Dagur - 01.05.1999, Page 5

Dagur - 01.05.1999, Page 5
Xk^iir LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 - S FRÉTTIR Kristján Þór Júlíusson: Ólögleg vinnustöðvun hjá tónlistar- kennurum. Ólögleg aðgero Vinnustöðvun tónlistarkennara á Akureyri í fyrradag kom bæjar- stjóra, Kristjáni Þór Júlíussyni, í opna skjöldu og frétti hann ekki af henni fyrr en nokkrum klukkustundum eftir að hún varð að veruleika. Vegna óá- nægju með kjaramál lögðu kenn- arar Tónlistarskólans á Akureyri niður vinnu um klukkustundar skeið. Þeir nýttu tímann til að ræða framtíðina, en að þeirra sögn eru miklar líkur á hrinu uppsagna ef ekki næst sam- komulag við bæinn um kjarabæt- ur. „Kennarar verða að gera þetta upp við sjálfa sig en það gilda ákveðin samskiptaform á vinnu- markaði og þessi framkoma fell- ur ekki undir það. Eg frétti ekki af þessu fyrr en í gærkvöld [fyrrakvöld] og þetta kom mér á óvart. Þetta er ólögleg aðgerð og lítið meir um það segja,“ segir bæjarstjóri. - Bt> Verksmiðja sem vinn- ur efni úr rækjuskel til nota í matvæla- og lyfjaframleiðslu var opnuð á Siglufirði í gær. Ný kítinverksmiðja sem er í eigu Þormóðs ramma, SR mjöls og líftæknifyrirtækisins Genís hóf formlega störf á Siglufirði í gær. Verksmiðjan mun vinna kítin úr rækjuskel en efni þetta er nýtt meðal annars í matvæla- og lyfja- framleiðslu. Rækjuskelinni hef- ur til þessa verið ekið í sjóinn og hefur verið n'kjandi um nokkurn tíma töluverð óánægja með það að hún skuli menga fjörurnar við Siglufjarðarbæ. Þessi verksmiðja er einstæð í sinni röð í heiminum sakir full- komleika hennar, sagði Krist- björn Bjarnason, rekstrarstjóri Kítins, í gær við opnun verk- smiðjunnar. Ólafur Marteins- son, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma, sagði það ekki síst áhugavert hversu mörg fyrirtæki og stofnanir með háþróaða starf- semi kæmu að Kítini hf. Genís, sem er eins og áður sagði einn hluthafa í Kítini, er meðal ann- ars í eigu lyfjafyrirtækjanna Pharmaco og Delta auk Nýsköp- unarsjóðs atvinnulífsins og Iðn- tæknistofnunar en Ólafur nefndi einnig í þessu sambandi Fjár- festingarbanka atvinnulífsins sem fjármagnar uppbyggingu verksmiðjunnar en sá kostnaður er um 300 milljónir króna. öll rækjan nýtt Verksmiðjan mun skapa allt að 12 störf. Unnið verður á tveimur vöktum en verksmiðjan er í hús- næði sem kallað er Síbería og er í eigu SR-mjöls. í byrjun er gert ráð fyrir að einungis verði unnið úr skel sem fellur til í vinnslu Þormóðs ramma en síðar verður hún fengin víðar að. Um þessar mundir er rækju- kvótinn hér við land um 40 þús- und tonn og hefur farið minnk- andi undanfarin ár. Ólafur Mart- einsson væntir þess að hægt verði að ná skelinni af öllum þessum rækjuafla til vinnslu hjá Kítini og kaupa jafnvel hráefni erlendis frá ef með þarf. Tryggvi Gíslason: Sæmdi tvo ráð- herra æðsta heiðursmerki MA. Davíð og Halldór fá gulluglu Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, og Halldór Blöndal, sam- gönguráðherra, voru í gær sæmdir GuIIuglunni, æðsta heiðursmerki Menntaskólans á Akureyri. Ráðherrarnir heim- sóttu skólann á sama tíma og stjórnarskipti fóru fram á sal og notaði Tryggvi Gíslason, skóla- meistari MA, tækifærið til að heiðra ráðherrana. Hann þakkaði Davíð þann mikla heiður að gefa sér tíma frá annasömu og vandasömu starfi til að heimsækja skólann og tók fram að aldrei áður hafi starfandi forsætisráðherra heimsótt skól- ann. Gulluglan hefur yfirleitt ekki hlotnast öðrum en þeim sem unnið hafa lengi við MA og þyk- ir þetta því nokkrum tíðindum sæta. Davíð sagði reyndar eftir athöfnina að viðurkenningin hefði komið sér algjörlega í opna skjöldu. - AÞM Sj ávarútvegsráð- herra stefnt aftur Sjávarutvegsráðherra hefur verið stefnt í aunað sinn út af kvótákerfmu.Valdi- mar Jóhaimesson aftur að verki. Valdimar Jóhannesson, sem vann frægan sigur í Hæstarétti í kvóta- málinu svokallaða í vetur er leið, hefur nú stefnt Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráðherra vegna þess að hann hafi ekki farið eftir því sem í dómi Hæstaréttar sagði. Samþykkt hefur verið að málið fái flýtimeðferð. Valdimar sagði í samtali við Dag að hér væri í raun um sama mál að ræða og hann vann fyrir Hæstarétti í vetur. Sjávarútvegs- ráðherra hafi haft dóminn að Valdimar Jóhannesson hefur stefnt sjávarútvegsráðherra á nýjan leik vegna kvótakerfisins. engu og hafi í engu svarað óskum hans um leyfi til fiskveiða. Þess vegna sé ekki um annað að ræða en að stefna aftur til þess að fá úr því skorið hvað dómur Hæstarétt- ar þýðir í raun og veru. Dóimiriim ekki virlur I bréfi sem Valdimar sendi ríkis- lögmanni með stefnunni segir efnislega að tilefni málshöfðunar- innar sé að hann telji stjórnvöld ekki hafa virt hinn uppkveðna dóm. Þau hafi eftir að dómurinn gekk beitt sér fyrir því að lög- gjafarvaldið haldi til streitu sama skipulagi og áður í sjávarútvegs- málum í grundvallaratriðum. Þar með sé enn ranglega komið í veg fyrir að hann og aðrir sem ekki njóta forréttinda geti stundað at- vinnu við fiskveiðar nema að upp- fylltum ólögmætum skilyrðum. Enda þótt málið fái flýtimeð- ferð segir Valdimar enga von til þess að það verði afgreitt fyrir kosningar 8. maí. Hins vegar seg- ist Valdimar vonast til þess að Hæstiréttur kveði nú upp dóm sem enginn geti misskilið. - S.DÓR Samið við Vamarliðið um sorpið Sorpeyðingarstöð Suðurnesja náði samkomulagi við Varnarliðið um þátttöku þess í kostnaði við uppbyggingu nýrrar flokkunar- stöðvar og sorpbrennslu og um kaup þeirra á þjónustu frá nýrri stöð. Varnarliðið mun greiða 41% af heildarstofnkostnaði, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Sorpeyðingarstöðinni. Heild- arkostnaður við nýju stöðina er áætlaður 440-480 milljónir króna og er gert ráð fyrir að hún hefji starfsemi fyrir árslok 2001. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja er sameignarfélag sveitarfélag- anna á svæðinu og hefur rekið sorpbrennslu frá 1979. Kröfur um útblástur frá sorpbrennslu- stöðvum hafa verið hertar og þess vegna mun starfsleyfi Sorpeyð- ingarstöðvarinnar renna út í lok ársins 2000. Ekki er talið svara kostnaði að breyta gömlu stöð- inni þannig að hún uppfylli fram- tíðarkröfur. Gert er ráð fyrir nýrri móttöku- stöð fyrir sorp, stóraukinni flokk- un og endurvinnslu og brennslu samkvæmt ýtrustu kröfum um mengunarvarnir. Ný sorp- brennsla tryggir ennfremur að sorp frá Varnarliðinu verði áfram brennt eins og lög áskilja. Ætlun- in er að beita bestu fáanlegu tækni og verða Suðurnesin í far- arbroddi umhverfisvænnar sorp- eyðingar í landinu, segir í til- kynningu frá Sorpeyðingarstöð- inni. Festist á gryimiiigiiiii Gröfustjóri festi gröfuna sína á grynningum í íjörunni í Arnarnesvogi í gær þar sem hann var að vinna við lagnir. Maðurinn hafði ekið gröf- unni upp á grynningarnar um 100 metra frá landi og þar sat hún föst. Það flæddi hratt að henni og þurfti gröfustjórinn að bjarga sér upp á þak og bíða þar þar til slökkviliðsmenn björguðu honum í land. Tal kaupir Islaudia Intemet Tal hefur keypt fyrirtækið Islandia af Islenska útvarpsfélaginu. Is- landia er eitt stærsta Netfyrirtækið hér á landi með ríflega 20% mark- aðshlut á einstaklingsmarkaði. I fréttatilkynningu frá Tali segir að kaupin undirstriki þá framtíð- arsýn fyrirtækisins að tölvutækni og símtækni eru að renna saman í órjúfanlega heild. Islenska útvarpsfélagið á þriðjungshlut í Tali og er það trú fyrirtækjanna að framtíðarstarfsemi Islandia sé best komið í þessum nýja farvegi, að því er segir í tilkynningunni. Nýr framkvæmdastjóri KÁ Óli Rúnar Ástþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kaupfé- lags Árnesinga. Óli Rúnar er framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands en tekur við nýja starfinu á næstu vikum, að því er fram kemur í tilkynningu frá KÁ. Óli Rúnar er 42 ára og fæddur í Vestmannaeyjum en býr nú á Sel- fossi. Hann er hagfræðingur frá Háskóla Islands og með framhalds- menntun í hagfræði frá Michigan háskóla. ÁTVR skaffar 10 milliarða Heildargreiðslur Áfengis- og tóbaksverslunar rík- isins (ÁTVR) til ríkisins á síðasta ári námu 9,8 milljörðum króna og hækkuðu greiðslurnar milli ára um einn milljarð króna eða 11%. ÁTVR skilaði 2,9 milljörðum af hagnaði sínum í ríkissjóð, en aðrar greiðslur í ríkissjóð stöfuðu af tollum, 300 milljónir, áfengisgjaldi, 3,9 milljarð- ar og virðisaukaskatti, 2,7 milljarðar. Varðandi frétt Dags í vikunni um að launakostnaður ÁTVR hefði hækkað um 67% milli ára er þess að geta að af 237 milljóna króna hækkun stöfuðu um 146 milljónir króna af hækkun áfallinna og greiddra eftirlaunaskuldbindinga. - FÞG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.