Dagur - 21.04.1999, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
50.000 á guðsþjónustu í Belgrað
JÚGÓSLAVÍA - 50.000 manns tóku þátt í guðsþjónustu í þágu frið-
ar sem haldin var í Belgrað, höfuðborg Júgóslavíu, í gær. Pavle, patrí-
arki serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, og Alexei II., patríarki rúss-
nesku rétttrúnaðarkirkjunnar, fluttu messuna í sameiningu. Alexei
II. gerði sér sérstaka ferð til Júgóslavíu í gær til þess að taka þátt í
messuhaldinu, og síðar um daginn fór hann á fund Slobodans Milos-
evic, forseta Júgóslavíu. Alexei fordæmdi loftárásir Atlantshafsbanda-
lagsins og sagði þær lögleysu eina.
Jeltsíu vill ekki Júgóslavíu
í baudalag
RÚSSLAND - Boris Jeltsín tók í gær af skarið og
sagði enga ástæðu til að hraða ákvörðun um það
hvort Júgóslavía verði tekin inn f ríkjabandalag
Rússlands og Hvíta-Rússlands, eins og stjórnvöld
í Júgóslavíu hafa óskað eftir. Varaði Jeítsín við því
að flanað verði að neinu varðandi það og sagði
jafnframt að gæta þyrfti þess að Rússland missi
ekki tengsl sín við „forysturíki" heims.
Hrylliugssögur frá Kosovo
JÚGOSLAVIA - Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) skýrði
frá því í gær að samkvæmt heimildum, sem taldar eru áreiðanlegar,
hafi Serbar framið mannréttindabrot af verstu tegund á albönskum
íbúum Kosovohéraðs. Fullyrt er að Albanir hafi verið skornir á háls,
auk þess sem nef, fingur, hendur og fætur hafi verið skorin af fólki,
og brjóst af konum. Þá skýrði flóttamannastofnun Sameinuðu þjóð-
anna (UNHCR) frá því að flóttamannastraumurinn frá Kosovo væri
nær stöðvaður og virðist sem Serbar hafi snúið flóttafólkinu frá
landamærunum. Ekkert er vitað hvað orðið hefur um tugþúsundi
flóttamanna sem vitað var að voru á leiðinni til landamæranna. Þeir
örfáu Kosovo-Albanir, sem komu yfir albönsku Iandamærin, skýrðu
frá því að þeir hefðu nánast enga aðra flóttamenn séð á leiðinni til
landamæranna.
Boris Jeltsín.
Washington í hers höndnm
Miðborg Washington-
horgar verður í raun
lokað af öryggisástæð-
iiiii vegna hálfrar ald-
ar afmælis NATO á
föstudag.
Á morgun, föstudag, koma ráða-
menn Atlantshafsbandalagsins
(NATO) saman í Washington til
þess að fagna hálfrar aldar afmæli
samtakanna. Afmælið er haldið í
skugga stríðsins í Júgóslavíu og
verða öryggisráðstafanir meiri en
áður hefur þekkst þar í borg.
Ekki reiknað með því að ferða-
menn leggi margir leið sfna til
Washington í því skyni að fylgjast
með afmælishátíðinni, því þangað
verður engum hleypt inn sem
óviðkomandi telst. Stór hluti mið-
borgarinnar verður beinlínis lok-
aður af og lögreglusveitir,
sprengjuleitarsveitir og sérsveitir
af ýmsu tagi verða áberandi.
Vegna stríðsins í Kosovo var
ákveðið að hætta við stóra úti-
samkomu, en í staðinn hittast
leiðtogar NATO-ríkjanna á fundi
þar sem ástandið í Kosovo verður
rætt.
Þjónustustarfsemi af ýmsu tagi
í miðborginni liggur niðri af ör-
yggisástæðum. Meðal annars
verður níu af söfnum Smithsoni-
an-stofnunarinnar lokað á föstu-
dag, en það heyrir til algerra und-
antekninga því það er yfirleitt
opið alla daga ársins, nema á jóla-
dag. Þijú vinsælustu söfnin verða
þó opin á föstudag, en það eru
Flug- og geimferðasafnið, Nátt-
úrusögusafnið og Bandaríska
sögusafnið. Þá verður öllum skól-
um í miðborginni Iokað. - GB
1
Vegna aukinna umsvifa óskar
Kexsmiðj an ehf. eftir að ráða fólk
til framtíðarstarfa
Kexsmiðjati ehj. hóf statfsemi árið 1996 með framleiðslu á smákökum og piparkökum. I dag er
framleiðslan um 45 tonn á mánuði, dreifikefið nær yfir allt landið og vöruúrvalið samanstendur m.a.
af heilsukexi, súkkulaðikexi, snúðum, mófftns og súkkulaðibitakökum, auk upprunalegrarframleiðslu
á smákökum og piparkökum. Framleiðsla okkar miðar að þvi bjóða kökur og kex, bakað eftir
heimilisuppskriftum;gott og ríkulegt bragð úr bestu fáanlegu hráefnum.
Nú óskum við eftir að ráða til starfa:
• Bakara sem hefur áhuga á að taka þátt í framleiðslu og þróun gæðavöru.
• Starfsfólk til framleiðslustarfa, jákvætt og reglusamt, sem hefur
áhuga á aðtaka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins.
Umsóknarfrestur ertil 23.4.1999.
Frekari upplýsingar um
störfin veitir Ingólfur
Gísfason í síma 461 4000
smiðjan y
Umsóknum skal skilað til:
Kexsmiðjunnar ehf.,
Hvannavöllum 12
Pósthólf 326,602 Akureyri eða
I netfang kexmidjan@kexsmidjan.is
finndu frelsið í fordfiesta
á aðeins milljón og tólf
www.brimborg.is
NQKIA
5110
' V -'-v.-W « •• -,«•