Dagur - 06.03.1999, Qupperneq 20
36- LAUGAKDAGUR 6. MARS 1999
Vgur
RAÐAUGLÝSINGAR ™
A T V I N N A
Sumarafleysingar
Strætisvagnar Reykjavíkur er þjónustufyrirtæki
á sviði fólksflutninga.
Fyrirtækið vill ráða 65 vagnstjóra til afleysinga
á tímabilinu 1. júní til 26. ágúst.
Leitað er að fólki sem hefur vilja til að vinna hjá
fyrirtæki sem leggur megináherslu á að uppfylla
þarfir og væntingar viðskiptavina.
Ákjósanlegir eiginleikar eru:
Lipurð í mannlegum samskiptum, snyrtimennska,
stundvísi og áreiðanleiki.
Viðkomandi þarf að hafa meiraprófsökuréttindi
(rútupróf).
Ath. Ijúka má meiraprófi hjá ökuskóla
á u.þ.b. 6 vikum.
Allir nýliöar sækja námskeið hjá SVR
Vaktavinna, heilsdags- og hlutastörf.
Ágætir yfirvinnumöguleikar.
Jafnt konur sem karlar eru hvattar til
að sækja um störfin.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá
farþegaþjónustu í skiptistöð á Hlemmi
og skal skilað þangað eða í þjónustustöð SVR,
Hverfisgötu 115. Nánari upplýsingar veita
þjónustustjóri og deildarstjóri í síma: 581 2533.
|ra|fn iJbi .B.,pjlKf|il
L's«Í5 * 4?
H!!ÉW nom
Leikarar
Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir leikurum á
árssamning og/eða í einstök verkefni fyrir leik-
árið 1999-2000.
Umsóknir skal stíla á leikhússtjóra og merkja
„starfsumsókn11.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl næstkomandi.
Leikfélag Akureyrar
Pósthólf 92
602 Akureyri
FISKISTOFA
Fiskistofa
Eftirlitsmenn í fulivinnsluskip
Fiskistofa óskar eftir að ráða eftirlitsmenn til starfa um
borð í fullvinnsluskipum.
Störfin felast í hefðbundnu veiðieftirliti og eftirliti með
nýtingu afla við vinnslu um borð.
Menntun og reynsla á sviði fiskvinnslu og fiskveiða er
skilyrði.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Öllum umsóknum verður svarað.
Eftirlitsmenn í tímabundin
verkefni á Flæmingjagrunni
Fiskistofa óskar að ráða eftirlitsmenn í tímabundin
verkefni á Flæmingjagrunni.
Störfin felast í hefðbundnu veiðieftirliti og rannsóknar-
vinnu um borð í veiðiskipum.
Reynsla á sviði fiskvinnslu og/eða fiskveiða er æskileg.
Umsækjendur verða að vera reiðubúnir að fara í verk-
efni með stuttum fyrirvara.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Öllum umsóknum verður svarað.
Allar nánari upplýsingar um ofangreind störf veitir Atli
Atlason í síma 569-7900.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til:
Fiskistofu, Ingólfsstræti 1, 101 Reykjavík, fyrir 14.
mars nk. merktar „ Fullvinnsluskip“ annars vegar
og „Flæmingjagrunn" hins vegar.
AKUREYRARBÆR
Sérfræðingar til ráðgjafar-
starfa
Hjá Akureyrarbæ er unnið að sameiningu skóla- og fé-
lagsþjónustu ásamt endurskipulagningu á stjórnsýslu
fræðslu- og félagssviða. Akureyrarbær mun taka við
allri stoðþjónustu við grunn- og leikskóla sína frá 1.
ágúst n.k.
Óskað er eftir séfræðingum til starfa á sameinuðu fé-
lagssviði:
Sálfræðingum,
félagsráðgjöfum,
talmeinafræðingi,
sérkennurum eða öðrum kennurum með sérhæföa
framhaldsmenntun.
Ef ekki fást umsóknir frá ofangreindum fagaðilum kem-
ur til greina að ráða fólk með annars konar háskólapróf.
Nánari upplýsingar veita Ingólfur Ármannsson fræðslu-
málastjóri og Valgerður Magnúsdóttir félagsmálastjóri í
síma 460-1400.
Umsóknafrestur er til 9. april n.k.
Starfsmannastjóri
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Þjónustudeild
Á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar er staða sér-
kennslufræðings/sálfræðings með kennaramennt-
un eða reynslu af skólastarfi laus til umsóknar.
Um er að ræða afleysingarstarf til eins árs.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 15. mars.
Upplýsingar veita Magnús Baldursson, skólafull-
trúi og Guðjón E. Ólafsson, deildarstjóri þjónustu-
deildar í síma 555 2340. Laun eru samkvæmt
samningum viðkomandi stéttarfélags við Hafnar-
fjarðarbæ.
Skólafulltrúi
ORKUSTOFNUN
GRENSÁSVEGI 9-108 REYKJAVÍK
Yfirmaður upplýsinga-
deildar Orkustofnunar
Ákveðið hefur verið að sameina starfsemi skjalasafns,
bókasafns, teiknistofu og útgátu Orkustofnunar í nýrri
einingu á þjónustusviði stofnunarinnar sem hefur vinnu-
heitið upplýsingadeild. Leitað er að yfirmanni fyrir
þessa nýju deild.
Á Orkustofnun hefur verið tekið upp GoPro skjalavist-
unarkerfi. Starfsmanninum er því jafnframt falið að
vinna við skjalastjórn og taka þátt á áframhaldandi þró-
unarstarfi á því sviði. Starfsmaðurinn mun fá 6 til 9
mánuði til að móta skjalavistunarmál stofnunarinnar og
undirbúa starf hinnar nýju einingar.
Helstu verkefni starfsmanna verða:
• Umsjón með rekstri skjala- og bókasafns.
• Umsjón með GoPro skjalastjórnar- og verkferlakerfi.
• Umsjón með vistun bóka og tímarita.
• Umsjón með skjalaáætlun Orkustofnunar.
• Leiðbeiningar við notkun skjalalykils og uppbygging
hans.
• Samvinna, ráðgjöf og leiðbeiningar um skjalamál
Orkustofnunar.
Kröfur sem gerðar eru til umsækjanda:
• Háskólamenntun á sviði bókasafns- og upplýsinga-
fræði með þekkingu eða reynslu á sviði skjalastjórn-
unar.
• Skipulagshæfileikar.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
• Færni í tölvuvinnslu.
Orkustofnun stefnir að því að fjölga konum og yngra
fólki hlutfallslega í starfsliði sínu. Laun eru skv. kjara-
samningum opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar gefur Þorkell Helgason, orkumála-
stjóri, í síma 569-6000, netfang thh@os.is Skriflegar
umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist til Guðnýjar Þórisdóttur starfsmannastjóra
Orkustofnunar, Grensásvegi 9, fyrir 15. mars 1999.
HEILSUGÆSLAN í REYKJAVÍK
STJÓRNSÝSLA
Læknaritari óskast
Laus er til umsóknar staða heilsugæsluritara við at-
vinnusjúkdómadeild Heilsugæslunnar í Reykjavík, Bar-
ónsstíg 47.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist
starfsmannahaldi Heilsugæslunnar í Reykjavík, Baróns-
síg 47, á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem þar
fást.
Nánari upplýsingar um starfið gefur yfirlæknir eða
starfsmannastjóri í síma 552 2400.
Umsóknarfrestur ertil 15. mars nk.
Reykjavík,26. febrúar 1999.
Heilsugæslan í Reykjavík,
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík.
ATVINNA
Matvælafyrirtækið Matur & Mörk ehf. óskar að ráða
duglegan starfskraft til starfa nú þegar. Æskilegur
aldur frá 20 - 40 ára. Vinnutími frá 6.00 - 13.00.
Upplýsingar á staðnum á mánudag og þriðjudag milli
14.00 og 17.00.
Matur & Mörk ehf.
Furuvöllum 13
600 Akureyri