Alþýðublaðið - 09.02.1967, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.02.1967, Blaðsíða 8
 ntnmwwiwommmj ■•. wi<|WI|% — AðsúTkn iað- heimavist Menntaskólans á Akureyri er álltaf mikil og ekki er útlit fyrir minni aðsókn í ár en endranær. Undanfarin ár hefur ekki verið hægt að taka á móti alveg öllum sem hafa sótt um húsnæði, en hingað til hefur ekki þurft að synja um fæði. Ekki er hægt að segja endan lega um, hve mikið verður hægt að taka inn af nýjum nemend um, fyrr en athugað hefur ver ið hverjir núverandi nemenda ætla að vera áfram í fæði eða búsnæði. Þetta kom fram í stuttu við tali, sem Alþýðublaðið átti ný- lega við Steindór Steindórsson, settan skólameistara MA og hann sagði ennfremur: — í skóianum eru í vetur um 500 nemendur, oig af þeim eru 220 í heimavistunum og 330 borða í mötuneytinu. Auk nýja heimavistarhússins, sem byrjað var að taka í notkun árið 1949, hefur Hótel Varðborg verið haft á leigu undanfarna tvo vétur, og útlit er fyrir áframhaldi á þeirri Ieigu, vegna hinnar miklu aðsóknar, sem Nýja vistin getur ekki ein annað. — Næsta vetur verður byrjað á byggingu raunvísindahúss hér á lóðinni vestan við leikfimihús ið. í hinu nýja húsi verða 8 Aflab báta Sjósókn var víðast erfið í fjórðungnum í janúarmánuði, en nokkuð jafn og góður afli, þegar gaf til róðra. Er heild araflinn í mánuðinum 3004 Iestir, en var 2384 lestir á sama tíma í fyrra. Hefir bor izt álíka eða meiri afli á land í öllum verstöðvunum, ncma Flateyri, þar sem aflinn er verulega minni. 30 bátar stunduðu veiðar með línu í mánuðinum. Neta bátarnir voru einnig allir til- búnir og 9 þeirra voru byrjað ir. Hafði þeim gengið mis- jafniega og flestir fengið lít- inn afla Afli iínubátanna var 2664 lestir í 445 róörum eða um 6,0 lestir að meðaltali í róðri. Aflahæsti báturinn í fjórðungnum var Guðbjartur Jíristján, ísafirði, með 161,5 lestir í 19 róðrum en í fyrra voru Einar Hálfdáns, Bolunga vík, og Jón Þórðarson, Pat- reksfirði, aflahæstir með 126,0 lestir í 19 og 17 róðrum Heildaraflinn í hverri verstöð í janúar 1967 (1966 í svigum). lestir lestii Patreksfjörður 294 ■ (319 Tálknafjörður 187 (62 g 9. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Framhald á 10. síðú. Opið hús. Hér er unað við bob og knattspyrnuspil. ÍSAFOLD Á AKUREYRI Nú eru liðnir meira en átta áratuigir frá stofnun fyrstu stúk imnar hérlendis. Þessi stúka hlaut nafnið ísafold og númerið' eitt. Skyldi þetta gamla bindindis félag starfa ennþá? Já, svo sann arlega er það enn við lýði, og hefur starfsemin aldrei verið blómlegri. Fundir eru haldnir hálfsmánaðarlega alit árið og eru þeir yfirleitt vel sóttir. En auk beinnar félagsstarf semi er margt á döfinni hjá þeim stúkunnarmönnum á Akur eyri. í samvinnu við hinar stúk urnar á staðnum reka þeir ým is fyrirtæki. Við Akureyrarflug völl reka þeir veitingastofu, svo nefnt Flugkaffi. Við Geislagötu er Hótel IOGT, öðru nafni Varð borg. Það starfar á sumrin sem hótel, en á vetrum sem heima Dregiö í happ- drætti Hjálparsjóðs æskufólks Ðregið hefur verið í happdrætti ,,Hjálparsjóðs æskufólks”. — Þessi númer hlutu vinning: 364 589 709 1 51 110 120 367 499 580 588 634 651 675 676 853 881 899 952 1121 1138 1159 1299 1317 1336 1547 1600 1650 1707 1746 1819 1937 2277 2376 2416 2596 2747 2936 3038 3152 3173 3271 3465 3586 3639 3700 3749 3805 3960 3961 4011 4068 4319 4518 4522 4776 4779 5001 5018 5069 5164 5250 5415 5495 5500 5501 5592 5836 6225 6239 6361 6367 1 6387 6398 6462 6922 7037 7045 7115 7507 7511 7546 7583 vist fyrir menntaskólanema. í sama húsi er Borigarbíó, sem er annað af tveim bíóhúsum á Ak ureyri. Nú er mikill stórhugur í templurum nyrðra, því að þeir eru að byggja við þetta hús sitt. Fyrst er stækkun hótelsins um 16 rúm og verður þessi viðbót tilbúin næsta vor. Þá er áætl að að byggja nýtt bíó fyrir 500 manns, en þá verður gamli bíó salurinn gerður að samkomu- húsi fyrir stúkurnar. Það nýjasta í starfsemi Góð- templara á Akureyri er Æsku lýðsheimili IOGT. Tekið hefur verið á leigu 5 herbergja hús næði að Kaupvangsstræti 4. Þarna var fyrst opið fimmtudag inn 24. nóvember sl. og hefur starfsemin gengið vel. Oft hafa verið samankomnir þarna 30 — 40 unglingar 13 ára og eldri, en starfsemin er miðuð við þann aldur. Svonefnt opið hús er þris var í viku, kl. 8—10 á kvöldin Þá eru ýmis leiktæki til afnota svo sem borðtennis, bob, spil og töfl, og auk þess fróðlegar bækur og ýmis rit. Þar eru og sýndar kvikmyndir af og til. Barnabókasafn IOGT hefur flutt í þetta húsnæði, og er þar opið einu sinni í viku. Að sókn að safninu hefur verið prýðileg, enda er þar margt góðra bóka. Einnig eru þarna ijósmyndaklúbbur og flugmódel kiúbbur á vegum IOGT og fönd urnámskeið á vegum Æskulýðs ráðs Akureyrar. Meðfylgjandi myndir eru frá starfsemi Æskulýðsheimilis IO GT á Akureyri. — jr. Þeir eldri geta líka brugðið á leik. Hér er forstöðumaðurinn, Sveinn Kristjánsson, að spila borðtennis við annan stúkumann. Úr Ijósmyndaklefanum. Tveir ungir menn niðursokknir í skák. 6365 6556 7336 7511 7546 7583 7625 7783 7786 8128 8347 8357 9003 9145 9244 9267 9315 9317 9360 9438 9470 9548 9580 9639 9647 9692 9705 9707 9721 11094 11467 11705 11760 12005 12364 12380 12745 12995 12997 13846 13915 14037 14039 14258 14264 14370 14446 14854 15056 115151 15407 15491 15556 15590 15701 15939 15946 16162 16292 16346 16867 17055 17324 17453 17457 17463 17731 17745

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.