Dagur - 20.03.1999, Side 6
6 - LAUGARDAGUR 20. MARS 1999
Dagur
ÞfÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: i.soo kr. á mánuði
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: (reykjavík)563-i61s Ámundi Ámundason
(AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Simbréf ritstjórnar: 460 6171(AKUREYRI) ssi 6270 (REYKJAVÍK)
Glansinn sldlaði litlu
í fyrsta lagi
Skoðanakönnun sem DV lét gera í kjölfar landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins og birt var í blaðinu í gær, sýnir að ítarleg um-
fjöllun íjölmiðla um glanssýninguna miklu hefur ekki skilað
sér í umtalsverðri fylgisaukningu sjálfstæðismanna. Þeim sem
segjast ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn fjölgaði um 3,8 pró-
sent, miðað við þá sem á annað borð tóku afstöðu í könnun-
inni. Sú breyting er nokkurn veginn innan skekkjumarka, eins
og aðrar hreyfingar á fylgi flokka í könnuninni. Þetta er gleði-
leg staðfesting þess að kjósendur láta ekki blekkjast af glans-
sýningu án innihalds.
í öðru lagi
Þessi niðurstaða er líka athyglisverð í ljósi þeirra skýringa sem
forsætisráðherra hafði á fylgisaukningu Samfylkingar í næstu
könnunum á undan - það er að hún væri tilkomin vegna mik-
illar umfjöllunar fjölmiðla um prófkjör hins sameiginlega
framboðs. Nýja könnunin sýnir þvert á móti að fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn er ekki nóg að fá viðamikla umfjöllun í fjölmiðlum
til að auka fylgi sitt að ráði. Sem auðvitað er merki um að kjós-
endur eru fullfærir um að meta pólitíska sýndarmennsku að
verðleikum og taka afstöðu til framboða eftir málefnum.
í þriðja lagi
Þar sem breytingar á fylgi flokka frá könnun DV í febrúar eru
yfirleitt innan skekkjumarka staðfestir hún fyrst og fremst að
nýju framboðin hafa fest sig í sessi - Samfylkingin með yfir
þrjátíu prósent atkvæða og Vinstrihreyfingin með um sex pró-
sent. Þetta er sú nýja staða sem við blasir í íslenskum stjórn-
málum eftir uppstokkunina á vinstri kantinum. Meginbreyt-
ingin er sú að á þessu kosningaári er eitt framboð yfirlýstra
vinstri manna í fyrsta sinn frá því flokkakerfið varð til að ná
þeirri stöðu að vera næst stærsta stjórnmálaaflið í landinu. Að
það skuli loksins vera að gerast, eftir svo margar misheppnað-
ar tilraunir, eru söguleg tíðindi.
Elias Snæland Jónsson
Njála handa Amþrúði
Garri sá það það í Degi í vik-
unni að uppáhaldsstjórnmála-
maðurinn bans næst á eftir
Sverri Hermannssyni er kom-
inn á fullt skrið. Þetta er hún
Arnþrúður Karlsdóttir, sem
um skeið var að íhuga framboð
fyrir Sverri norður í Iandi með-
al forfeðra sinna í Flatey á
Skjálfanda. Þegar hún hvarf
frá þeirri hugmynd lét hún
þess getið í Dagsfrétt að sjálf-
sagt væri best að fá Garra
Dags til að skrifa handritið að
pólitískri framtíð
sinni. Garri Iítur á
þetta sem sérstakan
heiður og viður-
kenningu á skrifum
sínum um Arn-
þrúði. Hún hlýtur
að vera svona
ánægð með fyrri
skrif Garra að ekk-
ert annað komi til __________
greina en að hún . .
verði í aðalhlutverki rnÞru ur
í næsta handriti.
Sápuróperur með ívafi póli-
tískra plotta eru í sérstöku
uppáhaldi Garra og því mun
hann ekki skorast undan þess-
ari áskorun og gera hvað hann
getur til að skrifa handrit að
nýrri Njálu handa Arnþrúði.
Amþrúðr hét kona
Sagan hefst á því að tilkynnt er
um nýjan frambjóðanda í 1.
sætinu hjá Sverri Hermanns-
syni í Reykjavík, sjálfa Arn-
þrúði Karlsdóttur. Framboðið
fær viðurnefnið íþróttafram-
boðið vegna tengsla efstu
frambjóðendanna við fjölda-
hreyfingu sportista og er vel
tekið. I kosningabaráttunni
gefst Arnþrúði, sem er kven-
skörungur að hætti Hallgerð-
ar, kærkomið tækifæri til að
gjalda Finni Ingólfssyni, fyrr-
um millivegalengdahlaupara
frá Vík í Mýrdal, rauðan belg
^yrir gráan. Finnur hafði farið
illa með Arnþrúði þegar hún
var kaupakona í Framsóknar-
flokknum og vildi fá framgang
þar. Finnur og félagi hans
Olafur Orn, sem jafnan geng-
ur undir nafninu OIi Póli, eft-
ir að hann gekk á Suðurpóli-
inn, vildu aldrei leyfa Arnþrúði
að koma inná þegar hún var
varamaður hjá framsókn og
gerðu hvað þeir gátu til að
halda henni frá þallstoppum
framans í flokknum. Þeir
komu fram við hana eins og
hornkerlingu.
Slitinn boga-
stxcngur
Osætti Arnþrúðar
og þeirra Finns og
Óla Póla náði
raunar allt aftur til
prófkjörsins fyrir
síðustu kosningar
þegar þau elduðu
líka grátt silfur.
Sagan endurtók sig
aftur núna þannig
að þrátt fyrir langa sambúð
skuldar Arnþrúður þeim félög-
um ekkert. Þegar svo þeir
mælast með brotabrot af kjör-
fylgi sínu í skoðanakönnunum
er ljóst að Amþrúður hefur
einstakt tækifæri, enda liggur
beinast við að álykta að fylgis-
hrun framsóknar í Reykjavík
stafi af því að hún er ekki á
listanum. Og þar sem þeir sitja
tveir í vandræðum sínum
Finnur millivegalengdahlaup-
ari og Óli Póli með slitinn
bogastreng og líta bænaraug-
um til Arnþrúðar að fara nú
ekki fram fyrir Sverri, þá segir
hún hnarreist: „Launa vil ég
ykkur pólitíska kinnhestinn,
piltar. Eg fer fram með Sverri."
Þetta verður stór stund og
mikill sigur.
GARRI
Karlsdóttir.
Læri, læri, atvinnu-
tæklfæri
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um það að um allt land leita
menn að nýjum atvinnutækifær-
um logandi Ijósi og grípa hverja
þá gæs sem gengur, flögrar eða
flýgur hjá. Þetta á jafnt við um
Akureyri og aðra staði. En því
miður: Gæsirnar eru ekki allar
jafn góðar.
Erótik
Eg hef aldrei farið á erótíska
danssjmingu - eða hvað menn
vilja nú kalla það sem nú tröllríð-
ur skemmtanaiífinu á höfuð-
borgarsvæðinu og virðíst nú ætla
að teygja sig út á land. Þetta er
að vísu ekki alveg satt - ég var
einu sinni í gamla daga staddur í
Klúbbnum sáluga ásamt besta
vini mínum þegar einhver dular-
full dansatriði hófust á dansgólf-
inu. Við sötruðum áfram hinir
rólegustu og okkur kom ekki til
hugar hugtakið „erótík“, enda
vorum við hreint ekki vissir um
það vinirnir hvort þarna væru
spriklandi stúlkur á launum eða
hvort þarna væru hreinlega að-
eins gestir staðarins, rétt eins og
við sjálfir. Fjörug-
ar stúlkur sem
fengu útrás með
fótafimi sinni,
komnar í klúbb-
inn til að dansa
sér til gamans.
Því er það alt-
ént með nokkrum
sanni að ég get
haldið því fram að
ég hafi aldrei far-
ið á erótíska dans-
sýningu. Að auki
er ég heldur ekki
á leiðinni á eina slíka en hef þó
um fátt hugsað annað en slíkar
uppákomur síðan ég heyrði um
þreifingar í þessa áttina á Akur-
eyri. Spurningin er nefnilega
þessi: Er Akureyri nógu stór fyrir
erótískan dans?
Ó, Reykjavík
Mér dettur ekki í hug að halda
að skortur verði
á dönsurum,
því þá má auð-
veldlega flytja
inn frá Reykja-
vík, Riga eða
Rotterdam.
Jafnvel hugsan-
legt að norð-
lenskar meyjar
muni Iáta
freistast - nú
eða þá norð-
Ienskir piltar,
því auðvitað er
ekkert sem ætti að koma í veg
fyrir að erótískar sýningar séu
framkvæmdar af piltum.
Hitt vekur þó upp meiri um-
hugsun, hvort Akureyringar
muni og geti sótt sýningar af
þessu tagi. Þessi deild þykir enn
dálítið út úr velsæmi hér norðan
heiða þótt í henni rjóðu Reykja-
vík geti menn flestir ennþá falið
sig í fjöldanum og sótt sýningar
af þessu tagi. Afsakanirnar sem
þú gefur makanum og fjölskyld-
unni geta ekki verið óendanlega
margar. Þegar þú ert búinn að
fara með vinnufélögunum,
skokkfélögunum, gamla bekkn-
um þínum og hver veit hvað - og
þegar þú ert búinn að fara í
steggjapartýsferðir sem deila má
í með fimm til að fá út réttan
fjölda brúðkaupa - þá ertu ekki
lengur falinn í fjöldanum. Þá
vita allir að það ert þú sem ferð á
erótískar sýningar og ert sífellt
að reyna að draga fleiri og lleiri
með þér.
Því er það með nokkrum trega
í brjósti sem ég gleðst yfir nýjum
atvinnutækifærum á Akure>TÍ.
spuríla
svauraid
Ertu sammála því að ís-
lensha framlagið íEvr-
ópusöngvakeppninni í
vor séflutt á ensku?
Sigríðnr A. Þórðardóttir
alþingismaðurogfonnaðurmennta-
málanefndar Alþingis.
„Það er mun
æskilegra að
flytja það á
íslensku
bara til þess
að ítreka sér-
stöðu okkar.
Eg veit hins
vegar að það
togast á í
fólki að laga sig að markaðslög-
málinu og hef því skilning á
þessu að vissu marki.“
Jóhannes Guimarsson
framkvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna.
„Það er auð-
vitað dapur-
legt fyrir
okkar ylhýra
mál að okkar
framlag skuli
heita „I’m
out of luck“
og kannski
verður ár-
angurinn í samræmi við nafnið,
enda hefur óheppnin elt okkur á
röndum í þessari keppni. En við
skulum sjá björtu hliðarnar á
málinu og eigum við ekki að
segja að þetta sé upphafið að
einhverju öðru og meira.“
Erlingur Sigurðarson
forstöðionaðurSigurhæða, húss skálds-
ins á Akureyri.
„Nei. Það
undirstrikar
hallærisþátt-
inn í þessu
endanlega.
Ég vona að
þetta lag fari
ekki ofar en í
16. sætið.“
Ólafur Öm Haraldsson
a Iþingismaður.
„Mér er al-
veg meinilla
við það. Eg
hef orðið
þess var að
aðrar þjóðir
flytja sín lög
á sínu
tungumáli
og hafa náð
góðum árangri. Það þurfa að
vera mjög sterk rök fyrir því að
segja að það þurfi að syngja á
öðru tungumáli en íslensku. En
þetta er keppni og menn eru að
keppa á þeim forsendum að ná
vinningi."
-nuæ„ .iBnmioviiinu
o!j óe;7‘i )'?.tnnya vtj )■; i-rr
iv;rn | sr> ve í M.uyw fi'iutJ
-Buynirrpí' . Rnic^i i j jjií’Y