Alþýðublaðið - 09.02.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.02.1967, Blaðsíða 3
Mótmælð takmörk- un á innflutningi veiöarfæra Aðalfundur Útvegsbændafélags Keflavíkur var haldinn 4. febrúar 1967, mótmælir þeim ráðstöfun- um, sem gerðar hafa verið í þá látt að takmarka innflutn|ng á veiðarfærum. Fundurinn telur, að í mörgum tilfellum þýði þessar ráðstafanir allt að 40% hækkun (i ve(iðarfærum. Fundurinn vill benda þeim, sem að þessum ráð- stöfunum standa á að kynna sér vel nefndarálit það, sem fjallar um vandamál bátaflotans og lagt var fram á Alþingi á síðastliðnu hausti. Einnig telur fundurinn, að allar liækkanir á hendur útveg- inum séu ekki i samræmi við verð istöðvunarstef-nu ríkisstjórnarinn- ar. Rausnarleg gjöf til slysavarna Hinn 8. jan. sl. barst slysavarna deildinni ,,Skagfirðingasveit“ myndarleg peningagjöf frá erfingj um Gísla heitins Gíslasonar frá Lágmúla ,að upphæð 26217,76 kr. Gjöfin er tij minningar um for- eldra Gísla heitins, hjónin Gísla Jónsson og Þóru Jóhannsdóttur frá Lágmúla á Skaga. Forgöngu um að erfðaféð rynni •til ,,Skagfirðingasveitar“ hafði frú Guðrún Sveinsdóttir, Öldugötu 17 Reykjavík. Stjórn slysavarnadeildarinnar þakkar þessa höfðinglegu gjöf og þann hlýhug, sem á bak við hana felst. 39 deyja aí völdum snjóa NEW YORK, 8/2 (NTB-Reuter) — Stórborgin New York var líkust i hcimskautasvæði í dag, og ástand- ið er sízt skárra í stórum hluta austurstrandar Bandaríkjanna eft- ir liina gífurlegu fannkomu síð- ustu da^a. 39 manns hafa beðið hana í fárviðrinu, niargir vegna áreynslu við snjómokstur. í New York féll 35 cm snjór, í Washing- ton 25 og í Boston 22 cm. í Fíladelfíu, þar sem frostið mældist 10 stig, var gerð tilraun með vél, sem bræða á snjóinn þannig að daéla má vatninu niður um holræsin., En tilraunin fór út um þúfur þar sem vatnið fraus í vélinni áður en hægt var að dæla því burtu. Í New York var frostið 14 stig og hafa skólar verið lokað- ir í tvo daga. Þvisundir manna, sem komust ekki til heimila sinna í úthverfunum urðu að gista á hótelum, sem voru yfirfull. Á öskudaginn voru haldin mörg grímuböll eins og siður hefur verið undanfarin ár. All- ir dansskólarnir halda sín grímuböll og hafa börnin eytt í það mörgum stundum fyrir ballið að útbúa búningana sína sem margir cru hinir nýstár- legustu. Við heimsóttum á öskudag- inn Sigtún, en þar hélt Dans- skóli Sigvalda sín grímuböll. Þegar við komum voru þar börn á aldrinum 7 — 11 ára, en fyrr um daginn höfðu 2 — 6 ára börn haldið sitt ball og um | kvöldið var svo ball fyrir tán- ingana. ■ Mikið var af skemmtilegum og nýstárlegum búninigum að sjá þarna. Nokkrar telpur höfðu brugðið sér í kattar- ham og kisurnar þær voru svo sannarlega snotrar, ein var með rauða svuntu og rauða slaufu um hálsinn og hafði málað á sig stór og mikil veiðihár. Ali margar spiladrottningar voru þarna, prinsessur og tatara-' stúlkur og drengirnir voru líka í fjölskrúðugum búninig- um, þarna voru indíánar, kú- rekar, prinsar o.fl. og 1. verð laun fyrir bezta búning fékk stúlka, sem var skreytt blöðr- um í öilum litum, og fékk hún badminton-sett í verðlaun. Sömu verðlaun fengu Indíáni og telpa í einhverskonar rauð- hettubúningi, en þeirra búning- ar þóttu næstbeztir. Þau eru að dan 3a Hoppje.popple. Börnin dönsuðu mikið, enda öll auðsjáanlega orðin æfðir dansarar og efnt var til keppni í að dansa Hopple-popple, en þann dans dansa fjórir. Telpur urðu sigursælastar í Hopple- popple og fengu þær konfekt- kassa í verðlaun. Við birtum hér með nokkrar myndlr af grímuballinu í Sig- túni oig sýna þær nokkra af þeim skemmtilegu grímubún- ingum, sem börnin höfðu búið sér til. Á einni myndinni sjáum við krakkana dansa Hopple-popp- le dansinn sem virtist vera mjög vinsæll meðal þeirra og var mikil þátttaka í danskeppninni, Á hinum myndunum sjáum við svo þrjár telpur í grímubún- ingum, tvær spiladrottningar og svo þá, sem fékk 1. verðlaun fyrir búninginn sinn. JTvær spiladrottningar, hjartadrottning og spaðadrottning. Hún fékk verðlaun fyrir bezta búninginn, Ingunn Blöndal. 9. febrúar 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.