Alþýðublaðið - 09.02.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 09.02.1967, Blaðsíða 16
rAT EO£®C® Eilífur snjór í augu mín Það gerast stundum mikil tíð- indi, án þess að þeim sé veitt nein veruleg eftirtekt. í Alþýðu- blaðinu í gær segir í lítilli frétt, sem að vísu er á forsíðu, en þó ekkert sérstakt veður gert út af, að mikil snjókoma hafi verið á austurströnd Bandaríkjanna. Seg- ir þar, að fannfergið hafi verið svo mikið, að ekki hafi sézt á milli skýjakljúfa í New York.- Minnist baksíðan þess ekki að hafa heyrt getið um slik snjóa- lög fyrr, því að enga smáskafia þarf til að byrgja hæstli hús í hcimi, eins og þarna virðist hafa átt sér stað, ef orð blaðsins eru tekin bókstaflega. Það fylgir ekki sögunni, hvern- ig íbúum borgarinnar brá við þessi ósköp, en þeir hafa .sjálf- sagt orðið að brölta áfram undir tugmetra djúpum sköflum. Að vísu segir í fréttinni að márgir bílar hafi setið fastir, og verður það að teljast' eðlilegt miðað við Eysteinn Jónsson Lausamjöll í skafla skefur, skýjaþykkni byrgir sjón. Hoppar á snjónum hrafn. Og refur hræ úr urð og klaka grefur. Snjótittlingar flögra um frón. Fram og aftur er Eysteins ganga, einn á skíðum halur fer. Grimmdarstormur gnýr um vanga, grýlukerti úr nefi hanga. Hina leiðina hvergi sér. / aðstæður. Hins vegar hlýtur sitt- hvað fleira að hafa festst, til dæmis getur ekki hjá því hafa farið, að erfitt hafi verið að komast út úr neðstu hæðum sumra skýjaklúfanna, en þá liafa menn ef til vill brugðið á það ráð að grafa sig skáhallt upp frá þakinu, og má vera, að það hafi orðið einhverjum til bjargar. En í fréttinni segir sem sagt ekkert um þetta, og hefði það þó ekki verið ófróðlegt að fá að vita, hvernig ibúar milljónaborgar brugðust við svona miklu fann- fergi. Þessi vöntun í fréttina ér sér- staklega bagaleg fyrir íslenzka lesendur, því að við búum í norð- lægu landi, á mörkum hins byggi- lega heims, eins og stundum er sagt í ræðum. Hér geta komið vetrarveður mikil og þess eru ó- fá dæmi að hér hafi stundum kyngt niður snjó, þótt það hafi raunar aldrei verið í jafnmiklum mæli eins og vestur í Ameríku núna. En það vita allir að allt er mest í Ameríkunni, og þess vegna er sjálfsagt ástæðulaust að óttast að fannfergi verði nokkurn tím- ann jafnmikið hér og var þar núna síðustu dagana. En þótt hér festi ekki nema helminginn af þeim snjó, sem lagðist yfir. New York borg, þá er hætt við að það ganti haft ófyrirsjáanlega erfiðleika í för með sér. Er þar fyrst að telja, að hús hér á landi eru yfirleitt heldur lágvaxin, þannig að mörg- um sinnum minni snjó þyrfti til að færa þau í kaf en skýjakljúf- ana vestra, og þess vegna hlyti það að verða óhemju mokstur að moka sig upp frá jafnvel alhæstu húsum hérlendis, ef við yrðum fyrir þessu. Á hinn bóginn ætti þetta að geta létt nokkuð á hita- veitunni, því að það vita allir, sem legið hafa í fönn, að þár get- ur verið furðu hlýtt og sýnir þetta að fátt er svo með öllu illt, að ekki fylgi því nokkuð gott. En það hefði sem sagt getað orðið lærdómsríkt fyrir íslenzka lesendur að fá að vita nánar um viðbrögð manna við öllum þessum snjó, og skal þess vegna ítrekað hér, að það er skaði að í frétt- inni skyldi ekki nánar frá þeirri hlið málsins sagt. Sé sögnin uin rýrt ástarmagn íslenzkra manna rétt, þá er líklega ekki nema gott eitt um það aö segja, að hin upp- vaxandi kynsióð leiði sjón- um erlendar fyrirmyndir af þessari gerð, ef það mætti verða til að slá henni þann eld í hjarta sem logað hefur í daufara lagi með fyrri kyn- slóðum. Morgunblaðið Það er nú einu sinni svo að maður gat alltaf fengið svo miklu meira fyrir peningana á þeim tíma sem maður átti þá ckki til. . . Þér eruð ráðnar hér, ja, þangað til konan mín hefur séð yöur. Kalli.in segist yngjast um mörg ár þegar liann tekur inn lýsið á morgnana. Þá spurði kellingin hversvegma hann tæki það ekki inn á kvöldin. Stúlkur geta alltaf talað of Þið getið nú farið að slappa af. Baygjunum lýkur eftir bara fimmtíu mikið, jafnvel þótt þær segi kílómetra, ekki nema lítið nei.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.