Dagur - 21.04.1999, Side 12
lillill *111 Ilil1 .■■>■«■ ■■■ IJ ■ ■ I ■■■■ ■ ■ ■■■■■ ■ «■■■■»I ■ ■■« ■ ■ ■■■ ■ ■ ■ ■■■ I n i n 11111 n 1111111 ttti m i n mmmrmmn n nmiij
12 - MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
lavita;
É BELLAJ
Simi 462 3500 • Hóiabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
■5*3 k ym yI JL
■ é!é
ÍÞRÓTTIR
Ronaldo
austursins
Bæjarar ætla að hafa
góðar gætur á
Shevchenko, „Ron-
aldo austursins“, þeg-
ar þeir mæta Dynamo
Kiev í Evrópubikam-
um í kvöld.
Þrefaldir Evrópubikarmeistarar
Bayern Munchen, gera sér mild-
ar vonir um að þeir komist í úr-
slitaleik Evrópubikarsins í sjötta
skipti í sögu félagsins. Til þess
þurfa þeir þó að sigrast á Dyna-
mo Kiev, sem þeir mæta á
heimavelli sínum í Munchen í
kvöld. Þjóðveijarnir sem unnu
Evrópubikarinn 1974, ‘75 og
‘76, náðu 3-3 jafntefli í fyrri
leiknum gegn Dynamo í Kænu-
garði, þar sem þeir jöfnuðu leik-
inn á 90. mínútu. Þessi þrjú
mörk Bæjara á útivelli munu
halda pressunni á Ukraínu-
mönnunum, sem þurfa að leggja
allt í sölurnar til að sigra.
Lizarazu og Elber ekki með
Að undaskildum franska varnar-
jaxlinum Lizarazu og brasilíska
framherjanum Elher, munu
Þjóðveijarnir mæta til leiks með
sitt allra sterkasta lið. Markvörð-
urinn Oliver Kahn er aftur tilbú-
inn í slaginn eftir támeiðsli og
einnig framherjinn Michael
Tarnat. Róðurinn verður því erf-
iður fyrir Dynamo, því Þjóð-
veijarnir eru ekki auðunnir á
heimavelli sínum í Munchen,
þar sem þeir hafa reyndar aðeins
tapað einum leik í vetur. Þeir
verða þó að hafa góðar gætur á
Andrei Shevchenko, sem kallað-
ur er „Ronaldo austursins“, en
hann hefur skorað 17 mörk fyrir
Dynamo í úkrainsku deildinni í
vetur. Hann er fljótur að hegna
fyrir minnstu mistök, en því
fengu Bæjarar að finna fyrir í
fyrri leiknum í Kænugarði, þar
sem hann gerði tvö af þremur
mörkum Dynamo.
Verðum að komast í úxslita-
leikmn
Uli Höness, þjálfari Bayern,
sagði að ef þeim tækist vel upp í
vörninni, þá ættu þeir að vera
nokkuð öruggír með sigur. „Ef
við skorum þá munum við ekki
tapa leiknum. Að komast í úr-
slitaleikinn yrði okkar stærsti
sigur í tíu ár og við verðum
hreinlega að komast þangað,“
sagði Höness.
Hinn 38 ára gamli Lothar
Matthaus segir að Iíkurnar á því
Shevchenko, „Ronaldo austursins“
að þeir komist áfram í úrslita-
leikinn séu 51 á móti 49. „Það
yrði persónulegur sigur fyrir mig
sem elsta leikmanninn í þýsku
úrvalsdeildinni, sem sannaði að
aldurinn væri honum engin
byrði til stórra titla," sagði Matt-
haus.
Líkleg byrjimarlið
Bayern Munchen:
Oliver Kahn, Lothar Matthaus,
Markus Babbel, Samuel Kuffo-
ur, Thomas Strunz, Jens Jer-
emies, Stefan Effenberg, Mario
Basler, Michael Tarnat, Carsten
Jancker og Hasan Salihamidzic.
Dynamo Kiev:
Olexander Shovkovskyi, Oleh
Luzhnyi, Olexander Holovko,
Vladyslav Vashchuk, Kakha
Kaladze, Alexandre Khat-
skevitch, Andrii Husin, Vassyl
Kardash, Artem Iachkin, Serhii
Rebrov og Andrei Shevchenko.
nyjA bio
1
IIIlDOLBYl
D I G I T A L
b
MH
RÁÐHÚSTORGI
SÍMI 461 4666 | HX
PÍG JPJ THF CJTY
Sýnd kl. 17
Sýnd kl. 21
Sýnd kl. 23
Þrjár milljóiiir
fyrir leiMnn
Bjarki Gunnlaugsson hefur verið
grátt leikinn hjá norska úrvals-
deildarliðinu Brann og hefur
ekki verið í leikmannahópi liðs-
ins í fyrstu leikjum þess í úrvals-
deildinni í vor. Hann var keyptur
frá Molde fyrir um þrjátíu millj-
ónir á síðustu Ieiktíð en hefur
aðeins leikið 10 leiki fyrir liðið
og skorað eitt mark. Það þýðir að
Brann hefur borgað um þijár
milljónir á leik fyrir Bjarka, eins
og segir í einu norsku dagblað-
anna. Þetta finnst mörgum
Norðmanninum vitlaus fjárfest-
ing og meðal þeirra er Kjell Ten-
íjord, fyrrum þjálfari og nú fram-
kvæmdastjóri Brann. í sunnu-
dagsblaði Verdens Gang segist
Tenníjord Iíta á Ieikmannakaup
eins og happdrætti. Stundum
vinni maður og stundum tapi
maður. Með kaupunum á Bjarka
telur Tennljord sig hafa tapað,
en segir að Bjarki hafi verið
óheppinn með meiðsli.
Þess má geta að Bjarki Gunn-
laugsson var markahæstur leik-
manna Brann á La Manga mót-
inu í vetur og þótti standa sig vel.
Því kemur staða hans í dag veru-
lega á óvart. En valið á liðinu
segir kanski allt sem segja þarf
um stjórnendur þess. Brann var
Úrktippa úr Verdens Gang, þar
sem fjallað erum kaupin á Bjarka
Gunnlaugssyni.
spáð í toppbaráttuna fyrir Ieik-
tíðina en nú hafa leiðtogarnir
komið því í botnbaráttuna, með
ekkert stig og markatöluna 1 -8
Njarðvík tryggði
sér oddalem
Njarðvíkingar tryggðu sér í gær-
kvöld oddaleik í úrslitaeinvíginu
um Islandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik karla, þegar þeir
sigruðu Keflvíkinga með 19 stiga
mun 91-72.
Keflvíkingar gátu með sigri
tryggt sér meistaratitilinn, en
Njarðvíkingar mættu ákveðnir til
leiks og höfðu uáð 22ja stiga for-
skoti í hálfleik 48-26.
Það var augljóst strax í upphafi
leiks að Njarðvíkingar ætluðu sér
sigur og Friðrik Ingi Rúnarsson
hefur auðsjáanlega messaðO
rækilega yfir sínum mönnum eft-
ir tapleikinn á sunnudag.
Hreinn úrslitaleikur liðanna fer
fram á morgun klukkan 20:00 í
Keflavík og þar má vænta hörku-
viðureignar þessara frábæru liða.
Njarðvíkingar unnu yfirburðasigur í
gærkvöld.
FH-ingar jöfn-
uðu metin
FH og Afturelding léku £
gær annan leikinn f úrslita-
einvíginu um Islandsmeist-
aratitilinn í handknattleik
karla og fór leikurinn fram í
Kaplakrika. FH-ingar unnu
öruggan fimm marka sigur
27-22, eftir að Afturelding
hafði náð 2ja marka forskoti
í hálfleik 9-11.
Úrslit í gærkvöld
Enski boltinn:
Charlton - Tottenham 1 -4
I fyrrakvöld:
Arsenal - Wimbledon 5-1
Evrópukeppni félagsliða:
Parma - Atletico Madrid 2-1
Parma tryggði sér þar með
réttinn tií að leika til úrslita
í keppninni gegn franska
liðinu Marseille.