Dagur - 21.04.1999, Side 1
Verð ílausasölu 150 kr.
82. og 83. árgangur - 74. tölublað
Komi Baugur þá
fer Kaupfélagið
„Fái Baugur eftir-
sðtta lóð við brúar-
sporð Borgarfjarðar-
brúar í Borgamesi
verður það náðar-
höggið fyrir verslun-
arrekstur Kaupfélags
Borgfirðinga,“ segir
stjómarformaðuriun.
Kaupfélag Borgfirðinga vill flytja
verslunarrekstur sinn neðan úr
bœ í Borgarnesi nær umferðinni
á umrædda lóð og færa hann um
leið úr óhagkvæmu verslunar-
húsi sem er á mörgum hæðum.
KB sótti um lóðina fyrir
nokkrum misserum, en eftir síð-
ustu áramót hafa fleiri sýnt
henni áhuga, þeirra á meðal er
Baugur. „Maður er skíthræddur,"
segir Þorvaldur. „Það liggur fyrir
að það Iifa ekki tveir stórmarkað-
ir í Borgarnesi."
Loka ef Baugur kemur
Samkvæmt
þessu yrði ný
bæjarstjórn
Borgarbyggðar
með líf KB í
hendi sér og Þor-
valdur segir að
úthluti bæjar-
stjórnin Baugi
umræddri Ióð sé
bæjarstjórnin um
leið að taka
ákvörðun um að
kaupfélagið skuli
ekki vera með
verslunarstarf-
semi áfram.
Hann segir að í
dag sjái menn
enga aðra leið en loka verslunum
Kaupfélags Borgfirðinga og
hætta rekstri þeirra opni Baugur
stórverslun á lóðinni. Fleiri
verslunareigendur í Borgarnesi
hafa lýst áhyggjum sínum af því
að lenda í beinni samkeppni \áð
verslunarrisa eins og Baug á svo
litlum markaði
og hafa í samtali
við Dag sagst
óttast að þurfa
að hætta rekstri.
Þorvaldur seg-
ir að menn séu
búnir að leggja
það niður fyrir
sér í stórum
dráttum hvernig
hús KB hyggist
byggja. „Það
liggur fyrir að
fíaupfélagið
mun nota ein-
hvern hluta af
því sjálft fyrir
stórmarkað og
leigja svo verulegan hluta út til
einstaklinga sem vilja hafa sér-
verslanir. Það eru ýmsir aðilar
sem hafa sýnt því áhuga að koma
inn í þetta hús með Kaupfélag-
inu. Þá er ég ekki bara að tala
um þá aðila sem eru niðurfrá í
gamla verslunarhúsinu eins og
nú er, heldur fleiri.“
Rekstrartap
Fram hefur komið að tap varð á
rekstri Kaupfélags Borgfirðinga
upp á 157 milljónir króna á síð-
asta ári. Þorvaldur segir það að
stærstum hluta tilkomið vegna
afskrifta hjá dótturfélögum
Kaupfélagsins: Afurðasölunnar
Borgarnesi hf. og Engjaáss ehf.,
en segir bráðabirgðatölur iyrir
það sem af er þessu ári sýna mun
betri afkomu. „Það er alveg klárt
að verslunarreksturinn er erfiður
í núverandi húsnæði, menn ná
ekki þeirri hagkvæmni sem þarf í
mannahaldi og öðru. Verslunin
er líka út úr og menn gera sér
vonir um að fá meiri umferð
verði hún flutt. En staða rekstr-
arins er mikið betri núna en hún
var fyrir ári síðan.“ - OHR
Þorvaldur Tómas Jónsson, stjórn-
arformaður Kaupfélags Borgfirð-
inga.
Frjósa
saman
nyrðra
Sú gamla trú að frjósi saman vet-
ur og sumar muni gott sumar
vera í vændum bendir til blfðviðr-
is á komandi sumri, að minnsta
kosti á norðanverðu landinu. Að
sögn veðurfræðings á Veðurstofu
Islands má búast við næturfrosti
aðfaranótt fimmtudags, sumar-
dagsins fyrsta, að minnsta kosti á
norðanverðu Iandinu en síður
sunnanlands.
Hægviðri mun verða áfram
næstu daga en eitthvað fjölgar
skýjunum. Einna helst má búast
við rigningu suðaustanlands þeg-
ar kemur fram á laugardag og
hugsanlega verður rigning víða
um Iand á sunnudag og mánu-
dag. Ekki er að sjá nein hret í
kortunum næstu daga. „Eigum
við ekki að segja að vorið sé
komið?“ sagði veðurfræðing-
urinn. - III
Þau höfðu ekki miklar áhyggjur af veðurspá eða hjátrú börnin sem hér una sér við fótstall hins risavaxna
Snæfinns á Ráðhústorginu á Akureyri. Þó mun víst að Snæfinnur sjálfur fagnar ekki sumrinu afsömu gleði og
börnin. mynd: brink
Afneita
níðinmlE
„Þetta er rangt hjá Kára,“ segir
Pétur Hauksson, læknir og vara-
formaður Mannverndar, í sam-
tali við Dag, aðspurður um þá
fullyrðingu Kára Stefánssonar,
forstjóra Islenskrar erfðagrein-
ingar (IE) að menn á vegum
Mannverndar „hafi gengið á
fund fjármálastofnana í Reykja-
vík til þess að níða [IE] og grafa
undan því trausti sem fjár-
málaumhverfið hafi á lyrirtæk-
inu.“ „Enda,“ segir Pétur, „eiga
samtökin ekki í neinum deilum
við ÍE.“
Sama sinnis er dr. Skúli Sig-
urðsson, vísindasagnfræðingur
og félagi í Mannvernd, sem við
annan mann fór á fund forráða-
manna í bankastofnun og ræddi
þar „glannalegar yfirlýsingar" IE
um uppgötvanir á sviði erfða-
fræði, m.a. í Viðskiptablaðinu.
Skúli segir rétt að þeir dr. Alfreð
Arnason erfðafræðingur hafi sl.
föstudag farið á fund sérfræð-
inga verðbréfasviðs bankastofn-
unar og lýst áhyggjum sínum.
Þeir hafi farið sem einstaldingar,
ekki sem fulltrúar Mannverndar.
EkM að niða
„Við vorum ekki að níða fyrir-
tækið, heldur vorum við einfald-
lega að benda þessum sérfræð-
ingum á hvernig meðhöndla
ætti tiltekin mál á ábyrgan hátt.
Þar á ég við að við höfum orðið
varir við að gengi hlutabréfa í
IE, sem til sölu eru, hafa hækk-
að við hverja skrumkenndu yfir-
lýsinguna frá fyrirtækinu á fæt-
ur annarri. Við teljum óvarlegt
að trúa einhliða aðila sem er
dómari í eigin sök. Það þarf að
huga að hagsmunum þeirra sem
kaupa þarna hlutabréf. Það er
fullkomlega eðlilegt að tveir vís-
indamenn bendi hankastofnun-
inni á að hún þurfi að gæta að
orðstír sínum, þegar ráð eru gef-
in um verðbréfakaup," segir
Skúli. - FÞG
Afgreiddir samdægurs
ÍVenjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
woRtowtoe expfms
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
ÞREFALDUR l. VINNINGUR
/