Dagur - 06.03.1999, Page 10
SDagpvr
^lJrJB 1 LAjJDJjJU j-
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999
faðir
A ----------
Lengi vel og til ársins 1989 voru bræðurnir allir fjórir saman við reksturinn og hér
sjást þeir allir saman á mynd, sem var tekin um það leyti sem Kristjánsbakarí flutti
í núverandi hús sitt við Hrísalund fyrir um tuttugu árum. Á myndinni eru frá vinstri,
Kristján, Júlíus, Birgir og Kjartan Snorrasynir.
Birgir og Kjartan, sem er til hægri á myndinni,
hér saman sjö og tíu ára gamlir. „í bakaríinu lék-
um við okkur og vorum fljótt farnir að vinna þar.
Bakríið var með öðrum orðum afskaplega sam-
tvinnað öllu heimilislífi."
Bræðurnir í bakstrinum
Þeir stjórna saman
Kristjánsbakaríi, einu
stærsta fyrirtækinu á
Akureyri. Utan vinnu
segjast Birgir og Kjart-
an Snorrason harla lítið
gera saman, í frítíman-
um hafi þeir þörf fyrir að
hitta aðra. Þeir segjast
ólíkir, en þeir virði hvorn
annan þannig og því
gangi samstarfið upp.
„Við bræðurnir erum ólíkir
menn en virðum hvorn annan
þannig og ætli það sé ekki
ástæða þess að náið samstarf
okkar gengur vel upp. Verka-
skiptingin er skýr þó allar stærri
ákvarðanir tökum við sameigin-
lega. Utan vinnu er samvera
okkar hinsvegar lítil; eftir sam-
vistir í vinnunni allan daginn
höfum við þörf fyrir að hitta
aðra í frítíma,“ segir bræðurnir
Birgir og Kjartan Snorrasynir í
Brauðgerð Kr. Jónssonar á Akur-
eyri, Kxistjánsbakaríi.
Bakaríið
samtvinnað heimilislffi
Kristjánsbakarí er eitt stærsta
fyrirtæki á Akureyri og starfs-
menn um hundrað. Starfsemi
hófst 1912 þegar Kristján Jóns-
son byrjaði baksturinn, én hann
stóð vaktina fram undir 1960 en
talsvert áður var Snorri, sonur
Kristjáns og faðir bræðranna,
kominn inn í reksturinn. Fyrir-
tækið var lengi til húsa við
Strandgötu á Akureyri en fluttist
í núverandi hús við Hrísalund
árið 1978.
Bræðurnir, Snorrasynir, eru
fjórir og allir bakarar. Elstur er
Kristján, fæddur 1951, sem er
smiður á Akureyri. Tveimur
árum yngri er Júlíus, matvæla-
tæknifræðingur í Danmörku,
Birgir er fæddur 1958 og yngst-
ur er Kjartan, fæddur 1961.
„Við Iærðum allir bakaraiðn án
þess stefna á hana með meðvit-
uðum hætti. Niðri í Strandgötu
var bakarí á neðstu hæð og íbúð
á annarri hæð og innangengt á
milli. I bakaríinu Iékum við okk-
ur og vorum fljótt farnir að
hnna þar. Bakríið var samtvinn-
að heimilislífi," segir Kjartan.
Fjórir
stjórnendur of mikið
Fram til 1989 stóðu bræðurnir
fj'órir saman að rekstri Kristjáns-
bakaríks ásamt föður sínum.
Segja Kjartan og Birgir að
kannski hafi ekki veitt af, sam-
heldinn hóp hafi þurft til að
byggja upp reksturinn. Um skeið
var verkaskipting sú að Kristján
og Júlíus önnuðust stjórnun en
Kjartan og Birgir voru í fram-
leiðslunni, en bræðurnir tóku að
miklu leyti við rekstrinum þegar
faðir þeirra veiktist 1973. „Fyrir-
tækið kom upp í fangið á okkur
einn morguninn,“ segir Birgir.
„Framtíðarsýnin var ekki sú að
hér væru fjórir stjórnendur. Það
gerir stjórnun fyrirtækja erfiða
að margir komi að henni og í
öðru lagi bar fyrirtækið launa-
lega ekki marga stjórnendur.
Það var 1989 sem við Kjartan
gerðum bræðrum okkar tilboð
um kaup á 25% hlut þeirra í fyr-
irtækinu, sem þeir gengu að. Ari
síðar keyptum við helmings hlut
pabba,“ segir Birgir og Kristjáns-
bakarí er nú sameignarfyrirtæki
þar sem Birgir og Kjartan eiga
50% hlut hvor.
Triíum á fyrirtækið og
okkur sjáffa
Hvað varðar stjórnun Kristjáns-
bakarís segjast þeir bræður vera
á mjúku línunni og reynt sé að
fela starfsfólki það traust að ekki
þurfi að ýta svo mjög á eftir því.
Fólk viti til hvers sé ætlast. „Við
reynum að hafa vinnutíma og -
aðstöðu þannig að það henti
fjölskyldufólki og það er fjárfest-
ing, sem hefur skilað sér í því að
okkur helst vel á fólki. Sumir
hafa verið hér í áratugi," segir
Kjartan
Milli Birgis og Kjartans er
skýr verkaskipting. Kjartan sér
um peningamál, áætlanagerð
og starfsmannahald, en Birgir
um innkaup, sölustarf, tækni-
mál og framleiðslustjórnun.
Um framtíðarverkefni Krist-
jánsbakarís segja þeir bræður
að framundan sé að stilla kúrs-
inn eftir kaup á Brauðgerð
KEA um áramótin. „í þau
hefðum við ekki farið nema við
tryðum á fyrirtækið og okkur
sjálfa,“ segir Kjartan.
Vélsleðaferðir og hús í
Hrísey
Þeir Birgir og Kjartan eru mætt-
ir á vaktina snemma á hverjum
morgni og hafa sameiginlega
skrifstofu. Þegar vinnu sleppir
fara þeir hvor í sína áttina. „Eg
hef mikinn áhuga á vélsleða-
ferðum og sumarferðalögum
með fjölskyldunni, þar sem við
höfum fellihýsið með okkur.
Einnig finnst mér gaman að
garðrækt, gönguferðum, veiði-
skap og slíku,“ segir Kjartan.
„Eitt gerum við Kjartan sam-
eiginlega utan vinnu en það er
að fara á föstudögum í gufubað
með félögum okkar þar sem við
leysum heimsins vandamál,"
segir Birgir. „Kannski er það
sjóstangveiði sem ég hef mest
gaman af í dag. Svo á ég hús í
Hrísey sem fjölskyldan er að
gera upp og svo ætla í framtíð-
inni að eignast litla trillu og gera
út. Fyrir nokkrum árum eignað-
ist ég einbýlishús við Klettagerði
og þá fyrst komst ég í kynni við
garðrækt, sem mér finnst gaman
að. Einnig finnst mér hverskon-
ar hönnun skemmtileg, ekki síst
í samvinnu við arkitekta."
Athafnasemi
í fjölskyldunni
Snorri, faðir þeirra bræðra,
eignaðist fyrir nokkrum árum
landsspildu í Aðaldal þar sem
hann stundar í dag skógrækt,
sem hann hefur milda ánægju af
að sinna. „Pabbi fór í þetta með
hálfum huga en er nú alveg
„húkt“. Hann er þannig að hann
sleppir helst ekki verki úr hendi.
Þannig erum við bræðurnir
Iíka,“ segir Birgir. - „Það er sam-
merkt með okkur öllum að við
leggjumst ekki upp í sófa eftir
vinnu og förum að Iesa. Það er
athafnasemi í fjölskyldunni,"
segir Kjartan Snorrason. -SBS.
Bræður tveir, Kjartan til vinstri og Birgir. „Við trúum á fyrirtækið og okkur sjáifa."