar
varðandi reikningsskilin. Þar sem reikningsár
Leikfélags Akureyrar er leikárið en ekki almanaks-
árið eins og algengast er tel ég ekki óeðlilegt að
bókhaldið sé nú í vinnslu. Ég vil því ítreka að árs-
reikningur Leikfélags Akureyrar fyrir leikárið
1997-8 var í lagi.
mti -8 til 0 stig
Veðrið í dag...
Norðlæg átt, gola eða kaldi austanlands, en hæg norðlæg
eða hreytileg átt síðdegis. É1 í fyrstu norðaustanlands, en
annars léttskýjað. Suðaustan gola og þykknar upp
vestanlands, en suðaustan kaldi og snjókoma eða él á
annesjum síðdegis.
Betra ísland?
GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR
SKRIFAR
Átti ísland ekki að verða betra fyrir alla, sam-
kvæmt kosningaplaggi Sjálfstæðismanna fyrir síð-
ustu kosningar? Það minnir mig en ásamt fram-
sóknarmönnum hefur þeim tekist að byggja gjá
milli þeirra er lægst hafa kjör í þessu landi og
hinna sem vaða um í góðæri.
Skammsýni
Þetta er allsendis furðuleg ráðstöfun fjármuna og
ekki verður lengi við slíkt unað, með þögninni
einni saman. Því miður er engin af núverandi
stjórnmálaflokkum, hvorki í stjórn eða stjórnar-
andstöðu, þess umkominn að Hrðast að taka mál
þessi föstum tökum. Því miður er svo einnig um
málefni Ijölskyldunnar og barna í samfélaginu.
Ekkert, ég endurtek, ekkert er hægt að telja sem
ráðstafanir til aðhlynningar fjölskyldum og börn-
um. Reykjavíkurborg hefur dansað Hrunadansinn
í samkeppni við ríkið um sparnað og enn auknar
kostnaðarálögur á til dæmis öryrkja og láglauna-
fólk, svo með ólíkindum er. NúIIþráhyggjan er ráð-
andi afl á báðum stöðum, þar sem það virðist vera
stefnan að komandi kynslóðir þurfi ekki að greiða
skatta, þessi kynslóð skuli ein bera byrðar.
Slík skammsýni getur ekki talist aðalsmerki
nokkurra þeirra stjórnmálamanna er ráða ríkjum,
hvorki nú, né endranær.
Fólkifyrimun
Sóun og bruðl í samfélaginu hefur vissulega verið
sópað undan teppinu, en ekki endilega fyrir til-
stuðlan núverandi stjórnmálamanna, heldur ekki
hvað síst fyrir tilkomu samkeppni í íjölmiðlun á ís-
landi, og notkunar tjáningarfrelsisins. Það dugir
hins vegar illa að afla meiri tekna í ríkiskassann ef
ekki er hægt að útdeila þeim arði undir formerkj-
um jöfnuðar, til handa manninum sjálfum, þegar á
þarf að halda. Núverandi stjórnmálamenn hafa því
frá mínum bæjardyrum séð ekkert að gera aftur
inn á Alþingi, annað kjörtímabil, nema að þeir
hinir sömu endurskoði að verulegu leyti það gildis-
mat sem ráðið hefur ferð síðasta kjörtímabil og
byggist á þrefi og þrasi um keisarans skegg, agnúa-
hætti og rifrildum, og samdansi kringum gull-
kálfinn þess á milli, og flokkaflakki allra handa.
Þeir hinir sömu hafa steingleymt þ\a að ennþá
er þeim sem hafa tapað heilsu gert að lifa af helm-
ingnum af hundrað þúsund krónum á mánuði til
handa sér og sínum, einnig þeim er kjósa að eyða
einhverjum tíma með börnum sínum á fyrsta ári í
lífi þeirra. Þessir bræður okkar og systur hafa varla
til hnífs og skeiðar á Islandi, það eitt er til skamm-
ar fyrir okkur öll. Hér er það nefnilega spurningin
um að flokka fólk í fyrirrúm, sjúkir, aldraðir og
börn eru líka íslenskt fólk.
Islenskir stjórnmálamenn allra flokka á Alþingi,
ég spyr: Ætlið þér að bjóða þegnum landsins þessa
ráðstöfun inn í nýja öld? Ef svo er, teljið þér að þér
munuð ná endurkjöri?
Að mæla tímann með teygju
HALLDOR ERLENDSSON
SKRIFAR
Enn og aftur gamla tuggan um
aldamótin tvö. Maður fer
ósjálfrátt að hlakka til áranna
2001-2002-2003 sem engu máli
skiptir hvort lífs eru eða liðin
þegar að þeim kemur. Þó verður
maður að játa á sig lesningu
sumra greina sem birst hafa um
þrætumálið. Einnig að hafa
sperrt eyru við og við þegar þessi
umræða ber á góma. Enda verð-
ur enginn saddur nema af áti.
Sést hafa mörg rök, góð og
gild, borin upp af talsmönnum
beggja sjónarmiða, það eindreg-
in að jafn iáfróður maður um
stærðfræði og undirritaður getur
farið að draga ályktanir. Spurn-
ingin er bara um forsendur?
Eigum við að nota „reglustiku-
aðferðina"? Það er ekki með
nokkru móti hægt að taka undir
þá útkomu sem greinarritari
einn fékk nýlega með beitingu
þeirrar aðferðar.
Reglustikan byrjar nefnilega á
núlli og gagnstætt því sem um-
ræddur greinarritari komst að
leiðir hún okkur í þann „sann-
leika“ að aldamótin verða um
áramótin 1999-2000. Þegar
fingrinum er rennt frá núlli og
upp eftir stóru reglustikunni og
hann kemur að einum, þá er
einn búinn; eitt bil; eitt ár ef
vill. Þegar hann kemur að
tveimur þá eru tvö bil að baki
þannig að þegar að 2000 kemur
þá eru á sama hátt 2000 bil að
baki; 2000 ár liðin; tvö árþús-
und búin og basta - ekki satt?
En spurt er um forsendur og
þá verður spurningin einfaldlega
og augljóslega: Fæddist Jesús
eins árs eða varð hann eins árs
eftir að hafa lifað í eitt ár (1.
jan., árið 1 í hans tilfelli) eins og
títt er um flesta þá sem ég
þekki? Umorðun: Var árið 0 til?
Var e.t.v. skipt beint úr -1 f.k. í
+ 1 e.k.? Þetta er sagnfræðileg
spurning og skortir mig sagn-
fræðilega þekkingu til að gerast
dómari i þessu brennheita deilu-
máli sem svo oft hefur lifgað
upp á samkomur fólks í gegnum
tíðina. Læt ég þá á milli hluta
Iiggja hvort meta eigi fegurðar-
gildi tölunnar 2000 eður ei eða
það hversu miklu fleiri tölustafir
breytast þegar skiptir úr 1999 í
2000 heldur en úr 2000 í 2001.
Blönduós Akureyri
Egilsstaðir Bolungarvík
í\\\ \ii íí íí n | i / íj ^ w
Reykjavík Kirkjubæjarklaustur
í í •—. •''" •/ I í I I •—■ •/~ • I */*
Stykkishólmur Stórhöfði
vísZ7s0FA Veðurspárit 04.03.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður
með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s.
k
Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegum
í gær var skafrenningur á vegum á Eyjafjarðarsvæðinu og á
ölliun vegiun austan Akureyrar í Norður-Þingeyjarsýslu og
á Austurlandi. Ófært var um Sandvíkurheiði, Vatnsskarð
eystra og Breiðdalsheiði, og þungfært um Fjarðarheiði. í
öðrum landshlutum var góð vetrarfærð.
SEXTÍU
OG
SEX
NORÐUR
Glerórgölu 32
Akureyri