Dagur - 21.04.1999, Side 10
10- MIBVIKVDAGUR 21. APRÍL 1999
SMÁAUGLÝSINGAR
Kartöflur__________________________
Höfum til sölu kartöfluútsæði.
Kartöflusalan ehf., Óseyri 2, Akureyri, sími
462 5800.
Hey til sölu
Til sölu vel verkað hey í litlum rúllum.
Upplýsingar í síma 566-7007 eða 854-9507.
Fundir
□ Rún 5999042119 M
Gisting í Danmörku
Bjóðum gistingu í rúmgóðum herbergjum
á gömlum bóndabæ aðeins um 6 km frá
Billund flugvelli og Legolandi.
Uppbúin rúm og morgunverður.
Upplýsingar og pantanir gefa Bryndís og
Bjarni í síma (0045) 75 88 57 18 eða 20 33
57 18. Fax 75 88 57 19. E-mail bjons-
son@get2net.dk. www.come.to/billund.
Pantið tímanlega.
Ökukennsla_________________________
Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class
(litla Benzinn).
Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan
daginn, á kvöldin og um helgar.
Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari
Þingvallastræti 18
heimasími 462 3837,
GSM 893 3440.
Kirkjustarf ______________________
Glerárkirkja Akureyri
Hádegissamvera í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 12-13. Léttur málsverður
á eftir.
Akureyrarkirkja
Mömmumorgnar í Safnaðarheimilinu milli ki
10-12.
Bægisárkirkja
Hátíðarguðs)3jónusta verður I Bægisárkirkju
á sumardaginn fyrsta kl. 14.00. Kór kirkju-
nnar syngur. Organisti Birgir Helgason.
Ferming og altarisganga. Fermdur verður
Hjalti Þórhallsson, Staðarbakka, Hörgárdal.
Sóknarprestur.
Annað_________________________
Minningarkort um Einar Benediktsson frá
Stöðvarfirði fást hjá Kristrúnu Bergsveins-
dóttur, Höfðahlíð 14, Akureyri.
Minningarkort Slysavarnafélags íslands
fást á skrifstofu félagsins. Kortin eru send
bæði innanlands og utan og hægt er að
styrkja hvaða björgunarsveit eða slysa-
varnasveit innan félagsins. Gíró- og
greiðslukortaþjónusta. Slysavarnafélag Is-
lands, Grandagarði 14, sími 562-7000.
Minningarkort Akureyrarkirkju fást í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju, Blómabúðinni
Akri og Bókvali.
Minningar- og tækifæriskort Styrktarfé-
lags krabbameinssjúkra barna fást hjá fé-
laginu I síma 588 7555. Enn fremur hjá
Garðsapóteki, sími 568 0990, og víðar um
land.
Minningarkort Umhyggju, félags til
stuðnings sjúkum börnum, fást I síma 553
2288 og hjá Body Shop, sími 588 7299
(Kringlan)/561 7299 (Laugavegur 51).
Minningarkort Krabbameinsfélags Akur-
eyrar og nágrennis eru seld á eftirtöldum
stöðum: Blómabúðinni Akri, Blómabúð Ak-
ureyrar, Blómavali, Bókabúð Jónasar, Bók-
vali, Möppudýrinu og Islandspósti.
AL-ANON
Samtök ættingja og vina
alkohólista.
Er áfengi vandamál I þinni fjölskyldu?
Ef svo er getur þú í gegnum
samtökin:
- Hitt aðra sem glíma við
samskonar vandamál
- byggt upp sjálfstraust þitt.
- bætt ástandið innan fjölskyldunnar.
- fundið betri líðan
Fundarstaður:
AA húsið, Strandgötu 21, Akureyri,
sími 462 2373.
Fundir í Al-Anon deildum eru:
Miðvikudaga kl. 21.00 og
laugardaga kl. 11.00
(nýliðar boðnir velkomnir kl. 10.30)
DÓMS- OG KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Kjörskrár vegna alþingis-
kosninga
Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara laugar-
daginn 8. maí 1999 skulu lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn
28. apríl 1999.
Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum
hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega. Kjörskrá skal
liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að
senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Athygli er vakin á því að
sveitarstjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef
við á.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 20. apríl 1999.
Furðublóm í
fjöllum Kína
Laugardaginn 24. apríl kl. 16.00 verður fræðslufundur í
Græna hattinum, Hafnarstræti 96, Akureyri.
Davíð Hjálmar Haraldsson segir í máli og myndum frá
blómaskoðun í Himalajafjöllum í Yunnan í Kína.
Ókeypis aðgangur.
Garðyrkjufélag Akureyrar
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÝRLEIF JÓNSDÓTTIR MELSTAÐ,
frá Hallgilsstöðum, Hörgárdal.
Áður til heimilis að Lönguhlíð 8, Akureyri,
er lést fimmtudaginn 15. apríl verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
23. apríl 1999 kl. 10.00 fyrir hádegi.
Ragnheiður Ólafsdóttir, Kristján Pétursson,
Pétur Ólafsson, Helga Ingólfsdóttir,
Þorbergur Ólafsson,
Ágústa Ólafsdóttir, Guðmundur Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ferð í Baugasel
Feröafélagið Hörgur efnir til gönguferðar í
Baugasel í Barkárdal á morgun, Sumardaginn
fyrsta. Leiðin er um 7 kílómetrar hvora leið. Menn
geta gengið á skíðum, eða klofað snjóinn laus-
fóta (og auðvitað geta menn reynt sig á vélsleð-
um eða jeppum).
Hittumst við Baug í Hörgárdal kl. 12. Allir eru vel-
komnir, ekkert þátttökugjald. Hafið með nesti og
klæðið ykkur í samræmi við veður.
Upplýsingar hjá Bjarna í síma 462-6824.
Ferðafélagið Hörgur
Stjórnarkjör
Eining - Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um menn í
stjórnarsæti varðandi kjör stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið
1999/2000 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.*
Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum formanni, varaformanni,
ritara og gjaldkera ásamt 65 manns í trúnaðarráð, tveimur skoðun-
armönnum og einum til vara eða tillögur um menn í eitthvert,
einhver eða öll stjórnarsætin, sem kjósa skal til. Hverjum framboðs-
lista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra
félagsmanna.
Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14
eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 28. apríl 1999.
Akureyri 19. apríl 1999.
Stjórnir Verkalýðsfélagsins Einingar og Iðju félags verksmiðjufólks.
* Samkvæmt lögum hins sameinaða félags.
- Miðvikud. 21. apríl kl.20
- Föstud. 23. apríl kl.20
- Laugard. 24. apríl kl.20
- Föstud. 30. apríl kl.20
- Laugard. 1. maí kl.20
Allar sýningar
seldust upp!
Þess vegna komum
við aftur.
- Sunnud. 2. maí.
kl. 12.00
- Sunnud. 2. maí.
kl. 15.00
- Sunnud. 2. maí.
kl. 18.00
Miðasala: 462-1400
Miðasalan er opin þriðjudaga til
föstudaga kl. 13-17 og fram að
sýningu sýningardaga.