Dagur - 21.04.1999, Qupperneq 5
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 - S
ísólfur Gylfi Pálmason, formaður
Vestnorræna ráðsins.
Vestnorræn
heimasíða
ísólfur Gylfi Pálmason, formað-
ur Vestnorræna ráðsins, boðaði
til fréttamannafundar í gær til
að kynna ákveðnar breytingar og
nýjar áherslur hjá ráðinu. Nafni
Vestnorræna þingmannaráðsins
hefur verið breytt í Vestnorræna
ráðið. Þá hefur ráðið opnað
heimasíðu á vefnum, (slóðin
http://www.vestnordisk.is) gefið
úr kynningarbækling um ráðið
og hafið útgáfu fréttabréfs auk
þess sem sérstök skrifstofa fyrir
ráðið hefur verið opnuð. Koma
þessar breytingar og nýjungar í
kjölfar þess að árið 1995 var
ákveðið að hefja gagngera end-
urskoðun á starfsemi ráðsins.
Þeirri endurskoðun lauk árið
1997, þegar þjóðþing aðildar-
landanna samþykktu nýjan
stofnsamning fyrir ráðið, auk
þess sem samþykktar voru nýjar
vinnureglur. — S.DÓR
Matvælasetur stað-
sett norðan heiða
Matvælasetur mim
rísa á Akureyri ekki
síðar en um áramót.
Tímamótaskref í upp-
byggiugu Háskólans,
segir Þorsteinu
Gunnarsson rektor.
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær
var samþykkt tillaga starfshóps
sem sjávarútvegsráðherra skipaði
í lok síðasta árs um að stofna
matvælasetur í tengslum við Há-
skólann á Akureyri, enda fáist
nauðsynlegar fjárveitingar á fjár-
lögum næsta árs.
„Þetta er tímamótaskref í upp-
byggingu Háskólans," segir Þor-
steinn Gunnarsson rektor HA.
„Háskólinn hefur unnið lengi að
því að stofna matvælasetur í
tengslum við sjávarútvegsdeild-
ina.“
Rekstrarfálag
Stofnað verður rekstrarfélag um
starfsemi matvælasetursins með
þátttöku Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins, Rannsóknastofn-
unar Iandbúnaðarins og Iðn-
tæknistofnunar íslands á Akur-
eyri. „Síðan verður öðrum stofn-
unum og fyrirtækjum gefinn
kostur á því að koma inn f -
Þorsteinn Gunnarsson háskólarektor segir þessa ríkisstjórnarákvörðun
marka tímamót.
rekstarfélagið og gert ráð fyrir að
matvælasetrið taki til starfa ekki
seinna en um næstu áramót,"
segir Þorsteinn.
Víðtæk nýting þekkingar
Megináhersla verður að sögn
Þorsteins lögð á upplýsinga-
tækni, umhverfismál og mark-
aðsmál í tengslum við matvæli.
I skýrslu starfshópsins kemur
fram að stofnun matvælaseturs á
Akureyri muni stuðla að tækniyf-
irfærslu milli hinna ýmsu mat-
vælaframleiðslugreina, til að
mynda muni þekking á sviði kjöt-
vinnslu geta nýst fiskvinnslu og
öfugt.
Efiir matvælaframleiðsluna
Jafnframt telur starfshópurinn
að starfsemi matvælasetursins
muni stuðla að bættri nýtingu
rannsóknatækja og bæta mjög
starfsumhverfi þess fólks sem
vinnur að matvælarannsóknum á
Akureyri. Þá er starfshópurinn
þeirrar skoðunar að uppbygging
matvælaseturs á Akureyri muni
efla starfsemi matvælafram-
leiðslufyrirtækja á svæðinu og
styrkja mjög starfsemi matvæla-
framleiðsluþrautar við Háskól-
ann á Akureyri. Fyrirtæki í mat-
vælaframleiðslu hafa enda fylgst
með þróun þessa máls af áhuga.
„Varðandi fjármögnun er tíu
milljóna króna fjárveiting á
þessu ári og gert ráð fyrir fimmt-
án milljónum á næsta ári, sem
fara þá í stofnbúnað og laun
framkvæmdastjóra. Síðan er gert
ráð fyrir að Háskólinn á Akur-
eyri, rannsóknarstofnanir og fyr-
irtæki komi með mannafla, fjár-
magn og aðstöðu til að byggja
þetta upp,“ segir Þorsteinn
Gunnarsson háskólarektor.
Matvælasetrið verður fyrst í
stað til húsa í Glerárgötu 36 en
síðan er gert ráð fyrir að það
verði til húsa í fyrirhuguðu rann-
sóknarhúsi sem rísa á hér á Sól-
borgarsvæðinu.
Aldraðir og ör-
yrkjar mótmæla
Aldraðir og öryrkjar
eína til útifundar á
Ingólfstorgi til að
knýja á um bætt kjör.
Yfirlýsingar ráðherra
gagnrýndar.
Félag eldri borgara í Reykjavík,
Landssamband eldri borgara og
Öryrkjabandalag Islands efna í
dag kl. 16 til fjöldagöngu frá
Hallgrímskirkju og baráttufund-
arfundar á Ingólfstorgi til að
leggja áherslu á kröfur sínar um
bætt kjör aldraðra og öryrkja. Á
blaðamannafundi í gær voru að-
gerðir (og aðgerðarleysi) stjórn-
valda og ummæli einstakra ráða-
manna að undanförnu gagnrýnd.
„Við ætlum á útifundinum að
kynna okkar sjónarmið og við-
brögð við því sem stjórnmála-
menn hafa verið að spila út und-
anfarna daga. Við svörum heil-
brigðis- og tryggingaráðherra um
túlkun hennar á Gallup-könnun-
Landssambands aldraðra.
inni og tilboði hennar um þjóð-
arsátt um kjör aldraðra og ör-
yrkja og tjáum okkur um boð-
skap fleiri stjórnmálamanna,"
segir Benedikt Davíðsson, for-
maður Landssambands eldri
borgara.
Benedikt vísar í gögn Hagstof-
unnar og í staðtölum almanna-
trygginga. „Við setjum upp dæmi
af því kjörtímabili sem er að líða
og þar kemur í ljós að kaupmátt-
ur tryggingabóta hefur hækkað
um rúm 10% á sama tíma og
vísitala meðallauna hefur hækk-
að um 21,9%. Hlutfallslega hafa
því tryggingabæturnar lækkað
verulega á kjörtímabilinu," segir
Benedikt. Hann segir enn frem-
ur að gögn sýni óyggjandi að á ís-
landi sé minna gert fyrir aldraða
og öryrkja en í sambærilegum
Iöndum. „Forsætisráðherra hef-
ur í þeim efnum farið frjálslega
með staðreyndir. Á Islandi fara
7,66% af vergri landsframleiðslu
í málefni aldraðra og öryrkja, en
á Norðurlöndunum er hlutfallið
frá 12 upp í 17,5%. Davíð og
fleiri hafa sagt að þarna vanti inn
í framlag lífeyrissjóðanna og þá
kemur í Ijós að þetta skýrir ekki
einu sinni þriðjunginn af mis-
muninum. Við erum því miklir
eftirbátar annarra, þótt við séum
fimmta ríkasta þjóð í heimi og
teljum okkur búa í velferðarríki,"
segir Benedikt. — FÞG
Atvuinuleysi eykst lítillega
Atvinnuleysi jókst heldur í mars
og mældist 2,5% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði. At-
vinnuástandið versnaði lítillega
alls staðar á landinu nema á
Suðurnesjum og Norðurlandi
eystra þar sem var lítilsháttar
bati, samkvæmt tölum Vinnu-
málastofnunar. Atvinnuleysi
meðal karla var 1,8% en 3,3%
meðal kvenna.
Atvinnulausum fjölgaði að
meðaltali um 7,9% frá í febrúar
en voru mun færri en í mars í
fyrra. Undanfarin 10 ár hefur at-
vinnuleysi aukist um 4% að með-
altali frá febrúar til mars. Árstíð-
arsveiflan nú er heldur meiri en
í meðalári en innan eðlilegra
skekkjumarka, segir.Vinnumála-
stofnun.
Mannabreytingar hjá Frjálsrí
fjölmiðlim
Árni Hauksson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Frjálsr-
ar fjölmiðlunar en hann gegndi áður starfi fjármálastjóra FF. Hlut-
verk aðstoðarframkvæmdastjóra verður meðal annars að hafa umsjón
með fjárfestingum FF í öðrum félögum, þróun nýrra viðskiptatæki-
færa, gerð og eftirfylgni rekstraráætlana FF og samskipti \ið tengd
félög. Við starfi Árna sem fjármálastjóri tekur Ingunn Bernótusdótt-
ir. Þá hefur Auður Guðmundsdóttir verið ráðin markaðsstjóri Frjálsr-
ar fjölmiðlunar.
Brittanica fyrir íslendinga
Islendingar munu geta nýtt sér Encyclopædiu Brittanicu á Netinu í
framtíðinni. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að frumkvæði Björns
Bjarnasonar menntamálaráðherra að undirrita samning þar um.
Eingreiðsla gegn fram-
kvæmd tilraimasamnings
Engin niðurstaða féldkst á fundi kjaramálahóps
grunnskólakennara í Reykjavík með borgarstjóra í
gærmorgun. Valdór Bóasson, formaður kjaramála-
hópsins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri, eru þó sammála um að fundurinn hafi verið
gagnlegur og skilað mönnum áleiðis.
„Við fórum yfir stöðuna og sjónarmið voru skýrð.
Mín skilaboð voru þau að eingreiðsla komi til greina
ef tilraunasamningarnir komast til framkvæmda. Við
erum ekki í kjaraviðræðum, en eingreiðsla er til um-
ræðu og þá verðum við að sjá fram á að þessi tilraun
verði gerð,“ segir borgarstjóri. — FÞG
Ingibjörg Sól-
rún: Upphæð
eingreiðslunnar
til umræðu.
Samkomulag um greidslur í þróunar-
sjjóð EFTA
Náðst hefur samkomulag um greiðslur Islendinga í þróunarsjóð
EFTA en deilt hefur verið um þær greiðslur að undanförnu. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra greindi frá því á ríkisstjórnarfundi í
morgun að samkomulag hefði náðst og munu Islendingar greiða 90-
100 milljónir króna á ári næstu fimm árin, en það er svipað og und-
anfarin ár.