Dagur - 20.03.1999, Page 2
2 — LAUGARDAGUR 20. MARS 1999
. FRÉTTIR
Nýr og glæsilegur salur verður innan tíðar tekinn í notkun í Hafnarstræti 102 á Akureyri þar sem stafsmenn 118 munu veita upp-
lýsingar um símanúmer.
Ellert B.
Schram.
Pottverjar fylgjast af áhuga með
Sverri Hermannssyni og félögum
í Frjálslynda flokknum við að
koma saman framboðslistum.
Það nýjasta sem pottverjar höfðu
heyrt varðandi lista flokksins í
Reykjavík er að Sverrir legói hart
að Ellert B. Schram að taka 1. sæt-
ið með Amþrúði Karlsdóttur í 2.
sæti. En Ellert er trcgur til. Samt sem áður keypti
einhver eina spumingu inn á skoðanakönnunar-
vagn hjá Price Waterhous Coopers (áóur Hagvang-
ur) og hljóðaði hún svo: Myndir þú kjósta lista
Frjálslynda flokksins í Reykjavík ef Ellert B.
Schram væri í efsta sæti? Niðurstaða þessarar
skoðanakönnunar hefur enn ekki verið birt...
Míldð álag hjá
starfsmönnuiii 118
Gríðarleg ásókn í ný störf
á Akureyri. Tímabundinn
álagstoppur þar sem nýtt
afgreiðslukerfi leysir
gamalt af hólmi. Starfs-
menn þreyttir.
Biðtími hefur verið óvenju langur hjá
118 að undanförnu og hafa starfs-
menn kvartað undan miklu áiagi í sam-
tali við Dag. „Hluti skýringarinnar er
að nýtt afgreiðslukerfi hefur verið sett
upp að undanförnu og þá neyðumst
við til að taka úr sambandi nokkur
borð. Það hefur í raun verið undir-
mannað,“ segir Ólafur Stephensen,
upplýsingafulltrúi Landssímans.
Nýja kerfið verður tekið í notkun £
áföngum. Það mun auka afkastagetu
og bjóða upp á nýja möguleika. Hægt
FRÉTTA VIÐTALIÐ
verður t.d. að tengja þá sem hringja
inn beint við þau númer sem spurt er
um. Þá verður í framtíðinni hægt að fá
númerin uppgefin hjá talvél sem þýðir
að hver afgreiðsla styttist og afköstin
aukast.
Mikill áhugi á Akureyri
Mjög mikill áhugi er á störfum sem nú
bjóðast á Akureyri til að sinna símsvör-
un hjá Landssímanum í 118. Upplýs-
ingafulltrúi Landssímans, Ólafur
Stephensen, segir að búið sé að ráða
12 nýja starfsmenn á Akureyri. Hátt í
40 manns hafa sótt um störf þar án
þess að nokkuð hafi verið auglýst eftir
þeim. Sautján manns störfuðu við sím-
svörun á Akureyri um síðustu áramót
en stefnt er að því að þeir verði allt að
50 talsins. Því á enn eftir að ráða tæpa
tvo tugi.
Þótt stórlega verði bætt við starfs-
mannafjölda á Akureyri verður áfram
haldið uppi þjónustu á Egilsstöðum,
ísafirði og í Reykjavík. Sú ráðstöfun er
að sögn Ölafs ekki síst með tilliti til ör-
yggis. Heildarstarfsmannafjöldi verður
fyrst um sinn svipaður eftir breyting-
arnar að sögn Ólafs. 90 manns sinna í
heildina símþjónustunni. I fyrra nam
fjöldi símtala á áttundu milljón eða
840 á klukkustund að jafnaði.
Besta símaverið
Nýr salur verður á næstu dögum tek-
inn í notkun í Hafnarstrætinu á Akur-
eyri sem boðar breytta tíma. „Eg
hugsa að þarna verði einhver besta að-
staða fyrir símaver sem fyrirfinnst á
landinu. Allur tölvubúnaður verður
miðlægur í einu herhergi og bara skjá-
ir og lyklaborð við borðin hjá þeim sem
svara. Fyrir vikið losnar fólk við suðið í
tölvunum og starfsaðstaðan verður öll
með besta móti,“ segir Ólafur. — BÞ
Framsóknarmenn kættust nokkuð við skoðana-
könnun DV í gær, en þar bætti flokkur þeirra að-
eins stöðu sína frá fyrri köimun eóa um tvö pró-
sent. Sumir telja þetta árangur þeirra skilaboða
ílokksforystunnar að verulegt fylgistap þýði að
flokkurinn verði utan ríkisstjómar. Eitt af því
sem kannanir benda nefnilega til að tveir þriðju
hlutar þjóðarinnar séu sammála um, er að fram-
sóknarmenn eiga að vera áfram í ríkisstjóm - þótt
skoðanir séu skiptar á því með hverjum...
Sveinbjörn I.
Baldvinsson.
Fátt hefur vakið meiri athygli í
heita pottinum en fréttin um að
íslendingar hyggist hífa sig upp
úr 16. sætinu í Evróvision með
því að syngja á ensku en ekki ís-
lensku. Þykir mönum þetta gott
innlcgg í hátíðina, sem verður 1
Ráðhúsinu á morgun, þegar
Mjólkusamsalan endurnýjar
samning sinn við íslenska málnefnd. í pottinum
heyrist llka að Sveinbjöm I. Baldvinsson, einn af
höfundum Evróvisiontextans, sé ekki of áfjáöur í
að vera kenndur við málið, enda hafi hann aðeins
tekiö að sér að hjálpa til við þctta verk en engan
þátt átt í ákvörðuninni um að syngja á enskueu
ekki íslensku...
Ámi Sigfússon
fynverandi borgaifiiUtníi
Hættur afskiptum afpólitík.
Lagðipólitíska framtíð sínaað
veði og tapaði. Leitt efSjúkra-
liús Reykjavíkur verðurríkis-
rekið bákn. Með sjálfstæðis-
stefnuna í brjóstvasanum.
Áfram sjálfstæðismaðiir
- Hættirðu í borgarstjóm vegna þess að þú
ert svo tapsdr?
„Halda sumir það? Þetta er eins og flestir
vita í beinu framhaldi af því sem ég sagði
fyrir kosningar. Eg lagði pólitíska framtíð að
veði. I kjölfar niðurstöðunnar var ljóst að ég
mundi hætta. Eg lagði strax til að það yrði
kosinn annar oddviti hópsins og hef verið að
draga mig út úr þessu smám saman. Reynd-
ar styð ég við bakið á þessum nýja öfluga
hópi, sem á allt gott skilið. Nú var bara
komið að þessu. Eg er engu að síður áfram
sjálfstæðismaður með sjálfstæðisstefnuna í
brjóstvasanum."
- Hvað tekur við hjá þér?
„Ég er ekki að fara í pólitík. Ég hef hins-
vegar nóg að gera og næg verkefni. I sjálfu
sér er engin ástæða til að eitthvað annað
taki við. Hinsvegar get ég ekki neitað því að
það er gengið á mig með ýmis verkefni á
markaðnum sem menn eru að kanna mögu-
leika á að ég sinni."
- Eitthvað öðrufreniur?
„Það er eiginlega ekki tímabært að ræða
þá hluti núna. Ég þarf fyrst að ákveða hvort
það sé ástæða til að breyta til. Ef það er þá
á hvaða vettvangi það yrði.“
- Er eitthvað hæft í þvt að þú verðir næsti
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins?
„Það er enginn fótur fyrir því. Þar er fyrir
mjög öflugur einstaklingur sem hefur gert
kraftaverk. Ég vil að hann verði þar sem
Iengst.“
- Hvernig finnst þér borgarstjómar-
flokki sjálfstæðismanna hafa tekist til það
sem af er kjörtímabilinu?
„Mér finnst hann vera mjög öflugur og
taka vel á þeim málum sem þarf að taka á.
Hann mótar sinn stíl og það er eðlilegt að
gefa honum gott tækifæri til þess.“
- Hverjir eru svo helstu sigrarnir í borg-
arstjórn?
„Sigrar eru sameiginlegir. Þótt maður hafi
verið frumkvöðull að ýmsum verkum, þá
þarf marga til að koma þeim til fram-
kvæmda. Það er oft Iangur vegur frá hug-
mynd til framkvæmdar, þó ég vilji oft stytta
þann veg og telji mig kunna leiðir til þess.
Það sem ég fékkst einna lengst af við teng-
ist annarsvegar skólamálum og hinsvegar
margvíslegum verkefnum er varða hagræð-
ingu í rekstri og bætt stjórnskipulag stofn-
ana sem ég kom nálægt. Mér sýnist það
standa upp úr þegar horft er yfir sviðið."
- En mestu vonbrigðin?
„Þau voru auðvitað að ná ekki meirihluta.
Ég tók mjög erfitt verkefni að mér þegar
Markús Örn hætti skyndilega og þá var til
mín Ieitað. Það er hinsvegar ekki um mikil
vonbrigði gagnvart einhverjum einstaka
verkefnum. Það er þó kannski eitt verkefni
sem ég vann mikið að þar sem ég hafði mína
drauma um öflugt fyrirtæki sem mundi
veita hágæða þjónustu í samkeppni á mark-
aði til framtíðar. Það var Sjúkrahús Reykja-
víkur. Ég lagði mig fram um að vinna að
sameiningu Landakots og Borgarspítala í
öflugt sjúkrahús. Mér þykir mjög Ieitt ef leið
þess er inn í ríkisrekið bákn. Ég spyr hvers-
vegna skyldi ekki samkeppni gilda á því sviði
eins og öðrum. Eða vilja menn eitt ríkisrek-
ið tryggingafélag, einn ríkisrekinn grunn-
skóla eða eina ríkisrekna áburðarverk-
smiðju?"
- Þarna er nú við þína flokksmenn að
sakast, er ekki svo?
„Það er framsóknarstefnan sem hefur
orðið ofan á að mínu mati. Það er einnig
eitthvað um framsóknarmenn í Sjálfstæðis-
flokknum. Reyndar líkar mér vel við fram-
sóknarmenn. Þeir eru allflestir Ijúfir og
þægilegir." - GRH