Dagur - 12.03.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 12.03.1999, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGVR 12. MARS 1999 - 2S LÍFIÐ í LANDINU Með Cornel Wilde í frægustu mynd sinni en ekki þeirri bestu, Forever Amber. Linda Darnell til vinstri I Star Dust, myndinni sem hún var að horfa á kvöldið sem hún lést. að Ieiðbeina mér.“ Ótti við eld Arið 1946 keypti Fox kvikmyndaverið kvikmyndaréttinn að metsölubókinni For- ever Amber. Mikil leit fór fram að leikkonu í aðalhlutverkið. Rúmlega 200 leikkonur, þekktar og óþekktar, voru próf- aðar í hlutverkið áður en Peggy Cummins var ráðin í hlutverkið. Fljótlega kom þó í ljós að hún réð engan veginn við það og Linda tók við og varð um leið mest aug- lýsta leikkona Hollywood. I myndinni átti persóna hennar í einu atriði myndarinnar að leita útgönguleiða úr eldi. Linda var of hrædd til að geta Ieikið og leikstjórinn varð að draga hana á svið. Gagnrýnendur tóku myndinni illa en hún skilaði hagn- aði. Linda var 25 ára þegar hún lék í heyrði vein Lindu reyndi að koma henni til hjálpar með þM að brjóta rúðu en eld- Iogarnir v'örnuðu honum inngöngu. Slökkviðliðsmenn fundu hana loks þar sem hún lá í hnipri bak við skólann. Hún var lifandi en meðvitundarlaus. Hún var flutt í sjúkrahús. Sextán ára dóttir hennar kom að sjúkrabeði hennar og Linda komst til meðvitundar stutta stund en gat ekki tjáð sig við dóttur sína. Eftir rúma sólarhrings legu á sjúkrahúsinu lést Linda. Hún var einungis 42 ára gömul. Hörmulegur dauðdagi Lindu Darnell varð til þess að fjölmiðlar gerðu Hollywoodferli hennar vegleg skil og höfðu mörg orð um leikkonuna sem lést á þann hörmulega hátt sem hún gat síst hugsað sér. Linda Damell var ein glæsi- legasta leikkona Hollywood á fimmta áratugnum en eins ogstundum vill verðafórþar ekki samangæfa oggjörvi- leiki. Móður Lindu Darnell hafði dreymt um að verða Hollywoodstjarna. I stað þess varð hún eiginkona og móðir fimm barna. Eitt þeirra bar af sökum fegurðar. Það var Iítil stúlka, Monetta Eloyse. Monetta fæddist árið 1923 og var einungis ellefu ára gömul þegar hún fór að sýna tísku- fatnað að frumkvæði móður hennar sem sagði henni að Ijúga til um aldur sinn og segjast vera sextán ára. Hin metnaðar- gjarna móðir innritaði dóttur sína í leik- listarskóla, harðákveðin í að ná því mark- miði að gera dóttur sína að stórstjörnu. Monette komst í reynslutöku hjá Fox kvikmyndaverinu en hún þótti of ung til að vera brúkleg. Þegar hún var orðin sextán ára var haft samband við hana frá kvikmyndaverinu og hún fór aftur í prufutöku sem tókst Ijómandi vel. Hún var ráðin til starfa og nafni hennar breytt í Lindu Darnell. Hún naut mikilla vin- sælda fyrir myndir sem hún lék í ásamt Tyrone Power, þar á meðal Merki Zorro og Blóð og sandur. I myndinni Anna and the King of Siam lék hún konu sem brennd var á báli. Linda var haldin ákafri hræðslu við eld og hún sagði við blaða- mann að þetta að laga tveimur Lmda Darnell a þeim tima sem hun var stórstjarna. myndinni. Hún var orðin heimsfræg leik- kona en hún tók sér frí frá kvikmyndaleik í tilraun til að bjarga hjónabandi sem var brauðfótum. Hjónin ættleiddu litla stúlku en barnið varð ekki til samband þeirra og þau skildu árum síðar. Linda var mjög illa stæð fjárhagslega. Fjármálastjóri hennar hafði ekki staðið skil á opinberum gjöldum og bakskattar urðu þung byrði. Þetta var upphafið að fjárhagserfiðleikum sem leikkonan átti eftir að stríða við það sem hún átti eftir ólifað. Fox endurnýjaði ekki samning sinn við leikkonuna og henni gekk illa að finna hlutverk við hæfi. Hún giftist á ný bjórframleiðanda en hjónabandið entist einungis í rúmt ár. Eiginmaðurinn kenndi drykkju Lindu um missætti þeirra. Þriðji eiginmaðurinn var flugmaður og það hjónaband stóð í fimm ár. Þegar þau skildu sakaði Linda eiginmann sinn um að hafa valdið sér sálarangist, niðurlægt sig ítrekað og feðrað barn evrópskrar leikkonu. Flann sagði hana hafa verið sídrukkna og ekki reynt að einbeita sér að sambandi þeirra. Endalok Linda var 41 árs, peningalaus og atvinnu- laus. Hún fékk þó vinnu í sumarleikhús- um en eina kvikmyndahlutverkið var í mynd sem hét Black Spurs þar sem Rory Calhoun og Terry Moore fóru með aðal- hlutverk. Eftir leik sinn í þeirri mynd hélt hún til Chicago og þar heimsótti hún fyrrum ritara sinn og vinkonu Jeanne Curtis sem hún gisti hjá. Kvöld eitt tók Linda eftir því að sýna átti Star Dust eina kvikmynda hennar í sjónvarpi og hún horfði á hana ásamt Jeanne og dóttur hennar. Þegar myndinni lauk lagðist Linda til svefns í sóffanum en Jeanne fór upp í svefnherbergi ásamt dóttur sinni. Linda sofnaði þar sem hún hélt á logandi sígarettu. A skömmum tíma varð her- bergið alelda. Jeanne Curtis og dóttir hennar vöknuðu í miklum reyk og tókst að hjarga sér úr íbúðinni. Nágranni sem væri sá dauðdagi sem hún vildi síst af öllu þola. Hún vingaðist við kvikmyndatöku- manninn Peverell Marley, sem hafði kvikmyndað fyrstu þrjár kvikmyndir — Úa/d/n hennar. Hann var þrígiftur og þrískilinn T/nrfa árið áður en hún lést. Hún var 3 0g var tuttugu og tveimur árum eldri en miklum ótta við eld og eldur átti eftir hún. Þau giftust þegar hún var nítján þonni að bana. ára. „Hann er maðurinn sem ég vil,“ sagði Linda, „ég þarfnast eldri manns til

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.