Dagur - 06.03.1999, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - 35
T>gptr
Lögreglumennirnir
þustu inn í verbúð-
ina og inni í illa
þefjandi herbergi
þar blasti við þeim
óhugnanleg sjón.
Ingólfur sat á gólfi
upp við borð með
höfuð hallandi nið-
ur. Hann var blóðugur og með
stungusár á brjósti. Maðurinn
var lagður á gólfið - heyrðist
þá frá honum síðasta andvarp-
ið. Hann var dauður - augljós-
lega myrtur.
söm,
DOMSMflL
.
Friðrik Þór
Guðmundsson
skrifar
Skömmu síðar birtist í verbúðarherberg-
inu sakborningurinn Einar og það var
ekki síður ófögur sjón. Einar, 23 ára, var
áberandi vímaður og utangátta - rétt svo
að hann stóð í lappirnar. Hann var
ldæddur ljósbrúnum stuttbuxum og var
blóðblettur á hægri skálminni. A hægra
læri var umvafið hvítt plastiímband og
þóttust lögreglumennirnir þekkja stungu-
far eftir sprautunál rétt neðan við líma-
bandið á Iærinu. Einar öskraði: „Er hann
ekki dauður þessi andskoti?" Einar var
handjárnaður hið snarasta.
Þetta var laugardagskvöldið 29. ágúst
1987, á annarri hæð verbúðar Brynjólfs
hf. í Innri-Njarðvík. Rannsókn leiddi í
ljós að Einar hefði veitt Ingólfi, 25 ára,
hnífsstungu í hjartað með stórum flökun-
arhníf. Lengd hnífsblaðsins var upp á
tæpa 14 sentimetra og gekk það nær allt
inn í fórnarlambið; áverkinn endaði í
fituvefnum við rætur meginslagæðar.
Einnig kom í ljós 7,5 sentimetra langt
skurðsár í Iófa vinstri handar, hrufl á
hnúum og 4,5 sentimetra hnífsrispa á
kvið. Blóðsýni sýndu að fórnarlambið
hefði verið verulega drukkið, en ekki
fundust leifar annarra vímugjafa. Einar
var enn drukknari. Hann þekktist sem
góðkunningi lögreglunnar, með ótal
dóma á bakinu. Einar er einn fjögurra
bræðra í undirheimunum eru þeir gjarn-
an kallaðir „Dalton-bræður“ í höfuðið á
fígúrunum í teiknimyndasögunum um
Lukku-Láka.
Einar og Ingólfur voru vinir. En
drykkjulotan var hörð og kvenmaður var
með í spilinu - sem dugði til að feykja
dómgreindinni svo langt að volæðispirr-
ingur varð næg ástæða til voðaverksins.
„Ég skal drepa ykkur“
Einar og Thelma, 21 árs, fóru á dansleik í
Glaumbergi föstudagskvöldið og héldu
drykkju áfram í verbúðinni um nóttina.
Um morguninn braust Einar samkvæmt
ákæru inn í skrifstofu yfirverkstjórans hjá
Brynjólfi hf. og stal ósóttum launa-
umslögum með 50 þúsund krónum í -
um 110 þúsund að núvirði. Síðan fóru
þau í leigubifreið til borgarinnar og
drukku þar á börum fram eftir degi. Þau
hittu Ingólf á hádegisbar Hótel Borgar og
ákveðið var að kaupa fíkniefni. Það fórst
hins vegar fyrir, Einari til mikillar skap-
raunar.
Síðdegis var tekin leigubifreið suður -
komið var við í húsi í Garðabæ og meira
áfengi keypt á svörtu. I leigubílnum hafði
Einar allt á hornum sér og var með sí-
felldar hótanir: „Ég skal drepa ykkur“ á
hann að hafa hrópað. I verbúðinni var
tekið til við að koma áfenginu fyrir róða
snemma kvölds. Innan klukkustundar
eða um sjöieytið var friðurinn úti.
Thelma bar að þeir vinirnir hefðu ekki
verið að rífast, heldur hefði Einar verið í
vondu skapi. Hann hefði farið í eldhús og
náð í hníf, labbað með hann þegjandaleg-
ur um herbergið - sveiflaði honum í
kringum sig og framan í þau hin. Ingólfur
sat sljór af drykkju og gerði ekkert, en
Thelma hljóp út til að ná í hjálp. Fóru
vinirnir þá að takast á um hnífínn og átök
upphófust - Einar segir að þá hafi
„slokknað á sér“ þar til hann sá Ingólf
blóðugan á gólfinu. Með hnífnum hafði
hann rispað Ingólf á kvið, skorið hann al-
varlega í lófa og rekið flökunarhnífinn á
kaf í fórnarlambið.
„Alvarlegar
persónuleikatruflanir"
Hringt var í lögregluna í Keflavík kl.
19.17 og kom lögreglubifreið skjótt á
vettvang. Þar hittu lögreglumenn yfír-
verkstjórann Björn og Thelmu. Miðað við
röð málsatvika var Einar þá kominn í
annað herbergi og stóð þar við glugga. Að
líkindum hefur hann séð þegar lögreglu-
mennirnir ruddust inn. Ekki er hægt að
halda því fram að Einar hafi veitt mót-
spyrnu þegar þeir sfðan mættu honum,
þvert á móti virtist hann alls ekki taka
eftir nánasta umhverfi sínu. Hann rank-
aði þó nægilega við sér til að spyrja hvort
„þessi andskoti" væri ekki dauður.
Einar taldist sakhæfur. En geðlæknir
sagði Einar hafa sýnt merki alvarlegra
persónuleikatruflana, sem komið hefðu
fram í alvarlegum atferlisvandkvæðum
allt frá bernsku, áfengissýki, fíkniefna-
neyslu og fleiru. I sakadómi Njarðvíkur
dæmdi Sigurður Hallur Stefánsson hann
í 12 ára fangelsi. Hæstaréttardómurun-
um fimm sem dæmdu málið þótti þar
ekki nógu langt gengið og þyngdu refs-
inguna upp í 14 ára fangelsi. Þeir töldu
að brotið hefði verið framið af ásetningi
og að Einari hlyti að hafa verið lífs-
háskinn ljós.
Afplánaði í 10 ár en byrjaði aftur
Fyrir atburðinn hafði Einar hlotið alls 23.
ölvunarsektir á sjö árum og nokkra dóma
fyrir hegningarlagabrot, vegna þjófnaðar,
ávana- og fíkniefna og fleira og var sá
lengsti þeirra fimm mánaða fangelsi.
Hann var fyrir þetta mál dæmdur í 14 ára
fangelsi sem fyrr segir. Einar var í sama
máli sakfelldur fyrir tékkafals og átta
þjófnaðarbrot, en meðal þess sem hann
stal var gullúr, Ijósritunarvél, myndbands-
tæki og hljómflutningstæki.
Að fráteknu gæsluvarðhaldi hefði full
refsing leitt til alþlánunar til ágústloka
2001, en Einar fékk reynslulausn árið
1997. Ekki leið á löngu áður en sú
reynsla var orðin bitur og Einar aftur
kominn á bak við lás og slá - fyrir þátt-
töku í grófri Iíkamsárás á öryrkja við
Kleppsveg. Þar var hann að aðstoða við
„handrukkun".
Kirkja fyrir austan. Þetta guðshús á
Austurlandi er að margra dómi ein fal-
legasta kirkja landsins, byggð árið
1845 úr rekavið af Langanesfjörum.
Hver er kirkjan?
Ölið á Gauknum. Ein vinsælasta
bjórstofa landsins er Gaukur á Stöng
við Tryggvagötu í Reykjavík. Hver var
sá Gaukur á Stöng sem þjóðsögur
greina frá og hvar bjó hann?
Landbúnaðarverðlaunin. Þau verð-
laun voru veitt til mektarbænda á
tveimur bæjum á sitthvoru landshorn-
inu á Búnaðarþingi um síðastliðna
helgi. Hvar búa þessir bændur?
Hringir bjöllu. Fjármálaráðherra
hringir hér bjöllu í tilefni af gieði sem
veitingamenn efna til vegna áratugs
afmælis bjórs í landinu, sem á að
verða árleg. Hvað nefnist hún?
l
Prófasturinn. Nýr prófastur var settur
inn í embætti í Eyjafirði í síðasta mán-
uði og sést hann hér á mynd ásamt
biskupi (slands. Hver er maðurinn og
hvar situr hann?
LAND 06
ÞJÓÐ
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
1) Við hvern er húsið Tryggvaskáli á
Selfossi, elsta hús bæjarins sem byggt
er árið 1891, kennt?
2) Stanley Melax var presturinn sá er
lengi sagt á Melstað í Hrútafirði. Hver er
tengdasonur hans, þjóðþekktur þing-
maður?
3) Hvar er það sem áin Kolgríma fellur
til sjávar?
4) Gautsdalur, Ingunnarstaðir, Klettur,
Hólar, Kambur, Mýrartunga, Klukkufell
og Kinnastaðir. Hvar á landinu eru
þessir bæir?
5) Hvað heitir svæði það í Reyðarfirði
sem tekið hefur verið frá undir stóriðju
af einhverjum toga?
6) Við hvem er Hrafnseyri við Arnarfjörð
kennd?
7) Blómaskeið hijómsveitarinnar Greif-
anna var fyrir um áratug, en sveitin var
úr kaupstað á Norðurlandi sem liðs-
menn sveitarinnar kenndu sig við.
Hvaða staður var þetta?
8) Hvað heitir fjailið sem blasir við íbú-
um á Flateyri þegar þeir fara á fætur á
morgnana, en fjallið stendur sunnan
megin við Öndunarfjörð?
9) Yfir hvaða svæði nær Hróarstunga?
10) Hvar er fjallvegurinn Öxi?
ej)auio|!>j |6n) ejwou um uu!6aA6uug
e)]X]s epacj ipuAuj !6aASJBS|!ai| pe jnpja6 uueg !pjX ua jnöaAjeuins jæjeddaf ja epag ujoqjepjefjnjag j jnp^u 6o |eppu>|S Jn jn6aA||efj ja ixq (ol 'Jeuuue>(oqpueqe6aA 6u!sX|S!pæAS jjöas „'eöuea pe uu! 6o !sp bjj uejn sjofipeöeq 6o rug e
jes|n>(pr !||!Ui jnpjaA uias pipæAS ja e6un]Sjeoj|-|‘‘ [6 'Jnuugjoq (s XiAesnn (/ 'pue|S| e uup!u>)æ| !pejuuauj !)sjXj uugei ja uueq ua 'p|0 'gi - zi ? Jea jnppæj uias uosjeujefqujaAS eföuipjoq ujbjh P!a puuaq ja uXasujeJH (9 'unejH (S )!aAse|pq
-qXay | (y jjaASjnpns Ja jeuuaq ubjsba ua JpjjjeujOH ! JBAefs |q jnqaj ujas esinqpf ”pnejouj|o>( ja bujjj6|0» (e su!S>(>(0|jnpXqiv uueuuoj 'uossu!A6jo[g )BAq6|s um ynds ja jpn (2 uepjs uime 801 Jó4 uinueqqeqje p ssnq essacj 6o esnj|Q jqX
jeuuuénjq nisjAj n6u|66Xq pe po)s uueq ua uueuis(6u!c||e 6o ejofisequeq uossjeuunQ ba66Xjí Pía luuaq ja pjsnn (l - 'qaASjepjefjefÁg j ipueieöneq p jnqs uias uopueig ujq sauuen JS uuunisejojd „ !pa|6nog , qaASjepjefjeMg j ipqspH e 6o
æqs||ajso(Ai! uinfqXay p epuæq |i)pjaAnJOA uiuneipjaAjepeunqpueq , 6E6L pue ddn uuijbj6 jepjs jba ua yoil nuiso6n|>|aH! )S(ppÁa sueq jæg |epjpsjp[q) 6up)s p pfq 6o uössnpuejijba jnqneg , pjpfjeqqeg p|Ae[>p!>|epe)sef66a>is Ja eqaq ,